Morgunblaðið - 09.05.1999, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 E 7
Netþíónusta
Vegna stóraukinna verkefna óskar Nýherji hf. að ráða nú þegar
starfsmenn við almenna netþjónustu. M.a. Microsoft NT,
Novell, Cisco, Lotus Notes, Backoffice.
Sérfræðingur í víðnetum:
Leitað er að verkfræðingi/tæknifræðingi eða umsækjendum
með mikla þekkingu og reynslu á beinum (routerum),TCP/IP
og ISDN.
Sérfræðingur í Microsoft Netkerfum:
Æskilegt er að umsækjandi hafi MCSE gráðu, en það er ekki
skilyrði. Góð þekking á NT og reynsla af Microsoft
hugbúnaðarkerfum er nauðsynleg.
Við leitum að áhugasömum aðilum með þekkingu og reynslu
á umræddum sviðum til starfa við fjölbreytt verkefni.
Viðkomandi þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
i boði eru góð laun, krefjandi og skemmtileg verkefni og góður
starfsandi. Við meðhöndlum allar umsóknir sem trúnaðarmál
og svörum þeim öllum. Umsóknarfrestur er til fös. 1. júní.
Frekari upplýsingar um stöðurnar veitir Símon Þorleifsson í
síma 569 7889 eða í netfangi simonth@nyherji.is.
Umsóknareyðublöð liggja á heimasíðu Nýherja, www.nyherji.is.
Nýherji er eitt öflugasta þjónustufyrirtæki landsins á sviði
upplýsingatækni. Markmið Nýherja er að útvega heildar-
lausnir í upplýsingatækni sem skapa mikinn ávinning fyrir
viðskiptavini.
<o>
NÝHERJI
Skaftahlíð 24 • 105 Reykjavík
Sími: 569 7700 • www.nyherji.is
FJÁRMÁLASTJÓRI
Alþjóðlegt
viðskiptaumhverfi
HHHH
Eitt af stærstu þjónustufyrirtækjum í eigu Islendinga óskar eftir að ráða fjármálastjóra.
Fyrirtækið er í alþjóða viðskiptum og hefur verið í hröðum vexti undanfarin ár. Starfsstöðvar
fyrirtækisins eru víða um heim og er starfsumhverfi þess að mestu á ensku.
.
Starfssvið
• Stjórnun, skipulagning og ábyrgð fjármálasviðs.
• Yfirumsjón með áætlanagerð, kostnaðareftirliti og uppgjörum, arðsemisútreikningum
og ýmsum sérverkefnum í tengslum við rekstur.
• Þátttaka í stefnumótunarvinnu og stjórnunarlegum ákvörðunum.
Menntunar og hæfniskröfur
• Framhaldsmenntun í viðskiptafræði.
• Góð tölvuþekking, frumkvæði og kunnátta til að nýta upplýsingakerfi
sem stjórntæki í rekstri.
• Mjög góð enskukunnátta. Önnurtungumálakunnátta er kostur.
• Hæfileiki til að starfa sjálfstætt sem og í hóp.
• Umsækjendur þurfa að hafa sýnt hæfni sína í krefjandi ábyrgðarstörfum á sviði
fjármála og rekstrar ásamt því að hafa haldgóða stjórnunarreynslu.
j boði er spennandi stjórnunarstarf við frekari uppbyggingu fyrirtækisins.
Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veita Helga Jóhanna Oddsdóttir og Auður Bjarnadóttir
hjá Ráðgarði hf. frá kl. 9-12 í síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs fyrir 25. maí nk. merktar:
„Fjármálastjóri"
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi
Staða
h j ú kr u n a rf o rstjó ra
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarforstjóra
heilbrigðisstofnunarinnar. Um er að ræða nýja
stöðu sem verðurtil vegna sameiningar sjúkra-
húss og heilsugæslu.
Á sjúkrasviði er nú 23 rúma blönduð sjúkra-
deild sem einnig sinnir bráðainnlögnum, einn-
ig nýendurbætt 12 rúma öldrunardeild og 12
vistrýma dvalardeild.
Á heilsugæslusviði starfa þrír hjúkrunarfræð-
ingar, þar af einn við heilsugæslustöð á Skaga-
strönd, íbúafjöldi á starfssvæði stofnunarinnar
er um 2.300.
Þrír læknar starfa við stofnunina.
Umsóknarfrestur er til 4. júní nk.
Nánari upplýsingar veitir Bolli Ólafsson fram-
kvæmdastjóri.
Staða
hjúkrunardeildarstjóra
heilsugæslusviðs
Laus ertil umsóknar staða hjúkrunardeildar-
stjóra heilsugæslusviðs. Um er að ræða nýja
stöðu sem verðurtil vegna sameiningar sjúkra-
húss og heilsugæslu.
Umsóknarfrestur er til 11. júní nk.
Nánari upplýsingar veitir Bolli Ólafsson fram-
kvæmdastjóri.
Staða
heilsugæslulæknis
Laus er til umsóknar staða læknis til lengri eða
skemmri tíma. Um er að ræða stöðu sem skipt-
ist í 65% stöðu á heilsugæslusviði og 35%
stöðu á sjúkrasviði.
Sérfræðiviðurkenning í heimilislækningum
æskileg.
Nánari upplýsingar um störfin veita Páll N.
Þorsteinsson yfirlæknir og Bolli Ólafsson fram-
kvæmdastjóri.
Hjúkrunarfræðingar —
sumarafleysingastörf
Laus er staða hjúkrunarfræðings á sjúkrasviði
frá 1. ágúst nk. Einnig vantar hjúkrunarfræð-
inga til sumarafleysinga.
Nánari upplýsingar veitir Sveinfríður Sigur-
pálsdóttir hjúkrunarforstjóri sjúkrasviðs.
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi,
Flúðabakka 2, sími 452 4206.
Vid hjá Rollingum í Kringlunni óskum
eftir að ráða starfsmann í sumar.
Starfið felst fyrst og fremst í sölu og
þjónustu við viðskiptamenn.
Við leitum eftir manneskju á aldrinum
20—40 ára sem er tilbúin að vinna virka
daga frá kl. 10 til 18.30 og þrjá laugar-
daga í mánuði.
Viðkomandi aðili þarf að uppfylla eftir-
farandi skilyrði:
• Hafa þjónustulund.
• Þægilegt viðmót og jákvæðni.
• Stundvísi.
• Sölumannsblóð í æðum.
• Enskukunnáttu.
• Geta hafið störf sem fyrst.
Til greina kemur áframhaldandi starf í
vetur eða hlutastarf.
Skriflegar umsóknir sendist til afgreiðslu
Mbl. merktar: „Barnafatnaður — 3022"
fyrir 14. maí nk.