Morgunblaðið - 09.05.1999, Side 10
10 E SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
'ér
Stefna VIS í starfsmannamálum er að hafa á að
skipa vel menntuðu starfsfólki með haldgóða
þekkingu á vátryggingamálum, að skapa gott
starfsumhverfi og aðstöðu til að veita góða þjónustu.
Við leggjum höfuðáherslu á þjónustulipurð og góða
þekkingu á þeirri þjónustu sem félagið býður á markaði.
► Yfirmaður
Tjónaskoðunarstöðva VÍS
Yfirmaður tjónaskoðunarstöðva VÍS ber ábyrgð á mikilvægum þjónustuþætti í heildarþjónustu VÍS.
Starfið er spennandi kostur fyrir verkfræði-, rekstrar- eða tæknimenntaðan einstakling.
Starfs- og ábyrgðasvið.
Yfirmaður tjónaskoðunarstöðva hefur yfirumsjón með tjónaskoðun og tjónamati ökutækja og vinnuvéla hjá
félaginu um land allt.
Meðal helstu verkefna eru:
► Skipulag og stjórn tjónaskoðunar og tjónamats.
► Greining og gerð áhættumats vegna tryggingatöku atvinnutækja.
► Samskipti og samningar við bifreiðaumboð og verkstæði.
Starfsmannastjórnun og samræming á störfum matsmanna.
► Undirbúningur og skipulag fræðslu fyrir matsmenn félagsins.
► Fylgjast með nýjungum og breytingum á sínu sviði.
Reynsla og þekking.
Við leitum að stjórnanda með góða rekstrar- og tækniþekkingu.
►- Skipulags- og stjórnunarhæfileikar.
Samskiptahæfileikar og reynsla á sviði mannlegra samskipta.
Menntun á sviði verk- tækni- eða rekstrarfræða.
► Góð þekking á upplýsingatæknisviði æskileg.
Reynsla á sviði vátryggingastarfsemi æskileg.
Umfram allt leitum við að starfsmanni sem hefur metnað til að leggja sig allan fram um að ná árangri í
starfi.
Nánari upplýsingar veitir Benjamín Axel Árnason hjá Ábendi.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Vinsamlegast sækið um á eyðublöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar sem fyrst, en í síðasta
lagi fyrir hádegi 14. maí1999
r
Á B E N D I
R Á Ð C ) Ö F &
RÁONINGAR
>1.
AUGAVEGUR 178
SÍMI: 568 90 99
FAX: 568 90 96
Landsteinar
Landsteinar International bjóða hugbúnaðar- og tölvufólki einstakt tœkifceri við að taka þátt i vexti stærstu
samstœðu Navision fyrirtœlg'a i heiminum. Félagið á og rekur hugbúnaðarjýrirtæki í 5 Evrópulöndum.
Fyrirhuguð erfrekari uppbygging íEvrópu áþessu ári ogsíðar í öðrum heimsálfum. Hjá Landsteinum starfa
núá annað hundrað metnaðarfullir starfsmenn og veltan á síðasta ári varu.þ.b. 600 milljónir isl. króna.
Umsjónarmaður tölvukerfa
Starflð felst í umsjón og skipulagningu tölvumála, rekstri tölvubúnaðar þ.m.t. rekstur
netkerfis, umsjón með innkaupum og öryggismálum, eftirliti með viðhaldi auk ýmissa
annarra sérverkefna m.a. ráðgjöf til viðskiptavina.
Við leitum að sjálfstæðum og vel skipulögðum tölvunar-, kerfis- og/eða verkfræðingi
með reynslu af net- og gagnagrunnskerfum. Áhersla er lögð á metnað til að gera vel í
starfi, viljaog getu til að starfa í hópi aukbrennandi áhuga átölvu- ogupplýsingatækni.
í boði er sjálfstætt og krefjandi starf í hópi annarra sérfræðinga hjá mjög áhugaverðu og
framsæknu fyrirtæki. Góð laun eru í boði fyrir réttan mann.
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí n.k. Gengið verður frá ráðningu fljótlega.
Guðný Harðardóttir (gudny@centrum.is) og Björk Bjarkadóttir
(stral@centrum.is) veita nánari upplýsingar. Viðtalstímar eru frá kl.10-13.
Umsóknarcyðublöð eru fyrirliggjandi á skrifstofunni, sem er opin frá kl.10-16 alla
virka daga.
STARFSRÁÐNINGAR
GUÐNÝ HARÐARDÓTTIR
Mörkinni 3 - 108 Reykjavík - sími 588 3031 - bréfsími 588 3044
, . , . , - - -
■
■
*
RANNÍS
Deildarsérfræðingur
vísindasviðs RANNÍS
Rannsóknarráð íslands óskar eftir að ráða
í stöðu deildarsérfræðings vísindasviðs
RANNÍS. Um er að ræða tímabundna ráðn-
ingu í 6 mánuði með möguleika á fast-
ráðningu að þeim tíma loknum.
Starfssvið
Starf deildarsérfræðings á vísindasviði felur
í sér sjálfstæð störf undir yfirstjórn forstöðu-
manns vísindasviðs. Deildarsérfræðingur hefur
m.a. umsjón með framkvæmd úttekta á vís-
indasviðum eftir ákvörðunum Rannsóknarráðs
íslands og sér um framkvæmd á mati á hluta
umsókna sem koma til sjóða ráðsins. Þá mun
deildarsérfræðingur sjá um framkvæmdahlið
á tilteknum alþjöðlegum samstarfsáætlunum
og samskipti við norrænar/evrópskar sam-
starfsstofnanir sem Rannsóknarráð íslands
á aðild að eða samskipti við.
Hæfniskröfur
Krafist er vísindalegrar sérmenntunar á fag-
sviði hug- eða félagsvísinda. Áhersla er lögð
á góða samskiptahæfileika, nákvæmni og
metnað til að beita vönduðum vinnubrögðum.
Góð kunnátta í íslensku er áskilin svo og færni
í ensku og einu Norðurlandamáli. Haldgóð
tölvuþekking og reynsla í notkun Word og
Excel er nauðsyn.
Laun samkvæmt kjarasamningum viðkomandi
stéttarfélags.
Þess er vænst að umsækjandi geti hafið störf
í júní nk.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendistframkvæmdastjóra Rann-
sóknarráðs íslands, Laugavegi 12, 101 Reykja-
vík, eigi síðar en 17. maí nk. Farið verður með
allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum um-
sóknum verðursvarað. Nánari upplýsingar
veitir Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmda-
stjóri RANNÍS, og Kristján Kristjánsson, for-
stöðumaður vísindasviðs RANNÍS.
Ritari fyrir ráðuneyti
Við leitum að ritara í heilsdagsstarf íyrir
skrifstofiistjóra í einu af ráðuneytunum.
Ritari annast bréfaskriftir í ritvinnslu og
aðra tölvuvinnu, undirbúning funda auk
annarra tilfallandi skrifstofustarfa.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu
með góða íslenskukunnáttu, talaða og
ritaða. Æskileg er kunnátta í ensku og/eða
einu Norðurlandamáli. Skilyrði er haldbær
þekking og reynsla af tölvum. Áhersla er
lögð á þjónustulipurð, snyrtimennsku,
reglusemi og skipulagshæfileika.
Umsóknarfrestur er til og með 23. maí
n.k. Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf
fljótlega.
Björk Bjarkadóttir og Jóna Vigdís
Kristinsdóttir veita nánari upplýsingar.
Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á
skrifstofunni, sem er opin frá kl. 10-16
alla virka daga.
STRA
STARFSRÁÐNINGAR
ehf.
mjnsia
GUÐNÝ HARÐARDÓTTIR
Mörkinni 3-108 Rcykjavfk - sími 588 3031 - bréfsimi 588 3044