Morgunblaðið - 09.05.1999, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999 E 11
REYKJANESBÆR
Reykjanesbær er framsækiö
10.500 íbúa sveitarfélag.
Fjórir grunnskólar veröa
starfræktir í bænum frá og
meö næsta skólaári meö
um 1700 nemendum og 140
kennurum.
Skólaskrifstofa
Reykjanesbæjar veitir
skólunum faglega þjónustu
og ráögjöf jafnframt því
sem hún stendur fyrir
öflugri símenntun fyrir
kennara.
Heiöarskóli er nýr einsetinn
grunnskóli í Reykjaneshæ
sem tekur til starfa 1 .ágúst
1999. Skólinn veröur meö
um 430 nemendur í
1.-10. bekk.
Húsnæöiö fullnægir ýtrustu
kröfum sem gerðar eru til
skólahúsnæðis í dag.
Haustið 2000 verða allir
skólar Reykjanesbæjar
einsetnir meö sambærilega
aöstööu tif verklegrar og
bóklegrar kennslu.
Kennarastöður
í Reykjanesbæ
Þetta er tilvalið tækifæri fyiir kennara sem
• vilj a móta skólastarf frá byrj un
• hafa áhuga á skólaþróun
• hafa áhuga á samstarfi við kennara, foreldra
og aðra sem að skólanum koma
• eru hugmyndaríkir og framsæknir
Heiðarskóli: Kennara vantar 1 almenna kennslu, sérkennslu,
hannyrðlr, smíði, tónmennt, líffræði, eðlisfræði, stærðfræði
og upplýsingamennt. Einnig vantar skólasafnskennara og
námsráðgjafa. Upplýsingar veitir Ámý Inga Pálsdóttir
skólastjóri eða Guðhjörg Sveinsdóttir
rekstarfulltrúi skólaskiifstofu í síma 421 6700.
Holtaskóli: Kennara vantar í almenna kennslu á miðstigi,
tónmennt og líffræði.
Upplýsingar veitir Sigurður Þorkelsson s. 421 1135.
MyUubakkaskóU: Heimilisfræði og tónmennt.
Upplýsingar veitir Vilhjálmur Ketilsson s. 421-1450.
NjarðvíkurskóU: Heimilsfræði. Upplýsingar veitir Gylfl
Guðmundsson 421-4399.
Laun skv. Kjarasamningum Sambands islenskra sveitarfélaga
og Kí. Einnig er í gildi sérsamningur milli grunnskólakennara
, og Reykjanesbæjar. Umsóknarfrestur er til 20.maí.
Starfsmannastj óri
Umsóknir berist Skólaskrifstofu Reykjanesbæjar,
Hafnargötu 57,230 Keflavík, Reykjanesbæ.
REYKJANE SBÆR
TJAHNARGÖTU 12 • 230 KEFLAVlK
TölvuMyndir ehf eru eitt af
öflugustu hugbúnaðar- og
upplýsingafyrirtœkjum á Islandi.
Hjá fyrirtækinu starfa 75 manns.
Verkefni TölvuMynda eru á sviði
forritunar og hugbúnaðargerðar,
reksturs tölvukerfa o.fl.
Töl vuMy ndir
Prentiðnaður
Vegna aukinna verkefna vantar okkur fólk til starfa.
Við leitum að duglegu starfsfólki sem á auðvelt
með að vinna sjálfstætt og er tilbúið að vinna
mikið hjá ört vaxandi fyrirtækjum.
Prentarar:
Við leitum að vönum prenturum á arkavélar,
rúlluvélar og blaðavél prentsmiðjunnar.
Lager og móttaka:
Við leitum að vönum lagermanni til að hafa umsjón
með efnislager prentsmiðjunnar, móttöku efnis og
afhendingu verka.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Kjartansson í síma 550 5990
BÓKBANDSSTOf-A
Við leitum að vönum bókbindurum
og aðstoðarmönnum, einkum á brotvélar, hefti- og
fræsilínur bókbandsstofunnar.
Nánari upplýsingar veitir Axel Steindórsson í síma 561 0150
ÍP-PRENTÞJÓNUSTAN EHF
Við leitum að starfsmönnum vönum umbroti,
sem hafa gott auga fyrir uppsetningu prentgripa og
þekkingu á QuarkXpress, FreeHand, lllustrator og
Photoshop. í boði er góð vinnuaðstaða þar sem
nýjustu tæki og tækni eru notuð.
Nánari upplýsingar veitir Árni Sörensen í síma 550 5650
Hjá ísafoldarprentsmiöju hf. og dótturfélögum
hennar Flatey bókbandsstofu og ÍP-Prentþjónustunni starfa í dag
um 70 starfsmenn. Félögin veita alla almenna prentþjónustu og
eru staðsett í Þverholti 9.
Áhugasamir skili starfsumsóknum fyrír 14. maí á skrífstofu
félaganna aö Þverholti 9, annarri hæö. Einnig er hægt aö senda
umsóknirnará netfangið kristthor@isafoid.is
HUGBÚNAÐARGERÐ
Vegna aukinna verkefna innanlands og erlendis óska TölvuMyndir ehf. eftir að ráða forritara
fyrir Navision Financials upplýsingakerfi.
Starfssvið
• Kerfisgreining, ráðgjöf og forritun fyrir viðskiptavini og aðrir þættir er snúa að
hagnýtingu þeirra upplýsingakerfa sem fyrirtækið hefur þróað.
• Ýmis sérsmíði og sérlausnir í öðrum kerfum.
Menntunar og hæfniskröfur
• Leitað er að tölvunarfræðingum, kerfisfræðingum eða verkfræðingum sem hafa
áhuga og metnað til að veita faglega ráðgjöf og góða þjónustu.
• Einstaklingar með aðra háskólamenntun eða starfsreynslu í hugbúnaðargerð koma
einnig vel til greina.
í boði er góð starfsaðstaða í nýju húsnæði, viðhaid menntunar og góð launakjör.
Þetta er áhugavert tækifæri til að taka þátt í framþróun á hugbúnaðarsviði.
Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon hjá Ráðgarði hf.
frá kl. 9-12 í síma 533 1800.
• Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs fyrir 16. maí nk. merktar:
„TölvuMyndir - hugbúnaðargerð"
.............
Enika menika
Óviðjafnanlegt, alþjóðlegt atvinnutækifæri.
Fjör, ferðalög og bónusar. Upplýsingar hjá
Helgu í síma 426 8695 og 986 9386.
Fataviðgerðir
Starfsmaður, vanur fataviðgerðum og fata
breytingum óskast. Umsóknirsendisttil af
greiðslu Mbl. merktar: „F — 8006".
Tilsjónarmenn/
persónulegir ráðgjafar
Félagsþjónustan í Hafnarfirði óskar eftir að
ráða fólktil starfa sem áhuga hefur á mannleg-
um samskiptum. Tilsjónarmenn/persónulegir
ráðgjafar starfa eftir Barnaverndarlögum nr.
58/1992. Hlutverk tilsjónarmanns felst fyrst
og fremst í því að aðstoða foreldra við að sinna
forsjár- og uppeldisskyldu sinni s.s. best hentar
hag og þörfum barns. Hlutverk persónulegs
ráðgjafa felst fyrst og fremst í því að veita barni
ráðgjöf og leiðbeiningar.
Um er að ræða hlutastörf. Æskilegur aldur
umsækjenda er 22 ára og eldri.
Stuðningsfjölskyldur
Félagsþjónustan í Hafnarfirði óskar eftir stuðn-
ingsfjölskyldum sem starfa eftir Barnaverndun-
arlögum nr. 52/1992. Hlutverk þeirra er að vera
tilbreyting og stuðningur við börn sem búa
við erfiðar fjölskylduaðstæður. Æskilegt er að
umsækjendur hafi reynslu af börnum og ung-
mennum og geti tekið þau inn á heimili sitt
í stuttar dvalir.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Félagsþjónustunnar í Hafnarfirði, Strandgötu
8—10 (gengið inn frá Linnetsstíg). Opið er frá
kl. 9.30 til 15.30.
Nánari upplýsingar um ofangreind störf veitir
María Hjálmarsdóttir, yfirfélagsráðgjafi í síma
565 5710.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði.