Morgunblaðið - 09.05.1999, Side 20
€0 E SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLBRAUTASKÓLl SUÐURLANDS
Kennsla í FSu
• Umsóknarfrestur um eftirfarandi áður auglýst
kennslustörf við Fjölbrautaskóla Suðurlands
er framlengdur til 17. maí nk.:
Eðlisfrædi (50—75% úr stöðu).
Félagsfræði (ein staða). Sérþekking á sviði
aðferðafræði æskileg.
Franska (hálf staða)
Sjúkraliðagreinar (ein staða).
Spænska (stundakennsla á haustönn).
Stærðfrædi (ein staða).
Tölvunotkun (ein staða).
Viðskiptagreinar (ein staða).
-* Um laun fer skv. kjarasamningum HÍK/KÍ.
Nánari upplýsingar veita skólameistari og
aðstoðarskólameistari, sími 482 2111.
Umsóknir berist skólameistara eigi síðar en
17. maí 1999.
Skólameistari.
Fjölbrautaskóli Suöurlands á Selfossi er framhaldsskóli með fjölbreytt
námsframboð, bóklegt og verklegt. Um 700 nemendur eru í dagskóla
og um 100 í kvöldskóla. Skólinn er þróunarskóli í notkun upplýsinga-
tækni í skólastarfi. Áhersla er lögð á góðan starfsanda, góða vinnuað-
stöðu og framsækið skólastarf. Skólinn er virkur í samstarfi við aðra
skóla, innanlands og utan. Skólanámskrárgerð og þróunarvinna varð-
andi tölvunotkun í skólastarfi verða forgangsverkefni næsta vetur, en
auk þess verður unnið að ýmsum öðrum þróunarverkefnum. Skólinn
er reyklaus vinnustaður. íbúum á Selfossi fjölgar ár frá ári enda bú-
setuskilyrði góð.
BHS
Laus störf í Borgar-
holtsskóla
•Borgarholtsskóli erfjölbreytturog vaxandi
framhaldsskóli í Grafarvogi. Þarferfram mikil
uppbygging og þróun á starfs- og bóknáms-
brautum. í haust verður kennt samkvæmt nýrri
námskrá framhaldsskóla og þörf er á viðbót
í góðan kennarahóp.
Um er að ræða eftirtaldar kennslugreinar:
Sérkennsla á námsbraut fyrir fatlaða (1
staða), danska (1/2 staða), bifvélavirkjun,
bifreidasmídi og bílamálun (alls 5 stöður),
líffrædi (1/2 staða), raungreinar (1/2 staða),
rafmagns- og rafeindafræði (1 staða), sér-
greinar blikksmíði (1/2 staða), tölvufræði
(1/2 staða).
Fáðning í ofantalin störf verðurfrá 1. ágúst
og eru laun skv. kjarasamningum HÍKog KÍ.
Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöð-
um en í umsókn skal gera grein fyrir menntun
og fyrri störfum. Meðmæli eru æskileg.
Upplýsingar um störfin veita skólameistari
og aðstoðarskólameistari í síma 586 1400.
Umsóknirskal senda Eygló Eyjólfsdóttur,
skólameistara Borgarholtsskóla, 112 Reykjavík
fyrir 24. maí. Öllum umsóknum verður svarað.
Skólameistari.
Liðsmaður
óskast til íslenskrar fjölskyldu, búsettri
í Englandi, á aldrinum 20 til 24 ára
Starfið felst í að veita 17 ára stúlku með MS
félagsskap og að koma henni milli staða en
fagfólk sér um alla helstu umönnun. Ýmis
hlunnindi í boði.
Nánari upplýsingar í síma 862 9007.
Er þér alvara...
með að ná tökum á þyngdarstjórnun...
með að ná tökum á næringartengdum kvillum?
Ef svo er, þá færð þú ráðgjöf og stuðning
hjúkrunarfræðings, vigtun, blóðþrýstingsmæl-
ingu og hágæða vöru til að ná markmiði þínu.
•Láttu verða af því núna.
Upplýsingar í síma 891 6929, Kristín.
Sölumaður á
fasteignasölu
Umsvifamikil fasteignasala í Reykjavík óskar
eftir að ráða sölumann til starfa.
Fullum trúnaði er heitið.
Áhugasamir vinsamlegast fyllið út umsóknareyðublöð
og komið með mynd til Ráðningarþjónustunnar fyrir
14. maí nk. Nánari upplýsingar veitir Jón Baldvinsson
í síma 588 3309 (jonb@radning.is).
k RÁÐNINGAR
^æSíÞJÓNUSTAN
■c.........
Háaleitisbraut 58-6C
108 Revkjavík, Sími: 588 3309
áx: 588 3659, Netfang: radning'u radning.is
Veífang: http://www.radning.ii
Sölumaður
Okkur vantar áhugasaman og duglegan sölu-
mann til að selja sérsmíðaðar
JL.
n r
INVITA
innréttingar.
Framtíðarstarf fyrir hressa, sjálfstæða
manneskju með góða framkomu og skipulags-
hæfileika.
Starfið felst í skipulagningu, tölvuteikningu
og sölu innréttinga í allt húsið, frágangi samn-
inga og yfirleitt öllu því sem gera þarf í litlu
og notalegu fyrirtæki.
Einhver dönsku- og tölvukunnátta nauðsynleg
en viðkomandi verðursendurtil Invita í
Danmörku á námskeið í teikniforritinu.
Áhugasamir umsækjendursendi skriflegar
umsóknir með öllum upplýsingum sem máli
skipta til Eldaskálans fyrir 15. maí nk.
ELDASKÁLINN,
Brautarholti 3,
105 Reykjavík.
Skeiðahreppur
Kennara
vantar að Brautarholtsskóla. Um er að ræða
almenna kennslu í yngri aldurshópum. Æski-
legt er að viðkomandi hafi góða samstarfs-
hæfileika, reynslu af samkennslu árganga,
upplýsingatækni, sveigjanlegum kennslu-
háttum og blöndun fatlaöra inni í bekk.
Upplýsingar um skólann er hægt aö nálgast á vefslóð:
http7/rvik.ismennt.is/~brautarh/
Allar nánari upplýsingarveita Rut Guðmunds-
dóttir skólastjóri, vs. 486 5505, hs. 486 6434
og Jón Vilmundarson, formaður skólanefndar,
hs. 486 5592.
Skólanefnd Brautarholtsskóla.
Leikskólinn Sælukot
óskar eftir leikskólakennara eða aðstoðar-
manneskju í heila stöðu.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Upplýsingar gefur Dídí í símum 552 7050 og
562 8533.
Skólastjóri
Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir eftir skóla-
stjóra sem verður með aðsetur á Hofsósi. Verið
er að sameina yfirstjórn þriggja skóla, Grunn-
skólans á Hofsósi, Grunnskólans að Hólum og
Sólgarðaskóla (að auki verður einn aðstoðar-
skólastjóri og tveir deildarstjórar við skólana).
Leitað er eftir einstaklingi með frumkvæði og
áhuga til að vera faglegur leiðtogi breyting-
anna og leiða skipulags- og þróunarvinnu við
skólana.
Sveitarfélagið Skagafjörður varð til við samein-
ingu 11 sveitarfélaga 1. júlí 1998. Unnið er að
skólastefnu fyrir sveitarfélagið og í skólunum
er unnið að samræmdri skólanámskrá. Flestir
skólar sveitarfélagsins eru einsetnir. Þar vinnur
metnaðarfullt starfsfólk við góðar aðstæður.
Sveitarstjórn samdi við grunnskólakennara
um laun umfram almenna kjarasamninga
kennara. Þessi samningurgildirtil 31. desem-
ber2000.
Umsóknarfrestur ertil 4. júní 1999. Allar nánari
upplýsingargefa skólamálastjóri Rúnar Vífils-
son í sírna 453 6868 og formaður skólanefndar
Herdís Á. Sæmundsdóttir í síma 453 6618.
Fallegt og heimiiislegt hjúkrunarheimili
í Mjóddinni
Iðjuþjálfi óskast
Óskað er eftir iðjuþjálfa í 60% starf til að halda
áfram uppbyggingu við heimilið þar sem 77
heimilismenn búa. Um er að ræða starf nú
þegar. Óskað er eftirfólki, sem getursýnt
áhuga, lipurð og virðingu í mannlegum
samskiptum.
Hjúkrunarheimilið Skógarbær er bæði fyrir
eldri og yngri einstaklinga, sem þurfa sólar-
hrings umönnun og stuðning við að lifa far-
sælu lífi, þrátt fyrir fötlun og sjúkdóma.
Hjúkrunarheimilið Skógarbær gefurstarfsfólki
möguleika til að vinna í fallegu umhverfi við
gjöfult starf, við mótun á nýrri starfsemi.
Nánari upplýsingar gefur: Hrefna Sigurðar-
dóttirframkvæmdastjóri í síma 510 2100.
Frá Menntaskólanum
í Reykjavík
Menntaskólinn í Reykjavík óskar að ráða
rektorsritara (skrifstofustjóra) frá 1. ágúst nk.
Umsækjandi þarf að geta unnið sjálfstætt að
ýmsum vandasömum verkefnum. Stúdents-
menntun er nauðsynleg og staðgóð kunnátta
í íslenzku og ritvinnslu. Einnig þarf umsækj-
andi að vera vanur bókhaldi. Laun eru sam-
kvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags ríkis-
stofnana.
Umsóknirásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf verði sendar á skrifstofu rektors,
sem veitir nánari upplýsingar í síma 551 4177.
Umsóknarfrestur er til 31. maí.
Rektor.
HOLRÆSAHREINSUN EHF.
SÍMI: 565-1882 • FAX: 565-2881
MELABRAUT 13-15 • 220 HAFNARFJÖRÐUR
Starfsmann vantar
Holræsahreinsun ehf. vantar mann með meira-
prófsréttindi. Við erum að leita eftir manni sem
er stundvís og áreiðanlegur, þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar veita Rögnvaldur eða
Brynjar á staðnum milli kl. 8 og 12.