Morgunblaðið - 16.05.1999, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
108. TBL. 87. ÁRG. SUNNUDAGUR16. MAÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Atkvæði greidd í dúmunni um málshöfðun á hendur Rússlandsforseta
Atlaga andstæðinga
Jeltsíns fór tít um þtífur
Ekkert ákæruatrið-
anna fímm náði til-
skildum meirihluta
Moskvu. Reuters, AP.
DUMAN, neðri deild rússneska
þingsins, greiddi í gær atkvæði um
málshöfðun til embættissviptingar
Borís Jeltsíns Rússlandsforseta.
Fimm ákærur voru bornar upp til
atkvæðis, hver fyrir sig, en engin
þeirra hlaut tilskilinn stuðning 300
þingmanna, þ.e. tvo þriðju hluta at-
kvæða. Fjrrirfram hafði verið talið
mögulegt, að sá meirihluti fyndist á
þinginu fyrir einu ákæruatriðanna
fimm, en það gekk út á að Jeltsín
hefði gert mistök sem réttlættu
embættissviptingu með þvf að hafa
komið af stað strfðinu gegn aðskiln-
aðarsinnum í Tsjetsjníu árið 1995.
283 þingmenn greiddu þessari
ákæru atkvæði sitt.
Rétt áður en atkvæðagreiðslan
hófst gekkst Jeltsín undir læknis-
skoðun, en með framvindu mála í
dúmunni fylgdist hann frá sveita-
setri sínu utan við Moskvu.
„Holdgervingur hins illa“
Fyrir utan þinghúsið var saman
kominn fjöldi andstæðinga Jeltsíns,
sem veifuðu spjöldum og rauðum
fánum. „Jeltsín er holfgervingur
hins illa í Rússlandi," lýsti Gennadíj
Zjúganov, leiðtogi kommúnista í
dúmunni, yfir í ræðu við upphaf um-
ræðunnar um ákærumar á hendur
Jeltsín. Þingmönnum lá mikið á
hjarta og þurfti að fresta atkvæða-
greiðslunni tvisvar af þeim völdum.
Akærurnar fimm endurspegluðu
það sem andstæðingar Jeltsíns telja
til „glæpsamlegrar óstjómar" hans
á þeim átta ámm sem hann hefur
verið við völd. Var ákvörðunin um
upplausn Sovétríkjanna árið 1991
meðal þess sem þeir töldu mistök
sem réttlættu embættissviptingu.
Þótt málshöfðunin hefði verið
samþykkt hefðu litlar líkur verið á
því að hún leiddi til embættissvipt-
ingar Jeltsíns. Bæði þarf efri deild
þingsins og tveir æðstu dómstólar
landsins að greiða atkvæði um
ákæmna og talið er mjög líklegt að
þar hefði henni verið hafnað. Kjör-
tímabili Jeltsíns, sem hefur átt við
þrálát veikindi að stríða, lýkur á
næsta ári.
Reuters
ANDSTÆÐINGAR Jeltsíns út liði kommúnista steyta hnefa í átt að þinghúsinu í Moskvu í gær, þar sem at-
kvæði vom greidd um málshöfðun til embættissviptingar forsetans.
NATO gengst við árás á þorp
Brussel, Belgrad. Reuters, AP.
TALSMENN Atlantshafsbandalagsins staðfestu
í gær að herflugvélar þess hefðu gert árás á þorp-
ið Korisa í suðvesturhluta Kosovo á föstudag, þar
sem samkvæmt serbneskum heimildum a.m.k. 84
kosovo-albanskir flóttamenn létu lífið. Loftárás-
um NATO á skotmörk í Júgóslavíu var fram hald-
ið í gær af fullum þunga.
Eftir rannsókn á fullyrðingum Serba um að
NATO bæri ábyrgð á dauða slíks fjölda óbreyttra
borgara sögðu talsmenn bandalagsins að þorpið
hefði verið lögmætt skotmark þar sem her Serba
hefði notað það sem herbúðir og stjórnstöð fyrir
hemaðaraðgerðir.
Opinbera serbneska fréttastofan Tanjug sagði í
gær, að staðfestur fjöldi fólks sem látizt hefði í
árásinni væri 87, en trúlega hefðu yfir 100 farizt.
Fullyrti fréttastofan að yfir 60% fómarlambanna
hefðu verið börn undir 10 ára aldri, en hin flest
verið konur og gamalmenni.
Fréttastofan Serb Media Center hafði áður
sagt að dauði 79 manna hefði verið staðfestur, en
einkarekna serbneska sjónvarpsstöðin BK sagði
að 84 væru látnir þar sem fimm hinna slösuðu
Talsmenn bandalagsins segja
her Serba hafa notað þorpið
sem herbúðir
hefðu látizt um nóttina á sjúkrahúsi í Prizren.
„Hergögn, þar á meðal brynvarin liðsflutninga-
bifreið og meira en tíu stórskotaliðsbyssur, sáust
á þessum stað,“ sagði í yfirlýsingu frá NATO.
.Ahafnir flugvéla [bandalagsins] komu auga á
stórskotaliðsbúnað sem reynt hafði verið að dylja
á staðnum, áður en árásin var gerð. NATO getur
ekki staðfest þær tölur yfir fallna, sem serbnesk
yfirvöld hafa gefið upp, né heldur hvers vegna
óbreyttir borgarar vom þar þegar árásin var
gerð,“ sagði ennfremur í yfirlýsingunni, og það
mannfall sem orðið hefði meðal óbreyttra borgara
var harmað mjög.
Því var alfarið vísað á bug, að í árásinni hefðu
verið notaðar svokallaðar klasasprengjur.
í viðtali við brezka útvarpið BBC lét Jamie
Shea, opinber talsmaður NATO, að því liggja að
Serbar hefðu vísvitandi vísað flóttamönnum á að
slá sér niður á þessum stað til að þeir nýttust sem
„mannlegur skjöldur" fyrir hergögnin sem geymd
voru í þorpinu.
„Einn vandinn er sá, að við eigum við andstæð-
ing að etja sem svífst einskis og blandar saman
her sínum við flóttamenn, og notar þá jafnvel sem
„mannlega skildi“ á brúm og viðar,“ sagði Shea.
„En við verðum að gera árásir á herliðið, því öðru-
vísi getum við ekki bundið enda á þjóðernishreins-
animar.“
„Stanzlausar“ loftárásir
Opinber fréttastofa Júgóslavíu, Tanjug, sagði
herflugvélar NATO hafa verið „stanzlaust“ á lofti
yfir Kosovo aðfaranótt laugardags. Sagði hún
flugskeyti hafa hæft skotmörk m.a. við Prizren,
Djakovica, Lipljan og Stimlje. í gærmorgun hefðu
sprengjur hæft brýr yfir ána Toplica, nærri bæn-
um Kursumlija í Serbíu, skammt norðan við
Kosovo, og árásir gerðar nærri bæjunum Cacak
og Kraljevo, sem eru rúmlega 100 km suður og
suðaustur af Belgrad.
Bætur
fyrir
hleranir
Ósló. Morgunblaðið.
NORSKA dómsmálaráðuneyt-
ið hefur lagt til, að greiddar
verði bætur til þeirra, sem
hafa verið hleraðir ólöglega, og
getur bótaupphæðin samtals
orðið allt að 400 millj. ísl. kr.
Tillagan kemur í framhaldi
af svokallaðri Lund-skýrslu
um starfsemi norsku leyni-
þjónustunnar en þar segir, að
á eftirstríðsárunum og allt
fram á síðustu ár hafi ólögleg-
ar hleranir verið algengar,
einkum þegar í hlut áttu sam-
tök yst á vinstrivængnum.
Allt að 10.000 taldir vilja
sjá sína möppu
Stórþingið samþykkti 4.
mars sl. að svipta hulunni af
þessum málum og dómsmála-
ráðuneytið áætlar, að allt að
10.000 manns muni vilja fá að
sjá möppuna sína hjá leyni-
þjónustunni. Af þeim hópi
muni hugsanlega 500 manns
eiga rétt á bótum en skilyrðið
fyrir þeim er, að gróflega hafi
verið brotið á réttindum við-
komandi og hann beðið skaða
af. Þá er t.d. átt við, að þrengt
hafi verið að kostum hans á
vinnumarkaði af pólitískum
ástæðum. Hámarksbætur eru
um ein milljón ísl. kr. á mann.
Vænst að bygging
Barnaspítalans
hefjist á ný