Morgunblaðið - 16.05.1999, Side 4

Morgunblaðið - 16.05.1999, Side 4
4 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ VTKA.N 9/5 -15/5 ►BYRJAÐ er að þýða Windows 98 og Intemet Ex- plorer 5,0 hugbúnaðarkerfin á íslensku. Er gert ráð fyrir að útgáfumar komi á ís- lenskan markað fyrir árslok. Navision Software ísland ehf. sér um þýðinguna en Microsoft ber af henni allan kostnað. ► VÍSIND AMENN hjá Krabbameinsfélaginu hafa i annað sinn fengið bandarísk- an styrk til rannsókna á bijóstakrabbameinum. Bein- ast rannsóknirnar að sam- spili erfða og umhverfis. ►FLÓTTAMENN frá Kós- óvó, 47 að tölu, dvelja nú að Eiðum en hluti hópsins flyst brátt til Fjarðabyggðar og annar hluti til Dalvíkur. Heilsufar baraanna í hópn- um reyndist gott. ►KINVERSKT fyrirtæki bauð lægst í framkvæmdir við Vatnsfellsvirkjun en alls bámst sex tilboð í alla þrjá verkþættina. Tilboð Kínverj- anna var 3.250 milljónir en næst lægsta tilboðið, 3.306 miHjónir var frá íslenskum aðalverktökum. ►RÁÐGERT er að stofna fiskréttaverksmiðju á Rifi á Snæfellsnesi og á framleiðsla að hefjast í haust. Þegar hef- ur verið keypt húsnæði en að verksmiðjunni standa Hum- all ehf., Frostfiskur ehf., Klumba ehf., og Hraðfrysti- hús Hellissands. ►FULLTRÚAR Norsk Hydro ræddu í vikunni við ráðamenn Landsvirkjunar og iðnaðarráðherra um stofnun nýs álvers á Aust- ijörðum. Leita á að fjárfest- um sem hugsanlega vildu vera með Islendingum og Norðmönnum í að fjármagna verksmiðjuna. Stjórnarflokkar héldu þingmeirihluta ÚRSLIT alþingiskosninganna laugar- daginn 8. maí urðu þau að Sjálfstæðis- flokkurinn bætti við sig einum þing- manni og hefur nú 26, Framsóknar- flokkurinn tapaði þremur og hefur því 12 þingmenn nú. Frjálslyndi flokkur- inn fékk tvo þingmenn, Samfylkingin 17 og Vinstrihreyfmgin sex. Þingflokk- ar Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks samþykktu umboð til formanna sinna að hefja viðræður um framhald á stjómarsamstarfi. Tveir ráðherrar létu af embætti á þriðjudag, þeir Þorsteinn Pálsson, sem verður sendiherra í London og Guðmundur Bjarnason en hann tekur við starfí forstjóra íbúða- lánasjóðs. 13,5-30% launa- hækkun æðstu embættismanna KJARADÓMUR úrskurðaði þing- mönnum og ráðherrum tæplega 30% kauphækkun frá og með kjördegi. Hækkaði þingfararkaup úr 228 þúsund krónum í 296 þúsund. Laun dómara, ríkissaksóknara, ríkissáttasemjara, biskups og umboðsmanns barna hækk- uðu með sama úrskurði um 13,5%. Laun forseta íslands hækkuðu um tæp 28%. IS tapar á dótturfyrirtækjum EIGIÐ fé íslenskra sjávarafurða lækkaði úr 1.880 milljónum króna í um 700 milljónir á tveimur árum vegna taprekstrar dótturfélaga er- lendis þrátt fyrir að selt hafi verið hlutafé fyrir um 340 milljónir á síð- asta ári. Afkastageta fiskréttaverk- smiðja fyrirtækisins í Bandaríkjunum og Frakklandi er vannýtt og er nú leitað samstarfsaðila til að auka nýt- ingu þeirra. NATO-ríki reyna að sefa reiði Kínverja MIKIL reiði ríkti í Kína framan af vik- unni vegna sprengjuárásarinnar sem Atl- antshafsbandalagið gerði fyrir mistök á kínverska sendiráðið í Belgrad á fóstu- dagskvöld fyrir viku, þar sem þrír létu líf- ið og 20 slösuðust. KÍnverskir ráðamenn hótuðu að beita neitunarvaldi í öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna gegn hvers kyns áformum um að koma á friði í Kosovo, nema loftárásunum á Serbíu verði hætt. Bill Clinton Bandaríkjaforseti skrifaði forseta Kína afsökunarbréf og Gerhard Schröder, kanzlari Þýzkalands, hélt í eins dags vinnuheimsókn til Peking á miðvikudag, þar sem hann ítrekaði af- sakanir NATO-ríkjanna. í heiftarlegum ijöldamótmælum, sem kínversk stjóm- völd ýttu undir í íyrstu, urðu m.a. sendi- ráð Bandaríkjanna og Bretlands í Peking illa úti vegna grjótkasts. Loftárásimar héldu áfram af fullum þunga í vikunni. Á laugardag gengust talsmenn NATO við því að sprengjum hefði verið varpað á þorpið Korisa í suðvesturhluta Kosovo, þar sem Serbar héldu því fram á fóstu- dag að 79 óbreyttir borgarar hefðu látið lífið. Sögðu talsmenn NATO Korisa hafa verið lögmætt skotmark, þar sem þar hefðu verið herbúðir. Forsætisráðherra- skipti í Rússlandi STJÓRNARKREPPA blasir við í Rúss- landi eftir að forseti landsins, Borís Jeltsín, rak Jevgení Prímakov forsætis- ráðherra úr embætti á miðvikudag og til- nefndi í staðinn ötulan stuðningsmann sinn, Sergej Stepashín. Prímakov var þriðji forsætisráðherrann sem Jeltsín rak á innan við ári. Akvörðunin olli mikl- um titringi á rússneskum fjármálamörk- uðum og jafnframt brugðust kommúnist- ar, sem hafa tögl og hagldir í dúmunni, neðri deild rússneska þingsins, ókvæða við. Á fóstudag kröfðust þeir þess, að Jeltsín yrði sviptur embætti fyrir „glæp- samlega óstjórn" á átta ára valdatíma sínum og á laugardag voru atkvæði greidd í dúmunni um fimm ákærur til embættissviptingar forsetans. ►EHUD Barak, leiðtogi Verkamannaflokksins í ísra- el, júk í siðustu skoðanakönn- unum fyrir þing- og forsætis- ráðherrakosningar sem fram fara í landinu á mánudag, forskot sitt á Benjamin Net- anyahu. Var Barak spáð 48,5% fylgi og Netanyahu 35,5%. ►NOKKUR vatnaskil urðu í brezkum stjómmálum á mið- vikudag, þegar nýkjörin þing í Skotlandi og Wales komu saman í fyrsta sinn. I Skotlandi hyggst Verka- mannaflokkurinn mynda stjúm með frjálslyndum demúkrötum, og verður hún fyrsta samsteypustjúrnin í sögu brezks lýðræðis. í Wa- les, þar sem völd hins nýja heimastjúrnarþings em minni en í Skotlandi, vcrður mynduð minnihlutastjúrn Verkamannaflokks. ►FULLTRÚAR fjögurra helztu viðskiptavelda heims- ins, Bandaríkjanna, Japans, Kanada og Evrúpusambands- ins, urðu á miðvikudag ásátt- ir um það á fundi í Túkýú, að mæla með þvf að Kína fengi inngöngu í Heimsviðskipta- stofnunina (WTO) á þessu ári. ►ANFINN Kallsberg, lög- maður Færeyinga, lagði á mánudag fyrir Lögþingið langþráðan samning um lög- sögumörk milli Færeyja og Hjaltlandseyja, en samning- urinn gerir Færeyingum kleift að hefja loks fyrir al- vöru undirbúning olíuleitar í lögsögu sinni. Er gert ráð fyrir að fyrsta olíuleitarút- boðið verði auglýst í haust. FRÉTTIR Dreifíng stöðvuð á opnu bréfí gegn Halldóri Ásgrímssyni íslandspóstur svarar á mánudag Á VEGUM íslandspósts er verið að skoða rétt fyrirtækisins og skyldur til að veita Framsóknar- flokknum og Halldóri Ásgríms- syni upplýsingar um það hver kom með til dreifingar fyrir kosningar bækling þar sem vegið var að Halldóri og fleirum og hver stóð á bak við dreifinguna. Stjórnarfor- maður íslandspósts vonast til að unnt verði að svara síðdegis á mánudag. Bæklingurinn er fjórblöðungur sem dreift var að litlum hluta fyrir alþingiskosningarnar fyrir milli- göngu Islandspósts og tilraun mun hafa verið gerð til að dreifa stóru upplagi. Jón Sveinsson lög- maður Framsóknarflokksins segir að í bæklingnum sé vegið að Hall- dóri Ásgrímssyni persónulega með afar ósmekklegum hætti, dylgjum og órökstuddum og ósönnuðum fullyrðingum. Björn Jósef Amviðarson, for- maður stjórnar Islandspósts, seg- ir að um hafi verið að ræða opið dreifibréf þar sem ekki var getið um ábyrgðarmann og ekki heldur hvar bréfið var prentað. Sam- kvæmt prentlögum geti sá sem dreifi slíku efni orðið ábyrgur fyr- ir efni þess og á þeim forsendum hafi dreifingin verið stöðvuð. Að mati Bjöms Jósefs var efni bréfs- ins auk þess ósæmilegt og því væntanlega óheimilt að dreifa því samkvæmt póstlögum. Varðandi kröfu lögmanns Framsóknarflokksins segir stjóm- arformaður íslandspósts að ákveðin póstleynd ríki samkvæmt lögum og verði fólk að geta treyst henni. Hann segir þó að verið sé að skoða þau rök sem Jón Sveins- son hefur sett fram í kröfu sinni, meðal annars um að réttur þess sem verður fyrir dylgjum hljóti að vega þyngra. Vonast hann til að niðurstaða þeirrar athugunar liggi fyrir á mánudag. Hagfræðingurinn David Friedman á Islandi HAGFRÆÐINGURINN David Friedman heldur þrjá fyrirlestra um hag- fræði á vegum Félags hag- fræðinema við Háskóla Is- lands nk. mánudag og þriðjudag. Friedman er virtur hagfræðingur og sonur hjónanna Rose og Miltons Friedmans, nóbels- verðlaunahafa í hagfræði. Fyrsti fyrirlestur Friedmans verður mánudaginn 17. maí klukk- an 12 í stofu 101 í Lögbergi, húsi lögfræðideildar Háskóla Islands. Yfirskrift fyrirlestursins er „Public vs. Private prosecution" (Opinber málsókn eða einkamál.) Annar fyr- irlesturinn verður síðar sama dag, klukkan 17:30 í Odda stofu 101. Er hann haldinn í samvinnu við Is- landsbanka og heitir „Encryption and online commerce - moving away from a world of monetary sovereignty" (Dulkóðun og netvið- skipti - leið frá heimi sjálfstæðrar peningamálastefnu). Þriðji fyrirlesturinn er í sam- vinnu við Verslunarráð Islands og fer fram þriðjudaginn 18. maí á Hótel Sögu klukkan 12. Heitir hann „The Case For and Against Govemment: An Economist’s Vi- ew“ (Rökin með og á móti opinberum afskiptum: sýn hagfræðings). Sýn hagfræðinnar á daglegt líf Friedman lauk B.A. prófi í eðlis- og efnafræði frá Harvard-háskóla og doktorsprófí í eðlisfræði frá Chicago-háskóla. Hann hefur kennt hagfræði og lögfræði við ýmsa af betri háskól- um Bandaríkjanna: m.a. við Chicago-, UCLA-, Virginia Polyt- echnic-, UC Irvine- og Cornell- háskóla. Hann kennir nú við lög- fræðideild Santa Clara-háskólans í Kaliforníu. Friedman hefur gefið út nokkr- ar bækur og skrifað fjölda fræði- legra og almennra greina. Fyrsta bók hans kom út árið 1971 og fjall- ar um virkni frjáls markaðar og hvernig hann starfar án afskipta. Árið 1986 kom út bókin Price The- ory, sem hefur verið endurátgefin nokkrum sinnum, enda mikið not- uð við kennslu. Nýjasta bók Friedmans heitir Hidden Order: The Economics of Everyday Life og fjallar um daglegt líf mannsins séð frá sjónarhóii hagfræðinnar. David Friedman Nauðsynleg áhugafólki um garðrækt • Jafnt fýrir byrjendur sem vana garðyrkjumenn. • 550 blaðsíður í stóru broti. • 3.000 litmyndir og skýringarteikningar. Sannköiiuð alfræði garöeigandans 4> FORLAGIÐ Laugavegi 18 • Sfml 515 2500 • Síðumúla 7 • Sfml 510 2500 Morgunblaðið/Yann Kolbeinsson Efjutítan er komin aftur EFJUTITUR em sárasjaldgæfir gestir á íslandi en þær em litlir vaðfuglar sem em skyldar lúu- þrælnum. Á íslandi hafa fundist 5 eQutít- ur síðan 1979. Þrjár þeirra hafa verið í sömu mýrinni á Tjörnesi. Þar fannst efjutíta fyrst árið 1987 og hefur hún sést nær árlega þarna. Undanfarin ár hefur bara einn fugl komið, syngjandi karl- fugl og hefur hann nú komið enn eitt vorið. Ef við gemm ráð fyrir því að þetta sé sami fugl síðan 1987 þá er hann orðinn a.m.k. 13 ára gamall sem er ábyggilega ald- ursmet fyrir þessa tegund (sem vitað er um). -------------- Mengunarslys við Bústaðaveg 2-300 lítrar af olíu láku niður TALIÐ er að milli 200 og 300 lítrar af díselolíu hafi lekið niður á götuna þegar gat kom á olíutank vörubif- reiðar á mótum Háaleitisbrautar og Bústaðavegar skammt frá Borgar- spítalanum á níunda tímanum í gær- morgun. Olían dreifðist yfir töluvert stórt svæði. Slökkvilið Reykjavíkur var kvatt á vettvang laust upp úr kl. 8:30 og dreifði efni á götuna sem dregur upp olíuna. Voru starfsmenn Vélamiðstöðvar og fyrirtækisins Uppdæling einnig fengnir til aðstoð- ar við hreinsunina. Talið er að lítið magn olíu hafi farið niður um niður- fóll en hreinsunarstarfið stóð yfir í rúmlega tvær klukkustundir og var götunni lokað fyrir allri umferð með- an á því stóð. Olían lak úr svonefnd- um olíukálfi sem er í eigu verktaka sem er að störfum á þeim stað þar sem óhappið varð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.