Morgunblaðið - 16.05.1999, Side 10

Morgunblaðið - 16.05.1999, Side 10
10 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ stöðunni í anddyri spítalans á fyrstu hæð því að foreldrar geta nú dvalist þar milli þess sem þau sinna börnum sínum, þau geta farið út af deildinni og hvílt sig í öðru andrúmslofti með- an börnin eru í meðferð eða rann- sókn. Háskólaspítali og rannsóknir Fyrir utan að vera barnaspítali er hann háskólaspítali og sinnir sem slíkur rannsóknum og þróunarstarfí. Læknanemar sækja því ákveðin námskeið hjá deildinni, átta til tíu í senn, og segir Asgeir þá enga að- stöðu hafa haft og það sama megi segja um aðstoðarlækna, sem einnig eru átta til tíu. Þeir starfa gjarnan við barnaspítalann eitt til tvö ár eftir útskrift áður en þeir halda í fram- haldsnám. Þeir hafi eitt herbergi til umráða sem sé í senn hvíldarher- bergi þeirra á næturvöktum og að- staða og aðsetur á daginn. Aðstaða annarra nemenda er einnig mjög af skornum skammti. Með nýbygging- unni sé gert ráð fyrir þessum þörf- um og Asgeir bendir líka á að núver- andi húsnæði sé ekki hannað sem bamaspítali og að nýjar þarfir komi upp með þróun og breytingum í spít- alastarfi, nýjar óskir í samræmi við kröfur tímans um alla vinnuaðstöðu. Þá nefnir Asgeir nýtt fyrirkomu- lag sem ráðgert er að taka upp á nýja spítalanum en það er bætt þjón- usta við langveik börn og þau sem þurfa á þjónustu margra sérfræð- inga að halda. „Við höfum áhuga á að taka upp teymisvinnu, að þeir mörgu sérfræðingar sem þurfa stundum að taka sama bamið í meðferð séu hér með fasta viðverutíma. Þá getur barn sem þarf kannski að hitta marga sérfræðinga, félagsráðgjafa og fleiri gengið að þeim hér á ákveðnum tímum í stað þess að koma margar ferðir, hitta einn í dag og annan á morgun á ýmsum stöð- um. Við þurfum til þessa fjögur til fimm skoðunarherbergi og getum þannig boðið betri þjónustu við lang- veik böm og böm með margþætt vandamál." Síðustu árin hafa um 2.700 börn komið á barnaspítalann árlega og segir Ásgeir rúmlega 60% þeirra vera vegna bráðra veikinda. Bama- spítalinn hefur yfir að ráða sérfræð- ingum í flestum sérgreinum bama- lækninga, þó ekki öllum. Geðlæknir er ekki starfandi við deildina en geð- deild Landspítalans starfrækir bama- og unglingageðdeUd sem er tU húsa við Dalbraut í Reykjavík. Ásgeir segir að vonandi verði hægt að auka samstarf þessara deilda vemlega. Á bamadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur leggjast flest börn eftir slys og aðgerðir á háls-, nef- og eymadeildina sem þar er til húsa. Þá er heila- og taugaskurðdeild á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Verkaskipting áfram Spurt hefur verið í tengslum við nýjan barnaspítala hvort frekar hefði átt að ætla honum stað við Sjúkrahús Reykjavíkur. Forráða- menn barnaspítalans benda á að þótt mörg böm leggist á barnadeildina á SHR sé nálægðin við Landspítalann ekki síður mikUvæg, m.a. vegna kvennadeildar. TU dæmis kæmi ekki tU greina að skilja nýburadeUd, vökudeild, frá fæðingardeildinni í KvennadeUdarhúsinu. Einnig megi benda á að allmörg börn séu í að- gerðum á augndeild, hjartaskurð- deild og lýtalækningadeild og sér- hæfð brunameðferð sé á Landspítal- anum. Þá sé rannsókna- og kennslu- starfsemi Landspítalans Bamaspít- alanum einnig mikilvæg. Ásgeir seg- ist því sjá áfram fyrir sér þá verka- skiptingu eða sérhæfingu sem að nokkru leyti hafi skapast milli barna- spítalans og barnadeildar SHR. Þannig sé því hægt að reikna með starfsemi bamadeilda á báðum sjúkrahúsunum, hvert sem rekstrar- fyrirkomulagið kunni að verða. Ásgeir ítrekar að hann sé sann- færður um að nýr barnaspítali muni gerbreyta aðstöðu allra viðkomandi. „Það er alltaf hægt að setja fram íanga óskalista og ég hef séð erlend- is barnaspítala með sundlaug, íþróttasal og mörgum hótelher- bergjum fyrir foreldra en slíkt er ekki raunhæft hér. Barnaspítalinn verður góð og hagkvæm bygging, sniðin fyrir starfsemina sem honum er ætlað að hýsa og við stefnum að því að hægt verði að taka hann í notkun sumarið 2001.“ Yfírlæknir Barnaspít- ala Hringsins gerir ráð fyrir að framkvæmdir við nýbyggingu spítal- ans geti hafist á ný í vikunni. I viðtali við Jó- hannes Tómasson seg- ist Asgeir Haraldsson sannfærður um að spít- alinn nýi bæti mjög alla aðstöðu sjúklinganna og aðstandenda þeirra. BYGGING bamaspítala Hr- ingsins hefúr nú aftur feng- ið grænt ljós hjá bygginga- nefnd Reykjavíkur eftir að framkvæmdir vom stöðvaðar á dög- unum þar sem í ljós kom að grennd- arkynningu hafði verið áfátt. Ásgeir Haraldsson, prófessor og yfirlæknir bamaspítalans, vonar að þrátt fyrir töfína megi halda nokkurn veginn upphaflegri verkáætlun og að bygg- ingin komist í gagnið sumarið 2001. Býst hann við að framkvæmdir geti hafíst í vikunni eftir að borgarráð hefur staðfest ákvörðun bygginga- nefndar. Hann segir að bamaspítal- inn nýi bæti aðstöðu fyrir alla, sjúk- lingana, aðstandendur og starfsfólk. „Með nýja spítalanum verður hús- næði okkar næstum því þrefaldað og mesta breytingin verður að við fáum mun stærri dagdeild og göngudeild, meiri og betri aðstöðu fyrir aðstand- endur og starfsfólk fær loksins sómasamlega vinnuaðstöðu en hér hafa verið gífurleg þrengsli mörg undanfarin ár,“ segir Ásgeir í sam- tali við Morgunblaðið. Á Bamaspít- ala Hringsins verða auk dagdeildar og göngudeildar almenn bamadeiid, sem jafnframt er deild fyrir krabba- meinsveik böm, ungbamadeild, bamaskurðdeild og vökudeild en sú síðasttalda hefur til þessa verið í húsnæði kvennadeildar í annarri byggingu. Arkitektar eru hjónin Sig- Morgunblaðið/Kristinn HÉR er Ásgeir Haraldsson við grunninn sem beðið hefur þess að framkvæmdir gætu hafist á ný. Ásgeir kveðst vona að það verði í framhaldi af umfjöllun borgarráðs um málið í vikunni. ríður Magnúsdóttir og Hans-Olav Andersen sem unnu samkeppni um bygginguna. „Okkur á barnaspítalanum finnst mjög leitt að fyrirhuguð bygging skuli hafa valdið nágrönnum okkar óróa og að ósætti skuli hafa komið upp en við vonum að öldumar lægi og að við getum nú haldið áfram að vinna að því að gjörbæta aðstöðu veikra barna í landinu," segir Ásgeir ennfremur og vísar þar til kæmmála og umræðna sem orðið hafa um spít- alann. „Það er auðvitað fagnaðarefni að ríkisstjórn íslands skuli hafa sett þetta ágæta mál í forgang." Aukin áhersla á dag- og göngudeildir Rúmum á nýja barnaspítalanum, sem geta verið 64 í dag, fjölgar í raun lítið en hver deild fær aukið rými og þar með betri aðstöðu. Þannig fær dagdeild 10-12 stofur og herbergi en hefur í dag þrjú til fjögur herbergi og göngudeildin, sem í dag er með tvö skoðunarher- begi, fær 8-10 herbergi. „Við viljum leggja aukna áherslu á starf dag- deildar og göngudeildar. Með því getum við fækkað nokkuð innlögn- um og stytt legutímann. Þannig gætu til dæmis böm sem þurfa lyfjagjöf í æð þrisvar á sólarhring komið á göngudeildina en verið heima þess á milli. Dagdeildin myndi í auknum mæli sinna þeim sem þurfa á minniháttar aðgerðum að halda þar sem innlögn nætur- langt er óþarfi en aðstaðan hefur til þessa ekki boðið upp á að við gæt- um aukið þá þjónustu. Þannig ger- um við líka ráð fyrir að afköstin aukist, að fleiri börn geti farið hér í gegn á hverju ári og þannig mætt fjölgun næstu ára ef á þarf að halda. Hins vegar hafa mörg undanfarin ár fæðst álíka mörg börn, rúmlega fjögur þúsund, og því er ekki mjög mikil aukning í fjölda þeirra sem til okkar leita.“ Fyrirkomulag byggingarinnar er þannig að á jarðhæð eða fyrstu hæð er anddyri, biðstofa og dag- og göngudeildir. Á annarri hæð em skrifstofur lækna, hjúkmnarfræð- inga og annarra starfsmanna í eins og tveggja manna herbergjum, fundaherbergi og slík aðstaða. Þar er einnig leikstofa, skóli og aðstaða fyrir endurhæfingu auk kapellu. Þriðja hæð hefur að geyma hand- læknisdeild og almenna legudeild og dagstofu foreldra þar sem er m.a. eldunaraðstaða. Sjúkrastofumar eru eins og tveggja manna og gert er ráð fyrir aukarúmi (almennilegu rúmi) í öllum stofum fyrir foreldra. Á þeirri hæð er einnig sérstakt unglingaher- bergi þar sem þeir geta tekið á móti gestum sínum, spilað tónlist og að miklu leyti látið eins og heima hjá sér. Á efstu hæð em síðan ungbarna- deild og vökudeild. Þar er einnig mikilvæg nýjung að mati Ásgeirs, tvö gistiherbergi fyrir foreldra. Þau em til dæmis ætluð foreldrum barna sem liggja á vökudeild svo þau geti verið í kallfæri en á deildinni er ekki hægt að koma við aukarúmum í stof- unum. Þá vekur Ásgeir athygli á að- ARKITEKTARNIR og aðstoðarmenn við líkan af nýja barnaspítalanum. Frá vinstri: Hans-Olav Andersen, Sveinn Bragason, Hrefna Björg Þorsteinsdóttir, Laufey Agnarsdóttir og Sigríður Magnúsdóttir. MorgunblaðiíTÁsdís Ásgeir Haraldsson um framhald á byggingu Barnaspítala Hringsins Getum vonandi haldið upphaflegTÍ áætlun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.