Morgunblaðið - 16.05.1999, Page 11

Morgunblaðið - 16.05.1999, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1999 11 BREYTTAR DÁNAR- ORSAKIR Á NÝRRIÖLD Líkur eru á að kransæðasjúkdómar og sjúkdómar sem rekja má til tóbaksreykinga eigi eftir að draga mun fleiri til dauða eftir tuttugu ár en nú við lok 20. aldarinnar. For- vitnileg grein sem fjall- ar m.a. um dánarorsak- ir og helstu ástæður heilsuleysis á fyrstu tugum nýrrar aldar vakti forvitni Maríu Hrannar Gunnars- dóttur og stiklar hún hér á stóru um helstu atriði greinarinnar. Morgunblaðið/Golli HJARTAAÐGERÐ á Landspítala. AREIÐANLEGAR upplýs- ingar um algengi sjúk- dóma sem og aðrar far- aldsfræðilegar upplýsingar um hvernig tíðni sjúkdóma eða ann- arra heilsufarslegra áfalla breytist með tíma eru afar mikilvægar þeim sem starfa að heilbrigðismálum. Upplýsingarnar eru meðal annars notaðar til að forgangsraða og til að meta hvenær ástæða er til að grípa inn í þróun mála. Tölur um dánaror- sakir fólks víða um lönd, og þá aðal- lega í þróunarlöndunum, liggja aftur á móti ekki á lausu og þær sem til eru eru yfirleitt hvorki nákvæmar né sambærilegar við tölur frá lönd- um þar sem skráning og eftirlit er orðið gott. Engu að síður hefur verið unnið að því að safna heiisufarsupp- lýsingum frá öllum löndum heims, allt frá skrám yfir dánarorsakir til einstakra rannsókna þar sem áhersla hefur verið lögð á afmörkuð rannsóknarefni svo sem malaríu. Undanfarin ár hafa þrjár virtar stofnanir, Harvard-háskólinn, Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og Alþjóðabankinn, t.d. unn- ið sameiginlega að því að safna þess- um mismunandi gögnum saman tii að meta ástand heilbrigðismála hjá þjóðum heimsins og skilgreina ástæður sjúkdóma og áverka svo marka megi stefnu í heilbrigðismál- um við upphaf nýrrar aldar. Verk- efnið heitir á ensku The Global Bur- den of Disease og var því hleypt af stokkunum árið 1992. í grein sem birtist í tímaritinu Nature medicine nýlega er einmitt sagt frá verkefn- inu og m.a. fjallað um helstu dánar- orsakir á heimsvísu árið 1990 annars vegar og hins vegar hvaða sjúkdóm- ar og áföll eru líklegust til að verða jarðarbúum að aldurtila árið 2020. Þriðjungur deyr úr smitsjúkdómum Markmið verkefnisins eru þrí- þætt. í fyrsta lagi er reynt að meta hversu mörgum árum við góða heilsu fólk verður af ef það veikist eða slasast svo alvarlega að það deyr eða hlýtur örorku af. í öðru lagi til að tryggja að allt skipulag og áform í heilbrigðismálum séu byggð á hlutlægum faraldsfræðilegum og lýðfræðilegum gögnum og án þess að lögfræðingar hafi þar hönd í bagga, eins og segir í greininni. I þriðja lagi er markmiðið að meta byrði og álag sem fólk verður fyrir vegna sjúkdóma og slysa með því að nota mælistiku sem einnig mætti nota til að meta hvort íhlutun myndi hafa áhrif á kostnað. Samkvæmt þeiin niðurstöðum rannsóknarinnar sem þegar er búið Fimmtán algengustu sjúkdómar eða áföll sem valda fólki örorku eða ótímabærum dauðdaga árið 1990 og spá fyrir árið 2020 1990 Sjúkdómur/áverki Lungnasýkingar Niðurgangur Burðarmálsvandamál Alvarlegt þunglyndi Kransæðasjúkdómar Æðasjúkdómar í heila Berklar Mislingar Umferðarslys Meðfæddir gallar Malaría Langvinn lungnateppa 12 Meiðsli vegna hrösunar 13 Járnskortur 14 Próteinskortur og orkuþurrð t**í að birta er talið að um 50 milljón- ir manna hafi dáið árið 1990 og að þrír fjórðu þeirra hafi búið í þró- unarlöndum. Um þriðjungur allra dauðsfalla er vegna smitandi sjúk- dóma og eru langflestir sem hljóta þau örlög fólk frá þróunarlöndun- um, aðallega böm. Flest dauðsföll í þróunarlöndum eru þó vegna sjúk- dóma sem ekki eru smitandi en nokkuð er breytilegt eftir heims- hlutum hversu margir deyja vegna smitsjúkdóma og hve margir úr öðr- um sjúkdómum eða slysum. Hlut- fallslega fleiri deyja t.d. úr smitsjúk- dómum í Indlandi og Afríku sunnan Sahara-eyðimerkurinnar en í Kína og Suður-Ameríku. Kransæðasjúk- dómar eru algengasta dánarorsökin á Vesturlöndum (2,7 milljónir árið 1990) en slag og lungnakrabbamein eru næst í röðinni. Einungis einn smitsjúkdómur, sýkingar í lungum, er á lista tíu helstu dánarorsaka í þessum sömu löndum. Lungnasýk- ingar dróga aftur á móti einn af hverjum tíu af íbúum þróunarlanda til dauða árið 1990. LífsUkur eftir heimshluta Smitsjúkdómar eru langfyrirferð- armestir á hsta yfir tíu algengustu heilbrigðisvandamálin sem þjóðir þróunarlanda standa frammi fyrir. Þar á meðal er niðurgangur en úr honum dóu 2,9 milljónir manna á ár- inu 1990, nýburasjúkdómar (2,4 milljónir), berklar (1,9 milljónir), mislingar (1,1 milljón) og malaría (0,9 milljónir). Það kom rannsakend- um hins vegar á óvart að önnur og þriðja algengasta dánarorsök í þró- unarlöndum á árinu 1990 voru kransæðasjúkdómar sem taldir eru hafa dregið 3,6 milljónir manna til dauða og slag sem varð 3.0 milfjón- um manna að aldurtila. Atta hund- ruð þúsund manns létu lífið í um- ferðarslysum í þessum heimshluta árið 1990. Tvö hundruð þúsund vest- urlandabúar létu lífið í umferðar- slysum á sama ári. Rannsóknamiðurstöðumar varpa skýra ljósi á þá staðreynd að lífslík- ur fólks fara mikið eftir því í hvaða heimshluta það býr. Líkur á að bam sem fæðist í Afríku sunnan Sahara deyi áður en það nær 15 ára aldri era 20-25% en 1-2% líkur ef það fæðist í iðnríkjunum. Langflest bamanna í Afríku sunnan Sahara deyja úr einhverjum smitandi sjúk- dómi. Þá era 40% líkur á að karl- maður á 16. aldursári sem býr í Af- ríku sunnan Sahara deyi fyrir sex- tugt en aftur á móti 14% ef hann er frá hin- um iðnvædda heimshluta. Þessar tölur era byggðar á upplýsingum frá 1990. Karl- menn sem bú- settir era í Austur-Evr- ópu þar sem kommúnistar réðu áður ríkjum era helmingi lík- legri en karlar frá iðnríkjun- AP um til að að valda mun fleir- deyja áður v<5 oru talin eiga citir.“ ., • ( rútuslysi en þeir ná UMFERÐARSL ® aivarlegu LeúsuH ^ 26 sextíu ára um en nú er ^ð^andaríUjnn«m est 21 m ajdri. Kon- sem nýlega varð i »» slosuðust. ur frá fyrrver„ andi kommúnistaríkjum era hins 2020 Sjúkdómur/áverki 1 Kransæðasjúkdómar 2 Alvarlegt þunglyndi 3 Umferðarslys 4 Æðasjúkdómar í heila 5 Langvinn lungnateppa 6 Lungnasýkingar Berklar Stríð Niðurgangur Alnæmissmit 11 Burðarmálsvandamál 12 Ofbeldi 13 Meðfæddir gallar 14 Sjálfsáverkar Krabbamein í barka, berkjum og lungum vegar mun betur settar hvað þetta varðar en landar þeirra af karlkyni og er munurinn á þeim og konum frá iðnríkjunum ekki svona hróplega mikill. Geðsjúkdómar áberandi Rannsóknin leiðir einnig í ljós hvaða sjúkdómar eða áfóll era helst til að valda fólki örorku. Þessar ástæður era yfirleitt allt aðrar en þær sem valda fólki dauða og segja rannsakendurnir að þær verði gjaman útundan í umræðu um heilsuvemd og forgangsröðun. Alvarlegir geðsjúkdómar, þ.e.a.s. alvarlegt þunglyndi, geðklofi, þrá- hyggju- og áráttusjúkdómar og geð- hvarfasýki, era fjórar af tíu algeng- ustu ástæðunum íyrir örorku. Afengisneysla er megin ástæða þess að karlar á Vesturlöndum verða fyr- ir heilsutjóni en er, rannsakendun- um til nokkurrar furðu, í fjórða sæti meðal karla í þróunarlöndunum. Markmiðið með rannsókninni er einnig að gera tilraun til að spá fyrir um lífslíkur fólks sem og svokallaðar leiðréttar lífslíkur, þar sem tekið er með í reikninginn það álag sem fólk verður fyrir við að missa heilsuna fyrir aldur fram. Til þess er notað tiltölulega einfalt líkan þar sem áhrif þátta eins og menntunar og efha- hags á þróun einstakra sjúkdóma era tekin til greina. Tíðni tóbaks- reykinga og tími era notuð sem breytur til að sýna fram á tilkomu farsóttarkenndra langvinnra sjúk- dóma og tii að hægt sé að segja fyrir um áhrif framfara og nýjunga á borð við bólusetningar og aukna þekkingu. Þrír listar vora síðan útbúnir þar sem sjúkdómum eða áverkum er raðað eftir því hversu líklegt er talið að þeir valdi fólki fötlun eða dauða árið 2020. Sá fyrsti er nokkurs kon- ar bjartsýnislisti, annar svartsýnis- listi en sá þriðji er nefndur grann- listi og er hann birtur hér í töflu. Samkvæmt grannlistanum er talið að lífslíkur karla í hinum iðnvædda heimshluta hækki úr 73 áram í 78 ár á tímabilinu 1990 til 2020 en kvenna úr 81 ári í 88 ár. Lífslíkur fólks era taldar batna í svipuðum mæli annars staðar í heiminum fyrir utan í kommúnistaríkjunum fyrrverandi en þar er gert ráð fyrir að þær verði hinar sömu árið 1990 og 2020. Talið er að smitsjúkdómar muni færast niður listann jrfir 15 algeng- ustu sjúkdómana eða áfollin á heimsvísu. Kransæðasjúkdómar munu samkvæmt spánni verða í efsta sæti árið 2020 og alvarlegt þunglyndi og umferðarslys í næstu tveimur. Alnæmissmit mun verða mun algengara en árið 1990 og fara upp í 10. sæti árið 2020 úr því að vera í kringum 30. sæti. Það vekur einnig athygli að áætlað er að tó- baksreykingar muni árið 2020 valda mun fleiram heilsutjóni en nú er. Fjölmargir sjúkdómar era raktir til tóbaksnotkunar og er talið að 3,5 miUjónir manna deyi á hverju ári þeirra vegna. Flestir þeirra sem munu deyja úr þessum sjúkdómum eftir tuttugu ár era einmitt reyk- ingamenn núna og segja rannsak- endurnir að ef ekki takist að sann- færa þá um að bregða af þeim vana sínum muni reykingar draga átta til níu milljónir manna til dauða árið 2020. Munar þar mest um reykinga- menn frá þróunarlöndunum þar sem annar hver karlmaður reykir að jafnaði. Rannsakendur segjast í grein sinni telja að rannsóknin og þær nið- urstöður sem búið er að birta hafi nú þegar stuðlað að umræðum um heilsuvemd og víkkað sjóndeildar- hring þeirra sem um þessi mál fjalla á heimsvísu. Menn geri sér t.d. bet- ur grein fyrir því en áður hversu mikilvægt sé að beina sjónum að geðrænum sjúkdómum og öðram sjúkdómum sem ekki era smitandi. Þá segja þeir einnig að nú sé það al- mennt viðurkenndara en áður að marga sjúkdóma og meiðsli megi rekja til fötlunar og lélegrar heilsu þeirra sem fyrir þeim verða. Einnig segja þeir að menn geri sér nú betur grein fyrir þeim þáttum sem líkleg- astir era til að valda fólki heilsutjóni. Þar tína þeir sérstaklega til tóbak, áfengi og kynlíf án ábyrgð- ar sem samanlagt valda jafnmörg- um heilsutjóni og mislingar, malaría eða berklar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.