Morgunblaðið - 16.05.1999, Side 14

Morgunblaðið - 16.05.1999, Side 14
14 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1999 Hátækni í sókn en lagakerfið er stirt Lengi vel hefur verið litið á Kína sem van- þróað land að mörgu leyti og er það ekki að ástæðulausu, segir Eyjólfur Sigurðsson í grein sinni. Síðustu aldir hafa Kínverjar tekið lítinn þátt 1 mótun þeirrar tækni- þróunar sem orðið hefur í heiminum en það er ólíkt því sem áður var og líklegt að breyting sé að verða á. Reuters GESTIR á hátæknisýningu í Peking virða fyrir sér nýjungum. KÍNVERJAR voru búnir að uppgötva og innleiða marg- víslega tækni löngu áður en það gerðist annarstaðar í heiminum, til dæmis má þar nefna pappír, prenttækni, púður og átta- vita. Þeir héldu þessari forystu fram að iðnbyltingunni en upp frá því má segja að þeir hafi lítið annað gert en að fylgja eftir þeirri tækni- þróun sem hefur átt sér stað annar- staðar í heiminum með misgóðum árangri. Nú er ýmislegt sem bendir tii þess að Kínveijar séu óðum að minnka þetta tæknibii og er jafnvel álit sumra að möguleiki sé á að þeir geti komist í fremstu röð á sumum sviðum. Það er aðallega tvennt sem veldur þessu. Fyrri ástæðan er sú að háskólar í Kína hafa lagt mikla áherslu á tæknimenntun nemenda sinna. Stærðfræðiþekking er á háu stigi og önnur þekking eins og á hug- búnaði er jafnvel betri heldur en gerist annarstaðar í heiminum. Það hefur síðan aftur skilað sér í þvi að stór alþjóðleg fyrirtæki hafa séð sér hag í því að koma á fót rann- sóknar- og þróunardeildum þar í landi. Tvö þessara fyrirtækja eru Microsoft og Intel og eru rann- sóknar- og þróunardeildir þeirra einar af örfáum sem staðsettar eru utan Bandaríkjanna. Þessi fyrir- tæki starfa náið með háskólunum i Kína og veita þeim nemendum sem skara framúr bæði námsstyrki og trygga atvinnu. Það að þessi fyrir- tæki velji Kína í þessu efni sýnir að þau telja að þar sé einmitt einn besti staðurinn fyrir áframhald- andi þróun í hugbúnaði og vél- tækni. Síðari ástæðan, þótt undarlegt sé, er að hluta til orðin vegna fjöldamorðanna á Torgi hins himneska friðar. Fjölmargir Kín- verjar hafa á undaförnum árum farið til náms í Bandaríkjunum og er talið að allt að 50.000 manns hafi verið þar við nám þegar fjöldamorðin voru framin árið 1989, en eftir þau tók Bandaríkjastjóm þá ákvörðun að veita þeim sem þar voru við nám ótakmarkaða land- vistarheimild. Margir þessara námsmanna nýttu þetta tækifæri til að fara í framhaldsnám og af þeim fór stór hluti í nám við tölvu- vísindi og rafmagnsverkfræði. Nú er svo komið að þúsundir þessara fyrrverandi nema vinna við há- tæknistörf í Bandaríkjunum og að minnsta kosti 1.600 þeirra vinna í fyrirtækjum í Silicon Valley. Vitað er að hluti þessa hóps hefur hug á því að fara aftur heim og með því gætu möguleikar Kina á að koma á fót hátækniiðnaði í landinu aukist líkt og gerðist í Tævan. Ýmsir erfíðleikar Þrátt fyrir að þekkingin og möguleikamir séu til staðar í land- inu er ekki þar með sagt að aðrar aðstæður séu hliðhollar nýtingu þeirra. Stjórnvöld í Kína hafa gert sér grein fyrir því að besta leiðin til uppbyggingar slíks iðnaðar, er að styðja við bakið á einkafyrirtækjum og koma á markaðsbúskap en það hefur hinsvegar gengið hægt. Helsta umkvörtunarefni þeirra sem vilja nýta þessa tækniþekkingu með því að stofna einkafyrirtæki eða þróa einhverja vöru er að mjög erfitt sé að fá til þess nægilegt fjár- magn. Þeir sem stjórna ríkisbönkunum eru ekki enn búnir að venjast þeirri hugmynd að lána fé til einkafyrir- tækja og finna hátæknifyrirtæki mjög fyrir þessu. Þau hafa mörg hver litlar eignir á bakvið sig til tryggingar og geta ekki sýnt fram á ömggan hagnað og því er næstum ómögulegt fyrir þau að fá lán. Einnig er erfitt fyrir þau að skrá sig á hlutabréfamarkað, því tak- markaður fjöldi fyrirtækja fær að skrá sig á hveiju ári og oftar en ekki era það stóra ríkisreknu fyrir- tækin sem fá leyfin. Annað atriði sem er þrándur í götu nýrra hátæknifyrirtækja er að skýrt orðað lagakeifi til að vemda hagsmuni þeirra og hugmyndir er lítt þróað sem leiðir til þess að erfitt er að veijast hugbúnaðar- og hugmyndastuldi. Þá hefur einnig reynst erfitt að kæra og fá skaða- bætur eftir samningsbrot milli kaupenda og seijenda. Stjórnvöld í Kína hafa reynt að bæta úr þessu með því að innleiða ný og betri lög. Fyrir stuttu breytti þingið í Kína stjómarskránni í þeim tilgangi að styrkja stöðu einkafyrirtækja sem era nú skil- greind sem ,mikilvægur þáttur“ í hagkerfinu í staðin fyrir að vera lýst sem ,viðbót“ við það. Þingið samþykkt einnig ný lög um við- skiptasamninga sem leysa af hólmi margar flóknar reglugerðir og ger- ir alla samninga mun auðveldari. Hinsvegar hefur á undanfómum áram ekki verið nóg að breyta lög- um og stjórnarskrá til að breyta því hvemig hlutirnir era framkvæmd- ir. Oft vantar mikið upp á að lögun- um sé framfylgt af yfirvöldum og stjómarskráin hefur oftar en ekki verið þverbrotin, þó að það eigi sér- staklega við í mannréttindamálum. Auk þessa hefur dómskerfið alls ekki getað kallast hlutlaust því að kommúnistaflokkurinn hefur lengi getað stjómað hvernig dómar falla og ekki bætir úr skák að spilling embættismanna er mikið og viðvar- andi vandamál í Kína sem gerir dómstólana enn frekar óáreiðan- lega. Þegar litið er til sögunnar er ekki óeðlilegt að hægt gangi að koma á markaðskerfi og lagakerfi að vest- rænni fyrirmynd í Kína. Astæðan er ekki eingöngu sú að kapítalískt markaðskerfi hefur aldrei áður ver- ið innleitt í Kína, heldur einnig að það lagakerfi sem þarf til að koma því á er í grandvallaratriðum ólíkt því lagakerfi sem hefur verið við lýði í Kína seinustu árþúsundin. Kínversk stjómvöld hafa á unda- fömum áram gert róttækar breyt- ingar á lagakerfinu svo að það líkist því sem gerist á Vesturlöndum, en þrátt fyrir þá viðleitni er það á mörgum sviðum vanbúið að fara eftir þeim breytingum. Myndun lagakerfiisins í Kína Saga lagakerfisins í Kína er löng og er hægt að rekja upphaf þess löngu fyrir daga Krists. Fyrst er minnst á lög í Kína í sögu sem á að hafa gerst um 2.000 f.kr. en þar vora þau sett í sambandi við ósið- menntaða þjóðflokka og talin stríða gegn ,alheimsskipulaginu“ (cosmic order). Sama andstaða var enn til staðar um 1.500 árum seinna þegar fyrsta lagabókin sem vitað er um í Kína var skrifuð. Ein af þeim rök- semdum sem notuð vora gegn skrifuðum lögum var, að þegar fólk myndi vita hver réttur þess væri, þá myndi það hafna hinum óskráðu lögum er giltu í samfélaginu og not- færa sér lögin til að útkljá hin minnstu deilumál sem upp kæmu í hinu daglega lífi. Tekist var á um þessi tvö and- stæðu sjónarmið um 200 f.kr. og var þá mörkuð sú stefna í lagakerfi Kína sem farið var eftir til okkar tíma. Þar tókust á kennimenn sem hlynntir vora konfúsískum viðhorf- um og kennimenn sem hlynntir vora stöðugu og almennu lagakerfi. Hugsunin bakvið hin konfúsísku viðhorf var að maðurinn væri góður í eðli sínu eða a.m.k. að hann gæti lært að vera góður og gegn í samfé- laginu og það væri samfélagið og hinar almennu reglur í því sem gerðu manninn að góðum borgara. Þessar reglur kenndu mönnum hvað væri rétt og rangt og kæmu því í veg fyrir að framin væra ill- virki. Aftur á móti kæmu lög ekki í veg fyrir illvirkin, þau kæmu aðeins til framkvæmda eftir að illvirkið væri framið og væru því gagnslaus. Þeir sem vildu stöðugt lagakerfí færðu rök fyrir því að ein lög sem væra skráð niður og næðu yfir allt landið myndu bæði bjóða upp á stöðugleika og myndu auðvelda alla stjómun á landinu. Það myndi einnig minnka þann skaða sem óhæfur keisari gæti valdið því að alltaf væri hægt að styðjast við lög- in og stjómkerfið í kringum þau. Kenningar þeirra síðarnefndu vora innleiddar og notaðar í um 14 ár (221-207 f.kr.). Á þeim tíma var lagður grannurinn að keisaraveld- inu í Kína og stjórnun þess. Hins- vegar fór það svo vegna grimmi- legra laga, fjöldamorða á konfús- ískum kennimönnum, bókabrenna og margra annarra óvinsælla að- gerða var gerð bylting og aftur snúið til hinna konfúsísku viðhorfa. Þrátt fyrir það var lagakerfið sem komið hafði verið á ekki afnumið að fullu, til þess var það of gott stjórntæki. Haldið var áfram að rita lög og dómstólar vora enn notaðir til stjómunar í ríkinu en konfúsískar kenningar áttu nú greiðari aðgang að þessu kerfi og höfðu mikil áhrif á hvemig það starfaði næstu aldirnar. Hið hefðbundna dómskerfi Dómarar störfuðu út frá þeirri reglu að hver sá sem var ákærður væri sekur þar til annað væri sann- að. Þessi regla var byggð á þeirri kenningu að enginn löghlýðinn borgari myndi nokkum tímann komast í kast við lögin. Ennfremur þurfti dómarinn ekki að hafa neinar beinar sannanir til að handtaka og kæra fólk og þar sem pyndingar vora ekki óalgengar við yfirheyrsl- ur, var það álit fólks að það að blandast í dómsmál væri ein mesta ógæfa sem komið gæti fyrir. Leiddi þetta til þess að fólk reyndi eftir fremsta megni að leiða deilumál sín til lykta fyrii' utan dómskerfið. Áldrei kom til aðskilnaðar dóms- og ríkisvalds, því tilgangur laganna var aðallega að vera stjórntæki rík- isvaldsins. Það leiddi meðal annars af sér að lögin fjölluðu lítið um rétt einstaklingsins og komu þvi sjaldan við sögu þegar t.d. kom upp brot á samningi milli tveggja einstaklinga. Það var ekki fyrr en í byrjun ald- arinnar sem reynt var að innleiða MORGUNBLAÐIÐ lagakerfi að vestrænni fyrirmynd. Þessi litla uppbygging fór hinsveg- ar forgörðum í þeim óróa og ólgu- tíma sem var milli 1920-1950. Kommúnistastjómin reyndi einnig að innleiða þetta kei-fi en hætti snarlega við það þegar upp komu kröfur frá löglærðum mönnum um að dómstólarnir yrðu sjálfstæðir, því enn var sú skoðun ríkjandi hjá yfirvöldum að dómstólarnir ættu að vera stjómtæki ríkisins. Umbætur og vandamál Opnun Kína útávið og ekki síst sú tilraun að koma á markaðskerfi í landinu hefur orðið til þess að þurft hefur að koma á miklum umbótum í lagakerfinu. Dómskerfið var van- þróað, réttur einstaklingsins var ekki virtur og margskonar einka- málalöggjöf var einfaldlega ekki til. Mikið hefur verið gert á undanförn- um áram til að bæta úr þessu og í raun hefur orðið að endurskrifa lögin frá granni. Einnig hefur orðið að mennta fólk til að gegna störfum í hinu nýja dómskerfi og hefur dómsmálaráðuneytið í Kína setti sér það markmið að mennta um 100.000 lögmenn fyrir árið 2000 en fáir búast við því að það takist. Þrátt fyrir að mikið hafi verið gert til endurbóta er enn mikið verk óunnið. Dómskerfið er t.d. ekki aðskilið frá ríkisvaldinu. Það ber þó mun minna á því í einkamál- um heldur en þar sem málefnin varða öryggi kommúnistaflokksins. Einnig komast þeir sem sækja mál á hendur öðram aðilum, eins og fyr- ir samningsbrot, að því að dóms- kerfið er ekki alltaf reiðubúið að refsa þeim sem braut af sér. Hægt er að rekja það til hugmynda Mao um refsingar og kannski lengra aft- ur í tímann þegar fólk gerði út um sín mál fyrir utan dómstóla. Að áliti Mao átti einungis að nota refsingar og þvinganir gegn óvin- um samfélagsins, en í einkamálum þar sem ekki var hægt að sanna að annar aðilinn hefði brotið af sér, og báðir höfðu kannski nokkuð til síns máls, var frekar leitast við að sætta málsaðila heldur en dæma öðram þeirra í vil. Einnig hafa margir komist að því að ef dómstólar dæma annan aðil- ann til að greiða sekt eða annan kostnað, er hægara sagt en gert að fá því framfylgt. Framkvæmda- valdið hefur átt mun auðveldara með að fangelsa fyrir brot heldur en að framfylgja sektargreiðslum fyrirtækja. Hér er ekki einungis um vanhæfni og vankunnáttu fram- kvæmdarvaldsins um að kenna heldur kemur einnig inn í spilið spilling og pólitík. Það sem um hefur verið rætt hér á undan era aðeins dæmi um þá lagalegu erfiðleika sem einkafyrir- tæki geta lent í við starfsemi sína og þá era ótalin önnur vandamál eins og óskilvirkt stjórnkerfi og spilling. Sérstaklega hefur verið rætt um lögin og framkvæmd þeirra í þessu tilviki. Ástæðan er sú að skýrar reglur sem er framfylgt fljótt og öragglega er homsteinn þess að hægt sé að koma á kapítal- ísku markaðskerfi. Auðvitað vantar að hluta til póli- tískan vilja í Kína til að innleiða þær umbætur sem þarf til að koma á einkavæðingu í landinu. Hinsveg- ar era þeim lögum sem þegar er búið að koma á til að hjálpa einka- fyrirtækjum oft ekki framfylgt sem skyldi og er þá ástæðan nýtt laga- kerfi, ný lög og nýr hugsunarháttur sem tekur tíma að innleiða í hvaða ríki sem er. Því má segja að jafnvel þó að menntun og þekking sé til í landinu er ekki við því að búast á næstunni að upp skjótist kínversk hátækni- fyrirtæki sem verði í fremstu röð í heiminum. Frekar má ætla að hæfileikaríkir einstaklingar muni sækjast eftir að komast að hjá erlendum fyrirtækj- um og að þeir sem búi erlendis muni hugsa sig um tvisvar áður en þeir ákveða að flytja aftur til Kína. Höfundur lauk nýlega M.A. námi i alþjóðastjdmmálum við háskólann í Durham í Bandaríkjunum. Lokaritgerð iians fjallaði um lagakeríi Ki'na.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.