Morgunblaðið - 16.05.1999, Qupperneq 38
J38 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1999
*---------------------
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+ Sigurður Guð-
björn Ólafsson
var fæddur í
Reykjavík 5. sept-
ember 1929. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 5. maí
siðastliðinn. For-
eldrar Sigurðar
voru Ólafur Einars-
son, bifreiðarstjóri,
f. 1.9. 1887, d. 19.6.
1974, og Magdalena
Margrét Benedikts-
dóttir, húsfreyja, f.
13.5. 1891, d. 7.6.
1930. Ólafur og
Magdalena áttu átta börn auk
Sigurðar, en þau eru: 1) Bene-
dikt, f. 19.8. 1910. 2) Einar
Kjai-tan, f. 11.6. 1913, d. 20.10.
1992. 3) Björgvin, f. 6.8. 1916. 4)
Hallóra Kristjana, f. 20.12.
1918. 5) Guðgeir Oddur, f. 27.5.
1920. 6) Kjartan Siguijón, f. 1.8.
1921, d. 24.6. 1986. 7) Guðrún
Jóhanna, f. 16.11. 1923, d. 26.8.
1988. 8) Þórólfur Valur, f. 6.4.
1925. Seinni kona Ólafs var
Guðrún Halldórsdóttir,hús-
freyja, f. 14.7. 1908, d. 29.4.
1993. Þau áttu þrjár dætur: 1)
Magdalenu Margréti, f. 29.8.
1931. 2) Ólaffu Auði, f. 21.12.
1934. 3) Dagnýju Ólu, f. 21.9.
1940.
Árið 1960 hófú þau sambúð
Við kveðjum ástkæran föður okkar:
Sú trú, sem ijöllin flytur,
oss fári þyngstu ver,
ei skaða skeyti bitur,
þann skjöld ef berum vér,
í stormum lífe hún styður
og styrkir hjörtu þreytt,
í henni’ er fólginn friður,
sem fær ei heimur veitt.
Minn Jesús, lát ei linna
í lífi trú mér hjá,
svo faldi fata þinna
égfáiþreifaðá
og kraftinn megi kanna,
semkemuræfráþér
til græðslu meinum manna
og mest blessun lér.
Sigurður og Ólafía
Sigríður Brynjólfs-
dóttir frá Minna-Kn-
arrarnesi á Vatns-
leysuströnd, f. 28.2.
1936. Þau gengu í
hjónaband 31. desem-
ber árið 1966 en slitu
samvistum 11 árum
síðar. Börn Sigurðar
og Ólafíu eru: 1) Ólaf-
ur, f. 23.7. 1961, sam-
býliskona hans er fris
Guðmundsdóttir, syn-
ir þeirra eru Helgi
Már og Birgir. 2)
Bryndís Hólm, f. 7.10.
1962, synir hennar eru Kristján
Kári og Daníel Heimir. 3) Mar-
grét Guðrún, f. 14.12. 1963, sam-
býlismaður hennar er Brynjar
Bjarnason, dætur þeirra eru Jó-
hanna og Elena, sonur Margrétar
er Hilmar Guðbjöm. 4) Sigurður
Garðar, f. 15.12. 1964, eiginkona
hans er Lína Dagbjört Friðriks-
dóttir, sonur Sigurðar Garðars er
Brynjólfúr Öm. 5) Magdalena
Margrét, f. 6.7. 1966, sambýlis-
maður hennar er Símon Amar
Sverrisson, börn Magdalenu em
Aðalheiður Ósk og Sigurður Ró-
bert. Ólafía átti fyrir synina
Gunnar f. 18.10. 1952 og J.
Brynjólf Hólm f. 4.2. 1954.
Sigurður ólst upp í stómm
systkinahópi í Bræðraparti í
í trú mig styrk að stríða
og standast ein og ber,
í trú mig láttu k'ða,
svo líki, Drottinn, þér.
Er dauðans broddur bitur
mér beiskri veldur þrá,
þá trú, er ijöliin flytur,
mig friða láttu þi
(H. Hálfd.)
Ólafur, Bryndís, Margrét,
Sigurður og Magdalena.
Við kveðjum afa Sigurð með
söknuði. Þegar við lítum til baka,
koma margar góðar minningar upp
í hugann sem gaman er að rifja upp.
Þó svo að síðustu mánuðir hafi verið
erfíðir hjá honum, snéri hann oftast
Laugardal hjá föður sínum og
stjúpmóður, en móður sína
missti hann þegar hann var 9
mánaða. Árið 1942 fluttist fjöl-
skyldan í Kirkjubæ við Laugar-
nesveg 58 og bjó Sigurður þar
allt til ársins 1960 er hann
stofnaði heimili sjálfur.
Sigurður hóf störf hjá Eim-
skip árið 1948 en fram að þeim
tíma hafði hann m.a. haft það
að sumarstarfi frá 11 ára aldri
að annast mjólkurflutninga á
hestakerru frá Laugabóli í
Laugardal. Eftir tveggja ára
starf hjá Eimskip hóf hann
störf þjá Áburðarverksmiðj-
unni og var þar til ársins 1955
er hann flutti sig til íslenskra
aðalverktaka á Keflavíkurflug-
velli þar sem hann starfaði á
þungavinnuvélum _ og ýmsum
tækjum í 10 ár. Árið 1958 fór
hann ásamt hópi vinnufélaga til
Bandaríkjanna á námskeið í
meðferð vinnuvéla og tækja.
Frá 1965 til 1970 starfaði Sig-
urður hjá Jarðýtunni s/f og eft-
ir það hjá Ámokstri s/f til árs-
ins 1976 er hann hóf störf þjá
BM Vallá. Upp frá því, utan ár-
anna 1978 til ‘80 er Sigurður ók
eigin vörubíl á Vörubílastöðinni
Þrótti, starfaði hann hjá BM
Vallá allt til ársins 1993. Sig-
urður hafði alla tíð mikinn
áhuga á verkalýðsbaráttunni
og var um tíma í stjórn Dags-
brúnar og í trúnaðarmannaráði
félagsins.
Utför Sigurðar verður gerð
frá Áskirkju á morgun og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
öllu á besta veg og gantaðist með
hlutina. Núna vitum við að honum
líður vel og er laus við allar þjáning-
ar. Hann er kominn til foreldra og
systkina umvafinn hlýju. Megi góði
Guð geyma hann.
Helgi Már og Birgir.
Mig langar að minnast tengda-
föður míns, Sigurðar, í örfáum orð-
um. Við þekktumst í þrjú ár, það
voru góð ár en ég hefði viljað hafa
þau fleiri. Hann sýndi mér einstak-
an hlýhug og tók mér sem dóttur
strax frá fyrsta degi.
Hver hefði trúað því þegar ég og
Bói giftum okkur fýrir tveimur ár-
um að Sigurður ætti svona stuttan
tíma eftir með okkur? Við héldum
að honum hefði tekist að sigrast á
veikindum sínum, reyndar tókst
honum að hafa betur í nokkur ár
með vilja, trúarstyrk og sínu aðals-
merki sem var húmorinn. Það var
sama hvað á gekk, hann gat alltaf
gert grín og gott úr öllu saman. Eg
er þakklát fyrir þessi þrjú ár sem
ég fékk að þekkja Sigurð. Ég kveð
hann með söknuði.
Ó, þá náð að eiga Jesú
einkavin í hverri þraut.
Ó, þá heill að halla mega
höfði sínu’ í Drottins skaut.
Ó, það slys því hnossi’ að hafiia,
hvílíkt fár á þinni braut,
ef þú blindur vilt ei varpa
von og sorg í Drottins skaut.
(M. Joch).
Lína D. Friðriksdóttir.
Sigurður Ólafsson er látinn.
Hann fæddist í húsinu Bræðrapart-
ur í Laugardal í Reykjavík árið
1929 og hefði því orðið 70 ára á
þessu ári. Hann missti ungur móður
sína og var yngstur í stórum systk-
inahóp en eignaðist fljótlega ágæta
fósturmóður sem gekk honum í
móðurstað. Faðir hans var Ólafur
Einarsson bifreiðastjóri og starfaði
hann meðal annars lengi á Hreyfli.
Þótti hann mikill sögumaður og
naut óskiptrar athygli þeirra er á
hlýddu. Það má segja að Sigurður
Ólafsson hafí erft þarna tvennt frá
föður sínum. Hann starfaði alla tíð
við bifreiðastjóm eða við stjóm
vinnuvéla og frásagnarlistin var
honum í blóð borin ásamt fleiri góð-
um kostum. Þessara kosta fengum
við vinnufélagar hans að njóta í rík-
um mæli og viljum við þakka honum
samfylgdina og vináttuna. Sigurður
var starfsmaður steypustöðvarinnar
BM Vallá þegar fundum okkar bar
saman. Hann var þar trúnaðarmað-
ur starfsmannanna og vakti yfir vel-
ferð þeirra í hvívetna. Þama kom
fram enn einn kostur þessa manns
en það var áhugi hans á verkalýðs-
málum. Hann var alla tíð mikill
verkalýðssinni og hafði ákveðnar
skoðanir á þeim málum svo að ekki
sé kveðið fastar að orði. Faðir hans
stundaði smábúskap í Bræðraparti
og ólst hann upp við almenn sveita-
og heimilisstörf sem þótti sjálfsagt
að börn fengju að taka þátt í.
Einnig ók hann hestvagni fyrir ná-
grannabóndann, bar út blöð og
fleira. Hann stundaði nám í Laugar-
nesskólanum og sótti auk þess fundi
KFUM í Drengjaborg hjá Friðriki
Ólafssyni, sem var leiðtogi þar.
Sigurði þótti ávallt vænt um
Laugardalinn og sótti kirkju í ná-
grenni við hann og hélt mikið uppá
þá presta sem þjónuðu þar. Sigurð-
ur er alinn upp á miklum umbrota-
tíma í sögu þjóðarinnar og hreifst
með þeim áhrifum sem bárust hing-
að frá öðrum þjóðum og í vélamenn-
ingu og skemmtanahaldi. Hann
starfaði lengi hjá Loftleiðum og
einnig á Keflavíkurflugvelli svo að
eitthvað sé nefnt og á tímabili rak
hann sinn eigin vörubíl á Þrótti.
Hér er ekki hægt að gera nægilega
grein fyrir Sigurði vini okkar á
þann hátt sem honum bæri. Það
væri efni í heila bók ef ekki tvær.
Við viljum aðeins þakka fyrir að
hafa fengið að kynnast þessum
manni og eiga hann að vini og eins-
konar föður því hann kom fram við
okkur eins og hann ætti í okkur.
Sigurður var tvíkvæntur og átti
hann fimm böm með fyrri konu
sinni sem syrgja föður sinn og vilj-
um við senda þeim og öllum hans
systkinum og öðrum ættingjum og
vinum okkar samúðarkveðjur.
Megi algóður Guð styrkja ykkur
og hugga í sorginni.
Albert og Birgir.
í viðtali sem ég átti við vin minn
Sigurð G. Ólafsson í Morgunblaðinu
í júh'mánuði árið 1996 rifjaði hann
m.a. upp bemskuár sín í Laugardal
í Reykjavík á fjórða áratug aldar-
innar þegar Laugardalurinn var
dæmigert íslenskt sveitaumhverfi.
Sigurður ólst upp í stóram systkina-
hópi, bræðurnir vora sjö og syst-
urnar fimm. Þar af eru þrjár hálf-
systur sem Ólafur, faðir Sigurðar
átti með stjúpmóður Sigurðar. I við-
talinu minntist Sigurður stjúpmóð-
ur sinnar með hlýhug og virðingu.
Sigurður G. Ólafsson var fæddur
í Reykjavík 5. september árið 1929.
Móðir Sigurðar, Magdalena Mar-
grét Benediktsdóttir lést þegar Sig-
urður var aðeins níu mánaða og
hann var alinn upp á Laugarmýrar-
bletti 7 í Laugardal hjá föður sínum
Ólafi G. Einarssyni, sjómanni, vöra-
bifreiðastjóra og síðar leigubifreiða-
stjóra og stjúpmóður Guðrúnu Hall-
dórsdóttur.
Sigurður ólst upp í Reykjavík á
árum heimskreppunnar miklu á
fjórða áratug aldarinnar þegar at-
vinnuleysi og skortur gerði vart við
sig og miklir erfiðleikar vora hjá
verkafólki. Ólafur G. Einarsson fað-
ir Sigurðar var dugnaðarforkur og
Sigurður lagði áherslu á það í fyrr-
nefndu viðtali að á æskuheimilinu
hefði aldrei vantað neitt og þar
hefði alltaf verið nóg að bíta og
brenna. Ólafur G. Einarsson var
togarasjómaður til ársins 1928 að
hann kom í land og keypti vörabif-
reið og stundaði um árabil vörubif-
reiðaakstur og síðar leigubifreiða-
akstur.
A unglingsáram vann Sigurður
ýmis störf t.d. var hann í bæjarvinn-
unni hjá Sigurbergi Elíassyni og við
losun og lestun skipa hjá Eimskip
við Reykjavíkurhöfn árið 1948,
sama ár og hann tók bílpróf. Þá
vann hann um tíma hjá Aburðar-
verksmiðjunni eða til ársins 1955. A
þeim árum tók hann virkan þátt í
verkalýðsbaráttunni og var um tíma
í stjóm Dagsbrúnar og í trúnaðar-
mannaráði félagsins. Hann var alla
tíð einlægur verkalýðssinni og bar-
áttumaður fyrir þjóðfélagi jafnréttis
og bræðralags.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kr-
inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein-
ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk,
A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um
25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ijóð takmarkast
við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skímamöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu aímælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar era birtar afmæhsfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverkn-
að. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali
era nefndar DOS-textaskrár. Þá era ritvinnslukerfin Word og
Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.
LEGSTEINAR t Marmari
íslensk framleiðsla Granít
Vönduð vinna, gott verð Blágrýti
Sendum myndalista Gabbró
MOSAIK Líparít
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími 5871960, fax 5871986
SIGURÐUR
OLAFSSON
Um miðjan sjötta áratug aldar-
innar réði Sigurður sig í vinnu hjá
Islenskum aðalverktökum á Kefla-
víkurflugvelli á þungavinnuvélum,
jarðýtum, vegheflum, krönum og
ýmiss konar tækjum og starfaði þar
í tæpan áratug, en árum saman eftir
að hann hætti störfum þar suður frá
vann hann á þungavinnuvélum,
vöruflutningabifreiðum og jarðýtum
og t.d um árabil hjá BM Vallá.
Á heimili sínu rifjaði Sigurður oft
upp árin þegar hann starfaði á
Keflavíkurflugvelli. í frásögum Sig-
urðar heitins var gálgahúmor og
ógleymanlegar lýsingar á vinnufé-
lögum og þá fór Sigurður oft á kost-
um. Sigurður Ólafsson hafði þannig
húmor að jafnvel fólk sem hló helst
ekki, hló aldrei hærra og innilegra
en þegar Sigurður sagði frá atvik-
um og fólki sem hann hafði kynnst á
lífsleiðinni. Kímni og léttleiki var
einkennandi í fari Sigurðar Ólafs-
sonar.
Það era um það bil tveir áratugir
síðan ég kynntist vini mínum Sig-
urði Ólafssyni. Ég bjó þá í Norður-
mýrinni í Reykjavík og þangað kom
Sigurður eitt sinn á bifreið með góð-
um vini okkar. Þeir vora komnir til
að bjóða mér í ökuferð um Reykja-
vík. Við Sigurður höfðum ekki fyrr
tekist í hendur en mér fannst ég
hafa þekkt hann lengi. Hann átti
hjónaband að baki og var einhleyp-
ur og stundaði dansstaðina og hafði
gaman af að dansa, en taldi sig hafa
verið óttalegan tréhest á dansgólf-
inu framan af. Hann hafði þann
góða eiginleika að taka sjálfan sig
ekki alltof hátíðlega og að skopast
að ýmsu í eigin fari ekki síður en
samferðarmanna. Hann var ljúfur
og góður félagi og vinur. Sigurður
var meðalmaður á hæð, myndarleg-
ur á velli, þéttvaxinn, herðabreiður,
stæltur og mikið snyrtimenni í
klæðaburði.
Hann keypti íbúð í nýju fjölbýlis-
húsi við Grettisgötuna og þar sátum
við stundum á síðkvöldum yfir kaffi
og meðlæti. Kvikmyndahús vora
þarna allt í kring með nýjustu kvik-
myndirnar, en þau freistuðu ekki.
Að sitja í stofu heima hjá Sigurði
Ólafssjmi og heyra hann segja frá
ýmsu sem hann hafi lifað fyrr á ár-
um var mun ánægjulegra og
skemmtilegra. Hann fór víða og
kynntist mörgu fólki og kunni þá
list að segja þannig frá að það er
ógleymanlegt. Hann hafði ánægju
af að lesa ævisögur þekktra íslend-
inga og frásagnir af alþýðufólki og
fólki sem hafði lifað viðburðaríka
ævi. Oft setti Sigurður spólu í
myndbandstækið eftir nokkrar
skemmtilegar sögur af samferðar-
fólki. Á sjónvarpsskerminum birtist
gamli sjarmörinn, kvennagullið og
glaumgosinn, Frank Sinatra, með
hljómsveit Count Basie og söng
New York, New York eða My Way.
Frank Sinatra, Ella og Louis Arm-
strong voru uppáhaldssöngvarar
Sigurðar.
Þannig stundir vora einnig þegar
hann keypti nýja íbúð í fjölbýlishúsi
við Hraunbæ í Reykjavík fyrir örfá-
um áram. Þar hlustuðum við á
djassmúsík og ræddum sameiginleg
áhugamál og þjóðmálin. Sigurður
gerði að ganni sínu og var hrókur
alls fagnaðar hvort sem var heima í
stofu meðal vina og ættingja eða í
margmenni.
Það var í marsmánuði 1993 að
Sigurður greindist með þann sjúk-
dóm sem nú hefur lagt hann að
velli. Barátta gegn illvígum sjúk-
dómi fór í hönd. Vini mínum Sig-
urði var brugðið. Hann var ákveð-
inn að berjast til þrautar og um
tíma voru góðar horfur á að hann
fengi bata. Hann þurfti að dvelja af
og til á sjúkrahúsi og baráttan var
erfið. Um tíma voru töluverðar lík-
ur á að Sigurður vinur minn fengi
bata. Sigurður G. Ólafsson trúði á
handleiðslu þess sem öllu ræður.
Hann var sannfærður um að líf
væri að loknu þessu lífi og ég trúi
því að vel hafi verið tekið á móti
vini mínum. Ég flyt börnum Sig-
urðar og öðrum ættingjum innileg-
ar samúðarkveðjur. Með Sigurði G.
Ólafssyni er góður drengur geng-
inn. Guð blessi minningu Sigurðar
G. Ólafssonar.
Ólafur Ormsson.