Morgunblaðið - 16.05.1999, Side 44
44 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1999
MORGUNB LAÐIÐ
Furugrund - laus fljótlega
Góð 3ja herb. endaíb. á 1. hæð í litlu fjölbýli ásamt 10 fm
aukaherb., tilvalið til útleigu. V. 7,2 m. 3855.
Furugrund - m. aukaherbergi
Vorum að fá góða 97 fm 4ra herb. íb. á efri hæð í nýl. viðg.
fjölb. ásamt aukaherb. í kjallara. Mjög góð staðsetn. Áhv.
3,5 millj. Verð 8,5 millj.
Laufrimi - endaíbúð - glæsil. útsýni
— sérinngangur
Vorum að fá í einkasölu glæsil. nær fullb. 100 fm íb. á miðh.
í glæsil. fjölb. sem erfráb. staðs., mikil og góð þjónusta
í nágrenninu. Áhv. húsbr. Verð 9,3 millj. 4745.
Malarhöfði 202 fm
Vorum að fá í einkasölu glæsilegt verslunar- og iðnaðarrými
á góðum stað. Hentar undir ýmsan iðnað, verslun, bílasölu
og fleira. Verð 18 millj. Áhv. 12,6 millj. langtímalán.
Valhöll, fasteignasala,
Síðumúla 27, sími 588 4477.
Grandavegur-
Opið hús í dag
Sérstaklega skemmtileg og vel
skipulögð 3ja herb. 82 fm íbúð á 3. hæð í nýlegu
fjölbýlishúsi í húsi nr. 3 við Grandaveg í Vestur-
bæ Reykjavíkur. Áhv. 5,2 millj. bsj. Verð 10,2
millj. Jónas og Þórhalla bjóða gesti velkomna í
dag milli kl. 14 og 16. (841).
Barónsstígur - opið hús í dag
Vel skipulögð 3-4ra herb. 71 fm risíbúð á 4. hæð í fjölbýlishúsi nr.
27 við Barónsstíg í Reykjavík. 2-3 svefnherb. Verð 6,5 millj. Walter
og Inga bjóða gesti velkomna í dag milli kl. 14 og 17. (664).
Ármúla 1. sími 588 2030 - fax 588 2033
Opið sunnudag kl. 12-15
ÞINGHOLSBRAUT - FRABÆR
ÚTSÝNISSTAÐUR
Einbýlishús vestast á Kársnesinu með aukaíbúð alls um 410 fm. Húsið
er allt hið vandaðasta og allt í fyrsta flokks ástandi. f húsinu eru m.a 6
svefnherbergi og stórar stofur með arni, aukaíbúð með sér inngangi,
sundlaug ofl. Sérstakt hús á einstökum útsýnisstað. 3004
MOSFELLSBÆR - REYKJAVEGUR
f friðsælasta hluta Mosfellsbæjar höfum við til sölu mjög gott ein-
býlishús 256 fm, auk bílskúrs 29,6 fm og gróðurskála 40 fm. f húsinu
eru 3 stór svefnherbergi og má auðveldlega fjölga um önnur tvö. Stór
verönd og gróin lóð. Húsið er allt hið snyrtilegasta, sannkölluð fjöl-
skylduparadís. Ákveðin sala, afhending í júlí. V. 16,5 m. 1761
FRÉTTIR
Hjólaferðir fyrir
almenning
ÍSLENSKI fjallahjólaklúbburinn
mun í sumar svo sem undanfarin ár
hafa í boði hjólaferðir fyrir almenn-
ing á þriðjudagskvöldum. Brottför
er kl. 20 frá vesturenda skiptistöðv-
ar S.V.R. í Mjódd.
18. maí verður hjólað frá Mjódd
að og um Grafarvogshverfi, um það
bil 13 km leið. Ferðin tekur um 1
klst.
25. maí verður hjólað frá Mjódd,
hringur að Laugamesi um 12 km.
Ferðin tekur um 1 klst.
1. júní verður hjólað frá Mjódd,
hring um um Kópavog um 12 km.
Ferðin tekur um 1 klst.
8. júní verður hjólað frá Mjódd,
hring um um Seltjamarnes, um 25
km. Ferðin tekur um 2 kist.
Fararstjórar verða úr íslenska
fjallahjólaklúbbnum. Allir em vel-
komnir en ferðimar geta verið of
erfiðar fyrir böm á litlum hjólum.
Pátttökugjald er ekkert en fólk komi
á löglega búnum hjólum og hafi
hjálm. Hver þátttakandi er á eigin
ábyrgð eða sinna aðstandenda. Fólk
sem ekki notar reiðhjól að staðaldri
er hvatt til að koma með, lengra
komnir geta bmgðið á leik eftir þörf-
um, segir í fréttatilkynningu.
Flóamarkaður
og uppákomur
FLÓAMARKAÐUR, uppákomur og
kaffisala verða í dag kl. 14-17 í
Kramhúsinu, Skólavörðustíg 12, til
styrktar leikhópi 10-12 ára barna sm
boðið hefur verið á alþjóðlega leik-
listarhátíð bama í Frakklandi.
Leikhópi 10-12 ára bama í Kram-
húsinu hefur verið boðið að koma á al-
þjóðlega leiklistarhátíð bama, FITE
sem nú er haldin í 13. sinn í Toulouse
í Frakklandi 8.-11. júní 1999. Leik-
hópurinn kallar sig Tröllabömin og
hafa meðlimir hópsins verið þátttak-
endur á leiklistamámskeiðum í
Kramhúsinu í lengri eða skemmri
tíma hjá Þóreyju Sigþórsdóttur.
Á hátíðinni koma saman leikhópar
víðsvegar að úr heiminum. Hver
hópur kemur með sýningu og einnig
taka allir þátt í námskeiðum sem
haldin em þá daga sem hátíðin
stendur yfir. Þarna gefst þátttak-
endum ómetanlegt tækifæri til að
víkka sjóndeildarhringinn og kynn-
ast því sem böm eru að gera annars
staðar í heiminum. I ár koma leik-
hópar frá Egyptalandi, Tékklandi,
króatíu, Cabon, Búlgaríu, Belgíu,
Danmörku, Grikklandi, Hvíta-Rúss-
landi, Frakklandi og íslandi, svo
þetta verður fjölbreyttur hópur sem
leiðir saman hesta sína.
Sýningin sem er fulltrúi íslands á
hátíðinni kallast Kraftar og hefur
leikhópurinn Tröllabömin unnið
hana í spuna undir stjóm Þóreyjar
Sigþórsdóttur leikkonu og Ólafar
Ingólfsdóttur dansara. í vinnuferlinu
hefur hópurinn leitað í rætumar og
unnið útfrá hugmyndum um krafta í
náttúmnni í okkur sjálfum, einnig
unnið með gamlar þulur og jafnvel
Eddukvæði, brot úr völuspá," segir í
fréttatilkynningu frá Kramhúsinu.
■ ÁRLEGT fjölskyldukaffí Siglfirð-
ingafélagsins í Reykjavík og ná-
grenni verður haldið í safnaðarheim-
ili Vídalínskirkju í Garðabæ sunnu-
daginn 16. maí og hefst klukkan 15.
AfmælisþaJkkir
Öllum þeim mörgu, sem glöddu mig á áttrœðis-
afmœli mínu hinn 9. maí síðastliðin, með
kveðjum, blómvöndum og gjöjum ýmiss konar
og ávörpum í bundnu og óbundnu máli, þakka
ég af alhug. Megi Almœttið varðveita ykkur öll
og styrkja.
Páll A. Pálsson.
Hálf fasteignin Túngata 3 í Reykjavík
Til sölu er hálf fasteignin Túngata 3 f Reykjavík. Húsiö var byggt 1933 og
er mjög vandað, steinsteypt í hólf og gólf. Gluggar og útihurðir eru úr
harðviði. Hálfri eigninni fylgir bílageymsla fyrir einn bíl og eitt bílastæði í
porti. Endurnýjað þak.
Hálf eignin innifelur:
1) í kjallara, 93,6 fm íbúð. Viðmiðunarverð 7,9 millj.
2) Á fyrstu hæð 87,6 fm teiknistofu, eða íbúö. Viömiðunarverð 8,3 millj.
3) Á þriðju hæð 185,0 fm íbúð. Viðmiðunarverð 16,9 millj.
Eignin selst ( ofangreindum þremur hlutum eða heilu lagi. Teikningar af
fasteigninni eru til sýnis á skrifstofu og þar eru veittar frekari upplýsingar.
Eignin verðurtii sýnis sunnudaginn 16. maí 1999 frá kl. 15-17.
Lögfræðistofa Helga Sigurðssonar hdl., löggiltur fasteignasali,
Suðurlandsbraut 4a, sími 568 6965.
Eru börnin farin að heiman?
Hringbraut - Hafnarfirði
Lúxusíbúðir með lyftu og bílskýli
Vorum aö fá í sölu vandaðar 3ja og 4ra herbergja íbúðir í nýju húsi sem
hafin er bygging á á Rafha-reitnum nálægt miðbæ Hafnarfjarðar.
• Húsið verður klætt að utan með
varanlegu efni.
• Stæði í bílskýli fylgir íbúðum.
• Innangengt úr bílskýli.
• íbúðirnar afhendast fullbúnar án
gólfefna.
• Sveigjanlegir greiðsluskilmálar.
• Takmarkað framboð.
Nánari upplýsingar hjá As fasteignasölu,
Fjarðargötu 17, Hafnarfirði, s. 520-2600.
Upplýsingasími í dag, sunnudag, 896-3101.