Morgunblaðið - 30.05.1999, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
••
Qlgerðin Egill Skallagrímsson ehf. kaupir Catco hf.
• •
Olgerðin færir
út kvíarnar
Jón Ásgeir Jóhannesson
Gagnrýni
til varnar
heildsölum
JÓN Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs hf., sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að Haukur Pór
Hauksson, formaður Samtaka
verslunarinnar, væri með gagnrýni
sinni á fyrirtækið, sem birtist í blað-
inu í fyrradag, fyrst og fremst að
verja hagsmuni heildsala, þannig að
hann væri ekki að tala fyrir munn
allra í sínu félagi.
„Við höfum sagt að það verði að
verða breyting á heildsölustiginu;
ég veit ekki hvort menn kalla það
hortugheit að Baugur sætti sig ekki
við að heildsalar séu með 26-30%
meðalálagninjgu og haldi uppi háu
vöruverði á Islandi," sagði Jón As-
geir.
Jón Asgeir sagði að e.t.v. myndi
Samkeppnisstofnun skoða málið
eitthvað, en bætti því við að fá-
keppni yrði aldrei á matvörumark-
aði hérlendis vegna þess góða að-
gengis sem væri inn á markaðinn.
Pá sagði hann að markaðshlutdeild
Baugs væri ekki 60-70% heldur um
65% á höfuðborgarsvæðinu og
Reykjanesi.
ÖLGERÐIN Egill Skallagrímsson
ehf. hefur fært út kvíarnar og keypt
fyrirtækið Catco hf., sem staðsett
er í Borgamesi, af Ama Helgasyni
og Pórhalli Guðmundssyni, en
Catco, sem fæst við framleiðslu á
sterkum vínum, hefur m.a. framleitt
Islenskt brennivín.
Jón Snorri Snorrason, fram-
kvæmdastjóri Ölgerðarinnar, sagði
í samtali við Morgunblaðið að rétt
fyrir páska hefði Ölgerðinni verið
boðið að kaupa Catco og að síðan þá
hefðu hlutirnir gerst hratt, en Jón
Snorri vildi ekki gefa upp hvert
kaupverðið var.
Taka yfír allar eignir
Auk þess að taka yfir rekstur
Catco, mun Ölgerðin yfirtaka allar
eignir, öll framleiðslutæki og vöru-
merki fyrirtækisins. Þau vöramerki
sem um ræðir era íslenskt brenni-
vín, Hvannarótarbrennivín, Jökla-
krap, Eldurís vodka, Tindavodka,
Dillon gin og Kveldúlfur, sem er
Hot’n’Sweet lakkrísstaup. Auk
þessa mun Ölgerðin hafa fram-
leiðsluleyfi á Pölstar vodka hér á
landi, en Árni Helgason mun alfarið
snúa sér að dreifingu Pölstar á er-
lendum mörkuðum.
Fellur vel að sölu-
og dreifíngarkerfínu
Jón Snorri sagði að innanlands-
markaður væri helsta markaðssvæði
þessarar framleiðsluvöru, en að Is-
lenskt brennivín, Dillons gin og
Eldurís vodka hefði verið flutt út til
Færeyja, sem og að ýmsar tegundir
væra seldar í fríhöfnum og farskip-
um.
„Pessi rekstur fellur vel að sölu-
og dreifingarkeifi okkar á veitinga-
hús landsins," sagði Jón Snorri.
„Þetta eru vörur sem fara að stóram
hluta á þessa staði, þannig að við fá-
um betri nýtingu á okkar sölu- og
dreifingarkerfi og það gerir okkur
kannski öflugri í að bjóða veitinga-
mönnum heildarlausnii', þar sem
þeir geta fengið gosið, blanddrykki,
bjórinn og helstu áfengisdrykki eins
og vodka og gin hjá okkur.“
Aðspurður um það hvort Ölgerð-
in hygðist færa enn frekar út kví-
arnar, sagði Jón Snorri: „Það er
auðvitað ekkert ólíklegt, fyrst við
erum komnir með sterk vín, að við
athugum hvort þörf sé á því að bæta
við einhverju í þeirri línu sem við
erum nú komnir með.“
Að sögn Jóns Snorra verður fyr-
irtækið áfram rekið í Borgamesi, en
fyrirtækið Engjaás ehf. mun áfram
sjá um framleiðslu afurðanna í
verktöku, en um 6 til 7 manns hafa
unnið við hana þar.
Rauði krossinn undirbýr komu fleiri
flóttamanna til íslands
28 ættingjar frá
Kosovo á leiðinni
RAUÐI kross íslands vinnur nú að
því að koma um það bil 28 manna
hópi albanskra flóttamanna frá
Kosovo til Islands. Þetta era allt
nánir ættingjar Kosovo-AIbana
sem búsettir hafa verið á íslandi í
þrjú ár eða lengur, að sögn Hólm-
fríðar Gísladóttur hjá Rauða krossi
Islands.
Hólmfríður sagði að það gengi
seint að koma fólkinu til landsins.
Vegna álags ytra miði ekkert heilu
dagana og árangurslaus símtöl til
að reyna að greiða fyrir hópnum
skipti tugum eða hundruðum.
Flóttamennirnir flestir
skilrikjalausir
Fólkið er flest skilríkjalaust og
verið er að vinna að því að fá AI-
þjóðaráð Rauða krossins til að gefa
út ferðaskilríki til fólksins.
15 úr þessum hópi eru nú í
Svartfjallalandi, ýmist í flótta-
mannabúðum eða inni á heimilum
vina eða vandalausra. Reynt verð-
ur að koma fólkinu heim í gegnum
Sarajevo vegna þess að ólíklegt
þykir að unnt verði að fara með
fólkið stystu leið yfir til Albaníu
vegna spennu milli Svartfjallalands
og Albaníu.
í Sarajevo eru svo fimm til við-
bótar úr þeim hópi, sem hér fær
landvistarleyfi; skilríkjalaust fólk
bíður þess að komast til ísland,.
þannig að hugsanlega koma 20
manns í gegnum Sarajevo. Til við-
bótar er 8 manna hópur í Albaníu,
sem þarf að fá útgefna pappíra fyr-
ir. Vitað er um tvo til viðbótar, sem
veita átti landvistarleyfi, sem era
inni í Kosovo en ekkert er hægt að
gera fyrir það fólk.
Um 200 Kosovo-Albanar
á íslandi
Þegar utanríkisráðherra ákvað
að taka við til íslands tilteknum
hópi náinna ættingja þeirra
Kosovo-Albana sem hér hafa búið
undanfarin ár bárust um 170-180
umsóknir, að sögn Hólmfríðar.
Nokkrir úr þessum hópi, sem
fengu atvinnu- og dvalarleyfi,
komu til landsins á eigin vegum um
svipað leyti og fyrstu flóttamenn-
irnir komu hingað til lands en aðrir
eiga einnig umsóknir í meðföram
hjá stjómvöldum. Kosovo-Albanar,
búsettir á íslandi, eru nú um 200
talsins, að meðtöldum þeim 73
flóttamönnum, sem komið hafa til
landsins undanfarnar vikur.
Morgunblaðið/Ástvaldur
ÁTTA íslendingar aka nú yfír Grænlandsjökul á leið til Syðri-
Straumíjarðar. Myndin er tekin í um 2.400 m hæð, 180 km austur af
DYE-2 ratsjárstöðinni.
Morgunblaðið/MU
ÁSTVALDUR Guðmundsson ekur jeppanum Pamelu yfir jökul-
sprungu. Smíðaðar voru meðfærilegar brýr til að leggja yfir sprungur.
Með Morgunblaðinu í dag er
dreift blaði frá Míru.
Með Morgunblaðinu í dag er
dreift blaði frá Tóbaksvarnar-
nefnd í tilefni Reyklausa
dagsins á mánudag.
Jepparnir á leið til
Syðri-Straumfj arðar
LEIÐAN GURSMENNIRNIR í
ICE225 leiðangrinum voru á Ieið
að DYE-2 ratsjárstöðinni og áttu
ófarna um 180 km þangað um
hádegi í gær. Ætlun þeirra var
að setja upp búðir við stöðina í
nótt. Þaðan verður svo haldið
áleiðis til Syðri-Straumfjarðar
þar sem Toyota-jepparnir verða
settir í flutningaskip. Nú er orð-
ið siglingarfært þangað en ekki
er von skipakomu til austur-
strandarinnar fyrr en eftir mitt
sumar.
I Isortoq kvöddu Islendingarn-
ir Danina sem tóku þátt í fyrstu
ökuferðinni yfír Grænlandsjökul.
Þeir Arngrímur Hermannsson,
Freyr Jónsson, Ingimundur Þor-
steinsson og Ástvaldur Guð-
mundsson fóru til baka með bíl-
ana og í Isortoq bættust í hópinn
þeir Arni Árnason, Emil Ágústs-
son, Hallgrímur Arngrímsson og
Ómar Ragnarsson. Leiðangurs-
menn gera ráð fyrir því að kom-
ast til Syðri-Straumfjarðar jafn-
vel strax á mánudag.
Ferðin hefur gengið vel frá
Isortoq. Uppi á jöklinum rákust
leiðangursmenn á villuráfandi
sleðahund, sem þeir gáfu að éta.
Dagbók leiðangursmanna, mynd-
ir og fleiri upplýsingar eru á
fréttavef Morgunblaðsins,
http://www.mbl.is.
Samgöngubót eða
náttúruspjöll á
Vatnaheiði?
►Fyrirhuguð vegargerð yfir
Vatnaheiði á Snæfellsnesi fær
misjafnar viðtökur. /10
„Framtak íslands
til fyrirmyndar“
► Rætt við Anne-Christine
Eriksson, almannatengslafulltrúa
fyrir svæðisskrifstofu Flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna. /12
Nýsköpun ‘99
► Rætt við sigurvegara í sam-
keppni um viðskiptaáætlanir.
Áttatíu og tvær hugmyndir bárust
í keppnina. /26
Sólin sest aldrei
hjá STRAX
►Viðskiptaviðtalið er við Óla Ant-
on Bieltvedt í Hong Kong. /30
► l-24
Alheilaga meyjan
► Guðrún Nielsen tálgar merki-
lega gripi listavel og var móðir
hins mikla listamanns, Alfreðs
Flóka. /1&2.4
Hittust eftir 55 ár
►Goðafossslysið vekur enn sárar
minningar í hugum mai'gra. Ný-
lega hittust nokkur sem af
komust. /6
Kvikmyndahátíðin
í Cannes
► Litast um á kvikmyndahátíðinni
í Cannes sem lauk um síðustu
helgi. /12
FERÐALÖG_________
► l-4
Reykjanes - Langanes
►Ekið um vetur frá Reykjanestá
yfir landið austur að Fonti. /2
Álfasteinar á
Borgarfirði eystri
► Steiniðja er rekin á Borgarfirði
eystri. /4
D BÍLAR
►i-8 r
ABS-bremsur
auka öryggi
► Umfjöllun um ABS-hemlakerfi
og hvernig þau virka. /2
Reynsluakstur
► Daihatsu Cuore er sæmilega
snöggur og ódýr bíll. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► l-24
Rafrænn tæknigarður
fyrir upplýsingatækni
►Evrópusambandið fjármagnar
samstarfsverkefni. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir W4/8/bak ídag 50
Leiðari 32 Brids 50
Helgispjall 32 Stjörnuspá 50
Reykjavíkurbréf 32 Skák 50
Skoðun 34 Hugvekja 50
Minningar 36 Fólk í fréttum 54
Viðhorf 36 Útv/sjónv. 52,62
Myndasögur 48 Dagbók/veður 63
Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 22b
INNLENDAR PRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6