Morgunblaðið - 30.05.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 39
ekki trúa því. Ég gat ekki hugsað
mér að missa einu ömmuna sem ég
átti, sem ég elskaði svo mikið. Ég
sat og hélt í hönd hennar þangað til
hún kvaddi þennan heim.
Elsku amma, ég veit að þér líður
vel núna hjá hinum englunum og
þjáningar þínar eru á enda. Núna
hittumst við ekki lengur yfir kaffi-
bolla hjá þér en ég er þess fullviss
að þú ert fallegasti engillinn á himn-
um og vakir yfir mér. Ég er svo
lánsöm að eiga minningar um allt
sem við höfum gert saman.
Elsku besta amma mín, ég sakna
þín svo mikið en huggun er að vita
að þú verður með mér í anda um
ókomna framtíð.
Guð geymi þig og minningu þína,
það mun ég gera alla ævi.
Jóhanna Kristófersdóttir.
Það er undarleg tilfinning að setj-
ast niður og skrifa minningargrein
um ömmu sína. Ömmu, sem ég hélt
að yrði alltaf til, en við ráðum ekld
við mátt lífsins.
Elsku hjartans amma mín, ég kveð
þig með söknuði og kvíða, já kvíða,
því hvað er framundan þegar öllum
mínum spumingum er ósvarað? Ég
álít samt að eitthvað hafi áunnist
þegar ég íifja upp síðustu daga þína
og man þegar við sátum tvær einar
inni á herbergi á spítalanum og þú
I lagðir hönd þína á mína og sagðir að
nú væri allt orðið gott og allir sáttir.
Þú varst ákaflega hamingjusöm þann
dag og þá hélt ég að nú færir þú að
komast heim. En heilsan brást og þú
kvaddir okkur hljóðlega þann 10.
mars sl.
Elsku amma, ég gæti skrifað heila
bók um allt það sem á daga okkar
dreif, um alla bíltúrana í Hveragerði
(þegar afi skrapp í golf til Skotlands),
allar stundimar sem við sátum sam-
an og töluðum saman yfir kaffibolla,
allar þær nætur sem ég eyddi hjá
þér, alla morgnana þegar þú vaktii-
okkur afa með morgunmat í rúmið og
um allar reglur lífsins sem þú lagðir
fyrir mig.
Elsku hjartans amma mín, við
kveðjum þig að sinni.
Dröfn, Jón Ari og börn.
j stundimar í þessu lífi. Það var
táknrænt að um það leyti sem hún
skildi við þá snjóaði lítillega þrátt
fyrir að vorið væri komið. Það var
alltaf hátíðarstemming í huga
hennar þegar fyrsti snjórinn féll á
haustin, þá sagði hún: Það er farið
að „fukta“ og kveikti alltaf á kerti.
Hún mamma umvafði okkur öll
til hinstu stundar og nú að leiðar-
lokum vil ég fyrir hönd fjölskyld-
unnar þakka allar þær góðu stund-
ir sem við áttum saman.
Guð geymi þig, elsku mamma
mín.
Þín dóttir
Jenný.
Er sárasta sorg okkur mætír
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur af skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(Hallgr. J. Hallgr.)
I dag kveðjum við elsku ömmu
sem var okkur öllum svo kær. Það
var alltaf tilhlökkunarefni að fara í
bíltúr til Keflavíkur og fá pönnu-
kökur hjá ömmu en þær voru alltaf
tilbúnar þegar við mættum á stað-
inn. Hún amma var alltaf hress og
kát og sá yngsti okkar kallaði hana
alltaf „drottninguna" enda voru
það orð að sönnu því amma okkar
var alltaf svo fín og vel til höfð.
Við eigum allir okkar sérstöku
minningar um ömmu hver á sinn
hátt sem við geymum með okkur.
Hún er eina amman sem við kynnt-
umst og okkur þótti afar vænt um
hana. Amma og afi voru alltaf hjá
okkur á jólunum og því er tómlegt
að hugsa til þess að á næstu jólum
verður sætið hennar autt. Við biðj-
um guð að styrkja afa sem nú syrg-
ir sinn lífsförunaut en þau höfðu
verið gift í fimmtíu og fjögur ár.
Elsku amma, við þökkum þér
fyrir allar góðu stundirnar.
Árni Pétur, Helgi Már
og Steinar Páll.
ÍVAR
ÓLAFSSON
+ Ivar Ólafsson
var fæddur að
Krosshóli í Skíðadal
21. nóvember 1921.
Hann Iést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri annan dag
hvítasunnu, hinn 24.
maí síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
hjónin Ólafur
Tryggvi Sigurðsson
og Kristjana
Jóndóttir. Systkini
Ivars eru: Snjólaug
Aðalheiður sem er
látin; Sigurður sem býr að Syðra-
Holti; Jón Gunnlaugur sem er lát-
inn; Sveinn Blómkvist, rafvéla-
virki í Reykjavík og Stefanía sem
er látin. Árið 1931 fluttist fjöl-
skyldan að Syðra-Holti í Svarfað-
ardal. Ivar fluttist til Akureyrar
árið 1941 þar sem hann hóf ævi-
starf sitt við járnsmíðar.
Hinn 4. maí 1946 kvæntist ívar
eftirlifandi eiginkonu sinni Val-
gerði Aðalsteinsdótt-
ur frá Jórunarstöð-
um í Eyjafjarðar-
sveit, fædd 12. júlí
1923. Börn þeirra
eru: 1) Stefán Ævar
ketil- og plötusmiður
í Járnsmiðjunni
Varma, f. 1.3. 1948.
2) Kristjana Ólöf
dreifingarstjóri hjá
Ásprenti, f. 29.6.
1965, sambýlismaður
hennar er Sigurgeir
Einarsson, f. 23.12.
1962. ívar og Val-
gerður bjuggu allan
sinn búskap á Akureyri, fyrst í
Brekkugötu 33, sfðan byggðu
þau sér hús að Sólvöllum 5 og
fluttu þangað 1949, þar bjuggu
þau í 30 ár, en fluttu þá til sonar
síns í Lönguhlíð 18, sfðar eignuð-
ustjjau íbúð í Iljallalundi 10.
Utför Ivars fer fram frá Akur-
eyrarkirkju mánudaginn 31. maf
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
„Vinnan göfgar manninn." Þessi
orð hafa mér alltaf fundist eiga
einkar vel við vin minn Ivar Olafs-
son, því engan mann hef ég þekkt
vinnusamari eða göfugri. Þegar ég
hugsa til baka finnst mér ótrúlegt
að liðin séu rúm tuttugu ár síðan
Ivar hringdi til mín og bauð mér
vinnu á skrifstofu fyrirtækis síns og
Jónasar Bjarnasonar, Járnsmiðj-
unnar Varma. Ég þurfti ekki að
hugsa mig tvisvar um, heldur þáði
boðið og hef aldrei séð eftir því.
Betri vinnuveitendur er ekki hægt
að hugsa sér. Það er dýrmætt, þeg-
ar maður er að vinna úti frá ungum
börnum að geta vandræðalaust
fengið frí hvenær sem er til þess að
vera heima, ef börnin eru veik, eru í
fríi frá leikskóla eða skóla, jafnvel
tekið sér gott jóla- og páskafrí til
þess að vera með fjölskyldunni.
Þegar mín börn fengu þessar
venjulegu umgangspestir og ég var
heima að gæta þeirra, kom það oft
fyrir að Ivar hringdi til að spyrja
um heilsufarið og sagði þá gjarnan,
láttu smáfólkið sitja fyrir, annað
getur bara beðið. Áhugi hans fyrir
börnunum mínum var ómetanlegur,
hann fylgdist með þeim og hafði
áhuga fyrir skólagöngu þeirra og
framtíðaráformum.
Ég og mín fjölskylda eigum Ivari
ótal margt að þakka, marga hlutina
smíðaði hann fyrir okkur og er ég
stolt yfir þeim listaverkum sem við
eigum eftir hann.
Þótt Ivar væri vinnusamur mað-
ur, gafst honum tækifæri til að taka
sér frí og ferðast með fjölskyldu
sinni á húsbílnum þeirra bæði hér-
lendis og erlendis, hann naut þess-
ara ferða og hafði dálæti á fallegu
umhverfí og náttúruperlum. Ur
þessum ferðum kom Ivar færandi
hendi og gleymdi aldrei börnunum.
Nú er Ivar farinn í sitt langa
ferðalag þar sem örugglega blasir
við honum fallegt umhverfi og vel
er tekið á móti honum í eilífri birtu
og sólskini. Erfiður vetur er að
baki, sumarið er komið og sólin
mun senda okkur geisla sína.
Kom til að lífga, {jörga, gleðja, fæða
og frelsa, leysa, hugga, sefa, græða.
I brosi þínu brotnar dauðans vigur,
í blíðu þinni kyssir trúna sigur.
jM.Joch.)
Við minnumst Ivars Olafssonar
með virðingu, söknuði og þakklæti.
Valgerði, börnum, tengdasyni og
öðrum ættingjum sendum við inni-
legar samúðarkveðjur.
Dóra Gunnarsdóttir
og Qölskylda.
ívar Ólafsson var fæddur og upp-
alinn Svarfdælingur en flutti ungur
til Akureyrar, þar sem hann hóf
nám í eldsmíði hjá Sveini
Tómassyni (sem nú er látinn). Síð-
an lá leiðin í Vélsmiðjuna Odda þar
sem Ivar vann við járnsmíði og
nokkru seinna í Véla- og plötu-
smiðjuna Atla. Fljótt eftir 1950
hófu þeir samstarf Ivar og Björn
Kristinsson (sem einnig er látinn).
Upphafið að því samstarfi var fólg-
ið í vinnu utan venjulegs vinnutíma,
þá aðallega um helgar og á kvöldin
eftir að annarri vinnu lauk. Þessa
aukavinnu sína stunduðu þeir í
bragga sem þeir höfðu komið sér
upp á Oddeyri. Árið 1954 bættist
Jónas Bjarnason rennismiður í
hópinn. Þetta voru ungir og at-
hafnasamir menn fullir af krafti og
starfsorku. Ivar og Jónas keyptu
síðan hlut Björns og héldu þessari
vinnu áfram. Árið 1958 stofnuðu
þeir sitt eigið fyrirtæki Jánsmiðj-
una Varma og uppúr því hófu þeir
að byggja nýtt húsnæði undir starf-
semina og fluttu sig úr bragganum.
Fyrirtækið dafnaði og stækkaði,
þar var starfrækt plötusmiðja,
rennismiðja og síðar blikksmiðja.
Allt þetta útheimti mikla vinnu og
ósérhlífni og var ívar þar í farar-
broddi, frístundirnar voru fáar, það
var fyrst og fremst hugsað um að
skila sinni vinnu og gera fyrirtækið
sem best úr garði. Vinnan var Ivari
mikils virði og líklega hefur honum
alltaf liðið best þegar hann hafði
sem mest að gera, hann var mjög
fær í sínu fagi og hafði vandvirkn-
ina ætíð að leiðarljósi, hann var
ekki að telja tímana sem hann lagði
í verkin, fyrst og fremst var hugsað
um að gera hlutina vel.
I byrjun árs 1984 gerði hjartveiki
vart við sig hjá ívari og þurfti hann
í framhaldi af því að ganga í gegn-
um mikla læknismeðferð, þá kom
sér vel hið mikla æðruleysi sem ív-
ar hafði til að bera, hann tók þess-
um veikindum sínum með mikilli ró
og skynsemi. Hann átti því láni að
fagna að hafa son sinn Stefán Ævar
við vinnu í plötusmiðjunni og sá
hann um allt gengi sinn vana gang
þrátt fyrir þetta áfall. Ivar komst
aftur til vinnu og sló þá hvergi af
frekar en áður. Þó ekki sé hægt að
segja að ívar hafi náð fullkominni
heilsu eftir þetta var ekki að finna
annað á honum, en að hann væri vel
hraustur og treysti sér til allra
verka. Samstarf þeirra ívars og
Jónasar var farsælt og hefur hvergi
borið skugga á í þessi rúmlega
fjörutíu ár.
Járnsmiðjan Varmi starfar nú
sem plötusmiðja og rennismiðja, en
húsnæði blikksmiðjunnar var leigt
fyrirtækinu Blikkrás fyrir nokkrum
árum.
Að Ivari er mikill sjónarsviptir
og eigum við eftir að sakna hans
sem góðs drengs og félaga. Við
þökkum honum samfylgdina og
þökkum Guði fyrir þá gæfu að hafa
fengið að starfa með honum.
Eiginkonu, börnum, tengdasyni
og öðrum ættingjum sendum við
innilegar samúðarkveðjur.
Samstarfsfólk í Járnsmiðjunni
Varma.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegrar móður okk-
ar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ESTERAR SIGURÐARDÓTTUR
frá Siglufirði.
Sigfús Steíngrímsson, Sædís Eiríksdóttir,
Ólöf Steingrfmsdóttir, Jónas Jónsson,
Sólveig Steingrímsdóttir, Jón Bjargmundsson,
Sigurður Steingrímsson, Sólveig Þorkelsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
VAL SKOWRONSKI,
Árskógum 8,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum laugardaginn 22. maí.
Útförin fer fram frá Landakotskirkju á morgun,
mánudaginn 31. maí, kl. 13.30.
Guðrún Þórðardóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Útför konu minnar, móöur, tengdamóður og
ömmu,
SÚSÖNNU BRYNJÓLFSDÓTTUR,
Hólavallagötu 3,
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 1. júní
kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er
bent á Líknarsjóð Dómkirkjunnar.
Ásgeir Jónsson,
Jón Ásgeirsson, Þorbjörg Skjaldberg,
Ásgeir Jónsson yngri.
v
+
Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnduð okk-
ur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
elskulegs eiginmanns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
GESTS OTTÓS JÓNSSONAR,
Ljósheimum 22.
Sérstakar þakkir til ykkar í Hátúni 12, dagvistun,
og allra þeirra sem aðstoðuðu Gest í veikindum
hans.
Jónfna Sigurðardóttir,
Þröstur Gestsson, Guðbjörg Jónsdóttir,
Svala Gestsdóttir,
Hreiðar Örn Gestsson,
Halldór Gestsson,
Elísabet Gestsdóttir,
Jón Gestsson,
Bragi Gunnarsson,
Frlða Ólöf Ólafsdóttir,
Halla Halldórsdóttir,
Birgir Kristjánsson,
Ásta Pálmadóttir,
Sæunn Sigríður Gestsdóttir, Baldur Vagnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við and-
lát og útför föður okkar, tengdaföður, bróður,
afa og langafa,
INGÓLFS SIGURBJÖRNSSONAR,
Vesturgötu 7,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Líknardeildar Landspítal-
ans í Kópavogi.
Anna Margrét Ingólfsdóttir, Kristinn Pálmason,
Jón Ingibjörn Ingólfsson,
Þuríður Ingólfsdóttir,
Sigurþór Ingólfsson,
Ingibjörg R. Ingólfsdóttir,
Friðrik Sigurbjörnsson,
Nína Sverrisdóttir,
Magnús Ólafsson,
Elfsa Sigurðardóttir,
Herbert Guðmundsson,
Kristbjörg Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.