Morgunblaðið - 30.05.1999, Blaðsíða 28
'28 SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ
EGGER.T MAGNÚSSON FORMAÐUR KNATTSPYRNUSAMBANDS ÍSLANDS
Morgunblaðið/Skapti
EGGERT Magnússon er önnum kafinn maður. Hér talar hann heim til íslands frá Barcelona. Myndin er
tekin í anddyri hótels sem kennt er við Spánarkonung og málverk af Jóhanni Karli er í bakgrunni.
EGGERT var nefndur karlinn
í kexinu í fyrirsögn greinar
um fyrirtæki hans, kexverk-
smiðjuna Frón, hér í blaðinu
fyrir nokkrum misserum.
Karlinn í knattspyrnunni á ekki síð-
ur við um formann KSI, því sú
fagra íþrótt fangar huga hans að
miklu leyti daglega. Hann var á
Wembley um síðustu helgi á úrslita-
leik ensku bikarkepninnar og sá svo
úrslitaleikinn í Barcelona á mið-
vikudag. Og leiddist ekki. „Það að
ég skuli vera formaður í Knatt-
spymusambandinu og þar á undan
verið í stjómunarstörfum hjá stóra
félagi í nokkur ár er allt tilkomið af
þeirri staðreynd að ég hef brenn-
andi áhuga á fótbolta og hef haft
síðan ég var smástrákur. Eg er oft
spurður að því hvemig ég geti rekið
eigið fyrirtæki, þar sem reksturinn
verður sífellt umfangsmeiri, sam-
hliða því að vera á kafi í fótboltan-
um og hef svarað því til að knatt-
spyman hefur gefíð mér miklu
meira en ég hef sjálfur lagt af
mörkum. Mér þykir þetta bara svo
skemmtilegt," segir Eggert.
Formaður KSI hefur nú í fjögur
ár setið í einni helstu nefnd Knatt-
spyrnusambands Evrópu (UEFA),
svokallaðri félaganefnd (Club
committee) sem sér um öll Evrópu-
mót félagsliða og er einnig í ung-
linganefnd alþjóða knattspymu-
sambandsins (FIFA). Eggert sækir
sex til átta fundi á ári erlendis
vegna UEFA-nefndarinnar, t.d. er
alltaf fundur daginn fyrir úrslitaleik
Meistaradeildarinnar. Með honum í
nefndinni era til að mynda varafor-
maður enska stórliðsins Arsenal (og
sá sem sagður er öllu ráða á þeim
bæ), David Dein, Galliani forseti ný-
krýndra Italíumeistara AC Milan,
formaður sænska knattspymusam-
bandsins, þess hollenska og rúss-
neska og þess má geta að formaður
UEFA, Svíinn Lennart Johansson
og framkvæmdastjórinn Gerhard
Aigner, sitja einnig alla fundi henn-
ar. „Ég fer líka stundum sem eftir-
litsmaður út á stærri leiki, og gæti
gert meira af því ef ég hefði meiri
tíma. Það er ómetanlegt að kynnast
mörgum nýjum forystumönnum,
starfið víkkar sjóndeildarhringinn
og svo skemmir auðvitað ekki fyrir
að ég sé mjög mikið af skemmtileg-
um leikjum!" Eggert segir að fyrir
þá sem séu í forystu í jafn stóru
sambandi og KSI, skipti alþjóða-
tengsl miklu máli og ljóst er að hans
mati að það yrði mjög óhentug þró-
un að menn sætu of stutt í embætti
eins og formanns KSÍ, ef þeir eru á
annað borð hæfir. „Kynni af fólki
skipta miklu; leikimir sem við
sömdum um við MöKumenn um
daginn komu til dæmis bara til
vegna vinskapar míns við formann
knattspymusambands Möltu. Það
var mjög gott að fá leikinn úti um
daginn, vegna þess að við erum að
fara í leik sem við þurfum helst að
geta stjórnað og því kom leikurinn
sér vel fyrir Guðjón landsliðsþjálf-
Eggert Magnússon varð
formaður KSÍ 1989, starf-
semi sambandsins hefur
vaxið ört undir stjórn
hans og hann trúir því að
nú hilli jafnvel undir það
ævintýri að ísland eigi í
fyrsta skipti raunhæfa
möguleika á að komast í
úrslitakeppni stórmóts.
Skapti Hallgrímsson
settist niður með Eggerti
í Barcelona á miðvikudag-
inn, fyrir úrslitaleik Meist-
aradeildar Evrópukeppn-
innar, til að ræða um eitt
og annað sem tengist
helsta áhugamál for-
mannsins, knattspyrnu -
sem Eggert hefur brenn-
andi áhuga á, svo vægt sé
til orða tekið.
/
ara og strákana. Svo spilum við aft-
ur við Möltu heima í sumar fyrir
Andorraleikinn."
Lykilleikur á laugardag
ísland mætir Armeníu í Laugar-
dal næstkomandi laugardag og í
kjölfarið fylgir viðureign við Rússa
úti miðvikudeginum þar á eftir. ís-
land gerði markalaust jafntefli í Ar-
meníu í fyrra en sigraði þá Rússa
heima, og hefur níu stig í þessum
undanriðli heimsmeistaramótsins,
þar sem eru einnig lið heimsmeist-
ara Frakka, Úkraínu og Andorra.
„Leikurinn við Armeníu er lykilleik-
ur fyrir okkur; við eram með níu
stig, okkur hefur gengið ævintýra-
lega vel og ég hef stillt dæminu
þannig upp að ef við vinnum Ar-
meníu og Andorra heima, eins og
við ætlum auðvitað að gera, þá verð-
um við komnir með 15 stig, sem hef-
ur aldrei gerst. Eftir Andorraleik-
inn heima í september fáum við
Úkraínumenn í heimsókn - og það
gæti orðið hreinn úrslitaleikur um
annað sætið í riðlinum. Ef það ævin-
týri gerðist síðan að við ynnum
Úkraínu heima í september þá yrðu
stigin orðin 18. Mér segir svo hugur
að Úkraínuleikurinn verði stærsti
leikur sem Island hefur nokkum
tíma spilað," segir formaðurinn.
Miklar breytingar
Gífurleg breyting hefur orðið á
rekstri KSÍ á síðasta áratug, segja
má að hann hafi tekið stakkaskipt-
um. „Já, það má orða það þannig.
Veltan hefur farið úr 40 til 50 millj-
ónum upp í 150 til 160 milljónir á ári
á þessu tímabili. Við eram komnir
með mjög öfluga skrifstofu sem
þjónustar félögin mjög vel. Sú þjón-
usta þykir þeim sjálfsögð, en ekki
er lengra síðan en þegar ég var for-
maður knattspymudeildar Vals að
við þurftum til dæmis að sjá algjör-
lega um allt sjálfir varðandi Evr-
ópuleiki. Það er ánægjulegt að við
skulum geta þetta; breytingarnar
hafa í raun orðið meiri en ég átti
von á en geysileg breyting hefur
líka orðið í knattspyrnunni í Evrópu
almennt." Eggert varð formaður
KSÍ í árslok 1989 og hann segir að
fljótlega eftir hafi náðst tímamóta-
samningur í sambandi við sjón-
varpsréttindi. „Það var algjör ævin-
týrasamningm- fyrir Island á þeim
tíma; við vorum í undanriðli EM
með Spáni og Frakklandi og dutt-
um í þann lukkupott að fyrirtækið
sem við sömdum við var einmitt að
sækja mjög fast fram til að ná tang-
arhaldi á markaðnum í löndunum
tveimur. Við lentum í þeirri hring-
iðu og náðum mjög góðum samn-
ingi. Segja má að á áranum eftir
1990 hafi orðið mikil sprenging
varðandi sjónvarpsréttindi í Evr-
ópu. Við höfum nú tvö tímabil í röð
verið með samning við þýska fyrir-
tækið UFA, mjög hagstæða að okk-
ar mati og þeir hafa gjörbreytt
möguleikum okkai'; enda hefur ver-
ið hægt að gera miklu meira til upp-
byggingar ungra leikmanna en áð-
ur, svo dæmi sé tekið. Þeir hafa
fengið íleiri leiki og síðan hefur orð-
ið algjör bylting varðandi
kvennaknattspyrnuna. Þegar ég tók
við var ekkert kvennalandslið í
gangi en nú era þau fjögur."
Landslið karla hefur gert frá-
bæra hluti að undanfórnu undir
stjórn Guðjóns Þórðarsonar. Þjálf-
arinn nefndi það í viðtali í Morgun-
blaðinu fyrir skömmu að styrkja
þyrfti stöðu liðsins, útgerð þess
þyrfti að verða sambærileg og hjá
öðrum þjóðum. Hvað segir formað-
urinn; er þetta raunhæf krafa?
„Nei, því er fljótsvarað. Ef við
tökum enska, danska, norska og
sænska landsliðið sem dæmi - lið
frá þjóðum nálægt okkur, lið sem
hafa tekið þátt í úrslitakeppni stór-
móta undanfarið - þá höfum við ein-
faldlega ekki fjárhagslegt bolmagn
til að búa eins að okkar liði og þess-
ar þjóðir. Islenska liðið hefur náð
mjög góðum árangri undanfarið en
það hefur þó ekki haft áhrif fjár-
hagslega, ekki ennþá. Kæmumst við
hins vegar í úrslitakeppni EM yrði
stökkbreyting þar á. Þegar vel
gengur er starfið reyndar mun létt-
ara að mörgu leyti og samstarfsaðil-
ar ánægðari en það skapar ekki
meiri peninga - ekki fyrr en við
komumst í úrslitakeppni.“
Hvað fengi KSÍ mikla peninga, til
dæmis fyrir að komast í næstu úr-
slitakeppni Evrópumóts landsliða?
„Við fengjum líklega ríflega 100
milljónir frá UEFA um leið og við
kæmumst áfram og svo meira síðar.
Staðreyndin er hins vegar sú að
eins og tekjur sambandsins eru í
dag þá er stærsta hlutfallið vegna
sjónvarpsréttar og gegnum sam-
starfsaðila. Því miður er innkoma af
landsleikjum ekki mikil en ég vona
að það eigi eftir að breytast á næst-
unni. Við geram ráð fyrir því að
Laugardalsvöllur verði fullur á
þeim leikjum sem eru á næstunni
vegna þess hve vel liðinu hefur
gengið undanfarið. Að fólk komi til
að sjá og hvetja eigið lið vegna þess
að því hefur gengið svo vel en ekki
bara til að horfa á góð erlend lið,
þegar þau koma til landsins."
Guðjón gert stórkostlega hluti
„Það er alveg ljóst að Guðjón
hefur gert stórkostlega hluti með
landsliðið," heldur Eggert áfram.
„Hann hefur nú mótað sitt lið, tók