Morgunblaðið - 30.05.1999, Síða 7
YDDA/SÍA
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 7
lífskjara
Sveigjanlegur fasteignalífeyrir
Segja má að fasteign flestra eidri borgara sé í raun séreignalífeyrissjóður
þeirra. Með fasteignalífeyri, sem er hluti af Eignalífeyri Búnaðarbankans,
er mögulegt að njóta arðsins af lífsstarfinu strax við 65 ára aldur. Við
töku á fasteignalífeyri nýtur fólk ráðgjafar sem miðar við eignastöðu og
aldur viðskiptavinar. Hægt er að semja um reglubundinn fasteignalífeyri
í ákveðinn tíma, allt að 10 ár. Samningurinn er sveigjanlegur og honum
má breyta eða fella hann niður hvenær sem er. Að samningstíma loknum
er heildarupphæðinni breytt í langtímalán sem hvorki þarf að greiða af
vexti né afborganir fyrr en við sölu eða eigendaskipti á viðkomandi
fasteign. Með því að nýta fasteign sína á þennan hátt er hægt að auka
ráðstöfunartekjurnar, án þess að þurfa að flytja úr fasteigninni eða skerða
lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun.
Dæmi:
Hjón, sem eru 70 ára og eiga 16 milljón kr. fasteign, áætla ab við 80 ára aldur verði þau búin að
minnka við sig. Þau gætu t.d. fengið um 30.000 kr. fasteignalífeyri á mánuði í 10 ár án þess að
iífeyrisgreiðslur fráTryggingastofnun skerðist, auk þess sem eignaskatturinn lækkar.
Óbundið sparifé á háum vöxtum
Oft hefur sparifé fólks safnast saman á margar tegundir sparireikninga
sem gefa misgóða ávöxtun. Með Eignalífeyrisbók er hægt að sameina
spariféð á einn reikning, njóta hárra vaxta, en hafa jafnframt greiðan
aðgang að sparnaðinum hvenær sem er.
Kynntu þér nýja leið til betri lífskjara; Eignalífeyri Búnaðarbankans.
Upplýsingar í útibúum bankans. Veffang Búnaðarbankans er www.bi.is
$) BÚNAÐARBANKINN
tramtur bankí
EignaT
lífeyrir
Þjónustan
Fasteignalífeyrir
Þú nýtur arðsins af lífsstarfinu með því að fá reglu-
bundnar greiðslur inn á bankareikninginn þinn.
Innstæðulífeyrir
Eignalífeyrisbók með háum vöxtum en samt alltaflaus.
Fjármögnun vegna íbúÖaskipta
Skammtímafjármögnun sem brúar bilið við íbúðaskipti.
Ráðgjöf
Við aðstoðum við að finna leiðir til að hámarka
ráðstöfunartekjur á hagkvæman hátt með nýju forriti,
Silfursjóðnum.
Sjálfkrafa aðild að Úrvalsfólki Úrvals-Útsýnar
Þar eru fréttabréf og ferðir sérstaklega skipulagðar með
þarfir eldri borgara í huga.
Önnur þjónusta
Heimilislínan eða Sérkjör Heimilislínunnar standa þér
til boða.
_______