Morgunblaðið - 30.05.1999, Qupperneq 8
8 SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Finnlandsforseti til Moskvu aö reyna aö semja um Kosovo:
Sífellt fleiri vilja hóta
Stríðsherrann okkar lætur varla standa á sér þegar að landhernaði kemur, enda aldrei fyrr haft
svo marga vaska menn undir vopnum.
íslendingar eiga sæti í nefnd Sameinuðu þjóðanna um 2000 vandann
Alþjóðleg könnun
um 2000 vandann
HAUKUR Ingibergsson, skrif-
stofustjóri í fjármálaráðuneytinu og
formaður íslensku 2000 nefndarinn-
ar, á sæti í
stjómamefnd
Upplýsingamið-
stöðvar Samein-
uðu þjóðanna
um 2000 vand-
ann. Hann sagði
að markmið
nefndarinnar,
sem var sett á
laggimar í febr-
úar síðastliðn-
um, væri í gróf-
um dráttum að reyna að fá heildar-
yfirsýn yfir vandann og aðstoða þá
sem þyrftu á aðstoð að halda.
Þetta er m.a. gert með því að
hvetja til og styðja aðgerðir ein-
stakra ríkja, svæða og atvinnu-
greina vegna 2000 vandans og með
því að miðla upplýsingum um stöðu
ríkja og atvinnugreina varðandi
lausn á 2000 vandanum og hvetja til
gerðar viðlagaáætlana.
ísland fulltrúi smáþjóða
Haukur sagði að íslendingar
væra fulltrúar smáþjóðanna í
nefndinni, en auk Islands eiga
Pakistan, Filippseyjar, Marokkó,
Bandaríkin, Holland, Mexíkó, Jap-
an, Bretland, Chile, Kórea og
Búlgaría, fulltrúa í nefndinni. Hann
sagði að mesta vinnan færi fram á
skrifstofu nefndarinnar í Was-
hington en tæknin, þ.e. tölvupóstur,
gerði honum kleift að vinna sína
vinnu hér og því væri lítið um ferða-
lög.
Að sögn Hauks var eitt af fyrstu
verkefnum Upplýsingamiðstöðvar-
innar að reyna að byggja upp tengsl
við sem flest ríki og athuga hvort
verið væri að takast á við vandann
með réttum hætti. Alls hafa 155 ríki
skipað sérstakan tengslamann
vegna vandans og fara samskipti
nefndarinnar við einstök ríki nú
einkum í gegnum þá.
Þróunarlöndin
standa verst að vígi
„Við höfum reynt að einbeita okk-
ur frekar að þróunarlöndunum og
þeim sem við vitum að minna er
komið af stað hjá,“ sagði Haukur.
„Það era þróunarlöndin og lönd sem
standa illa efnahagslega eins og
austantjaldslöndin og Asíulöndin,
sem standa verst að vígi.“
Haukur sagði að þessa daga væri
í fyrsta skipti verið að framkvæma
alþjóðlega könnun um vandann
„Við eram nú að gera mat ó sam-
ræmdu formi hjá löndum heimsins
og það verður reynt að ná því sam-
an og vinna eitthvað upp úr því fýrir
fund sem haldinn verður í New
York upp úr miðjum júní.“
„Á fundinn í júní verður reynt að
fá alla þá sem leiða starfið í kring-
um 2000 vandann í sínum þjóðfélög-
um og eins sérfræðinga frá alþjóða-
stofnunum. Stefnt er að því að á
fundinum verði greint frá því
hvemig ástandið er, en það er alveg
ljóst að í lok ársins munu koma upp
einhver vandamál því ýmsir verða
ekki búnir með það sem þeir hefðu
átt að vera búnir með.“
Upplýsingamiðstöð Sameinuðu
þjóðanna hefur sett upp upplýsinga-
vef, sem auk þess að vera upplýs-
ingabrannur um vandann hefur að
geyma tengingar inn á vefi ríkja og
stofnana. Netslóðin er:
http://www.iy2kee.org.
Sumaráætlun Viðeyjarferju
Engeyjarsigl-
ingar í sumar
Viðeyjarferjan hf.
hefur sumaráætl-
un í dag. Ferjan
hefur siglt milli Reykja-
víkur og Viðeyjar frá því
fyrir 1970 en Eysteinn
Yngvason hefur rekið
ferjuna frá árinu 1993.
Hann var spurður hvort
fyrirhugaðar væru ein-
hverjar breytingar á
ferðum ferjunnar í sum-
ar? ^
„Aætlunin er eins og
hún var á síðasta ári -
laugardaga og sunnudaga
siglir hún á heilu tímun-
um, fyrsta ferð klukkan
13.00 til Viðeyjar en síð-
asta ferð til eyjarinnar er
klukkan 17.00. Einnig era
kvöldferðir þessa daga og
fimmtudaga og föstudaga.
Við höldum uppi þessari þjónustu
samkvæmt samningi við Reykja-
víkurborg. En hins vegar erum
við eigendur Viðeyjarferjunnar
með aðrar siglingar undir nafn-
inu Siglingamiðstöðin hf. og bjóð-
um þar upp á stangveiðiferðir
fyrir hópa, 5 til 100 manns, síðan
frá byrjun júní fram í miðjan
ágúst út í Lundey á Kollafirði
fyrir þá sem vilja skoða lundann,
þær taka um tvo tíma. I þeim
ferðum er viðkoma í Viðey í
bakaleiðinni. Loks erum við að
hefja í júnímánuði reglulegar
ferðir út í Engey.“
- Hvað er að sjá í Engey?
„Það er ekki bryggja í Engey
svo við eram að taka í notkun
sérstakan bát sem er útbúinn til
þess að taka land þar sem er
hafnleysa. Þessar ferðir út í Eng-
ey verða allar famar í fylgd far-
arstjóra. Það sem hægt er að
skoða í Engey er m.a. minjar frá
hemámsárunum, neðanjarðar-
byrgi og húsarústir, fallbyssu-
stæði og fleira. Við höfum farið
með hópa út í Engey til þess að
skoða þetta og menn haft mikið
gaman af. Geysi fjölbreytt fugla-
líf er í Engey.“
- Eru svona ferðir mikið sótt-
ar?
„Já, þessar ferðir sem við höf-
um farið út í Engey hafa vakið
athygli og áhuga manna og
ánægju þeirra sem farið hafa í
þær. Viðeyjarferðirnar era mikið
sóttar, það fara út í Viðey um 17
til 20 þúsund manns á ári.“
- Er mikið um að vera í Viðey
á sumrín?
„Já, þar er ýmislegt í boði, þar
er rekin hestaleiga og reiðhjóla-
leiga og það hefur verið boðið
upp á staðarskoðun á þriðjudags-
kvöldum, skálinn í Viðey, Viðeyj-
amaust, er mikið sóttur m.a. af
skólakrökkum á vorin, þar er
stór og mikil grillaðstaða, þetta
er vinsælt til fjölskylduferða,
starfsmannaferða, leikskólaferða
og fleira. Einnig koma
hópar í félagsheimili ---------
Viðeyingafélagsins í
gamla vatnsgeymin-
um. Þá hefur fólk sótt
þó nokkuð í mynda-
sýningu sem verið hefur í gamla
skólahúsinu. Fólk hefur einnig
gert sér ferð til að skoða lista-
verk Richard Serra, sem er út í
eyjunni. Loks fara sumir bara til
að njóta útivistar, borða nesti og
þess háttar.“
-Er fólki heimilt að tjalda í
Viðey?
„Já, fæstir vita að það er heim-
ilt. En það eru tjaldstæði á svæð-
Eysteinn Yngrason
►Eysteinn Yngvason er fæddur
8. maí 1955 í Reykjavfk. Hann
lauk prófi frá Vélskóla íslands
árið 1978. Hann hefur starfað
sem útgerðarmaður lengst af og
rekur nú Viðeyjarferjuna, en það
hefur hann gert frá 1993. Hann
var með rekstur Grímseyjarferj-
unnar Sæfara frá 1993 til 1996.
Hann er kvæntur Bergljótu Vikt-
orsdóttur og eiga þau þrjá syni.
Um 20 þúsund
manns á ári
inu við Viðeyjamaust þar sem
fólk getur tjaldað. Einnig hafa
sumir fengið að tjalda annars
staðar í samráði við ráðsmann
Viðeyjar.“
- Er yfirleitt sjóveður til Við-
eyjarsiglinga?
„Það er helst að það sé ófært
einhverja daga á ári að vetrar-
tímanum. Við siglum með hópa til
Viðeyjar allt árið og falla sjaldan
úr ferðir."
- Flytjið þið oft út fólk í brúð-
kaup og aðrar athafnir í Viðvey?
„Já, bæði í brúðkaup, ferming-
ar og messur. Margar athafnir
era haldnar í Viðey á ári hverju.
Meðan áætlunarferðir standa yf-
ir er boðið upp á kaffiveitingar í
Viðeyjarstofu og nýta sér það
margir. Svo hafa hópar fengið
þjónustu frá Viðeyjarstofu í Við-
eyjamausti."
- Er ágóði af þessarí starfsemi
allrí?
„Já, þetta ber sig, það er ekki
spurning.“
- Er vinsælt að sigla í lunda-
skoðun út á Kollafjörð?
„Ferðamenn hafa sótt mikið í
þær ferðir. Það er talið að um
fjögur þúsund lundapör séu í
Lundey, fólki hefur komið sú tala
óvart, það heldur að lundinn sé
ekki svona algengur hér á Sund-
unum, heldur að hann sé helst í
Vestmannaeyjum. Þetta heyrir
maður oft á tali fólks þegar við
rennum upp að Lundey. Undan-
farin sumur höfum við farið þrjár
ferðir í viku, en það
hefur ekki dugað svo
þetta sumarið verð-
um við með daglegar
........ ferðir út að Lundey.
Loks má geta þess að
við gerum líka út skemmtiskipið
Ámes. Það liggur í Reykjavíkur-
höfn og við förurn með hópa á því
um Sundin og út á Faxaflóa allt
árið um kring, þótt vissulega séu
flestar ferðirnar famar á sumrin.
Við föram um hverja helgi með
um 200 manns í skemmtisigling-
ar. Þessa þjónustu hafa starfs-
mannafélög gjarnan nýtt sér, svo
og erlendir ferðahópar."