Morgunblaðið - 30.05.1999, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 30.05.1999, Qupperneq 12
12 SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Anne-Christine Eriksson, almannatengslafulltrúi fyrir svæðisskrifstofu Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna fýrir Norðurlönd og Eystrasaltsrikin „Framlag Islands til flóttamannahjálparinnar til fyrirmyndar“ „Flóttamannastraumurinn meiri og hraðari en við áttum von á“ STRAUMUR flóttafólks frá Kosovo-héraði í Serbíu hef- ur verið meiri en flestir höfðu gert sér í hugarlund áður en loftárásir Atlantshafs- bandalagsins (NATO) hófust á Jú- góslavíu, sambandsríki Serbíu og Svartfjallalands. Samkvæmt heim- ildum Flóttamannahjálpar Samein- uðu þjóðanna (UNHCR) hafa um 779.400 manns flúið til nágranna- ríkja Serbíu frá því í mars sl. Þar af eru 65.000 flóttamenn í Svartfjallalandi, 252.300 í Makedón- íu, 440.600 í Albaníu og 21.500 í Bosníu-Herzegovínu. Um 65.700 flóttamenn hafa verið fluttur til „þriðju landa“ þ.e. annarra landa en þeirra sem eiga landamæri að Ser- bíu. ísland fellur í hóp þriðju land- anna og hingað kom fyrir skömmu Anne-Christine Eriksson, almanna- tengslafulltrúi svæðisskrifstofu UNHCR fyrir Norðurlönd og Eystrasaltsríkin, á leið sinni til flóttamannabúðanna í Makedóníu. Á íslandi hitti Anne-Christine meðal annarra að máli fulltrúa Am- nesty International, Mannréttinda- skrifstofu íslands, Bamahjálpar og félagsmálaráðuneytisins, en þó var erindi hennar aðallega að ræða við fulltrúa Rauða Kross Islands. Á fundi með fulltrúum Rauða Kross Islands var almennt rætt um það flóttamannastarf sem farið hef- ur fram á íslandi, hvemig flótta- fólkið hefur komið sér fyrir og hvort einhver vandamál hafi komið upp. Einnig vom ræddar hugmyndir um hugsanleg kynningarátök til að auka meðvitund íslendinga um flóttamannavandann, að sögn Anne- Christine. Hún sagði UNHCR sérstaklega ánægða með viðbrögð íslenskra stjómvalda. „Viðbrögð íslenskra stjómvalda við flóttamannaástendinu hafa verið tfl fyrirmyndar. fsland var eitt af fyrstu löndunum sem buðu sig fram til að taka ákveðinn fjölda flótta- manna og hundrað flóttamenn er mildll fjöldi fyrir land eins og ísland. ísland var ekki aðeins eitt af fyrstu löndunum til að taka við flóttafólki, heldur einnig eitt af fyrstu löndunum til að flytja flótta- fólk frá nágrannaríkjum Serbíu með flugi,“ sagði Anne-Christine. Nú hefur flóttamannastraumur- inn verið mun meiri en menn höfðu gert ráð fyrir áður en loftárásir NATO hófust. „Já, fjöldi flóttafólks hefur verið gífurlegur. Bæði hraði og stærð flóttamannastraumsins kom okkur í opna skjöldu. Sá fjöldi ------------------- flóttafólks sem við vomm Alþjóðasamfé búin að búa okkur undir lagið hefur FLÓTTAMANNASTRAUMURINN frá Kosovo hefur verið meiri og hraðari en menn höfðu gert ráð fyrir áður en loftárásir Atlantshafsbandalagsins á Júgóslavíu hófust. Yfirfullar fióttamannabúðir valda því að sumir hafa þurft að sofa og hafast við undir beru lofti. Anne-Chrístine Eriksson, almannatengsla- fulltrúi fyrír svæðisskrifstofu Flóttamanna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) fyr- ir Norðurlönd og Eystrasaltsríkin var stödd — 7 hér á landi fyrir skömmu. I samtali við Hrund Gunnsteinsdóttur sagði hún frá er- indi sínu hér á landi, hlutverki annarra landa við lausn á flóttamannavandanum o g stöðu mála í Kosovo. að taka á móti áður en loftárásirnar hófust var _____ einungis 100.000 manns til Makedóníu, Albaníu og Svartfjalla- lands, landanna sem liggja að Kosovo," sagði Anne-Christine. UNHCR hefur síðan þá undirbú- ið sig fyrir æ fleira flóttafólk frá Kosovo, en fyrir u.þ.b. þremur vik- um var markið sett við 950.000 manns. Ákveðið mynstur í frásögn fióttamanna En hvernig hefur ástand flótta- manna verið í Kosovo-héraði sjálfu sl. vikur? „Við fáum töluverðar up um ástandið í héraðinu í sem kemur þaðan. Það segir okkur og starfsmönnum annarra samtaka frá því sem það hefur upplifað og séð. í frásögn þess er að finna ákveð- ið mynstur þar sem það hefur verið hrakið frá heimilum sínum og fjöl- skyldum margra sundrað. Oft eru karlar aðstóldir frá konum og settir í rútur eða lestir og keyrðir á brott. Við fáum vitnisburði um barsmíð- ar, stundum morð og nauðganir en við höfum engan beinan tengilið í Kosovo þannig að við getum ektó fyllilega staðfest þessar frásagnir.“ Nú hafa fregnir borist af slæmu ástandi í flóttamannabúðum og ekki síst í Makedóníu. Einnig hafa yfírvöld þar í landi verið treg til að taka við fleiri fíóttamönnum vegna slæms efnahags- legs ástands og við- kvæmrar þjóðemisblöndu í landinu. Því hefur flóttafólki oftar en einu sinni verið meinaður aðgangur inn í landið. „Já, það má segja að yfirvöld í Makedóníu hafi verið treg til að taka á móti flóttafólki. Þar eru flóttamannabúðimar löngu orðnar yfirfullar og er sama vandamálið uppá teningnum í Albaníu. Ástandið í Álbaníu er þó örlítið frábrugðnara því þarlend yfirvöld leggja mikið af mörkum við að sinna flóttafóltónu. En það er ekki einungis í höndum yfirvalda að veita land undir flótta- mannabúðir því löndin sem notuð brugðist vel við eru, eru oft á tíðum í einkaeign. Einstaklingar vilja ektó alltaf gefa land sitt undir flóttamannabúðir vegna þess að allar líkur eru á að það eyðileggist. Hins vegar má segja að yfirvöld í Makedóníu séu sérlega hæg á sér að fínna land undir búðirnar. í raun hófust flutningar á flóttafólki til þriðju landa er Makedóníumenn lokuðu landamærunum því flótta- mannastraumurinn varð þeim of- viða af fyrmefndum ástæðum. Til þess svo að geta haldið landa- mærunum opnum fyrir fóltó sem þarf að komast í ömgga höfn, leit- uðum við til annarra rítósstjóma um hæli fyrir flóttafólkið. Flutningur flóttafólks til þriðju landa hefur hins vegar ekki numið þeim fjölda sem kemur til ná- grannaríkja Kosovo á degi hverjum og hefur það valdið okkur töluverð- um vandræðum. Til að stemma stigu' við þessu vandamáli höfum við hvatt yfirvöld í öðmm löndum til að taka við enn fleira flóttafólki." Anne-Christine segir það hafa verið stefnu UNHCR í upphafi að halda flóttafólkinu í nágrannaríkj- um Kosovo, enda gerði stofnunin ekki ráð fyrir svo mörgu flóttafólki eins og nú er orðið. „Hins vegar varð straumur flótta- fólks það mikill eins og raun ber vitni, að við þurftum að biðja fleiri Evrópulönd um að taka á móti flóttafólki, en loks var svo komið að Morgunblaðið/Jón ANNE-CHRISTINE segir brýnt að mál flóttamanna séu betur kynnt fyrir almenningi. við neyddumst til að biðja lönd eins og Bandarítón, Kanada, Átralíu og Nýja-Sjáland, sem em ennþá lengra í burtu frá Kosovo, um að taka við flóttafólki. Flutningur til þessara landa hef- ur verulega aukist sl. vikur en enn vantar töluvert upp á að hann full- nægi raunvemlegri þörf.“ Hafa ríki almennt staðið und- ir kröfum sem gerðar eru til þeirra hvað varðar flóttamanna- vandann? ________ „Almennt séð já. Ég hef stundum verið spurð að því hvort sá fjöldi sem ríki bjóðast til að taka við af flóttafólki sé nægilegur. — En um það snýst málið raunvera- lega ekki. Málið snýst um það hvort vilji sé til staðar til að taka á móti flóttafólki meðal ríkja, því allir eiga rétt á að leita hælis.“ Réttur þessi er tryggður í grein 14 í Mannréttindayfirlýsingu SÞ sem kveður á um að: „Rétt skal mönnum vera að leita og njóta griðlands erlendis gegn ofsókn- um.“ Hvernig er þessum rétti framfylgt í Kosovo-deilunni í dag að þínu mati? „Aiþjóðasamfélagið hefur sýnt gífurlega sterk viðbrögð við flótta- manna ástandinu. Viðbrögðin hafa til að mynda sýnt sig í flutningi fólks frá nágrannalöndum Serbíu og í því að rító hafa boðið flóttafóltó hæli eða tímabundna vist. í mínum huga er þetta til marks um að fjórt- ánda greinin lifir góðu lífi. Hins vegar er ljóst að rítósstjómir túlka rétt flóttamanna skv. alþjóðalögum misjafnlega strangt." Hvað geturðu sagt mér um ástand barna sem flóttafólks frá Kosovo í dag? „Því má ektó gleyma að þau börn sem upplifað hafa Kosovo-átökin hafa orðið fyrir gífurlegum áföllum. Mörg þeirra hafa horft upp á er for- eldrar þeirra eða nánir ættingjar em drepnir og því þurfa þau á mikl- um stuðningi að halda. Nú þegar eru samtök og hópar sem starfa með börnum í flótta- mannabúðunum, bæði við ráðgjöf og við að koma allskyns félagsstarfi í kring sem vex með degi hveijum. Þó virðist meiri áhersla hafa verið lögð á þarfir bama og því hafa ung- lingar oft gleymst. Nú er hins vegar verið að taka á því, með því að finna samtök og hópa sem tilbúnir eru til að starfa með þeim. Hjálparstarf og uppbyggingar- starf beinist að sjálfsögðu ekki ein- ungis að bömum og unglingum, en í flóttamannabúðum í Albaníu og Ma- kedóníu starfa nú um 80-100 óháð félagasamtök. Ástandið breytist daglega og því þurfa ný ráð að koma til á degi hverjum til að takast á við flóttamannavandann.“ I ljósi Kosovo-átakanna og stöðu flóttamanna, hvað er þér efst í huga í dag? „I dag er mér efst í huga að finna skjól fyrir allt þetta fólk, hvað orðið hefur um fólk sem horfið hefur frá landamærunum yfir nótt og hvemig því fóltó sem enn er í Kosovo vegnar. Fólk hefur verið innlyksa á milli landamæranna þar sem kallast á „einstós manns landi“ í marga daga án þess að við vitum um líðan þess. Við landamærin að Kosovo hefur mörgum jarðsprengjum verið kom- ið fyrir sem veldur okkur einnig miklum áhyggjum. Fyrir nokkram vikum létust nokkrir flóttamenn sem vom á ferð í skóginum við landamærin er þeir ferðuðust um jarðprengjusvæði. Ég sé fyrir mér öll andlitin. Hversu mikilvægt það er að flutn- ingur flóttafólks frá nágrannaríkjum Serbíu gangi sem greiðast fyrir sig og að reynt verði eftir fremsta megni að leyfa fjölskyldum að vera saman. Allt þetta reikar um huga minn. Enn á sama tíma veitir það mér styrk að vita til þess að það era mörg samtök að vinna með flóttafólkinu og margar rítósstjómir og almenningur sem leggur sitt af mörkum við að að- stoða flóttamennina.“ Brýnast að pólitisk lausn fínnist Anne-Christine segist sérstak- lega hrifin af því starfi sem unnið hefur verið á Islandi af hálfu yfir- valda, fyrirtækja, samtaka og ein- staklinga. ,,Að mínu mati hefur ísland mikla og góða reynslu af því að taka á móti flóttafóltó og ég vil leggja áherslu á það hversu þakklátt UNHCR er fyrir framlag íslands. I viðræðum okkar við aðrar ríkis- stjómir nefnum við oft framlag ís- lands er við ræðum flóttamanna- hjálp, kerfi ykkar er mjög til fyrir- myndar og má þá nefna það fyrir- komulag að hafa fósturforeldra sem dæmi.“ Anne-Christine sagði brýnast í dag __________________ að pólitísk lausn verði UNHCR tekur fundinn á Kosovo-deil- unni „eins og UNHCR hefur ítrekað lagt áherslu á frá sl. sumri,“ að hennar sögn. Hvað varðar umfjöllun um að Reuters Island til fyrirmyndar pólitískar leiðir hafi verið reyndar til hins ýtrasta áður en loftárásimar hófust sagði Anne-Christine fólk vissulega geta verið viturt eftir á. „En eigi UNHCR hins vegar að tryggja flóttafólkinu öragga heim- komu og að réttindi allra íbúa Kosovo, óháð þjóðemi, verði virt, verður að finna pólitíska lausn á endanum því hemaðaríhlutunin ein og sér kemur því ekki til leiðar. í þessu felst að mikið uppbygg- ingarstarf er framundan bæði í þágu mannúðar- og hagkvæmnis- sjónarmiða.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.