Morgunblaðið - 10.10.1999, Page 2

Morgunblaðið - 10.10.1999, Page 2
2 SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Önnur ráðstefna um konur og lýðræði í Lettlandi næsta ár Vinmihópar skýra frá Morgunblaðið/Kristinn Hillary stýrði hringborgsumræðunum á ráðstefnunni um konur og lýðræði við árþúsundamót í gær. Við hlið hennar er Penelope Beckles lögmaður frá Trinidad. RÁÐSTEFNUNNI um konur og lýðræði við árþúsundamót, sem haldin er í Borgarleikhúsinu, lýkur um hádegi í dag með ræðu Hillary Rodham Clinton, forsetafrúar Bandaríkjanna. Áður munu for- menn vinnuhópa ráðstefnunnar hins vegar ganga í pontu og skýra frá niðurstöðum hópanna; hvaða verkefni eigi að setja á laggirnar og hvaða aðilar eigi að koma að þeim. Að ári er svo stefnt að því að halda aðra ráðstefnu í Lettlandi þar sem fjalla á um ráðstefnuna í Reykjavík og hverju hún hafí skil- að. Vinnuhóparnir hófu störf á laug- ardagsmorgun og unnu fram eftir degi en um miðjan dag var gert hlé á vinnufundahöldum og haldnar hringborðsumræður í Borgarleik- húsinu um málefni kvenna. Hillary Clinton stýrði umræðunum. í gær- kvöldi var svo haldinn hátíðar- kvöldverður á Hótel Islandi í boði ráðstefnunnar. Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) hyggst í dag veita viður- kenningu félagsins í fyrsta sinn en hana hlýtur sá aðili sem þykir hafa lagt atvinnurekstri kvenna lið og/eða verið konum í atvinnu- rekstri sérstök hvatning eða fyrir- mynd. Viðurkenninguna hlýtur Hillary Rodham Clinton. I frétt frá FKA segir að Hillary Clinton hafí með störfum sínum sýnt kon- um hvarvetna í heiminum að þær séu fullgildir og nauðsynlegir þátt- takendur í atvinnulífí og atvinnu- STJÓRN Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu lagði ályktun fyrir aðalfund samtakanna í gær um fyrirhugaðan niðurskurð opin: berra útgjalda vegna þenslu. I ályktuninni er varað við þeim hugmyndum að láta niðurskurð í framkvæmdum bitna eingöngu á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess lagði stjórnin fram ályktun um tekjustofna sveitarfé- laganna. Þar er hvatt til þess að við endurskoðun þeirra, sem nú sé í undirbúningi, verði tekið mið af því að sveitarfélögum verði bætt sú skerðing sem orðið haíi á tekjum þeirra á undanförnum ár- um. Einnig er hvatt til þess að forræði sveitarfélaga til að ákvarða gjöld og ráðstöfun tekna sinna verði eflt, að ákvæði um tekjustofna og sértekjur sveitar- félaga verði einfölduð frá því sem nú er og að framlög ríkissjóðs til sveitarfélaga verði flest almenn og að sveitarfélögum verði ekki mismunað. Grasagarðurinn hlýtur viðurkenningu Á aðalfundinum var Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal veitt við- urkenning Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir merkt framlag til umhverfís-, úti- vistar- og skipulagsmála. Stjórn rekstri sem og á öðrum sviðum þjóðlífsins. Komst ekki til Eyja Forsetafrúin heimsótti Þingvelli í gær, en ekki varð af heimsókn hennar til Vestmannaeyja í gær- SSH veitir þessa viðurkenningu árlega og er þetta í 16. skipti sem hún er veitt, en meira en tuttugu einstaklingar, stofnanir og sveit- arfélög hafa hlotið viðurkenningu. Markmiðið með viðurkenning- unni er að hvetja sveitarstjórnir, hönnuði og framkvæmdaaðila á höfuðborgarsvæðinu til að leggja áherslu á það heildarumhverfí sem mótað er á svæðinu. Tilraunir með gróðurtegundir Grasagarðurinn var stofnaður árið 1961 og er honum skipt í sex hluta. Hann hefur að geyma um 350 innlendar gróðurtegundir og plöntur auk þess sem um 2.000 er- lendar tegundir er þar að finna. Garðurinn er einn 1.500 sambæri- legra garða víðs vegar um heim- inn sem starfræktir eru með það að markmiði að bjóða upp á tæki- færi til fræðslu og ánægju. Eitt meginmarkmiðið með starfsem- inni er að gera tilraunir með gróð- urtegundir sem þrifíst geta hér- lendis og í þeim tilgangi eru starfsmenn hans í samskiptum við 400 sambærilega garða erlendis. Listamennirnir Kolbrún Björg- ólfsdóttir (Kogga) og Magnús Kjartansson hönnuðu verðlauna- gripinn sem afhentur var. Hann á að tákna samspil mannsins við umhverfí sitt og náttúru. morgun. Töluverður viðbúnaður var í Eyjum vegna heimsóknarinn- ar, flestir lögregluþjónar voru á vakt og höfðu yfirmenn lögregl- unnar í Eyjum notað síðustu daga til að skipuleggja komu forsetafrú- arinnar. „Menn eru svekktir yfír DAGSKRÁ alþjóðageðheilbrigðis- dagsins hefst með opnun listsýn- ingar heimilanna Vinjar og Dval- ar í sjálfboðamiðstöð Rauða kross Islands á Hverfísgötu 105 í Reykjavík. Klukkan 13:30 verður svo gengið frá Hlemmi niður í Ráðhús Reykjavíkur þar sem há- tíðardagskrá hefst í Tjarnarsaln- um klukkan 14:00. Pétur Hauksson, formaður Geðhjálpar, setur hátíðarsam- komuna og minnist 20 ára afmæl- is Geðhjálpar og flytur söngsveit Vinjar svo tónlist undir stjórn Sigvalda Kaldalóns. Þá flytja ávörp Ólafur Ólafsson, formaður að hún skyldi ekki geta komist hingað, af því að hún ætlaði að skoða Keikó og hafði áhuga fyrir því,“ segir Pétur Steingrímsson, varðstjóri í Vestmannaeyjum, en hætta varð við heimsóknina vegna veðurs. félags eldri borgara í Reykjavík, Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir og Vilhjálmur Guðjónsson. En fjallað verður um geðheilbrigði og öldrun. Einnig verður sagt frá sjálfshjálparhópi fólks sem orðið hefur fyrir einelti og sjálfshjálp- arhópi fólks með geðhvörf. Að lokinni hátíðardagskrá, klukkan 15:30, verða bornar fram kaffíveitingar í húsi Geðhjálpar á Túngötu 7 og einnig verður opið hús frá klukkan 14:00 á heimilinu Dvöl í Kópavogi. ■ Alþjóðageðheilbrigðis- dagurinn/34-35 « c c o MEÐ Morgunblaðinu í dag er dreift blaði frá Ecco. íslenzki framleiðand- inn er hornsteinn fé- lagsins ► Rætt við Róbert Guðfinnsson, stjórnarformann SH, um breyt- ingar á rekstri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. /10 Beinir athygli að norð- vestursvæði Evrópu ► Fjölþjóðleg ráðstefna í Brussel um umhverfisþætti hinnar „norð- lægu víddar“ ESB. /12 Irkið og smáskiiaboðin ► Islenskir unglingai- hafa verið fljótir að tileinka sér nýja sam- skiptatækni. /22 Að selja íslenska knattspyrnumenn ►Viðskiptaviðtalið er við Ólaf Garðarsson, lögmann og umboðs- mann knattspyrnumanna. /30 ►1-32 íslandi gleymum við aldrei ► Margir Kosovo-Albanar hafa snúið heim eftir dvöl í nálægum löndum eða fjarlægum. Nú er kominn tími uppgjörs og upp- byggingar. /1& 16-20 Endurskipulagning frá grasrótinni ►Ólafur Proppé, nýkjörinn for- maður Slysavarnafélagsins Lands- bjargar, hefur unnið að samein- ingu björgunarfélaganna. /2 Átt þú spariföt? ► Elísabet Kristjánsdóttir hefur ekki farið troðnar slóðir og víða lagt hönd á plóginn. / 8 FERÐALÖG ► l-4 Ferðamálaráðstefnan á Egilsstöðum ► Bláa lóninu voru veitt umhverf- isverðlaun Ferðamálaráðs á ferða- málaráðstefnunni. /1 Sunnudagssíðdegi í Edinborg ►Vilmundur Kristjánsson gerði sér ferð til Edinborgar og skoðaði þessa fallegu borg. /2 D BÍLAR ► 1-4 Vetrardekk Continental prófuð á Langjökli ►400 blaðamenn frá Evrópu hafa sótt kynningu dekkjaframleiðand- ans Continental á Langjökli. /2 MAZDA Premacy ► Nýr bíll í flokki minni fjölnota- bíll verður kynntur um helgina hjá umboðsaðilanum Ræsi. /4 Eatvinna/ RAÐ/SMÁ ► l-20 Þóknanir í hlutabréfa- viðskiptum lækkaðar ►Viðskipti á Vefnum og Kauphöll Landsbréfa. /1 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 50 Leiðari 32 Stjörnuspá 50 Helgispjall 32 Skák 50 Reykjavíkurbréf 32 Fólk í fréttum 54 Minningar 38 Útv/sjónv. 52,62 Myndasögur 48 Dagbók/veður 63 Bréf til blaðsins 48 Mannl.str. 22b ídag 50 Dægurtónl. 30b INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6 Fjármál rædd á fundi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu Niðurskurður bitni ekki aðeins á höf- uðborgarsvæðinu Alþj óðageðheilbrigðis- dagurinn er í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.