Morgunblaðið - 10.10.1999, Side 6

Morgunblaðið - 10.10.1999, Side 6
6 SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Fur Berlin. Wir ká mpfen! Kosningabaráttan hefur sett sterkan svip á Berlín að undanförnu. A Ibúar Berlínar kjósa sér nýtt landsþing Gagnrýni Lafontaines veikir stöðu jafnaðarmanna EFTIR marga kosningaósigra Jafn- aðarmannaflokksins (SPD) á þessu hausti varpaði stjómin öndinni íéttar þegar flokknum tókst að rétta stöðu sína með þokkalegum árangri í borg- ar- og sveitarstjórnarkosningunum í Nordrhein-Westfalen fyrh- tveimur vikum. Það entist þó ekki lengi því um sömu mundir hóf Oskar Lafontaine, fyrrverandi flokksfor- maður SPD og fjármálaráðherra Þýskalands, vægðarlausa gagnrýni á stefnu sambandsstjómarinnar. Lafontaine hafði verið spar á yfirlýs- ingar eftir að hann sagði af sér í mars á þessu ári eftir meira en þriggja áratuga starf fyrir fiokkinn. Bók hans „Hjartað slær vinstra rnegin" mun koma út 13. október en Die Welt hefur að undanförnu birt valda kafla úr bókinni. Lafontaine er jafnframt farinn að veita viðtöl og virðist í samráði við útgefendur markaðssetja bók sína af mikiili list. Gagnrýnendur segja Lafontaine síð- ur bjóða lesendum sínum fágaða pólitíska greiningu en söluvæna ádeilu. Lafontaine sakar Schröder um að hafa misnotað traust kjós- enda, svikið kosningaloforð og gert pólitíska stefnubreytingu eftir að sigurinn var í höfn. Um stefnu stjórnarinnar notar Lafontaine skammarheitið „nýfrjálshyggja". Álitshnekkir fyrir flokkinn Jafnaðarmenn hafa brugðist illa við því að reynslumikill stjórnmála- maður á borð við Lafontaine skuli ráðast gegn gamla flokknum sínum með þessum hætti. Schröder segist ekki ætla að taka þátt í hinni opin- beru umræðu um bók Lafontaines og margir jafnaðarmenn fylgja í fót- spor hans. Fjármálaráðherrann, Hans Eichel, segir ummæli Lafontaines hafa orðið til þess að styrkja samstöðuna innan flokksins. Gunter Grass, sem nýlega hlaut bók- menntaverðlaun Nóbels, sleit vina- sambandi við Lafontaine í kjölfar yf- irlýsinga hans, en Grass hefur lengi verið stuðningsmaður SPD. Ljóst er að gagnrýni Lafontaines er mikill álitshnekkir fyrir SPD og sérstak- lega óheppileg fyrir jafnaðarmenn í Berlín sem spáð var slæmu gengi í landsþingskosningunum í dag og þurftu síst á mótbyr úr eigin röðum að halda. Berlínarbúar ganga að kjörborðinu í dag og velja sér nýtt landsþing. Davíð Krist- insson, fréttaritari í Berlín, segir athyglina m.a. beinast að því hvort kristilegir demókratar nái hreinum meirihluta á landsþinginu svo og hvort PDS takist á ný að fá meira fylgi en jafnaðarmenn. Eberhard Walter Diepgen Momper Lafontaine, sem verið hefur helsti talsmaður vinstri arms Jafnaðar- mannaflokksins, hefur nú lýst því yf- ir að hann sé hlynntur aukinni sam- vinnu SPD við Flokk hins lýðræðis- lega sósíalisma (PDS). Formaður PDS, Lothar Bisky, segir flokk sinn reiðubúinn að veita Lafontaine inn- göngu. Ætla má að Lafontaine hall ákveðna samkennd með þeim armi PDS sem samanstendur af vinstrisinnuðum sósíaldemókrötum en hinn armur flokksins sam- anstendur af klassískum sósíalistum. Þótt nokkrir liðsmenn SPD hafi að undanförnu gengið til liðs við PDS er talið ólíklegt að Lafontaine stígi þetta skref. Ljóst er að PDS hefur á undanförnum mánuðum með slag- orðinu „félagslegt réttlæti“ fyllt upp í skarð það sem Lafontaine skildi eftir sig á vinstri vængnum. Upp- sveifla PDS á sér þó lengri sögu. Af þeim 28 skiptum sem kosið hefur verið í sambandslöndum fyrrverandi Austur-Þýskalands frá því 1992 hef- ur PDS 27 sinnum aukið fylgi sitt. Búist er við að uppgangur PDS haldi áfram í landsþingskosningun- um í Berlín í dag og jafnvel um ókominn tíma á meðan óánægja ríkir með sambandsstjórn jafnaðarmanna og græningja. PDS hefur beitt sér fyrir félagslegu réttlæti og hags- munum Austur-Þjóðverja og í kjöl- farið hefur flokkurinn verið upp- nefndur ,A-ustur-þýski réttlætis- flokkurinn". Margir Austur-Þjóð- verjar kjósa PDS á þeim forsendum að flokkurinn sé líklegastur til að verja hagsmuni þeirra. Ófáir kjós- endur telja þó að flokkurinn sé ekki enn fullfær um stjórnarábyrgð og virðast margir leiðtogar flokksins sömu skoðunar. PDS er þó orðinn næststerkastur flokka í Thuringen og Saxlandi og svo gæti farið að flokkurinn færi einnig fram úr SPD í landsþingskosningunum í Berlín í dag. Meginandstæðingurinn, Kristi- legir demókratar (CDU), útilokar því ekki þá þróun að PDS verði ráð- andi flokkur á vinstri vængnum í framtíðinni. Á undanförnum dögum hafa Kristilegir demókratar því end- urskoðað afstöðu sína til PDS, arf- taka Austur-þýska kommúnista- flokksins (SED). Endurskoðun þessi fer þó fram með gát og Kristilegir demókratar líta sem fyrr á PDS sem meginandstæðing sinn. Gregor Gysi, leiðtogi Sósíalista á sambandsþing- inu, hefur hvatt flokk sinn til að hefja viðræður við CDU nú þegar tíu ár eru liðin frá falli múrsins og segir hann tíma til kominn að binda enda á „kalda stríðið“. Hin fjölmörgu „landamæri“ Berlínar Þótt vissulega megi líkja átökum CDU og PDS í þýskum stjórnmálum við kalt stríð eru átök þau þó léttvæg miðað við hið svonefnda „kalda stríð“ sem leiddi til þess að múrinn var reistur þvert í gegnum miðdepil átakanna, Berlín. I samanburði við önnur sambandslönd í Austur- Þýskalandi er sérstaða Berlínar sú að hún samanstendur af tveimur borgum sem voni aðskildar milli austurs og vesturs í marga áratugi. Tíu árum eftir fall múrsins endur- speglast þessi pólitíski aðskilnaður enn í atkvæðum kjósenda. Þannig er PDS ráðandi í Austur-Berlín á með- an CDU hefur yfirburðastöðu í vest- urhluta borgarinnar. Þótt íbúar Vestur-Berlínar séu að undanförnu farnir að hlusta á ræður PDS er flokknum einungis spáð 4% atkvæða í þeim hluta borgarinnar en á sama tíma hefur flokkurinn 35% fylgi í Austur-Berlín. Aðskilnaðurinn milli borgarhluta Berlínar takmarkast þó ekki við austur og vestur heldur er jafnframt mikill munur á vel stæðum og efnaminni hverfum borgarinnar, en þau síðarnefndu eru mörg hver í Vestur-Berlín. Með flutningi sam- bandsþingsins og þar með valdsins til Berlínar hafa andstæður þessai’ aukist enn frekar með glæstri end- uruppbyggingu miðborgarinnar. Berlínarbúar eru meðvitaðir um ólíka stöðu borgarhlutanna. í Zehlendorf, best stæða hverfi Vest- ur-Berlínar, er atvinnuleysi einun- ungis 7,5%, íbúar hverfisins eru tekjuhæstir Berlínarbúa og hlutfall útlendinga er mjög lágt (10%). í slík- um hverfum hefur það lítið upp á sig að boða miklar breytingar í kosn- ingabaráttunni og leggja flokkarnir því fyrst og fremst áherslu á stöðug- leika. PDS sem vill innleiða hátekju- skatta í Berlín hefur að sjálfsögðu nánast ekkert fylgi í slíkum hverf- um. Kreuzberg er hins vegar verst stæða hverfi Vestur-Berlínar, en at- vinnuleysi er þar rúmlega 25%. Þriðji hver íbúi hverfisins er af er- lendum uppruna og býr þar fólk af yfir hundrað þjóðernum. í hverfinu er búsettur stór hluti þeirra 135.000 Tyrkja sem búsettir eru í Berlín og er hverfíð því stundum nefnt „næst stærsta tyrkneska borgin á eftir Ist- anbúl“. Eitt af vandamálum Kreuz- berg er að á ákveðnum svæðum þessa borgarhluta eru flestir nem- endur skólanna útlendingar og hafa þýskir foreldrar því áhyggjur af gæðum móðurmálskennslunnar. í kjölfarið er þróunin í slíkum hverf- um sú að þýskar fjöldskyldur fiytja í auknum mæli úr hverfinu. Kreuz- berg er háborg græningja sem hafa þar 31,5% fylgi, eða 20 prósentustig- um meira en meðalfylgi flokksins í Berlín. Kúrdinn Özcan Mutlu, sem er í framboði fyrir græningja í Kreuz- berg, er annar tveggja Tyrkja sem taldir eru eiga öruggt sæti á lands- þinginu eftir kosningarnar. Ekki hafa þó allir flokkar jafn jákvæða af- stöðu til innflytjenda og græningjai'. Slagorð ungliðahreyfingar CDU hef- ur verið „að endurheimta hið þýska í Kreuzberg". Öfgasinnaðir hægri- flokkar á borð við repúblikana (REP), sem spáð er 2% atkvæða, eru óheflaðri í ummælum sínum. Þremur dögum fyrir kosningarnar lýsti þingmaður CDU í Berlín, Wolf- Dieter Zupke, óvænt yfír áhuga á samsteypustjórn með repúblikönum á þeim forsendum að stefna flokk- anna í öryggismálum sé áþekk. Stjórn CDU í Berlín brást illa við yf- irlýsingum Zupke og íhugar að krefjast afsagnar hans. Stjórnin seg- ir það skýra stefnu flokksins að sam- vinna með repúblikönum sé ekki á dagskránni. Ándstæðingar flokksins telja Zupke þó tjá hug fleiri flokks- bræðra sinna. Víst er að yfirlýsingar hans eru líklegar til að fæla ein- hverja kjósendur frá CDU og gætu þessi óheppilegu ummæli því styrkt annars veika stöðu vinstriflokkanna síðustu dagana fyrir kosningar. Diepgen gegn Momper Það er þó engin tilviljun að Zupke skuli svipast um eftir flokki sem hef- ur svipaða stefnu og CDU í öryggis- málum. Undanfarin tvö kjörtímabil hafa CDU og SPD myndað stóra samsteypustjórn í Berlín. CDU legg- ur mikla áherslu á öryggismál og ákveðinn armur innan flokksins vill auka framlag til löggæslu um ein- hverjar milljónir marka. SPD hefur ávallt komið í veg fyrir slíkar áætl- anir og borgarstjóri Berlínar, Eber- hard Diepgen, hefur sakað jafnaðar- menn um að vera með fjandsamlegt viðhorf í garð lögreglunnar. Annars hefur Diepgen farið varlega í gagn- rýni á SPD í kosningabaráttunni enda varla ástæða til þar sem CDU er í mikilli uppsveiflu í Berlín og skoðanakannanir útiloka ekki hrein- an meirihluta flokksins á Iandsþing- inu. Fái SPD og PDS talsvert minna en 20% atkvæða gætu 45% tryggt CDU hreinan meirihluta. Diepgen telur þó óraunhæft að flokkur hans nái hreinum meh'ihluta í Berlín þar sem fjórir flokkar hafa allir nokkuð stöðugt fylgi. Auk þess óskar hann sér síður hreins meirihluta en áfram- haldandi samsteypustjórnar með SPD. Hann segir ástæðuna þá að enn séu mörg verkefni óklái'uð varð- andi sarrieiningu borgai'innar og að æskilegt sé að stóru flokkarnir vinni saman að því verkefni. Samvinna við Flokk frjálsra demókrata (FDP) mun líklegast ekki standa til boða þar sem talið er ólíklegt að flokkur- inn nái þeim 5% atkvæða sem þarf til að komast inn á landsþingið. Ki'isti- legir demókratar vonast því til að jafnaðarmenn fái ekki minna en 20% atkvæða þar sem vinstri armur SPD er þeirrar skoðunar að flokknum beri að segja sig úr samsteypu- stjórninni verði árangurinn lakai'i. Flokkurinn hlaut 23,7% atkvæða í kosningunum 1995 og var það versti árangur jafnaðarmanna í Berlín til þessa. Eftir sambandsþingskosningarnar fyrir ári voru horfur SPD í Berlín nokkuð góðar. Nú sýna nýjustu vin- sældakannanir að á sama tíma og Di- epgen hefur mest íylgi frambjóð- enda í sögu Berlínar hefur frambjóð- andi SPD, Walter Momper, minnst fylgi. Efth’ að Momper var óvænt valinn frambjóðandi SPD í upphafi árs mældist fylgi hans nokkuð gott en síðan hefur það farið smám sam- an dvínandi. Mompers man sinn fífil fegurri. Hann „sigraði" Diepgen í kosningunum í Vestur-Berlín 1989 og var borgarstjóri þau tæpu tvö ár sem SPD og græningjar mynduðu sína fyrstu samsteypustjórn. Hann var því borgarstjóri Berlínar þegar múrinn féll og fóru þá myndir af honum út um allan heim. Momper dró sig út úr stjórnmálum eftir að hafa tapað fyrir Diepgen í kosning- unum 1990 og sneri sér að fasteigna- viðskiptum. Eftir að Momper sneri aftur í upphafi ársins hefur honum á skömmum tíma tekist að verða óvin- sælasti stjórnmálamaður borgarinn- ar. Hinar pólitísku línur eru ekki lengur jafn skýrar og fyrir fall múrs- ins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.