Morgunblaðið - 10.10.1999, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ég heiti
Isbjörg
frumsýnt
í Stokk-
hólmi
GILJOTINLEIKHÚSIÐ í
Stokkhólmi leggur nú loka-
hönd á æfingar á sýningu á
leikgerð Hávars Sigurjóns-
sonar eftir skáldsögunni Eg
heiti Isbjörg, ég er ljón eftir
Vigdísi Grímsdóttur. Leik-
stjóri er Kia Berglund og í
aðalhlutverkum eru leikkon-
urnar Pernilla Björnsdotter
og Catherine Parment.
Frumsýning verður föstu-
daginn 15. október.
Giljotin leikhúsið var stofn-
að fyrir tíu árum og hefur að-
allega lagt sig eftir frum-
flutningi nýrra verka sem
taka á samfélagslegum þátt-
um og endurspegla lífið eins
og það er í nútímanum. Leik-
húsið hefur sviðsett 16 leikrit
frá 1989 og hefur bækistöð
sína í litlu leikhúsi í Stokk-
hólmi en ferðast einnig víða
um Svþjóð og hefur hlotið
margvíslegt lof fyrir sýningar
sínar. Stjórnendur leikhúss-
ins frá upphafi hafa verið Kia
Berglund listrænn stjórn-
andi, Rikard Borggárd tón-
skáld og Birgitta Allén fram-
kvæmdastjóri.
Þýðandi leikgerðarinnar er
Inge Karlsson og aðrir list-
rænir stjórnendur sýningar-
innar eru leikmyndahönnuð-
urinn Björn Peters, tónskáld-
ið Rikard Borggárd og And-
ers Shorty Larsson ljósa-
hönnuður. Aðrir leikendur
eru Peter Kneip, Ana-Yrsa
Palenius, Elsabet Svensson,
Anders Járleby, Anders
Jansson, Pelle Axnás.
Pólskir
tónleikar í
Kaffileik-
húsinu
PÓLSKU hjónin Wieska og
Hubert Szymczynsky halda
tónleika í Kaffíleikhúsinu á
morgun, mánudag, kl. 21.
Þau eru eru búin að vera á
tónleikaferðalagi um Banda-
ríkin og koma hér við á leið
heim til Svíþjóðar, þar sem
þau eru búsett.
Wieska er fiðluleikari,
fædd og uppalin í Poznan í
Póllandi. Hún var konsert-
meistari með Polska Radio
kammerhljómsveitinni í 10 ár
og spilaði með listamönnum
eins og Henrik Szeryng;
Gidon Ki-emer og fleirum. I
dag er Wieska konsertmeist-
ari með Musika Vitae í Sví-
þjóð og hefur spilað víða í
Evrópu með þeirri kammer-
hljómsveit og gefið út diska.
Hún er jafnframt kennari við
Tónlistarháskólann í Malmö.
Hún hefur einnig unnið með
frönskum píanista, Benedicte
Haid, og með henni gefíð út
disk með tónlist eftir Gr-
azyna Bacewicz. Hubert er
píanóleikari og eins og
Wieska er hann frá Poznan í
Póllandi. Hann er menntaður
básúnuleikari og kennir djass
við St. Sigfrids-lýðháskólann
í Svíþjóð.
Aður óþekkt
verk eftir Beet-
hoven frumflutt
ÁÐUR óþekkt verk eft-
ir Ludwig van Beet-
hoven var frumflutt í
Lundúnum í vikunni,
meira er 170 árum eftir
andlát tónskáldsins.
Verkið, sem er
strengjakvartett og tek-
ur 51 sekúndu í fiutn-
ingi, fannst á stöku
blaði í einkaskjalasafni í
Cornwall á Suður-
Englandi, þar sem talið
er að það hafi legið í
meira en öld. Beethoven
mun hafa skrifað verkið
árið 1817 fyrir enskan
gest sinn, Riehard Ford
að nafni.
Stephen Roe hjá uppboðshaldar-
anum Sotheby’s, sem fann handritið,
segir ekki útilokað að verkið hafi
verið leikið áður en ljóst sé að flutn-
ingurinn í vikunni sé sá fyrsti á opin-
berum vettvangi.
Handritið verður boðið upp hjá
Sotheby’s í desember
og er búist við að allt að
23 milljónir króna fáist
fyrir það. „Það er
hvergi getið um þetta
verk í ítarlegum bókum
sem skrifaðar hafa ver-
ið um tónskáldið. Nýtt
verk eftir Beethoven á
uppboði er án efa eins-
dæmi á okkar tímum,“
segir Roe.
Fiðluleikarinn Lucy
Howard, sem tók þátt í
frumflutningi kvar-
tettsins, hældi verkinu
og sagði það mikinn
feng fyrir Beethoven-
aðdáendur. Kvartettinn
er í b-moll, sem er óalgengt hjá
Beethoven.
Umrætt handrit var í eigu Mo-
lesworth St. Aubyn-fjölskyldunnar
en í sama skjalasafni fundust einnig
handrit og bréf Verdis, Abrahams
Lincolns og Charlotte Bronté.
Beethoven
Bald auglýsingagerðarmaður (Eggert Kaaber) og Rósa kyn-
lífspistlahöfundur (Katrín Þorkelsdóttir) hafa ólíkar skoðanir á
kynfræðslu unglinga.
Kynfræðsluleikrit í leikför
KYNFRÆÐSLULEIKRITIÐ Rósa
frænka eftir Valgeir Skagfjörð er
í leikför um Austfirði dagana
11.-13. október. Á morgun, mánu-
dag, kl. 14.30 verður leikritið sýnt
í grunnskóla Reyðarfjarðar; í
grunnskóla Vopnafjarðar kl. 14
þriðjudaginn 12. október; mið-
vikudaginn 13. október grunn-
skóla Seyðisfjarðar kl. 10 og í
grunnskóla Egilsstaða kl. 14 sama
dag.
Leikritið fjallar um Bald aug-
lýsingagerðarmann og Rósu kyn-
lífspistlahöfund en þau ákveða að
hittast á kaffihúsi og ræða saman
hvernig standa eigi að kynfræðslu
fyrir unglinga. Þau hafa ólíkar
skoðanir á hlutunum og skapast
við það fjörlegar umræður, þar
sem tími og rúm er engin fyrir-
staða.
Það er Eggert Kaaber sem leik-
ur Bald og Katrín Þorkelsdóttir
Rósu. Hljóðmynd vann Hjörtur
Howser, leikmynd og búninga
vann leikhópurinn, tæknimaður er
Jón Ingvi Reimarsson og leikstjóri
er Jón St. Kristjánsson.
Leikrit.ið var frumsýnt 29.
september sl. af Stoppleikhópn-
um og þetta er samstarfsverkefni
Landlæknisembættisins, Stopp-
leikhópsins og Þjóðkirkjunnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Magnús Kjartansson listmálari segist óttast aðþrenginguna
í lífi manna og list, ofliönnunina.
Krókaleiðir í
sýningarhaldi
Magnús Kjartansson listmálari heldur nú
--------------------5»----
sýningu í Galleríi Sævars Karls. I samtali
Jóhanns Hjálmarssonar við hann kemur
fram að hann óttast aðþrengingu í listum
og það að menn verði ofsmíðaðir.
MAGNÚS Kjartansson listmálari
heldur nú sýningu í Galleríi Sævai's
Karls. Stutt er síðan hann var með
sýningu á sama stað en annars hef-
ur ekki farið mikið fyrir sýningum
hjá honum á liðnum árum. Hann
sýnir nú eldri verk, eða frá árunum
1990-92, en á fyrmefndri sýningu
voru fimmn ára gömul verk.
Magnús var spurður að því hvort
verkin nú væru í svipuðum anda og
áður en neitaði því. Hann sagðist
fara krókaleiðir í sýningarhaldi, það
lýsti kannski best sýningum hans á
undanfömum áium.
„Þetta er einföld sýning," sagði
Magnús, „ég var beðinn um að sýna
þessar myndir sem bmnnu inni hjá
mér, vora aldrei sýndar. Það má
eiginlega segja að þau séu grannur-
inn að því sem síðar varð hjá mér.“
Yinsum hlutum raðað saman
„Þetta era einfaldar uppstillingar
með því sem næst mér er á vinnu-
stofunni ogjiemað er næstum því
ekki neitt. Eg raða saman ýmsum
hlutum. Aður var ég þekktur fyrh'
að hirða ýmis snifsi á förnum vegi
og vinna úr þeim. Verkin voru sam-
klippur, einkum unnar á áranum
1972-76. Kannski vora þau eins kon-
ar mótmæli gegn trönumálverkinu
og menn vora undrandi yfir því
hvemig ég vann þetta.
Það er í eðli mínu að setja saman
hluti, ég er með samtíning úr ýms-
um áttum, ekki við eina fjölina felld-
ur. Mér finnst þrengja að nútíma-
málurum. Eftir því sem þeim fjölg-
ar vex sú tilhneiging að gera sig
þekkjanlegan með einföldu athæfi,
með því að velja sér mjög fastan
ramma um vinnubrögð eða við-
fangsefni. Kannski er einhver nátt-
úra sem menn kannast við í mynd-
um mínum?“
Er það náttúran inni og í kring-
um þig?
„Eg minni í því sambandi á það
sem Jackson Pollock sagði: „Eg er
náttúran.“ Hann breytti málverkinu
í orustuvöll. Fram hjá honum verð-
ur ekki gengið. Það á vel við mig að
vinna frjálslega.
Verkin á hinni sýningunni voru
þungunnin og gott er að skoða það
sem maður hefur áður gert og setja
það í samhengi. Eg er sáttur við
þessa sýningu. Þema verkanna er
smátt og skapar þess vegna mynd-
gerðinni sjálfri meira íými. þetta ei-
lífa verkefni að glíma við að setja
saman er mín leið.
Eg óttast eins og ég sagði að-
þrengingu myndlistarinnar. Það var
meiri breidd hjá eldri málunmum,
t.d. Þorvaldi Skúlasyni. Það er ekki
gott að menn verði ofhannaðir og
ofsmíðaðir, of meðvitaðir, það gerist
að menn geti reiknað allt út, skil-
greint og flokkað, til dæmis
módemismann."
Sýning Magnúsar Kjartanssonar
í Galleríi Sævars Karls stendur til
14. október.
Fiðluhljómar
í Hömrum
STARFSÁR Tónlistarfélags ísa-
fjarðar hefst með fiðlu- og píanó-
tónleikum í Hömram, tónlistarhúsi
Isafjarðar, í dag, sunnudag, kl.
20:30. Sigurbjörn Bernharðsson
fiðluleikari og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari flytja
verk eftir Leos Janacek, Antonin
Dvorák, Arnold Schönberg og Lu-
dwig van Beethoven.
Sigurbjörn Bernharðsson lauk
einleikaraprófi árið 1991 frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík, og
stundaði framhaldsnám í Banda-
ríkjunum. Hann hefur víða komið
fram á tónleikum, einn og með öðr-
um. Hann var nýlega ráðinn pró-
fessor við Oberlin-Tónlistarháskól-
ann í Bandaríkjunum.
Metnaðarfull dagskrá
Anna Guðný Guðmundsdóttir
hefur m.a. komið fram sem einleik-
ari með Sinfóníuhljómsveit Islands
og Kammersveit Reykjavíkur og
einnig leikið inn á fjölda hljóm-
diska og á fjölmörgum tónleikum
innanlands sem utan.
Á dagskrá Tónlistarfélagsins í
vetur koma m.a. fram Jónas Ingi-
mundarson píanóleikari, Ólafur
Reynir Guðmundsson og Hólmfríð-
ur Sigurðardóttir, Sönghópurinn
sólarmegin, Finnur Bjarnason og
Sigurbjörn Bernharðsson og Anna Guðný Guðmundsdóttir koma fram
á fyrstu áskriftartónleikum Tónlistarfélags Isafjarðar.
Örn Magnússon, sellóleikarinn Er-
ling Blöndal Bengtsson og Kristinn
Sigmundsson óperusöngvari.
Áskriftarkort Tónlistarfélags
ísafjarðar gilda á tónleikana. Fólk
getur skráð sig fyrir þeim við inn-
ganginn, en einnig er hægt að
kaupa staka miða.