Morgunblaðið - 10.10.1999, Side 20

Morgunblaðið - 10.10.1999, Side 20
20 SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Fjallað um Sunnivu í háskóla- fyrirlestri DR. RUDOLF Simek, pró- fessor í norrænum fræðum við háskólann í Bonn, flytur opinberan fyrirlestur í boði heimspekideildar Háskóla Is- lands fimmtudaginn 14. októ- ber kl. 17.15 í stofu 201, Árna- garði. Fyrirlesturinn nefnist Sunniva: The legend about the oldest Scandinavian saint. Bein Sunnivu fundust á dög- um Ólafs Tryggvasonar Nor- egskonungs. I fyrirlestrinum verður fjallað um skyldleika sagnarinnar um Sunnivu við sögu heilagrar Ursulu. Rudolf Simek lagði stund á þýsku, heimspeki og kaþólska guðfræði við háskólann í Vín. Hann hefur kennt við háskól- ana í Edinborg og Vín, en síð- an 1995 hefur hann verið pró- fessor í norrænum fræðum við háskólann í Bonn. Hann hefur ritað bækur og greinar um íslenskar miðaldabók- menntir, goðafræði og vís- indasögu miðalda. Meðal verka hans má nefna Hugtök og heiti í norrænni goðafræði sem kom út 1993 í þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur. Dr. Simek er gistikennari í íslenskuskor heimspekideild- ar 12.-21. október og er kennsla hans liður í Sókrates- samstarfsnetinu Heathen and Christian religion in early Germanic literature and its Latin Counterparts. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og er öllum opinn. Verk Gunn- ars Arnar á Netinu GUNNAR Örn listmálari er listamaður mánaðarins á The Ai’tNetGallery, en það sýnir alþjóðlega nútímalist. Á næst- unni eru væntanlegar sýning- ar með verkum 28 lista- manna. Slóðin er http:/Avww.art- netgallery.com. Morgunblaðið/Kristinn Nýja altaristaflan eftir Kristínu Gunnlaugsdóttur. Altaristafla vígð í Stykkishólmi NÝ altaristafla verður vígð í Stykkishólmskirkju í dag. Taflan er eftir Kristínu Gunnlaugsdótt- ur listmálara. Hún sagðist ekki hafa málað altaristöflur áður en aftur á móti íkona í mörg ár. Munurinn væri að í íkonamynd- um legði maður eigin persónu í verkið, væri að fást við sjálfan sig, en í altaristöflu væri glímt við heildina og úr þyrfti að verða samkomulag milli listamannsins og safnaðarins, kirkjunnar. Er þá um eins konar málamiðl- un að ræða? Kristín var ekki hrifin af orð- inu heldur vildi orða það þannig að maður þyrfti að taka tillit til safnaðarins en brytist engu að síður út yfír sjálfan sig þótt söfnuðurinn ætti aðgang að Iistamanninum. Taflan væri ein- föld og niðurstaðan líka. Hún væri af Maríu með Jesúbarnið sem hún réttir fram, færir söfn- uðinum. „Hún er mjög einföld, en margt liggur undir niðri,“ sagði Kristín. „Málamiðlunin felst í því að hafa myndina einfalda en margbrotna í sér. í lúthersku er fólk oft hrætt við Maríu en það er nauðsynlegt að hleypa móður- myndinni inn í lútherska kirkju. Kaþólskir hafa ekki einkarétt á Maríu.“ Kristín sagði að fólk teldi íkon- ana kaþólska en það væri hættu- legt þegar fólk væri hætt að hugsa. Yfir myndinni væri þögn og kyrrð eins og hún hefði stefnt að. María byði sig fram. Miimimáttar, meiriháttar MYM)LIST Gallerf@hleininur.is, Þverliolti 5 BLÖNDUÐ TÆKNI ERLING Þ.V. KLINGENBERG Til 24. október. Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18. FRANSKA 19. aldar skáldið Charles Baudelaire er gjarnan kallaður fyrsti borgaralegi lista- maðurinn vegna þess hve næmur hann var fyrir breyttum aðstæð- um listamannsins í borgarsamfé- lagi nútímans. Fallið úr stöðu hirðskálds eða hirðmálara var hátt. Baudelaire gerði sér afar góða grein fyrir umkomuleysi hins embættislausa listamanns, hversu vesæll og varnarlaus hann gat verið, og berskjaldaður eftir að hið gamla konunglega og kirkju- lega bakland var horfið. Eins gat hann sér til um óhjákvæmilega samkeppni listamannsins við aðra framleiðendur þegar fram liðu stundir. Sem fyrsti gluggakúnni sögunnar hreifst hann mjög af varningi þeim sem stillt var út í búðarglugga í glæsilegum versl- unum og verslunarkjörnum París- arborgar. Hann skildi samstundis að listaverkið gat hæglega beðið ósigur í baráttunni við svo töfr- andi og vel gerða söluvöru. Hálfri annarri öld eftir að Baudelah-e komst að sinni merki- legu niðurstöðu er listamaðurinn ennþá óráðin afgangsstærð í sam- félaginu. Erfiðleikarnir eru nær hinir sömu og þeir voru á öldinni sem leið. Hinn misskildi, menning- arlegi borgarskæruliði, sem lista- maðurinn er í raun og sannleika, fær trauðla uppreisn æru fyrr en eftir dauðann, og þá vitanlega er orðið of seint að bjóða hann vel- kominn í samfélag mannanna. Að vísu hefur átt sér stað bylt- ing erlendis sem rekja má aftur til loka heimsstyrjaldarinnar síðari. Ernst Gombrich, sá ágæti list- frömuður, bendir á hvílíkum stakkaskiptum listmat almennings tók eftir að mönnum varð ljós skaðinn af menningarlegri for- herðingarformyrkvan í Þýskalandi og Sovétríkjunum á fjórða og fimmta áratugnum. En hvar skyldum við mörlandarnir standa í þessum efnum? Erling Klingenberg hefur aldrei Listrottan býður fram þjón- ustu sína á sýningu Erlings Þ.V. Klingenberg í Gall- erí@hlemmur. vandað okkur kveðjurnar. Allt frá því hann fór að starfa sem lista- maður hefur hugur hans snúist um þann spéspegil sem staða lista- mannsins er í samfélagi nútímans. Sjálfsmat hans kristallast í þeim vel til fundna orðaleik „minnimátt- ar - meiriháttar", sem Erling gerir að eins konar kjörorðum sýningar sinnar. Velgengni listamannsins er að mati hans fólgin í smjaðri og þjónkun. Uppstoppuð rotta sem býður fram ódýra þjónustu sína í þeim efnum er þungamiðja skipan- innar í GalleríEhlemmur. Um leið angar loftið af brenni- vínslykt - meðali hins marghrjáða listamanns - og hálfreyktir vind- lingastubbar liggja í klofhæð á þar til gerðri hillu. Með nöturlegri fá- tækt í uppsetningu sendir Erlingur okkur skilaboð úr leiksmiðju listar- innar. Þar eru allir fangaðir í rang- hugmyndum um raunverulega stöðu mála; listamaðurinn; áhorf- andinn; gagnrýnandinn og kaup- andinn. Væntingarnar sem liggja í loftinu á opnunardaginn eru jafn- raunhæfar og víman og vindlinga- reykurinn. Á meðan ekki fara fram önnur samskipti milli listamanns- ins og samferðamanna hans er samkeppnisstaða hans næsta von- laus á markaðstorgi vöruviðskipt- anna. Halldór Björn Runólfsson Tónaljóð tilfínn- inganna TÓHfLIST S a 1 u r i n n KAMMERTÓNLEIKAR Izumi Tatcno píanóleikari, Auður Hafsteins- dóttir fiðluleikari og Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari fluttu verk eftir Astor Piazzoila og Ernesto Nazareth. Miðvikudagskvöld kl. 20.30. VERK eftir argentínska tónskáldið Astor Piazzolla eru sjaldheyrð á tónleikum hér- lendis, þrátt fyrir gríðarlegar vinsældir tón- skáldsins um þessar mundir. Nýtt tangótríó, skipað japanska píanóleikaranum Izumi Ta- teno, Auði Hafsteinsdóttur fíðluleikara og Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara hef- ur litið dagsins ljós. Það hefur ekki farið hátt um tríóið hér á landi - en í Japan hafa tónlistarmennirnir verið að gera garðinn frægan á tónleikaferð og með nýútkomnum geisladiski, sem hefur fengið góðar viðtökur þar í landi. Tríóið lék saman verk eftir Astor Piazzolla, og Le Grand Tango fyrir selló og píanó, en einnig lék Tateno píanóverk eftir Ernesto Nazareth. Piazzolla var kunnur tangóspilari í heima- borg sinni Buenos Aires; - lék með frægri hljómsveit Anibals Troilos. Piazzolla vildi vera öðru vísi en aðrir tangósmiðir, en Troilo kunni ekki að meta verk hans - þótti útsetningarnar of flóknar og viðamiklar til að geta fallið í kramið. Um tíma hætti Pi- azzolla alveg í tangónum, og sneri sér að sí- gildri tónlist og tónsmíðanámi; m.a. hjá Nadiu Boulanger í París. Heim kominn sneri hann sér þó aftur að tangónum og stofnaði hann sinn eigin kvintett. Unnendur hins sígilda argentínska tangós úthrópuðu Piazzolla fyrir byltingarkenndar hugmyndir hans um það hvað tangó var. Piazzolla þótti fara út yfir öll leyfileg mörk. Hann leyfði laglínu tangósins að flæða þangað sem hún vildi, bætti inn nýjum hljómum og krómatík, og lék sér að því að sveigja hrynjandi tangósins frá því sem danshæft þótti. Hann skapaði nýjan tangóstíl - tango nuevo - sem á endanum var tekinn í sátt og nýtur í dag gríðarlegra vinsælda víða um heim. Vin- sældir Piazzollas voru svo innsiglaðar þegar Grace Jones söng lag hans Libertango og gerði óhemju vinsælt um 1980. Uppistaða fyrri hluta efnisskrárinnar á tónleikunum á miðvikudagskvöldið var Árs- tíðasvíta Piazzollas; Vor, Vetur, Sumar og Haust, samin eða útsett fyrir fíðlu, selló og píanó. Tónlist Piazzollas ber í sér allt litróf tilfinninganna, nema kannski helst þær sem líkjast deyfð eða dáðleysi. Hér er allt með afgerandi hætti; ástríðan er mikil, hryssing- urinn er mikill, yndið er mikið og treginn er mikill. Flutningur tríósins var frábær, og túlkunin rík af tilfinningu og músíkalskri gleði. Hvert þeirra um sig fékk að njóta sín í einleiksstrófum hér og þar, einkum fíðlan og sellóið, og voru þær Auður og Bryndís Halla gjörsamlega í ham. Sumarþátturinn var sér- staklega fallegur og leikur Auðar hlýr og heitur. Tregafullt stef sellósins í Haustþætt- inum - lítil þríund í hálftónaskrefum - var þrungið tilfinningu og virkilega fallega spil- að. Það var helst að píanóleikarinn hefði mátt vera jafn hamslaus og frjáls í leiknum og konurnar. Hann var eiginlega of fágaður og elegant, þar sem mest lét í tónlistinni, og náði ekki alltaf að vekja upp ögrunina sem í tónlistinni býr. Le Grand Tango fyrir selló og píanó var yndislega fallega spilaður. I þessum tangó má vel heyra áhrif frá ýmiss konar tónlist annarri - blús og dægurtónlist til að mynda, en einnig frá Bartók og Stravinskí. Ekkert var fjallað um brasilíska tónskáld- ið Emesto Nazareth í efnisskrá tónleikanna, þótt hann verðskuldi ekki síður athygli en Piazzolla. Nazareth, sem uppi var 1863-1934, var á sinn hátt líka frumkvöðull, með því að skapa nýjan stíl píanótónlistar, þar sem dægurlagið og klassíkin renna saman í eitt. Tónlist Chopins hafði mikil áhrif á Nazareth, og hann stílfærði danstónlist rétt eins og Chopin, nema hvað hans dansar voru flestir suður-amerískir að uppruna. En vinsældir og áhrif tónlistar Nazareths voru gríðarleg, og þau má heyra í tónlist tónskálda á borð við Scott Joplin og Ernesto Lecuona. Verk Nazareths sem Izumi Tateno lék voru Confidencias, Ep~nina, Carioca og Odeon tangó, sem er eitt af kunnustu lögum tónskáldsins. Píanóleikur Tatenos var fín- legur og hófstilltur, en hér í þessum þokka- fullu smáverkum átti fágaður leikur hans miklu betur við en í tónlist Piazzollas. Þetta var fallega spilað; allt músíkalskt mótað; fal- leg lína í hendingum og blæbrigði margvís- leg og listrænt útfærð. Síðustu þrjú lögin voru eftir Piazzolla, Revolucionario, Oblivion og Libertango. Það fyrsta þessara þriggja er frábær tónsmíð, full af krassandi andstæðum, dramatík og ólgandi tilfinningum. Tríóið lék fantavel og var í miklu spilastuði. Oblivion er lýrískt verk og rólegt - yndislega fallegt og var frá- bærlega leikið. Libertangóinn rak lestina og var eins og annað á þessum ágætu tónleik- um, spilaður af innileik og tilfinningu. Bergþóra Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.