Morgunblaðið - 10.10.1999, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
ALÞJOÐLEGI GEÐHEILBRIGÐISDAGURINN
SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999 35''
I
1
Fountain House-klúbbar eru reknir í 23 löndum, þar á meðal á fslandi
Einblínt á heil-
brigði frekar
en sjúkleika
Alþjóðlegu samtökin Fountain House aðstoða fólk
sem á við geðræn vandamál að stríða að fóta sig á
vinnumarkaðnum. Birna Anna Björnsdóttir ræddi
við Kristiinu Nikkola, geðlækni frá Finnlandi,
sem rekur Fountain House-klúbb þar í landi.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Kristiina Nikkola er geðlæknir frá Finnlandi og sér um rekstur Fountain House-klúbbs í
bænum Kotka í suðurhluta Finnlands.
SAMTÖKIN Fountain House voru stofnuð ár-
ið 1947 í New York og er markmið þeirra að
aðstoða fólk sem á við geðræn vandamál að
stríða, meðal annars við að fóta sig á vinnu-
markaðnum. Starfsemin var smá í sniðum
fyrst í stað og byrjaði með rekstri eins húss í
New York. Nú vinna um 220 starfsmenn í því
húsi og eru félagar þess mörg þúsund talsins.
Auk þess er búið að koma upp fleiri slíkum
húsum, eða svokölluðum klúbbum, í borginni
og einnig í flestum öðrum stórborgum Banda-
ríkjanna. Fountain House hefur líka haslað sér
völl í Evrópu og eru klúbbar í fjölmörgum
Evrópulöndum, þar á meðal á öllum Norður-
löndunum að Islandi meðtöldu, en alls starfa
um 320 klúbbar í 23 löndum eftir hugmynda-
fræði Fountain House.
Islenski klúbburinn heitir Geysir og hófst
undirbúningur að stofnun hans fyrir um tveim-
ur árum. Fyrsta september var opnuð bráða-
birgðaaðstaða í Hátúni 10 þar sem opið er dag-
lega frá 10 til 16.1 október fær Geysir svo að-
stöðu í húsi sem Reykjavíkurborg hefur fest
kaup á í Hafnarstræti 16.
Allir klúbbamir eru hluti af alþjxóðlegum
samtökum Fountain House og lúta alþjóðavið-
miðunaireglum. Þegar nýir klúbbar hefja starf-
semi koma fulltrúar frá Fountain House og meta
hvort klúbburinn standist kröfur samtakanna.
Meðlimir sýna frumkvæði
Kristiina Nikkola er geðlæknir frá Finnlandi
og er formaður stjórnar sem sér um rekstur
Fountain House-heimilis í bænum Kotka í suð-
urhluta Finnlands.
„Það sem mér finnst áhugaverðast og sér-
stakast við kerfi Fountain House er að þar er
einblínt á heilbrigði frekar en sjúkleika. Ein-
staklingarnir eru skoðaðir með tilliti til þeirrar
manneskju sem þeir eru og þess heilbrigðis
sem þeir búa yfir í stað þess að áherslan sé
lögð á sjúkdóminn sem þeir bera.“
Kristiina segir að reynt sé að virkja meðlim-
ina til að sýna frumkvæði. Það séu þeir sem
sjái um að byggja upp húsin og klúbbana og
að starfsfólkið sé í raun meira til aðstoðar. I
Kotka hafi meðlimir klúbbsins gert upp gam-
alt hús fyrir starfsemina og stóðu þau fyrir
fjáröflun til verksins, sáu um að safna hús-
gögnum og húsmunum og tóku ákvarðanir um
hvernig húsið ætti að líta út bæði að innan
sem utan. Fyrir vikið segir hún að meðlimirnir
beri mjög sterkar taugar til hússins og líti á
það sem sitt eigið hús.
Húsið er opið hvenær sem meðlimirnir hafa
þar eitthvað að gera. Tveir starfsmenn eru
við alla virka daga en meðlimir geta samt
komið um helgar ef þeir vilja og er einn með-
limur þá ábyrgur fyrir því að opna og loka
húsinu.
„Eina vikuna voru báðir starfsmennirnir
meira að segja fjarverandi og sáu meðlimirnir
um húsið alfarið upp á eigin spýtur og gekk
það mjög vel. Meðlimirnir sýna mikla ábyrgð-
artilfinningu gagnvart húsinu því þetta er
þeirra eigið hús.“
Að komast út í atvinnulífíð
er gífurlega mikils virði
Þegar húsin eru tilbúin og öll sú vinna sem
tengist því að koma þeim í gang er að baki, er
lögð áhersla á að finna vinnu handa meðlimun-
um úti á vinnumarkaðnum. Kristiina segir að
það að komast út í atvinnulífið sé að sjálfsögðu
gífurlega mikils virði íyrir fólk sem hafi
kannski þurft að gera hlé á vinnu til lengri eða
skemmri tíma. Gerður er samningur við at-
vinnurekendur þar sem samtökin ábyrgjast
fulla mætingu til vinnu og ef starfskraftur get-
ur ekki mætt finna samtökin honum stað-
gengil.
Einnig fer mikið starf fram innan húsanna.
Þar eru unnin verkefni sem klúbbunum hafa
verið falin og þar læra meðlimir líka hverjir af
öðrum. Hjá þeim í Kotka er einn meðlimurinn
til dæmis mjög góður kokkur og sér hann um
að elda matinn og kennir öðrum meðlimum hitt
og þetta í matargerð í leiðinni. Annar kann vel
á tölvur og læra hinir meðlimirnir undirstöðu-
atriði í tölvuvinnu af honum.
Kristiina segir að starf í klúbbum af þessu
tagi geri fólki mjög gott því það sé svo
hvetjandi. Fólk verði sjálfstæðara og fái
ábyrgðartilfinningu með því að taka þátt í
mótun og starfi klúbbanna og einnig við það
að fara út á vinnumarkaðinn. Hún segir
skemmtilega þróun eiga sér stað þegar
klúbbarnir vaxa úr grasi og að í elstu klúbb-
unum séu margir af starfsmönnunum sjálfir
fyrrverandi meðlimir. Af margra ára starfi
sínu sem meðlimir hafi þeir lært hvað sé
þýðingamikið í starfi klúbbanna og hvers
konar stuðning og aðstoð meðlimirnir þurfa
og því séu þeir oftast fyrirmyndarstarfs-
menn.
„Það er mjög stórt atriði í hugmyndafræði
Fountain House að ekki sé lögð áhersla á sjúk-
leika. Það er ekki litið á meðlimi sem sjúklinga
og mikilvægt er að litið sé á alla sem jafningja.
Þegar haldnar eru alþjóðlegar ráðstefnur þar
sem starfsmenn og meðlimir Fountain House
koma saman er ekki gerður greinarmunur á
starfsmönnum og meðlimum heldur ræða þar
allir saman á jafnréttisgrundvelli. Reynt er að
einblína á manneskjurnar sem eiga í hlut, en
ekki stöðu þeirra.“
an í nokkur atriði helstu tillögur er
varða geðheilbrigði aldraðra.
• Sett verði á laggirnar öldrunar-
geðdeild með 25 rúmum annað-
hvort við geðdeild Landspítala
eða geðsvið Sjúkrahúss Reykja-
víkur.
• Stofnaður verði dagspítali fyrir
aldraða með geðkvilla aðra en
heilabilun á sama stað og öldr-
unargeðdeildin verður starf-
rækt.
• Heilsugæsluþjónusta við aldraða
geðsjúka verði efld, t.d. með
ráðningu geðhjúkrunarfræðinga
á heilsugæslustöðvar.
• Menntun heilbrigðisstétta í öldr-
unargeðlækningum og geðhjúkr-
un verði efld, sem og menntun
félagsráðgjafa og sálfræðinga.
• Stuðlað verði að skilvirkara sam-
starfi öldrunarsviða og geðsviða
sjúkrahúsanna, svo og hjúkrun-
arheimila og geðsviðanna.
• Hafist verði handa við mælingar
á þjónustuþörf aldraðra einstak-
linga með geðkvilla.
• Stofnaður verði samstarfshópur
á vegum heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytis um geðheil-
brigðismál aldraðra, sem saman-
standi af aðilum frá geðheil-
brigðisþjónustunni, öldrunar-
þjónustunni og heilbrigðisráðu-
neytinu.
Allir hljóta að vera sammála um
að hinir öldruðu njóti bestu heil-
brigðisþjónustu sem völ er á. Hægt
er að bæta þjónustuna og mikil-
vægt er að stuðla að og tryggja
geðheilbrigði þessa hóps. Notum
alþjóðlega geðheilbrigðisdaginn 10.
október til að hvetja stjórnvöld til
að koma áðurnefndum stefnumál-
um í framkvæmd.
Höfundur er yfirlæknir á geðdeild
Lnndspítala og formaður Geðvernd-
arfélags íslands.
10. október 1999
ÞAÐ er engin heilsa
án geðheilsu. Þetta eru
slagorð alþjóða heil-
brigðismálastofnunar-
innar (WHO) í geð-
heilsuátaki stofnunar-
innar. í dag er alþjóð-
legur geðheilbrigðis-
dagur og því rétt að
undirstrika merkingu
og sannleiksgildi þess-
ara orða. Sýna fram á
hve vel þau eiga við, í
dag sem alla daga.
Geðheilbrigðisdagur-
inn var fyrst haldinn
hátíðlegur á Islandi ár-
ið 1996. Uppákomur
dagsins hafa á þessum
þremur árum að mestu
leyti verið skipulagðar af Geðhjálp
og aðalinntak þeirra verið hags-
munabarátta geðsjúkra. En geð-
heilbrigði er ekkert einkamál þeirra
er glíma við geðsjúkdóma. Geð-
heilsa snertir alla.
Geðheilsa er flókið fyrirbæri sem
fjölmargir þættir hafa áhrif á; fé-
lagslegir, líffræðilegir, sálfræðilegir
og umhverfisþættir. Því er sýn Al-
þjóða heilbrigðisstofnunarinnar
tímanna tákn. Atak þeirra beinist
að áhrifum geðraskana í samfélag-
inu. Beinist að öllum í samfélaginu,
ekki bara geðsjúkum. Hvernig geð-
raskanir hafi áhrif á allt samfélagið.
Hvernig minnka megi notkun geð-
lyfja og stuðla að aukinni umræðu
og fræðslu um geðheilbrigðismál.
Hér á landi hefur umræða dags-
ins takmarkast við okkur, okkur hin
sem eigum og höfum átt við alvar-
legar geðraskanh að stríða. Geð-
klofa, geðhvörf og þunglyndi. Lang-
vinna geðsjúkdóma. Umræða dags-
ins hefur verið jákvæð en umfjöll-
unin og fallegu fyrir-
heitin um átak í geð-
heilbrigðismálum hafa
að mínu viti ekki náð
mikið lengra en út fyrir
daginn, 10. október.
Þessu þarf að breyta.
Það er nauðsynlegt að
ráðamenn þjóðarinnar
og þjóðin átti sig á því
að með eflingu geðheil-
brigðisvitundar getum
við bætt samfélagið.
Geðheilbrigðið er þeim
sem ekki hafa veikst á
geði jafti mikilvægt og
okkur hinum sem höf-
um veikst. En e.t.v. er
munurinn sá að sá sem
ekki hefur tapað geð-
heilsu gerir sér ekki jafngóða grein
fyrir mikilvægi hennar og hinir sem
vita hversu ómetanlegt það er að fá
að búa við hugarró. Hugarró er
undirstaða alls árangurs og því er
stillt geð vænlegt til framfara. Hug-
arró er samfélaginu til heilla. Því
má ætla að heilbrigt geð sé undir-
staða samfélagsframfara.
En hvað er heilbrigt geð? Til þess
að þekkja jafnvægið er nauðsynlegt
að kynna sér öfgarnar og öfgamar
liggja í geðsjúkdómum. Því er það
mín tillaga að heilbrigðisyfirvöld
sinni því forvarnarstarfi er felst í
umhyggju geðheilbrigðis meðal allr-
ar þjóðarinnar, ekki bara geðsjúkra
og ekki bara á þessum degi heldur
alltaf. Sinni því með því t.d. að
hrinda af stað forvarnar- og upplýs-
ingaverkefni um geðheilbrigði með-
al landsmanna. Stuðli að þjóðar-
átaki. Standi að umræðum um mik-
ilvægi geðheilbrigðis o.s.frv. Bak
við fræðslu- og auglýsingaherferðir
þyrftu ekki einungis að standa full-
Geðheilbrigði
Sinna verður geðheils-
unni jafn vel og líkam-
legri heilsu, segir
Héðinn Unnsteinsson.
Hætta að grafa holur
og fela viðkvæm
málefni geðsins.
trúar geðheilbrigðiskerfisins og fag-
fólk í geiranum heldur einnig full-
trúar jaðarhópa mannlegs litrófs,
geðsjúkir og samtök þeirra. Full-
trúar jaðarhópanna er nauðsynlegir
til að miðla öfgunum svo fólk geti
áttað sig á því hvað það er að vera
heill á geði. Attað sig á öllum þeim
hlutum sem herja á geðið en flokk-
ast ekki beint undir sjúkdóm. Ýmis
atriði sem hafa með geðheilbrigði að
gera og snerta hinn almenna borg-
ara sem ræða má meira, s.s. sjálfs-
víg, taugaáfóll, átraskanir, stress og
depurð. Nú er lag fyrir ráðherra
heilbrigðismála að standa undir
nafni og stuðla að framforum í
mannvemd og um leið að heilbrigð-
ara samfélagi.
Það er engin heilsa án geðheilsu.
Við getum gert svo miklu betur.
Sinna verður geðheilsunni jafnvel
og líkamlegri heilsu. Hætta að grafa
holur og fela viðkvæm málefni geðs-
ins. I þessum málefnum eiga starfs-
menn heilbrigðisgeirans að vera í
forsvari og upplýsa og kveða niður
fordóma. Hjálpa okkur að kasta
skikkjum smáborgaralegrar hræsni
og fordóma sem gerir okkur að ein-
Héðinn
Unnsteinsson
hverju öðru en við í raun og vem er-
um. Það er slæmt að vera málsvari
opinnar nálgunar geðsjúkdóma og
tala frá eigin reynslu þegar einstak-
lingar úr heilbrigðisgeiranum eru
þeir einu sem letja mann til verks-
ins. Hvetja mann aftur á móti til að
pakka reynslunni niður í mal og
minnast aldrei nokkur tímann á
hana þegar stofnað er til nýrra
kynna. Reiðin gerir vart við sig en
óneitanlega sannfæra svona orð
mann um það að enn sé margt
óunnið.
Margt óunnið í að opna umræð-
una, samfélaginu til heilla. Það ná
sennilega aldrei allir að kasta
skikkjum sínum og sumir kunna að
gera það aðeins er þeim hentar en
við hin er stöndum óhulin í þessum
málaflokki eigum þá ósk að geðheil-
brigði verði ekki einungis klisja sem
upphafin er á þessum degi heldur
eign almennings sem haldið er uppi
hvern einasta dag. Það er því von
mín að sem flestir landsmenn sjái
sér fært að halda geðheilbrigðisdag-
inn hátíðlegan í dag.
Til hamingju með daginn, ís-
lenska þjóð.
Höfundur er kennaranemi.
BIODROGA
snyrtivörur
*Q-10*
húðkremið
Bankastræti 3, sími 551 3635.
Póstkröfusendum