Morgunblaðið - 10.10.1999, Side 38

Morgunblaðið - 10.10.1999, Side 38
38 SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, HALLDÓRA INGIMUNDARDÓTTIR, Háahvammi 2, Hafnarfirði, lést fimmtudaginn 7. október. Ingimundur Pálsson, Erna Pálsdóttir og fjölskyldur. t Faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir, HÖRÐUR GUÐBRANDSSON, Ravnafjellveien 7, Egersund, Noregi, lést í Stavanger, Noregi, miðvikudaginn 29. september sl. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapéllu þriðjudaginn 12. október kl. 13.30. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Blindrabókasafn íslands. Guðmundur Örn Harðarson, Þóra Jenný Hjálmarsdóttir, Ingvi Þór Guðmundsson, Therese S. Harðarson, Atle Örn Harðarson, Sverrir Guðbrandsson. t Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur og bróðir, SIGURÐUR TORFI SIGURÐSSON, Flétturima 1, Reykjavík, sem lést föstudaginn 1. október, verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 12. októþer kl. 13.30. Anna Árnadóttir, Guðbjörg Torfadóttir, Eva Björg Torfadóttir, Jón Þór Guðjónsson, Theodóra Torfadóttir, Thelma Torfadóttir, Guðbjörg Fanndal Torfadóttir og systkini. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BÖÐVAR HERMANNSSON, Þórsbergi 18, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 12. október kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á minningarsjóð Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Jóhanna Margrét Sveinsdóttir, Magnús Jón Áskelsson, Brynja Haraldsdóttir, Herdís Hanna Böðvarsdóttir, Sigurður Sigurðarson, Ragnar Böðvarsson og barnabörn. t Ástkær dóttir mín, systir okkar og mágkona, SJÖFN SKÚLADÓTTIR, Klapparstíg 8, Keflavík, sem lést á Landspítalanum þriðjudaginn 5. október, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 15. október kl. 15.00. Unnur Pétursdóttir, Kristín H. Skúladóttir, Per Nielsen, Ásta M. Skúladóttir, Frank Jepsen, Ingvar U. Skúlason, Oddný Ólafsdóttir, Magnús Skúlason, Jóhanna S. Vilhjálmsdóttir. SIGRUN JENSDÓTTIR + Sigrún Jensddtt- ir fæddist á Veisu í Fnjóskadal 7. febrúar 1915. Hún lést á Dvalarheimil- inu Hlíð 4. oktdber síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Signý Jdnasddttir og Jens Oli Kristjánsson Buch. Hún dlst þar upp til átta ára ald- urs, þá fluttist ijöl- skyldan að Stærra- Ársskdgi á Árs- skdgsströnd. Systk- ini hennar: Helga Sölveig, f. 1916 og Krislján, f. 1930, d. 1977. Sigrún var tyígift, fyrri maður hennar var Ólafúr Eiríksson. Þau skildu. Böm þeirra: Jens, f. 1936, d. 1998 og Kristjana, f. 1937, d. 1975. Seinni maður hennar er Dam'el Rdsant Sigvaldason, f. 7. febrúar 1903, d. 1965 frá Neðri-Rauðalæk á Þela- mörk. Þau bjuggu srn fyrstu bú- skaparár á Hallfreðarstöðum í Blómastofa Friðfinns Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, símí 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. Hörgárdal, en fluttu að Ási á Þelamörk 1943. Þar bjuggu þau til ársins 1964, að þau flytjast til Akureyrar. Böm þeirra era; 1) Rdsa Septína, f. 1941, bú- sett á Akureyri. 2) Reynir, f. 1942, bú- settur á Akureyri. 3) Fjdla, f. 1944, búsett á Akureyri. 4) Signý Björk, f. 1945, búsett á Isafirði. 5) Benna Stefanía, f. 1947, bú- sett á Eskifirði. 6) Helga Valgerður, f. 1948, búsett á Akureyri. 7) Anna Árdfs, f. 1951, búsett á Akureyri. 8) Ami Ragnar, f. 1953, búsettur í Reykjavík. Afkomendur Sigrún- ar eru í dag 105 talsins. Utför Sigrúnar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 11. oktdber og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður i Bægisárkirkjugarði. Það er sunnudagskvöld, ég er eitthvað óvenjulítið syfjuð, hátta samt og fæ mér bók að líta í, er í þann mund að sofna. Síminn hring- ir og ég heyri rödd Helgu systur minnar sem segir mér að mamma okkar sé dáin. Eg hrekk við, þó að við værum nokkuð lengi búin að eiga von á þessu þá er það samt erfitt að eiga ekki oftar eftir að sitja við rúmið hennar og halda í höndina sem var orðin svo ósköp lítil. En í huga mínum er mikið þakklæti fyrir að hafa átt hana að öll þessi ár, þó sérstaklega árin okkar níu sem við bjuggum á Naustum 4. Ég man hvað ég hlakk- aði til að flytja þangað, fyrst og fremst vegna þess að mamma var rétt hjá mér á Naustum 3. Ég leyfi mér að efast um að nokkur dagur hafi liðið þau ár að ekld færi ein- hver úr fjölskyldunni til hennar og mörg voru spor barna minna yfir túnið. Margan kaffibollann var ég búin að drekka í eldhúsinu þar með henni, Svenna og Inga. Fyrsta vet- urinn okkar á Naustum urðum við fyrir þeirri þungu sorg að missa elsta bamið okkar, Daníel Jón, af slysförum. Þá sem endranær reyndist mamma okkur svo ein- staklega vel, og mörg tárin var ég búin að fella við hennar barm þennan vetur og þótt ég síðar flytti með fjölskylduna fram í Öxnadal var sjaldan farið til Akureyrar án þess að þiggja góðgerðir hjá henni áður en haldið var heim. Henni fannst gaman að fylgjast með bú- skapnum sem hún hafði alla tíð mikla unun af að tala um og áhug- inn leyndi sér ekki. Fyrsta búskaparár okkar hjón- anna kom mamma flest haust til að hjálpa til við sláturgerð, sem ég kunni frekar lítið til, til að byrja með. Þannig var hún, ætíð tilbúin að rétta fram hjálparhönd væri þess nokkur kostur. Hún vildi fylgjast vel með stóra hópnum sín- um og gladdist ætíð er nýr ættingi leit dagsins ljós. Rúnar minn, sem mamma hafði svo miklar mætur á og bar svo mjög fyrir brjósti, þakkar ömmu sinni fyrir allt það sem hún hefur fyrir hann gert í gegnum árin. Það eru ekki margir dagar síðan hún spurði mig hvort ég þyrfti ekki að drífa mig heim til að láta hann hafa eitthvað að borða. Að endingu vil ég þakka starfsstúlkunum í Hlíð þá miklu og góðu aðhlynningu sem hún naut þar síðustu mánuðina. Eg kveð, ó, mamma mín, j)ín minning er kær. Eg man svo vel verkin þín, þín mynd er svo skær. Þú blessun ætíð breiddir á bamahópinn þbm, þú trega og tárum eyddir, þín tryggð var sérhvert sinn. (Fjóla Rósantsdóttir) Hafðu hjartans þökk fyrir allt. Þín elskandi dóttir, Fjóla. Elskulega amman mín er dáin. Þrátt fyrir að hafa vitað undir niðri að ævidögum hennar færi að ljúka er sárt tfl þess að hugsa að eiga ekki eftir að hitta hana aftur. Ég hugga mig við það að hún hafi ver- ið hvfldinni fegin. Ég á margar góðar minningar tengdar ömmu og var svo heppin að eyða fyrstu ævi- árum mínum í nánum samvistum við hana. Við fjölskyldan fluttum að Naustum 4, þegar ég var aðeins nokkurra mánaða gömul, en amma var þá ráðskona hjá Inga og Svenna á næsta bæ, Naustum 3. Ég var víst ekki gömul þegar ég fór að venja komur mínar upp eftir til hennar og þó svo ég væri sein tfl gangs lét ég það ekki aftra mér, ég skreið bara á hnjánum yfir túnið og á hlaðinu tóku amma og Skuggi vinur minn á móti mér. Oft voru ferðimar margar á dag, það var gott að koma þangað, þar gat ég dundað mér í friði fyrir systkinum mínum og snúist í kringum ömmu meðan hún vann verkin. Ekki spillti fyrir að í eldhúsinu var nammiskúffa, þar sem amma geymdi það sem hún kallaði bolsí- ur, og í búrinu voru kökubox með m.a. heimabökuðum snúðum. Amma kenndi mér að spila á spil, hún kenndi mér marías, lönguvit- leysu og borðvist. Við sátum við eldhúsborðið, spfluðum, hlustuðum gjaman á miðdagssöguna og amma drakk kaffi úr litla glasinu sínu. Mér þótti einnig gaman þegar hún sagði mér sögur frá því í „gamla daga“ er hún og afi bjuggu í Asi með „krakkaskarann“ sinn og frá því hvernig sveitalífið var í kring- um seinni heimsstyrjöldina. Amma hafði nóg að gera, bæði innan húss og utan, enda með stórt heimili. Undanfarin ár hef ég verið bú- sett í Noregi og því hafa samveru- stundir okkar ekki verið eins margar og ég hefði óskað, síðast hitti ég hana fyrir tæpum tveimur árum, er ég kom í heimsókn með son minn Daníel Loga nýfæddan, ég man hvað mér þótti vænt um þegar hún sat með hann í fanginu, strauk honum um vangann og sagði „mikið er þetta myndarlegur og vel gerður drengur og líkur henni mömmu sinni“. Ég hef haldið í vonina um að fá að hitta hana þegar ég kem heim í lok næsta mánaðar og sýna henni barnið sem er væntanlegt í heiminn þ. 12. okt. Því miður varð mér ekki að ósk minni. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Dóra Heiða Halldórsdóttir. Á sumardögum okkar var sól um blómstrað engi. Hve sárt ég hefi saknað þín, já saknað lengi lengi. En söngsins hörpu hljómur í hjarta mínu býr. Hn ást, þinn eigin strengur, þín elsku rödd migknýr. (Rósa B. Blöndal.) Elsku amma er dáin. Þegar mamma hringi til mín og sagði að amma væri dáin fékk ég hálfgert sjokk, jafnvel þó að ég vissi að við þessu mætti búast. Það er líka einhvern veginn erfiðara að fá svona fréttir þegar maður er svona langt í burtu, ég hafði verið að tala um það deginum áður að ég vonaðist til þess að geta kvatt hana þegar við kæmum heim um jólin en það má kannski segja að það sé eigingjörn hugsun þar sem ég er viss um að ömmu líður miklu betur þar sem hún er núna. Ég ákvað því að setjast niður og skrifa nokkur orð þótt ekki sé auðvelt að koma hugsunum í orð. Fyrstu æviár mín bjuggum við, við hliðina á ömmu á naustum og var því ansi mikill samgangur á milli. Það voru ófáar ferðirnar sem ég var búin að hlaupa á milli á nátt- fötunum til að fá mola úr skúffunni eða tfl að spila. Það var alveg sama hvað amma var að gera hún nennti alltaf að setjast niður til að spila við mig og má segja að hún hafi kennt mér flest þau spfl sem ég kann í dag og hef svo verið að kenna syni mínum. Eftir að við fluttum út í sveit fækkaði óneitan- lega ferðunum á milli en mér er minnisstætt hvað mér þótti alltaf notalegt að koma tfl ömmu eftir að ég stækkaði bara til að setjast nið- ur og spjalla um alla heima og geima. Eftir að eldri sonurinn minn fæddist reyndi ég að fara reglulega með hann til langömmu tfl að hún gæti fylgst með hvað hann stækkaði og nutu þau þess bæði enda fékk hann yfirleitt eitt- hvað góðgæti í munninn áður en við fórum heim. Ég fékk ekki tæki- færi til að leyfa þér að sjá litla Sig- uijón en hann er líka alveg jafn yndislegur og Halldór Darri. Elsku amma mín, mig langar að þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og vonandi hefur þú það gott, umvafin ástvinum. Þín dótturdóttir, Dalrós Halldórsdóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.