Morgunblaðið - 21.10.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
239. TBL. 87. ARG.
FIMMTUDAGUR 21. OKTOBER 1999
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Elizabeth Dole á blaðamanna-
fundi í gær ásanit eiginmanni
sínum, Bob Dole.
hætt við
framboð
Washington. AP.
ELIZABETH Dole tilkynnti í gær
að hún væri hætt við þátttöku í for-
kosningum Repúblikanaflokksins
vegna forsetakosninganna á næsta
ári og sagði að tilgangslaust væri að
halda baráttunni áfram. „Þegar upp
er staðið snýst þetta um peninga,"
sagði Dole og benti á að keppinautar
hennar, s.s. George W. Bush, ríkis-
stjóri í Texas, og auðkýfíngurinn
Steve Forbes, hefðu margfalt meira
fé til umráða.
Hún bætti við að hún hefði getað
haldið áfram ef munurinn væri tvö-
faldur og jafnvel tífaldur. Þegar svo
væri komið að keppinautar hefðu 80
sinnum meira fé í sjóðum sínum væri
vonlaust að standa í baráttu við þá.
Eftir að Dole hefur dregið sig í hlé
sækjast sjö frambjóðendur eftir til-
nefningu Repúblikanaflokksins og er
talið að þeir George W. Bush og
John McCain, öldungadeildarþing-
maður fí-á Arizona, eigi helst eftir að
sækja fylgi í raðir stuðningsmanna
Doles. Hún hyggst ekki lýsa yfír
stuðningi við neinn frambjóðanda, að
sögn samstarfsmanna hennar.
Elizabeth Dole er lögfræðingur að
mennt og gift Bob Dole, fyrrverandi
forseta öldungadeildarinnar, en
hann beið lægri hlut íyrir Bill Clint-
on í síðustu forsetakosningum. Hún
var samgönguráðherra í forsetatíð
Ronalds Reagans og George Bush
skipaði hana vinnumálaráðherra árið
1989. Hún lét af því starfí ári síðar til
að taka við stjórn Rauða kross
Bandaríkjánna.
Heilsuveill múslímaleiðtogi kjörinn forseti Indónesíu á þingi landsins
STUÐNINGSMENN stjórnarand-
stöðunnar í Indónesíu gengu ber-
serksgang um götm- Jakarta í gær
eftir að leiðtogi þeirra, Megawati
Sukarnoputri, beið lægri hlut í for-
setakosningum á þinginu. Abdur-
rahman Wahid, heilsuveill leiðtogi
stærstu samtaka múslíma í
Indónesíu, var þá óvænt kjörinn for-
seti landsins efth- að B.J. Habibie
ákvað á síðustu stundu að sækjast
ekki eftir endurkjöri.
Þúsundir manna tókust á við lög-
reglumenn fyrir utan þinghúsið í
Jakarta og bíll í eigu stjórnarflokks-
ins, Golkar, var sprengdur í loft upp.
Tvær aðrar sprengjur sprungu í höf-
uðborginni og að minnsta kosti tveir
menn biðu bana í tilræðunum.
Fregnir bárust af mótmælaaðgerð-
um og skemmdarverkum í að
minnsta kosti tveimur öðrum borg-
um landsins.
Her- og lögreglumenn beittu
táragasi og háþrýstivatnsdælum til
að dreifa æstum stuðningsmönnum
Megawatis sem höfðu áskoranir
hennar, um að taka úrslitunum með
stillingu, að engu og flykktust að
þinghúsinu.
Oeirðirnar í Jakarta héldu áfram
fram á nótt. Hermenn hleyptu af
byssum á mótmælendur og réðust
inn í sjúkrahús þar sem tugir manna
höfðu leitað aðhlynningar. Ekki var
vitað um mannfall í átökunum.
Varaforseti kjörinn í dag
Ef marka má skoðanakannanir
nýtur Megawati mests stuðnings
meðal almennings í Indónesíu og
ósigur hennar má rekja til pólitísks
klaufaskapar af hennar hálfu. Mögu-
legir bandamenn hennar á þingi
kvörtuðu yfír því að hún hefði ekki
sýnt nógu sannfærandi vilja til að
mynda raunverulegt stjórnmála-
bandalag með þeim.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum og
grannríkjum Indónesíu fögnuðu úr-
slitunum en höfðu miklar áhyggjur
Reuters
Stuðningsmaður Megawatis Sukarnoputris ræðst á indónesískan lögreglumann með barefli við þinghúsið í
Jakarta eftir að hún beið ósigur í forsetakosningunum sem fram fóru á þinginu í gær.
af pólitíska umrótinu í landinu. Stan-
ley Roth, aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði að það gæti
ráðist á næsta sólarhring hvort hægt
yrði að koma á lýðræði í landinu.
Ráðgert er að þingið kjósi varafor-
seta í dag og úrslit þeirra kosninga
gætu haft mikil áhrif á framvinduna.
Wahid sagði íyrr í vikunni að hann
myndi beita sér fyrii- því að Akbar
Tandjung, leiðtogi Golkar, yrði kjör-
inn varaforseti.
Flokkur Wahids kvaðst hins vegar
í gær ætla að styðja Megawati ef
hún gæfi kost á sér í varaforseta-
embættið en aðstoðarmenn hennar
vildu ekki svara því hvort hún hygð-
ist bjóða sig fram.
Herinn, sem er mjög áhrifamikill í
landinu, sagði að Wiranto yfirhers-
höfðingi væri tilbúinn að taka við
varaforsetaembættinu ef allir flokk-
arnir óskuðu eftir því.
Wahid sór embættiseið sem fjórði
forseti Indónesíu skömmu eftir að
úrslitin voru tilkynnt. Þetta er í
fyrsta sinn sem forseti landsins er
kjörinn í kosningum þar sem fleiri
en einn eru í framboði.
Wahid lofaði að beita sér fyrir ein-
ingu meðal þjóðarinnar en margir
óttast að hann sé of heilsuveill til að
geta stjórnað landinu. Hann hefur
ekki fulla sjón, hefur fengið heila-
blóðfall og gat ekki gengið hjálpai'-
laust á pall í þinghúsinu þar sem
hann sór embættiseiðinn. Hann
þurfti einnig aðstoð við að lesa ræðu
sína og undirrita skjöl.
■ Mikils metinn/26
Óeirðir á götum Jakarta
eftir ósigur Megawatis
Jakarta. AFP, Reuters.
Dole
Hald lagl á gjafír í
húsi Netanyahus
Jerúsalem. AFP.
Samið um
viðskipti við
Kínverja
JIANG Zemin, forseti Kína,
ræddi við frammámenn í breska
viðskiptalífinu í London í gær og
kvaðst fullviss um að stjórnvöld-
um í Kína tækist að leysa efna-
hagsleg vandamál landsins og
tryggja 7% hagvöxt á árinu. I
tengsluin við heimsókn kínverska
forsetans til Bretlands var til-
kynnt að bresk fyrirtæki hefðu
gert viðskipta- og fjárfestingar-
samninga við Kínverja að and-
virði 250 milljarða króna.
Jiang sagði ekkert um fá-
menna hópa Tíbeta og útlægra
Kínverja sem eltu hann hvert,
sem hann fór í London til að mót-
mæla mannréttindabrotum í
Kina. Þeir sökuðu bresk stjórn-
völd um að hafa gengið alltof
langt í því að kveða mótmælin
niður til að styggja ekki kín-
verska forsetann.
Nokkrir mótmælendanna
sögðu að bresk stjórnvöld hefðu
gerst sek um „hræsni“ með því
að gera sér far um að heiðra kín-
verska forsetann, sem bæri
ábyrgð á grófum mannréttinda-
brotum, á sama tíma og Augusto
Pinochet, fyrrverandi einræðis-
herra Chile, væri haldið í fang-
elsi í landinu.
Jiang (annar frá hægri) skoðar
hér Árþúsundahvelfinguna í
London.
LÖGREGLAN í Jerúsalem leitaði í
gær á heimili og skrifstofu Benjam-
ins Netanyahus, fyrrverandi forsæt-
isráðherra ísraels, vegna gruns um
að hann hefði haldið gjöfum, sem
hann tók við á þriggja ára valdatíma
sínum og tilheyrðu forsætisráð-
herraembættinu.
„Lagt var hald á tugi dýrgripa,
meðal annars málverk, silfur- og
gullmuni, sem haldið var í trássi við
lög,“ sagði talsmaður lögreglunnar.
Grunaður um spillingu
Húsleitin var gerð eftir að lög-
reglan hóf rannsókn á ásökunum
um að Netanyahu hefði gerst sekur
um spillingu á valdatíma sínum og
reynt að þagga niður í vitnum og
leggja stein í götu réttvísinnar.
Meðal annars leikur grunur á að
verktakinn Avner Amedi hafi séð
Netanyahu fyrir ýmiskonar þjón-
ustu, svo sem viðgerðum á húsi
hans og húsgagnaflutningum, án
þess að forsætisráðherrann hafí
greitt fyrir hana. Verktakinn sendi
forsætisráðuneytinu reikning fyrir
þjónustu að andvirði sjö milljóna
króna eftir kosningaósigur Net-
anyahus í maí.
Netanyahu hefur ekki verið
ákærður vegna málsins. Hann neit-
ar því að hafa óskað sjálfur efth-
þjónustunni og segir að embættis-
menn í forsætisráðuneytinu hafi gert
það. Fyrir hálfum mánuði leitaði lög-
reglan að skjölum í húsum tveggja
samstarfsmanna Netanyahus sem
era grunaðir um að hafa lofað að
tryggja verktakanum samninga við
ríkið fyrir þjónustuna.