Morgunblaðið - 21.10.1999, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.10.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 25 ERLENT AP Sænskir nýnasistar bera mynd af Rudolf Hess, aðstoðarmanni Adolfs Hitlers, í göngu í bænum Trollhattan. Vaxandi umsvif sænskra nýnasista valda áhyggjum MORÐIÐ líkist aftöku skrifuðu sænsk blöð 13. október eftir að 41 árs maður hafði fundist liggjandi látinn í blóði sínu fyrir framan íbúð sína á þriðju hæð í fjölbýlishúsi í út- hverfí Stokkhólms. Morðið virtist hið dularfyllsta, því maðurinn hafði aldrei komist í kast við lögin og lifði mjög rólegu lífi, hvorki reykti né drakk, en skokkaði. Tveimur sólar- hringum seinna voru þrír ungir menn teknir fastir, grunaðir um morðið. Þeir eru allir þekktir fyi-ir tengsl sín við samtök sænskra nýnasista. Um leið virtist ljóst að morðið ætti sér pólitískar ástæður. I sumar voni tveir lögreglumenn drepnir er þeir reyndu að hindra bankarán. Þeir sem ákærðir hafa verið fyrir ránið og morðið eru nýnasistar og sýnt þykir að ránið hafi átt að fjármagna nýnasista- starfsemi. I vor sprakk sprengja í bíl blaðamanns sem hefur skrifað um umsvif nýnasistanna. Brotist hefur verið inn í vopnabúr og nýnasistar handteknir vegna þess. Það eru umsvif af þessu tagi, sem vekja ugg í Svíþjóð. í samtali við Aftonbladet sagði einn formælandi nýnasista: „Það er stríð og í stríði deyr fólk.“ Þessi ummæli segja nokkuð um hugarheim nýnasist- anna. Pólitísk aftaka Sá sem myrtur var nú nýlega hét Björn Söderberg og var 41 árs að aldri. Hann hafði lengi verið virkur í vinstrisinna-verkalýðsfélagi og barist ötullega gegn kynþáttafor- dómum. Hann hefur stundað ýmis störf, en í sumar vann hann sem lagermaður hjá fyrirtæki, þar sem einnig vann 22 ára gamall maður. Þegar sá var fenginn á vinnustaðn- um til að gegna hlutverki fyrir verkalýðsfélagið vakti Söderberg athygli á nýnasískum skoðunum mannsins, sem spilaði tónlist með inntakinu „valdið til hinna hvítu“. Þetta varð til þess að manninum var ekki veitt verkefnið. Þarna var þó ekki um að ræða einhvern óbreyttann liðsmann nýnasista, heldur einn af þeim þekktari í Svíþjóð. Eftir að þeim Söderberg og unga manninum lenti saman hætti Söderberg að vinna þarna. Vinir Söderbergs eru ekki í vafa um að Söderberg galt fyrir með lífinu að hann spyrnti við fram- gangi mannsins á vinnustaðnum. Vinnuveitandi mannsins tekur upp hanskann fyrir þann 22 ára og vís- bendingar eru um vaxandi áhrif nýnasista í ýmsum smærri verka- lýðsfélögum. Lögreglan vinnur nú út frá þeirri tilgátu að skýringarinnar á morð- inu sé að leita í pólitískum skoðun- um þremenninganna. Sá sem Eftir morð á verkalýðs- félagsmanni nýlega þurfa Svíar að horfast í augu við vaxandi umsvif nýnasista, skrifar Sigrún Davíðsdóttir. Söderberg deildi við er ekki í hópi hinna grunuðu, en einn þeirra er honum nákunnugur og einlægur aðdáandi hans Fjár aflað með ránum I sumar var framið bankarán í sænskum smábæ. Tveir lögreglu- menn, sem veittu ræningjunum við- spyi-nu voru myrtir. Sýnt þykir að um aftöku hafi verið að ræða, því þeir voru skotnir aftan frá með eig- in byssum. Fimm manns hafa verið handteknir, þar af þrír grunaðir um ránið. Einn þeirra er 26 ára sí- afbrotamaður, Tony Olsson, sem síðastliðinn vetur lék í leikriti eftir Lars Norén, en það byggði Norén á viðtölum við Olsson og fleiri fanga, þar sem þeir léku sjálfa sig. Olsson var að ljúka við að afplána fimm ára dóm fyrir morðtilraun. Við réttar- höldin yfir honum vakti það óhug viðstaddra hve kaldrifjaður hann var þegar hann ræddi glæp sinn. Leikritið vakti miklar deilur, þar sem mörgum þótti ósmekklegt að Olsson og fleiri fengju að halda á- róðursræður, sem hvergi var mót- mælt. Eftir síðustu sýninguna fór Olsson í helgarleyfi úr fangelsinu, en kom ekki aftur. Daginn sem hann hefði átt að koma aftur var bankaránið framið og lögreglu- mennirnir myrtir. Talið er að með ráninu hafi átt að fjármagna frekari umsvif nýnasista. Höfðar til ungra karlmanna Höfuðsamtök sænskra nýnasista eru „Nationalsocialistisk front“, NSF, með aðsetur í Karlskrona. Markmiðið er að ganga af lýðræð- inu dauðu og gera NSF að því sem meðlimirnir kalla pólitíska járn- hönd í Svíþjóð. Það er áberandi að hreyfing nýnasista í Svíþjóð er bor- in uppi af ungum karlmönnum. Einn þremenninganna sem handtekinn var íyrir morðið á Söderberg er 23 ára forstjórason- ur. Hann vinnur við tölvur en frá því á menntaskólaárunum hefur hann verið hallur undir hugmynda- fræði nasista. Á yfirborðinu virðist hann að sögn sænskra fjölmiðla vera hinn prúðasti, en hefur þó oft verið ákærður fyrir ofbeldi, meðal annars gegn börnum og unglingum. Hann hefur þó aldrei verið ákærð- ur. Meðan hann gegndi herþjónustu þótti hann standa sig með prýði og fékk því sérlegan aðgang að vopna- geymslum og ýmsum leynibúnaði. Á þessum tíma var brotist inn í vopnabúr herdeildar hans og vopn- um þaðan stolið. Hann var einn af þeim sem sættu sérstakri rannsókn en ekkert fannst sem leiddi til ákæru. Tveir nýnasistar voru síðan ákærðir fyrir þjófnaðinn, en vopnin komu aldrei öll til skila. Mál eins og þetta hefur beint at- hyglinni að sænska hernum og hvort hann hafi sérstakt dálæti á ungum mönnum með öfgasinnaðar hægriskoðanir. Þetta hefur orðið til þess að herinn hefur hert eftirlit með hermönnum og skoðunum þeirra. Leyniþjónusta nýnasista Það vekur nokkurn ugg að Ijóst er að NSF og skyld samtök halda uppi viðamikilli upplýsingasöfnun, sem sænskir fjölmiðlar hika ekki við að kalla leyniþjónustu. Þegar gerð var húsrannsókn hjá nýna- sista 1994 fannst listi með 200 nöfn- um og upplýsingum um fólk. Um er að ræða myndir af fólki, upplýsing- ar um hvar fólk vinni, hvar það búi, fjölskylduhagi og hverja það um- gangist Ljóst er að upplýsingum er safnað um meðlimi verkalýðShreyf- inga, lögreglumenn, stjómmála- menn og blaðamenn, sem á ein- hvern hátt hafa látið til sín taka í baráttu gegn kynþáttafordómum og nasisma. Hægt er að fá passa- myndir hjá yfirvöldum af fólki og um leið upplýsingai' um það. Komið hefur í ljós að samtök nýnasista hafa verið iðin við að panta myndir og upplýsingar um lögreglumenn. Nú hefur verið rætt hvort ekki sé rétt að taka í taumana og hætta að afhenda þessar upplýsingar. Hver er uppspretta nýnasisma? Félagsfræðingar velta því mjög íyrir sér hvað það sé, sem fái unga menn til að heillast svo mjög af öfgahreyfingum eins og nýnasist- um. Sterk samheldni hópsins og ríkur agi virðist höfða til margra. Æfingar og útivera í skógunum í kringum Karlskrona og víðar tíðk- ast í þessum hópi. Tónlistin, sem þessir ungu menn hlusta á, er líka sameiningartákn þeirra, en um er að ræða kraftmikla og ágenga tón- list, sem mikið er búið til af bæði í Svíþjóð og víðar. Norræn goðafræði og tákn þaðan eru rík uppistaða í hugmyndafræði nýnasista. Svo ríkt hefur kveðið að þessu meðal sænskra ungmenna að þessi tengsl hafa komið slæmu orði á allt, sem fornnorrænt er. Það þykir einfaldlega grunsamlegt að bera til dæmis skartgripi og önnur tákn sem tengjast þessu tímabili. Á aö fara eitthvað út? Síminn GSM hefur gert reikisamninga við yfir 100 far- símafyrirtæki í meira en 50 löndum. Þannig er tryggt að þú ert í aðeins símtalsfjarlægð frá þínum nánustu á ferð þinni um heiminn. Síminn GSM. í traustu sambandi erlendis. SÍMINN-GSM WWW.BSM.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.