Morgunblaðið - 21.10.1999, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.10.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 13 FRÉTTIR Deilurnar um kjarnavopn á Islandi hafa staðið í áratugi Þáttur Williams Arkins fyrirferðarmikill EINN þriggja höfunda greinarinnar um kjarnorkumál sem varð frétta- efni bandarískra fjölmiðla í gasr er William Arkin. Nafn hans hefur oft borið á góma í umræðum um það hvort kjarnorkuvopn séu geymd hér á landi. Hér á eftir verður rakinn þáttur Arkins í umræðunum. Deilur um hugsanlega staðsetn- ingu kjarnavopna á Islandi voru áberandi í fjölmiðlum og á Alþingi árið 1980. Hinn 20. maí það ár átti Ríkisút- varpið viðtal við William Arkin, starfsmann Center for Defence In- formation, sem taldi allar líkur á að kjarnorkuvopn væru geymd á ís- landi. Benti Arkin m.a. á að í opin- berum gögnum um Keflavíkurstöð- ina væri vísað til handbókar sjóhers- ins um kjarnorkuöryggismál, sem væri í notkun í Keflavíkurstöðinni. Kom til snarpra orðaskipta við ut- andagskrárumræðu um málið á AI- þingi 22. maí. Þar sagði Eiður Guðnason, Alþýðuflokki, að það væri orðinn árviss viðburður hér á landi að íslenskir kommúnistar þyrluðu upp moldviðri áróðurs og blekkinga og héldu því fram að geymd væru kjarnorkuvopn á íslandi. Ólafur Ragnar Grímsson, þáver- andi þingmaður Alþýðubandalags- ins, sagðist ekki draga í efa yfirlýs- ingar íslenskra utanríkisráðherra um þessi mál en teldi í ljósi sögunnar fyllstu ástæðu til að draga í efa að bandarísk stjórnvöld hefðu sagt all- an sannleikann. Ólafur Ragnar sagði að komið hefði skýrt fram í útvarps- viðtalinu við William Arkin að hann teldi að kjarnorkuvopn væru stað- sett á Islandi. Tók Ólafur Ragnar málið upp í utanríkismálanefnd og fór fram á að aflað yrði ýmissa upp- lýsinga um málið. Ólafur Jóhannesson, þáverandi ut- anríkisráðherra, sagðist ekki telja nein líkindi til þess, að kjarnorkuvopn væru á Islandi en lofaði að afla allra fáanlegra gagna um málið. Utanríkis- ráðuneytið sendi frá sér yfirlýsingu í tilefni þessara umræðna þar sem greint var frá því að bandarísk stjóm- völd hefðu upplýst að í umræddri handbók sjóhersins væri um að ræða almennar leiðbeiningar sem föst venja væri að senda öllum mikilvæg- um stöðvum á vegum flotans um allan heim, óháð því hvort þar væru geymd kjamorkuvopn eða ekki. 31. maí 1980 sendi Center for Defence Information frá sér yfirlýs- ingu um kjarnorkuvopnamál og Is- land, þar sem stofnunin skýrði hvernig hún hefði komist að þeirri niðurstöðu, að ýmislegt benti til þess að kjarnorkuvopn hefðu verið stað- sett á íslandi. Voru tilgreind ýmis atriði sem styddu þetta, m.a. tilvist P-3C Orion-kafbátavarnaflugvéla á íslandi, sem hefðu venjulega kjarn- orkuvopn til taks til nota á stríðstím- um og F-4 Phantom orrustuvéla, Margsinnis hefur komið til umræðna og deilna á Islandi á undanförnum áratugum um það hvort kjarnorkuvopn hafí verið . ■ - ——— t geymd í Keflavíkurstöðinni. I umræðum um þessi mál hin síðari ár hefur nafn Willi- ams Arkins verið áberandi. sem teknar voru í notk- un í Keflavíkurstöðinni 1973, sem stofnunin segir að eigi venjulega kost á því að geta notað kj arnorkueldflaugar, sem unnt sé að skjóta á skotmörk á flugi. „Ofan- greint bendir til þess, að kjamorkuvopn kunni að vera á Islandi eða að þau kunni að verða flutt til Islands á hættu- eða stríðstímum,“ segir í yf- irlýsingu stofnunarinn- ar. Játa hvorki né neita 11. ágúst 1980 lagði Ólafur Jóhannesson utanríkisráð- herra fram skriflega yfirlýsingu sem borist hafði frá sendiherra Banda- ríkjanna á íslandi, Richard A. Eric- son, um þessi mál. Svar Bandaríkja- manna var þríþætt: í fyrsta lagi er tekið fram að það hafi lengi verið stefna Bandaríkjanna að játa hvorki né neita tilvist kjarnavopna nokkurs staðar. I öðru lagi sé staðsetning kjamorkuvopna háð samþykki þeirra ríkja sem beinan hlut eigi að máli í samræmi við ákvörðun leiðtogafund- ar NATO frá árinu 1957 og í þriðja lagi sé þetta í samræmi við 3. grein varnarsamnings Islands og Banda- ríkjanna um að það sé háð samþykki íslands með hvaða hætti vamarliðið hagnýti sér aðstöðuna á íslandi sem veitt er með samningnum. „Ég vona, að þetta nægi öllum þeim, sem ekki eru íyrirfram ákveðn- ir að hafa þá trú, að hér muni leynast kjarnorkuvopn. Yfirlýsingin útilokar algjörlega staðsetningu kjarnorku- vopna hér á landi, svo vel sem unnt er að útiloka nokkuð," sagði Ólafur Jó- hannesson utanríkisráðherra á frétta- mannafundi sama dag. Samhliða þessum yfirlýsingum var lögð fram greinargerð sem Öryggis- málanefnd hafði unnið vegna umræðu og skrifa um kjarnorkuvopn á íslandi og var niðurstaða hennar sú, skv. frá- sögn Morgunblaðsins, að allar yfírlýs- ingar erlendra aðila um kjamorku- vopn í tengslum við ísland ættu ræt- ur að rekja til greinar sem Barry Schneider, starfsmaður CDI, birti ár- ið 1975. Frá því að sú grein birtist virtist ekki hafa verið um neinar sjálf- stæðar athuganir á þessu að ræða. Fram kom í greinar- gerð Öryggismála- nefndar að Gene La Rocque, forstjóri CDI, og Bertram Gorwitz, aðstoðarforstjóri stofn- unarinnar og fyrrver- andi hershöfðingi, hefðu í samtölum við starfsmann Öryggis- málanefndar tekið mun ákveðnari afstöðu til spurningarinnar um hvort kjarnorkuvopn væru á Islandi en fram kæmi í yfirlýsingu CDI 31. maí og haldið því beinlínis fram að á ís- landi væru staðsett kjarnorkuvopn. Var meginröksemd- in sú, að það væri fost regla hjá bandaríska flotanum að staðsetja vopnin þar sem áætlað væri að nota þau. „Að vísu sagðist La Rocque ekki vera alveg 100% ömggur vegna þess að flotinn gæti auðveldlega flutt vopnin burtu á mjög skömmum tíma og kynni að hafa gert það nú þegar,“ segir í greinargerðinni. Einnig vora fræðimenn á sviði ör- yggismála hjá Brookings Institute og Congressional Research Service spurðir álits á því hvort tilvist hand- bókar fyrir landgönguliða um örygg- isgæslu kjarnorkuvopna á Keflavík- ui-flugvelli sannaði að hér væra stað- sett slík vopn. Vora þessir aðilar á einu máli um að sennilega væri gert ráð fyrir flutningi kjarnorkuvopna til íslands á hættu- eða ófriðartímum en töldu ólíklegt að hér væra stað- sett slík vopn. William Arkin kemur aftur til sögunnar Þætti Williams Arkins í umræðu um kjarnavopn á íslandi var þó ekki lokið, en í byrjun desember árið 1984 kom Arkin til íslands í boði félasvís- indastofnunar Háskóla íslands. Hann kvaðst nú hafa haft rangt fyrir sér árið 1980 þegar hann hélt því fram að kjarnorkuvopn væru geymd á Islandi en sagðist hins vegar hafa aflað upplýsinga um að kjarnorku- vopn yrðu flutt til íslands á ófriðar- tímum. Arkin gekk á fund Geirs Hallgrímssonar, þáverandi utanrík- isráðherra, og afhenti honum afrit, sem hann sagði vera af bandarískum skjölum og sýndu að Gerald Ford, William Arkin þáverandi forseti Bandaríkjanna, hefði veitt heimild, fjárlagaárið 1975, fyrir flutningi 48 kjarnorkudjúp- sprengna til Keflavíkurstöðvarinnar í ófriði og ekki væri gert ráð fyrir að leitað yrði samþykkis íslenskra stjórnvalda. Kvaðst hann hafa aflað þessara upplýsinga hjá ónefndum bandarískum embættismanni. Fékkst listinn aldrei birtur opinber- lega. Síðar viðurkenndi Arkin að framkvæmd þessarar heimildar væri háð samþykki íslenskra stjórnvalda. Geir Hallgrímsson lýsti yfir af þessu tilefni að það væri óbreytt stefna Islands að hér yrðu ekki stað- sett kjarnorkuvopn, hvorki á friðar- né stríðstímum. Geir kvaðst, við ut- andagskráramræðu, sem fram fór um málið á Alþingi, hafa krafíð yfir- mann bandaríska sendiráðsins hér skýringa á málinu, þegar Arkin hefði fært sér ljósrit af meintum gögnum um þetta efni, en nauðsynlegt væri að kanna áreiðanleika þessa plaggs, m.a. í ljósi þess að fyrri fullyrðingar sama aðila um kjarnorkuvopn hér á landi hafi reynst rangar. „Aðeins að fengnu samþykki íslensku ríkisstjórnarinnar“ 19. desember barst utanríkis- ráðuneytinu svar frá bandaríska sendiráðinu vegna málsins. „Sér- hver heimild til Bandaríkjahers til þess að flytja kjarnavopn til íslands mundi aðeins verða veitt að fengnu samþykki íslensku ríkisstjórnarinn- ar,“ segir í bréfinu. Þar var ítrekað að Bandaríkin hefðu í einu og öllu farið eftir og muni halda áfram að fara eftir ákvæðum varnarsamn- ingsins við ísland og samþykkt NATO varðandi staðsetningu kjarn- orkuvopna. í fréttatilkynningu sem íslenska utanríkisráðuneytið sendi frá sér segir að skv. bréfi banda- ríska sendiráðsins sé ljóst að heim- ild til geymslu kjarnavopna á Is- landi á ófriðartímum hafi ekki verið veitt. Geir Hallgrímsson og Stein- grímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra, töldu svar Banda- ríkjastjórnar fullnægjandi, en nokkrir þingmenn stjórnarandstöð- unnar vora á öðru máli við utandag- skrárumræður sem fram fóra á Al- þingi 20. desember og vildu þeir láta knýja á um fyllri svör. 13. febrúar 1985 birti bandaríska dagblaðið The New York Times frétt á forsíðu um að bandarísk stjórnvöld hefðu látið gera áætlun um flutning kjaraorkuvopna til íslands, Kanada, Bermúda og Puerto Rico, ef séi-stak- ar aðstæður sköpuðust. Blaðið sagði að flutningur vopnanna væri hins vegar háður samþykki viðkomandi ríkisstjórna. Fyrir þessu bar blaðið ónafngreinda embættismenn og vitn- aði þar að auki í leyndarskjal, sem það sagði William Ai’kin, sérfræðing um vígbúnaðarmál, hafa komið á framfæri. Hugsanleg kaup á rafveitu Hveragerðis Hag- kvæmnis- sjónar- mið ráða ORKUVEITA Reykjavíkur hefur lýst áhuga á að leigja eða kaupa Rafveitu Hveragerðis. Að sögn Alfreðs Þorsteinsson- ar, formanns stjórnar veitu- stofnana, ræður hagkvæmnis- sjónarmið áhuga Orkuveitunn- ar en stærri veita gæti leitt til lægri orkugjalda. „Þetta er í raun það sama og á sér stað víðast hvar erlendis, að stærri orkufyrirtæki kaupa upp minni rafveitur og sjá þá hagkvæmni stærðarinnar í því, sem gæti leitt til betri veitna, sem aftur skilaði sér í lægri orkugjöldum,“ sagði Alfreð. „Það er kannski fyrst og fremst það sem réði áhuga Orkuveit- unnar þegar fréttist af því að Hvergerðingar hefðu áhuga á að selja sína rafveitu. Við send- um þeim bréf og óskuðum eftir viðræðum um annaðhvort kaup á rafveitunni eða þá langtíma leigu. Það er augljóslega hag- kvæmt fyrir bæjarstjóm Hveragerðis að ræða við fleiri aðila en Rafmagnsveitu ríkisins um kaup á rafveitunni og geta þannig betur gert sér ljóst hvaða verðmæti þeir era með í höndunum.“ Alfreð benti á að Orkuveita Reykjavíkur seldi nú þegar þjónustu sína til annarra sveit- arfélaga svo sem Kópavogs, Mosfellsbæjar, Seltjarnamess og hluta Garðabæjar. Járnblendið Ofninn er enn bilaður EKKI hefur enn tekist að komast að orsökum bilunarinn- ar í Járnblendiverksmiðjunni á Grandartanga sem olli því að mikinn kísilreyk lagði upp úr skorsteini verksmiðjunnar um helgina. Bjami Bjarnason fram- kvæmdarstjóri Islenska Járn- blendifélagsins sagði að ekki væri hægt að segja hversu langan tíma það tæki að kom- ast að rót vandans og lagfæra hann. Bilunin er í búnaði tengdum þriðja ofninum í verk- smiðjunni. Enginn reykur kom frá honum í gær vegna þess að lækkað hefur verið á álagi á ofninum meðan á viðgerð stendur. þvottavél 1000 sn. L1041 Tekur 5 k' 13 þvottalcerfi Flýtiþvottur UÍIarþvottakerfi Hitastillir o.m.fl. q. af þvotti 1K€ Þvottavél á frábœru verdi! 39.900. Verðádur 52.900. Þú sparar kr. 13.000.- ROFTffKJflUERZLUM ISLflMDS If - ANNO 1 929 - Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776 cc CE o
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.