Morgunblaðið - 21.10.1999, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Morgunblaðið/Ármann Agnarsson
Góð kolmunnaveiði
KOLMUNNAVEIÐAR hafa geng-
ið vel hjá íslensku skipunum að
undanförnu en þau hafa verið við
veiðar norður og norðaustur af
Færeyjum. Börkur NK landaði
1.700 tonnum af kolmunna í Nes-
kaupstað í fyrradag og Beitir NK
1.200 tonnum í gærkvöldi. „Það
hefur verið ágætis kropp og það
besta sem við höfum séð í haust,“
sagði Ragnar Guðmundsson,
stýrimaður á Beiti NK, við Morg-
unblaðið í gær. „Verðið fyrir
kolmunnann er samt enn mjög
lágt. Við fengum rúmar 5 krón-
ur fyrir kflóið í Færeyjum en Iík-
Iega er það eitthvað lægra hér
heima,“ sagði Ragnar. A mynd-
inni eru skipveijar á Beiti NK að
taka flottrollið á kolmunnamið-
unum við Færeyjar.
íjóttu augmbliksins
Carpe Diem hefur opnað aftur
eftir gagngerar breytingar. Nýir
rekstraraðilar hafa tekið við og
er áherslan lögð á nýja glæsilega matseðla
og notalegt umhverfi. Meðal þeirrar
ja
'ætm
/
/
Hádegismatseðill
Mánudag-föstudags 11.30- 14.00
Súpa og helmabakað brauð
Kjötréttur eða fiskiréttur
Kaffi
Verðkr. 950.-
Smáréttaseðill
súpa og kaffi inniíalið
Opnmartími á kvöldin
Sunnudag- flmmtudags 18.00 - 22.00
Föstudag-laugardags 18.00-23.00
þjónustu sem veitt verður er
aðstaða til veislu- og fundar-
halda auk veisluþjónustu. Hér
fyrir neðan má sjá brot af matseðlum
Carpe Diem. Verið velkomin.
wn matseðla
Aðalmatseöill
Forréttir
Humar Trocadero með hvflauksbrauði
Nauta carpacdo með grænmeti julienne
Aðalréttir
Piparsteikt smálúða Dijon
Blandaðir sjávarréttir f hvítvlnssósu
Hvítlauksristaðir Humarhalar
Lambafillet gljáð hunangi og dijonsinnepi
Gljáð andarbringa með appelsfnusósu
Piparostfyllt grísalund með shenybættri
rjómasósu
Eftirréttir
Djúpsteiktur camenbert
Biandaðir ostar
Carpe Diem terta
|
s
Carpe Diem • Rauðarárstíg 18 • Sími: 552 4555
Byggðakvóta úthlutað á tveimur stöðum
Övissa tefur
aðra úthlutun
BYGGÐAKVÓTA sem sveitarfélög-
um á Bakkaiirði og Borgarfirði eystri
var ráðstafað fyrr í haust var úthlut-
að á stjórnarfundi Byggðastofnunar í
gær. Utgerð á Þórshöfn fær stóran
hluta byggðakvóta Bakkfirðinga og á
Borgarfirði eystri er hluti byggða-
kvótans eymamerktur nýliðum.
Óvissa með starfsemi burðarása í at-
vinnulífi nokkurra byggðarlaga hafa
tafið úthlutun byggðakvótans á við-
komandi stöðum.
Borgarfjörður eystri fékk 112
tonn af byggðakvóta til ráðstöfunar.
A stjórnarfundi Byggðastofnunar í
gær var samþykkt að skipta kvótan-
um í þrennt. Einn hluti kvótans, um
40 tonn, skiptist jafnt á smábáta í
sveitarfélaginu og koma 6 tonn í hlut
hvers báts. Fiskvinnslan á staðnum
fær álíka stóran hluta og mun hún
gera samning við bát til að fiska
heimildirnar gegn því að útgerðin
leggi til heimildir á móti, einkum á
þeim tíma sem trillurnar eiga erfitt
með að leggja vinnslunni til hráefni.
Afgangnum, um 20 tonnum, verður
úthlutað til þeirra sem eru að hefja
útgerð eða nýliðum. Þeir geta þá sótt
í þennan pott og fengið allt að tvö-
faldan trillukvótann, eða 12 tonn í
stað 6, til að koma undir sig fótunum.
Bakkafjörður fékk 72 tonn af
byggðakvóta til ráðstöfunar og er
um 40 úthlutað til fiskvinnslunnar á
staðnum, Gunnólfs ehf. Auk þess
mun Geir ÞH frá Þórshöfn veiða
hluta kvótans en leggja í staðinn
upp hluta af eigin kvóta á Bakka-
firði. Þá fá 9 bátar frá Bakkafirði út-
hlutað 3,5 tonnum af byggðakvótan-
um hver.
Stjóm Byggðastofnunar hefur þá
úthlutað um helmingi þess byggða-
kvóta sem sveitarfélög fengu til ráð-
stöfunar í ágúst sl. Auk Bakkafjarð-
ar og Borgarfjarðar eystri hefur
verið gengið frá úthlutun á byggða-
kvóta Seyðisfjarðar, Hofsóss og Isa-
fjarðabæjar. Enn á eftir að ganga
frá úthlutuninni á Breiðdalsvík, Fá-
skrúðsfirði, Stöðvarfirði, Kaldrana-
neshreppi, Grímsey og Vestur-
byggð.
Upphaflega var áætlað að úthlut-
un kvótans yrði lokið fyrir 1. septem-
ber að sögn Egils Jónssonar, for-
manns stjórnar Byggðastofnunar,
hefur óvissa með starfsemi burða-
rása í atvinnulífi nokkurra byggðar-
laga orðið til þess að úthlutunin hef-
ur tafist svo mjög. „Þar höfum við
lagt til ráðgjafa til að reyna að hjálpa
til við að greina vandamálin og gera
tillögur til úrbóta. A meðan þær
liggja ekki íyrir treystum við okkur
til að úthluta byggðakvótanum
Egill segir að væntanlega muni
úthlutun byggðakvótans ljúka á
næsta fundi stjórnarinnar eftir hálf-
an mánuð.
Úr lausu lofti gripið
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur óvissa með starfsemi
fiskvinnslufyrirtækja á Breiðdals-
vík, Stöðvarfirði og Drangsnesi tafið
fyrir úthlutun byggðakvótans í
byggðarlögunum, enda hafi þessi
fýrirtæki hug á að hætta eða flytja
starfsemi sína frá plássunum. Út-
gerðarfélagið Njörður ehf. gerði sl.
vetur samning til tveggja ára við
sveitarfélagið á Breiðdalsvík um öfl-
un hráefnis sem byggðist á því að
sveitarfélagið útvegaði kvóta á móti.
Hafliði Þórsson, framkvæmdastjóri
Njarðar, segir að ekki hafi verið
annað rætt en að staðið verði við
samninginn og ekkert liggi íyrir
hvað taki við að honum loknum.
Hann vill því ekki kannast við að
Njörður hætti starfsemi á Breið-
dalsvík. Gunnlaugur Sighvatsson,
framkvæmdastjóri Hólmadrangs
hf., sem rekur fiskvinnslu á Drangs-
nesi, segir vangaveltur um að fyrir-
tækið flytji starfsemi sína þaðan
einnig úr lausu lofti gripnar. Snæfell
hf. gerir út togara og rekur fisk-
vinnslu á Stöðvarfirði og segir
Magnús Gauti Gautason, fram-
kvæmdastjóri Snæfells, að ekki
standi til að breyta þar nokkru um.
„Við höfum sóst eftir þessum
byggðakvóta og sagt að hann færi
þá til vinnslu á Stöðvarfirði. Við get-
um hins vegar ekki skuldbundið
okkm- til að gera engar breytingai' á
starfseminni næstu 5 árin, eins og
gerð er krafa um. Við einfaldlega
getum ekki gert slík,“ segir Magnús.
Aukin loðna í Barentshafí
LOÐNUSTOFNINN í Barents-
hafi er í vexti, en þó ekki eins ör-
um og talið var eftir seiðaleið-
angur fyrr á árinu. Nýjustu mæl-
ingar norskra fiskifræðinga
benda til þess að stofninn sé nú
um 2,8 milljónir tonna en í fyrra
mældist hann 2 milljónir tonna.
Þá var leyft að veiða 48.000 tonn,
sem eingöngu mátti nýta til
manneldis. Ekki er ljóst enn hver
kvótinn verður á komandi vertíð,
en líklega verður hann aukinn
eitthvað. Engar loðnuveiðar voru
leyfðar í Barentshafinu um tíma
vegna bágs ástands stofnsins.
Lagnamenn athugíð
Heimeier námskeið
Thomas Heising frá fyrirtækinu Heimeier Metallwerk GMBH
mun halda námskeið í uppsetningu og stillingu á hitastýrðum
ofnlokum.
Haldin verða 2 námskeið á Grand Hótel Reykjavík,
hið fyrra mánudaginn 25. október og hið seinna þriðjudaginn
26. október. Þau hefjast kl. 18:00 báða dagana.
Þeir sem hafa áhuga á að sækja námskeiðið eru vinsamlegast
beðnir að skrá sig sem fyrst [ síma 564-1088.
Allir eru velkomnir, ekki síst lagnamenn af landsbyggðinni.
Aðgangur að námskeiðinu er ókeypis.
Heimeier