Morgunblaðið - 21.10.1999, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 21.10.1999, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Stamar barnið þitt? > Á MORGUN, 22. október, er Alþjóðleg- ur upplýsingadagur um stam, „Interna- tional Stuttering Awareness Day“. Af því tilefni hefur Mál- björg, félag um stam, opið hús í dag á Tryggvagötu 26. Talið er að fjögur til fimm af hverjum hundrað börnum byrji að stama snemma á lífsleiðinni. Mörg hætta því af sjálfsdáð- um, áður en þau kom- ast á fullorðinsár. Hlutfall fullorðinna sem stama er um einn af hundraði. Það má því áætla að um 2.700 full- orðnir Islendingar stami. Það er staðreynd að árangur af meðhöndlun á stami er þvi meiri sem börn koma fyiT í viðeigandi meðhöndlun. Ég tel að allir sem stama og fara í meðferð hjá tal- meinafræðingi fái einhverja bót og yfir 90% ungra barna fá mikla bót. Enda þótt talmeinafræðingar geti státað af miklum framförum hjá skjólstæðingum sínum er árangur- inn ekki eingöngu þeirra verk. Þeir ^ leiðbeina og miðla af þekkingu sinni en það er sá sem stamar sem verð- ur að leggja á sig vinnuna, sem leið- ír til minna stams. Ái’angurinn er í hlutfalli við þá vinnu og elju sem hinn stamandi leggur á sig. Hann þarf að þvinga heilann til að fram- kvæma það sem heilanum finnst erfitt. Málbjörg styður foreldrahóp barna sem stama. Þessi for- eldrahópur varð tO síðastliðinn vetur meðal barna sem stunduðu talþjálfun hjá Jóhönnu Éinar- sdóttur, en hún hefur sérhæft sig í meðferð á stami og náð miklum árangri. Krakkamir sem mynda þennan hóp eru á ýmsum aldri frá 5-12 ára og hafa sum hver búið við mikla félagslega ein- angrun vegna stams- ins. Þetta hópstarf hefur létt þessum börnum lífið og gert þau mun opnari og viljugri til tjáningar en áður. Þessi hópur hef- ur einnig hjálpað foreldrum, sem gjarnan eru ráðvilltir og hafa þörf fyrir að ræða við aðra foreldra. í þessum hópi má gjarnan fjölga mikið og stofna fleiri fyiir ýmsa al- durshópa. Það er erfitt fyrir börn sem stama að tala við aðra. Það er líka erfitt að hlusta á þann sem stamar. Við sem stömum eigum nokkur ráð sem geta hjálpað upp á sakirnar. • Ekki aðstoða við að ljúka setningum. • Ekki geta upp á því sem þú heldur að viðmælandinn ætli að segja. • Ekki láta þér líða iOa. Hlust- aðu á hvað er sagt, ekki hvernig. • Ekki horfa flóttalega út í blá- inn. Mjög mikilvægt er að horfa í Stam / Arangur af meðhöndlun á stami, segir Björn Tryggvason, er því meiri sem börn koma fyrr í viðeigandi með- höndlun. augu þess sem talað er við, ekki síst ef hann stamar. • Ekki segja þeim sem stamar hvernig hann á að tala (rólega, yfir- vegað). Sýndu það frekar í verki með því að gefa þér tíma til að segja öll orðin þín fremur rólega, en þó eðlilega, og horfðu í augu viðmæl- anda. • Ef þú skilur ekki það sem sagt er segðu þá rólega frá því, svo að sá sem stamar finni að þú hafir áhuga á því sem hann segir. Þeim sem hafa áhuga á að kynn- ast barnastarfi Málbjargar eða fé- laginu almennt er bent á heimasíðu félagsins, www.ismennt/vefir/mal- bjorg, netfangið benedikt@is- mennt.is eða póstfangið pósthólf 10043,130 Reykjavík. Einnig eru allir velkomnir á kynningu félagsins í kvöld frá klukkan 16-19 á Tryggvagötu 26 í tilefni af Alþjóðlega upplýsinga- deginum um stam. Höfundur er kerfisfræðingur og varaformaður Málbjargar. Björn Tryggvason Að hleypa refnum að kanínunni STUNDUM virðist sem stjórnvöldum sé algerlega óljóst hvaða þýðingu lög og reglur hafa. Þau halda að með því að setja lög og/eða reglur þá hætti tiltekið óeðlilegt háttemi og þar með sé málinu lok- ið. Svo er nú víst því miður ekki. Að læra af lögum Lagaleg sagnfræði er afar fróðlegt svið mannkynssögu. Þegar menn skoða lagatexta tiltekinna landa og ríkja þá kemst nefnilega eitt og annað upp um gerð samfélagsins. Meðal elstu rituðu lagatexta sem enn finnast eru lög Hammúrabís en hann var uppi um jafnlengd ára fyr- ir Krist og ég er að rita þetta eftir Krist. Þ.e. fyrir um 4.000 árum. I þeim textum koma vel fram viðhorf er sýna að eignarréttarhugtakið var við lýði því ekki mátti stela. Sama ~ fékk Móse að vita hjá Guði 700 ár- um síðar. Hammúrabí hafði hom í síðu líkamsárása, þess að menn svikju gæði vinnu sinnar og hann bannaði tilefnislausa glæpi, morð auk framhjáhalds svo nokkuð sé nefnt. Svipuð lagaleg viðhorf hafa reyndar gengið í gegnum réttlætis- hugsun flestra, a.m.k. vestrænna samfélaga, frá því sem elstu heim- ildir geta upplýst okkur um. Meira að segja ýmis framstæð samfélög sem gerðu sér grein fýrir eignar- réttarhugtakinu og því með hvaða ,'hætti börn komu undir byggja á þessari hugsun. Samt virðist eitthvað illa ganga þegar að því kemur að halda niðri þessari ónáttúra að stela, nauðga, misþyrma, myrða, halda framhjá og svíkjast um. Hver sem nú ástæðan er. ^ Þetta gengur að vísu misvel milli 'samfélaga þannig að lagahlýðni mun vera nokkuð mis- jöfn. Þannig eru Hol- lendingar afar löghlýð- ið fólk en besta leiðin þar er samt sú að ein- falda skilning manna á hugtakinu glæpir, sem aftur stórlega dregur úr glæpum. Þannig er það glæpur þar á bæ að dreifa fíkniefnum og selja en ekki að eiga lítilræði til eigin nota eða að nota þau. I Finnlandi telja menn sig afar löghlýðna og reglufasta en þó mun örla á fyrrtöldum glæpum þar í landi. I Bandaríkjunum er mikið um reglur en nokkur samfélagsklofningur er uppi milli stétta um hversu beri að Reykingar Það að banna fíknina, segir Magnús Þorkels- son, er eins og að banna lömuðum manni að vera lamaður. hlýða þeim. Þannig munu menn í sumum fylkjum telja brýnna að reglum sé beitt á lágstéttir en há- stéttir, frekar á litaða en ólitaða o.s.frv. og það sama gildir á stund- um í Bretlandi. Þar hefur það verið afar misjafnt um langt skeið hvem- ig menn herma refsingar við glæp- urn upp á fólk. Á Nýja Sjálandi munu menn beita reglum eftir hentugleikum og ráða óskrifaðar reglur mun meira en þær skrifuðu eftir því sem heimamenn þar hafa tjáð mér. í Japan eiga menn að fylgja reglum af festu og t.d. bar eiginmönnum og feðrum fyrr á öldum að refsa börn- um sínum og konum grimmilega ef svo bar undir, jafnvel með dauða. í Ástralíu er viðhorfið þannig að setji menn lög þá leggja aðnr sig eftir því að brjóta þau og á Islandi hefur það tíðkast í um 1.000 ár að menn verði ekki að fylgja reglum nema hætta sé á að upp um þá kom- ist. Þetta ákvað Þorgeir Ljósvetn- ingagoði líklega árið 1000 frekar en árið 999. Er glæpur alltaf glæpur? Annar angi þessa máls er að líta með mismunandi hætti á eðli glæps- ins. Með því t.d. að segja sem svo að glæpamanni sé ekki sjálfrátt eða hann svo sviptur dómgreind að hann geti ekki metið eðli glæpsins þá má t.d. læsa hann inni varanlega ef ekkert verður við gert eða þá taka hann í meðferð ef slíkt er möguleiki. Þannig er t.d. ljóst að öl- óður maður er ekki sjálfráða gerða sinna en með því að láta renna af honum og halda honum þurrum þá er bæði hægt að leiða honum í ljós eðli gerða hans og jafnvel að fá hann til að gera aldrei svona aftur. Því er ég að velta þessu upp? Til hvers að setja lög? Það var einmitt málið í upphafi, nefnilega að Tóbaksvamarráð og heilbrigðisráðuneytið gáfust upp á tóbaksvörnum og ákváðu að setja reglur um að það væri bannað að reykja. Og það lukkast líklega jafn- vel og bann Hammúrabís við fram- hjáhaldi. Nú vill svo til að sem (vonandi) fyrrverandi reykfíkill þá veit ég það nokkuð gjörla að reykurinn er fíkn svona rétt eins og áfengisfíkn og fíkniefnaneysla. Það að banna fíkn- ina er eins og að banna lömuðum manni að vera lamaður. Hvað er þá til lausnar? Við gæt- um meðhöndlað reykfíklana eins og við meðhöndlum byttur og fíkn- iefnahausa. Sett þá í meðferð aftur og aftur og aftur og . . . Líklega myndi nú samfélagið tæplega telja fjármunum sínum vel varið í það. Hæpið er að bæta þeim kostnaði of- Magnús Þorkelsson Félagsráðgjöf - hvað er nú það? Ella Kristín Karlsdóttir Félagsráðgjöf er ung starfsgrein sem hefur vaxið á þessari öld sem nú er að líða. Ástæða þess að við setjumst niður til að setja þessar línur á blað er sú að við telj- um að margir hafi ólj- ósa mynd af því hvað felst í félagsráðgjöf og hvar félagsráðgjafar starfa. Við teljum nauðsynlegt að varpa skýrara ljósi á þessa starfs- og fræðigrein. Félagsráðgjöf á rætur að rekja til sjálfboðastarfs á síð- ustu öld. Ein ástæða þess að félags- ráðgjöf þróaðist á þeim tíma var hin mikla breyting á samfélaginu. Hlutverk í fjölskyldum, sem áður höfðu verið nokkuð einföld og skýr, fóru að verða fjölbreytilegri og flóknari. Jafnframt eru viðfangsefni fjöl- skyldunnar að öllum líkindum fjöl- breytilegri í dag en áður var og fleiri áhrifavaldar verða nú á vegi okkar. Það er sífellt að verða sjald- gæfara að foreldrai- séu heimavinn- andi. Nú eru ömmurnar gjarnan útivinnandi eins og mæðurnar, feð- urnir og afarnir og því eru tengslin við barnabörnin með öðrum hætti. Þessi þróun leiddi til þess að fjöl- skyldan hefur þurft að koma sér Eyrún Jónatansdóttir Þjónusta an á þann kostnað sem reykingar kalla þegai- yfir samfélagið og munu kosta meira en tekjurnar. En hvað er þá til ráða? Reykingareglugerðin gerir vitaskuld lítið gagn því fólk hættir því miður ekki að stunda tó- baksmökkinn út á hana eina. Enda er málið líklega tvíþætt þegar upp er staðið. Það þarf að fá fólk sem byrjað er að reykja til að hætta og skynja hversu hallærislegt það er. Tæplega gerist það þó með refsing- um eða banni af því tagi sem hér var nefnt. Ástæða þess er sú að annars vegar mun verða erfitt að fá fólk til að klaga vini og samstarfsfólk til reykingaeftirlitsins svo það geti sektað það. Hins vegar að stofnanir munu ekki hafa mannskap til að elt- ast við fíklana. Nógu erfitt er að manna skóla og viðlíka stofnanir samt. Það mætti kannski bjóða það út? Og hver á að kosta þetta? Sem stendur horfa framhaldsskólar t.d. upp á það að menn fara að þrasa um hvar lóðarmörk liggi og traðka á rósum og blómabeðum nágrann- anna til að finna sér landamörk fyr- ir fíkn sína á miðjum skóladegi. Hvers vegna kanínur og refir? Stóra málið er þó að stöðva eftir- spurnina. Það er nefnilega svo að þar sem er eftirspum þar er fram- boð. Þess vegna er áfengis-, fíkn- iefna- og tóbakssala blómleg hér á landi og án efa vændi líka þó stund- um sé því pakkað inn í listdans. En það er einmitt þarna sem grípa þarf inn í. Það þarf að sjá til þess að það sé engin kanína fyrir refínn að elt- ast við. Ef það væri hægt þá myndi draga úr útbreiðslu tóbaksvandans og það snarlega. Þangað til er efalít- ið miklu einfaldara að læsa reyking- arfíklana inni í þar til gerðum klef- um og hafa góða loftræstingu með reyksíu þar við. Það að sekta stór- lega leiðir til þess að fíklarnir fara neðanjarðar með starfsemi sína og/ eða að engum heilvita manni dettur í hug að eltast við slíkt sem einungis kallar á upplausn og óvináttu á vinnustað. Það að hækka verðið þýðir í okkar lítt löghlýðna landi að eftirspurnin fer á svartan markað og smygl stóreykst. Það er vandlifað í veröld. En maður bannar ekki vandamálin. Maður leysir þau . . . Höfundur er kennari. Félagsráðgjafar veita þjónustu, segja Elia Kristín Karlsdóttir og Eyrún Jónatansdóttir, sem einfaldar daglegt líf og bætir samskipti í fjöl- skyldu. upp nýjum leiðum til að sinna verk- efnum sínum. Mörg hlutverk sem fjölskyldan sinnti áður hafa að einhverju leyti flust til stofnana og hafa því fag- menn á ólíkum sviðum tekið við þeim. Samhliða þessum þjóðfélags- breytingum hefur félagsráðgjöfin verið að vaxa og eflast. I þjóðfélaginu í dag er hjá mörg- um erfitt að komast yfir að gera allt sem þarf að gera og því er mikil- vægt að nýta sér alla þá þjónustu sem hægt er að fá til að einfalda sér hlutina. Félagsráðgjafar geta veitt þjónustu sem byggist á því að ein- falda daglegt líf og bæta samskipti í fjölskyldum og stuðla þannig að aukinni vellíðan í þjóðfélaginu. Félagsráðgjafar veita einstakl- ingum og fjölskyldum sem eiga í fé- lags- og tilfinningalegum erfiðleik- um stuðning með ráðgjöf og með- ferð, svo sem vegna veikinda, fjárhagserfiðleika, dauðsfalla, of- beldis og skilnaða. Félagsráðgjafar hafa heildarsýn yfir félagsleg úr- ræði í samfélaginu, veita upplýsing- ar, leiðbeina og aðstoða almenning við leita réttar síns, svo sem vegna atvinnu- og húsnæðismála. Félagsráðgjafar beita sér einnig fyrir eflingu félagslegra úrræða. Éélagsráðgjöf er starfsgrein sem byggist á virðingu fyrir mikilvægi og reisn hverrar manneskju, án til- lits til uppruna, starfs, aldurs, kyns eða litarháttar. Félagsráðgjafar eru bundnir trúnaði varðandi allar upplýsingar um málefni einstakl- inga er til þeiraa leita. Starfsheitið félagsráðgjafi er lögverndað. Þeir einir mega kallað sig félagsráðgjafa sem hafa starfsleyfi frá heilbrigðis- ráðheraa. Félagsráðgjafar starfa á ýmsum stöðum í þjóðfélaginu. Þar má með- al annars nefna Félagsþjónustu sveitarfélaga, á sjúkrahúsum, hjá Tryggingastofnun ríkisins, við heilsugæslu, í skólum, í ráðuneyt- um, á einkafyrirtækjum og hjá fé- lagasamtökum. Við teljum að víðar þurfi að bjóða þjónustu félagsráðgjafa en nú er. T.d. í skólum, þar sem mikið af erf- iðleikum sem börn eru að glíma við eru félagslegs eðlis. Einnig geta fé- lagsráðgjafar veitt mikilvæga að- stoð í tengslum við skilnaði, þar sem mikilvægt er að koma á fót skilnaðarráðgjöf, til að tryggja sem besta úrvinnslu í skilnaðarmálum. Af ofangreindu er ljóst að félags- ráðgöf er fyrir alla og mikilvægt er að leita sér aðstoðar í tíma ef þörf krefur. Höfundar eru félagsráðgjafar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.