Morgunblaðið - 21.10.1999, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 21.10.1999, Blaðsíða 66
66 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MYNDBÖND - Vændi eða hjónaband Hennar eigin örlög (A Destiny of Her Own) U r a m a ★★ Leikstjóri: Marshall Herskovitz. Handrit: Jeannine Dominy. Byggt á skáldsögu Margaret Rosenthal. Aðal- hlutverk: Catherine McCormack, Rufus Sewell og Jacqueline Bisset. (107 mín) Bandarísk. Skífan, 1999. Öllum leyfð. HENNAR eigin örlög lýsir karl- rembusamfélagi í Feneyjum á sextándu öld, þar sem heiðvirðar konur gátu valið milli þess að verða ráðstafað af föður sínum í hjónaband sem gerði þær að eign eigin- mannsins eða að verða vændis- konur. Sú staða gaf konum ákveðið frelsi, þær urðu fjárhags- | lega sjálfstæðar og fengu tækifæri til að láta ljós sitt skína á samfé- lagsvettvangi sem helgaður var karlmönnum en voru um leið út- skúfaðar. Þetta eru örlög Veróníku Frankó, söguhetju myndarinnar sem velur stöðu vændiskonunnar fremur en hinnar nauðbeygðu eig- inkonu. Unnið er með þversagnir þessa samfélagkerfís á skemmti- legan hátt í myndinni, sérstaklega í glaðlyndislegu og uppbyggilegu at- - > riði sem sýnir undirbúning Veróníku undir vændiskonuhlut- verkið. Umgerð myndarinnar tek- ur þó efninu fram, en þar er á ferð sérlega vönduð endursköpun á hinu íburðarmikla Feneyjasamfé- lagi. Heiða Jóhannsdóttir Einmana sál Velkomin í dúkkuhúsið (Welcome to the Dollhouse)_ Drama ★★★ Framleiðandi, leikstjóri og handrits- höfundur: Todd Solondz. Aðalhlut- verk: Heather Matarazzo, Daria Kal- inina og Brendan Sexton Jr. (89 mín.) Bandarisk. Háskólabio, 1999. Bönnuð innan 12 ára. LEIKSTJÓRINN og handrits- höfundurinn Todd Solondz vakti talsverða athygli hér á landi með myndinni „Happiness" sem sýnd var á síðustu kvik- myndahátíð. Sú gráglettna sýn á veruleikann sem þar birtist er ekki síður áber- andi í Velkomin í dúkkuhúsið, sem Solondz hlaut dómnefndarverlaun fyrir á Sundance-kvikmyndahátið- inni árið 1996. Þar segir fra Dawn Wiener sem er um það bil að sigla inn í kyn- þroskaskeiðið. Dawn hefur útlitið ekki með sér og er ekki aðeins lögð í einelti af skólafélögum sínum heldur einnig af sinni eigin fjöl- ^ skyldu. Myndin lýsir hinni kvala- fullu tilveru stúlkunnar með sposku og súrrealísku ívafi án þess að reyna að fegra aðstæður á nokkurn hátt. Utkoman verður bæði forvitnileg og átakanleg end- urspeglun á grimmúðuglegu einelti og einmanaleika í lífi ung- lingstúlku. FÓLK í FRÉTTUM Morgunblaðið/Kristinn Kara og Jón Pétur stofnuðu dansskólann fyrir tíu árum og halda upp á það á laugardaginn í Laugardalshöllinni. JÓN PÉTUR Úlfljótsson og Kara Amgrímsdóttir fagna um þessar mundir tíu ára af- mæii dansskóla síns og af því tilefni verður haldin vegleg danshá- tíð í Laugardalshöllinni næstkom- andi laugardag. Hátíðin verður ein sú metnaðarfyllsta og glæsilegasta sem haldin hefur verið hériendis að sögn Jóns Péturs og mun m.a. eitt frægasta og eftirsóttasta danspar heims, þau Marcus og Karen Hilton, sem eru margfaldir heims- meistarar frá Englandi, sýna dans. „Sýningin verður gerð eins mikið fyrir augað og hægt er og við mun- um reyna að sýna alla þá breidd sem er í dansinum," segir Jón Pét- ur. „Börn frá fjögurra ára aldri, unglingar og fullorðnir munu sýna og keppa og má búast við að sterk- ustu danspör landsins taki sporið." Keppnin er opin öllum sem vilja taka þátt í henni og eldri borgurum, 67 ára og eldri, er boðið ókeypis á hátíðina sem verður sjónvarpað í beinni útsendingu frá 17-19:30 á sjónvarpsstöðinni Sýn. Jákvæðari viðhorf I dansskólanum æfir stór hópur fólks á öllum aldri dans og eru hinir almennu iðkendur fjölmennastir. Dansskólinn einskorðar sig ekki við höfuðborgarsvæðið heldur fara kennarar á hans vegum út á land og halda námskeið sem eru iðulega vel sótt. Þegar Jón Pétur lítur yfir síðast- liðinn áratug telur hann margt hafa breyst til batnaðar sem snýr að dansíþróttinni. „Viðhorf til dansins er almennt orðið jákvæðara í dag. Fullorðið fólk er farið að æfa dans að staðaldri sem afþreyingu og gam- an er að sjá að hjón og pör eru farin að stunda þetta saman í meira mæli en áður.“ Hann segir það algengt að fullorðnir séu að koma á námskeið og læra dans í íyrsta skipti á ævinni. Islenskir dansarar hafa náð góð- um árangri í keppnum erlendis og að sögn Jóns Péturs hafa íslendingar á undanfömum árum oftast komist í undanúrslit eða úrslit í þeim keppn- um sem þeir hafa tekið þátt í. Þessi frábæri árangur hefur mjög jákvæð áhrif og gerir dansinn sýnilegri. Dans er líka fyrir stráka Dansinn byggist upp á þátttöku beggja kynja og það er af sem áður var að strákum finnist hallærislegt að dansa við dömu. „Það heyrist Dansinn eykur þrek og þor Jóns Péturs og Köru Dansinn mun duna í Laugardalshöllinni á laugardaginn og jafnvel einnig í stofum lands- manna því danshátíð Dansskóla Jóns Pét- urs og Köru verður sýnd í beinni út- sendingu á Sýn. Sunna Osk Loga- dóttir ræddi við Jón Pétur um dansíþróttina og gildi hennar fyrir iðkendur á öllum aldri. Ililmir Jensson og Ragnheiður Eiríksdóttir æfa dans í Dans- skóla Jóns Péturs og Köru og hafa náð frábærum árangri. inn góður grunnur sem hægt verður að byggja á í framtíðinni." Dansinn er viðurkennd íþrótt inn- an Iþróttasambands Islands sem Jón Pétur telur hafa sitt að segja um þá viðhorfsbreytingu sem átt hefur sér stað í samfélaginu undanfarin ár. „Dansinn getur hjálpað okkur á margan hátt. Hvort sem fólk stund- ar hann til að keppa eða ekki þá veitir hann iðkendum aukinn styrk. Líkt og í leiklist og söng þurfa dans- orðið sjaldnar að dans sé ekki fyrir stráka," segir Jón Pétur. „En það er eins með dansinn og allt sem fólk þekkir ekki, það hræðist það og jafnvel hæðist að því.“ Enn sem komið er stunda fleiri stúlkur en drengir dans og sérstak- lega fer að fækka í hópi drengja eft- ir tíu ára aldurinn. Dansinn er kom- inn inn í aðalnámskrá grunnskól- anna og vonast Jón Pétur til að það hafi í för með sér aukna kynningu á dansinum sem síðar skili sér inn í dansskólana með auknum fjölda drengja og virðingu fyrir dansí- þróttinni. „Næstu fimm árin verða þreifingar í skólunum með dans- kennslu og hún mun mótast og þró- ast. En eftir það ætti að vera kom- arar að koma fram og þannig hjálp- ar hann fólki að losna við feimni og eykur því sjálfstraust. Krakkar læra að bera virðingu hvert íyrir öðru og hinu kyninu. Að dansa snýst fyrst og fremst um að hafa gaman af því, fá útrás, og líða vel.“ Dansinn veitir ákveðið aðhald og aga sem er fljótt að skila sér til barnanna sem hann stunda. „Þau pör sem eru komin á toppinn í dag hafa mörg hver byrjað að dansa mjög ung. Það er þó mjög einstak- lingsbundið og þeir sem byija síðar geta einnig náð góðum árangri, það fer mikið eftir því hversu mikla hreyfingu þau fengu áður.“ Taktur lifsins Takturinn er órjúfanlegur hluti af lífinu. Fólk talar, gengur, skrifar og les í takt að ónefndu hjartanu og líkamsstarfseminni allri. „I öllu sem við erum að gera er að finna takt. Böm sem eru misþroska þurfa oft þjálfun í að koma öllu í takt til að auðvelda þeim að samhæfa hreyfingar. Það er ekki spuming að hreyfiþroski bama hefur góð áhrif á bóklegt nám og þau böm sem eru í dansi eða stunda aðra holla hreyf- ingu búa vel að því til lengri tíma.“ En skyldu allir geta lært að dansa? Jón Pétur svarar því óhik- andi. „Já, það er ég sannfærður um. Það er eins með dansinn og margt annað að fólk er misjafnlega lengi að læra. Ég hef aldrei fengið neinn nemanda sem ekki hefur getað lært að dansa, sumir ná því strax en aðrir þurfa langan tíma. Sumir segja sig vera taktlausa og þá er nauðsynlegt að fara í gegnum tónlistina með þeim til að þau finni taktinn því fólk hefur misjafnt tóneyra. Samhæfing er lyk- ilatriði í dansi og jafnvel þegar fólk er orðið fullorðið fer ekki alltaf sam- an það sem það heyrir og það sem það gerir. En það geta allir lært að dansa, það sem þarf er að finna sinn eigin hraða og viðurkenna hann.“ Afmælishátíðin hefur verið í und- irbúningi um nokkurt skeið og er mikil tilhlökkun í herbúðum Dans- skóla Jóns Péturs og Köra. „Okkur er sérstaklega kært að geta boðið eldri borgumm, 67 ára og eldri, á hátíðina," segir Jón Pétur. „Við vit- um að þetta er fólk sem hefur sér- staklega gaman af því að dansa og horfa á dans en auðvitað em allir velkomnir og við vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta og upp- lifa þetta með okkur.“ Harding aft- ur á svellið SKAUTADROTTNINGIN Tonya Harding féll í ónáð þegar hún stóð á bakvið hrottalega árás á keppinaut sinn Nancy Kerrigan fyrir vetrarólympíuleikana í Noregi árið 1994. Þótt henni hafi þá orðið hált á sveilinu er hún mætt til leiks aftur og stóð sig prýðilega í keppni í Huntington í Bandaríkjunum á dögunum. Hún féll í fyrri umferðinni og var í fjórða sæti en eftir góða frammi- stöðu í seinni umferð hafnaði hún í öðru sæti. Rokkari í bíó GÍTARLEIKARINN síungi Keith Richards úr Rolling Stones mætti með eiginkonu sinni Patty Hanson á heims- frumsýningu „Bringing Out the Dead“ í Ziegfeld kvik- myndahúsinu í New York. í aðalhlutvcrkum myndarinn- ar eru Nicolas Cage, Pat- ricia Arquette og Ving Rhames og má búast við að myndin láti að sér kveða á aðsóknarlistum vestanhafs eftir helgi. Heiða Jóhannsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.