Morgunblaðið - 21.10.1999, Blaðsíða 54
^54 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Yndisleg eiginkona mín, móöir okkar, tengda-
móðir og amma,
HULDA GUÐRÚN GUÐRÁÐSDÓTTIR,
Ásgarði 77,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 22. október kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á
Minningarsjóð hjúkrunarþjónustunnar Karitas, sími 551 5606.
Garðar Sigurðsson,
Rannveig Lilja Garðarsdóttir, Valgeir Ásgeirsson,
Sigurður Garðarsson, Ingveldur Magga Aðalsteinsdóttir,
Þórey Garðarsdóttir, Hjörtur Blöndal
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
vináttu og hlýhug við andlát og útför okkar ást-
kaeru móður, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
UNNAR FJÓLU JÓHANNESDÓTTUR,
Framnesvegi 63,
Reykjavík.
Þorgeir Þorsteinson, Tanja Þorsteinsson,
Jóhannes Þorsteinsson, Anabela Martins Pereira,
Oddfríður Halla Þorsteinsdóttir, Christopher Evans,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
ÁSTRÓSAR FRIÐBJARNARDÓTTUR,
Hraunprýði,
Hellissandi.
Sveinbjörn Benediktsson,
Óttar Sveinbjörnsson, Guðlaug íris Tryggvadóttir,
Friðbjörn Jón Sveinbjörnsson, Erla Benediktsdóttir,
Benedikt Bjarni Sveinbjörnsson,
Eggert Þór Sveinbjörnsson, Soffía Dagmar Þórarinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka
svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper-
fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á
netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem
viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
KRISTÍN STURL UDÓTTIR
+ Kristín Sturlu-
dóttir fæddist í
Fljótshólum í Gaul-
verjabæjarhreppi 6.
október 1928. Hún
lést á heimili sínu 1
Reykjavík 2. októ-
ber siðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Laugar-
neskirkju 8. októ-
ber.
Látin er æskuvinkona
mín, Kristín Sturludóttir
frá Fljótshólum í Gaul-
verjabæjarhreppi. Kynni okkar Krist-
ínar hófust árið 1939, þegar foreldrar
mínir, Kristín og Sighvatur, ásamt
okkur átta systkinunum fluttust að
Ragnheiðarstöðum sem er næsti bær
við Fljótshóla. Fljótlega kom í ljós að
á þessum bæjum voru álíka stórir
bamahópar og ekki var verra að öll-
um þótti gaman að syngja.
A þessum árum fór bamakennsla
fram á þremur stöðum í sveitinni.
Einn þessara staða voru
Fljótshólar og var kennt
á heimili foreldra Krist-
ínar, Sturlu og Sigríðar.
Gengum við yngri systk-
inin þangað í skóla og
lenti ég í bekk með
Kristínu. Þessi ár em
mér ógleymanleg, Guð-
mundur Frímannsson
kennari kenndi okkur
allt sem við þurftum að
læra, t.d. fór hann út á
tún með okkur og lét
okkur teikna íjöllin o.fl.
Mikið var gaman þegar
hann tók fiðluna upp og
lét okkur syngja. Arangur þess varð
stúlknakór sem við skírðum
Engjarósir. I kómum vomm við syst-
umai', ég, Ester og Bjamey Sighvats-
dætur, Kristín og Guðrún Sturludæt-
ur ásamt Jónu Sigríði Tómasdóttur
frá Fljótshólum vestri.
Á þessum tíma stofnaði Guðlaug
Narfadóttir bamastúku og vom
haldnir fundir og skemmtanir í sveit-
inni. Vomm við þá oft beðnar að
syngja. Þá spilaði Guðmundur iðulega
á fiðluna eða ég á gítarinn.
Löngu eftir að við Engjarósimar
eignuðumst börn og bú, vorum við
fengnar til að syngja á stórafmæli
kvenfélags Gaulverjabæjarhrepps.
Var yndislegt að rifja upp skemmti-
legu lögin sem við sungum sem börn
og unglingar.
Mikið var gengið á milli bæja, t.d. á
jólum og um áramót. Þá skiptust fjöl-
skyldur okkar Kristínar á að heim-
sækja hvor aðra. Sturla spilaði á org-
elið og það var sungið og dansað fram
eftir nóttu. Allir aldurshópar tóku
þátt í því.
I huga mínum em þessar
bemskuminningar tengdar Kristínu
Sturludóttur ásamt foreldrum hennar
og systkinum ljúfar. Við vomm bjart-
sýn og fannst sólin skína alia daga.
Eg þakka Kristínu fyrir ógleyman-
lega samvem í söng og starfi á
bemsku- og unglingsámm okkar.
Eiginmanni hennar, Gunnari Svan-
berg, og bömum þeirra votta ég sam-
úðmína.
Margrét Sighvatsdóttir.
SIGURLAUG DAVÍÐSDÓTTIR
+ Signrlaug Davíðsdóttir
fæddist á Hvammstanga 31.
október 1906. Hún Iést á Hrafn-
istu í Reykjavík 12. október síð-
astliðinn og fór útför hennar
fram frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík 18. október.
Kynni mín og elskulegrar tengda-
móður minnar hófust um það bil sem
ég og dóttir hennar Þórdís fómm að
draga okkur saman, og hafa sam-
skipti okkar alla tíð verið ánægjuleg
og lærdómsrík.
Sigurlaug var sterk og vel greind
kona sem hafði góða kímnigáfu. Hún
var hafsjór af skemmtilegum sögum
og hafði sannarlega lifað tímana
tvenna og oft við kröpp kjör með
stóra fjölskyldu.
Hún var mikill verkalýðssinni og
þekkti vel til þeirrar baráttu sem
verkafólk þurfti að heyja til þess að
bæta afkomu sína og komast af. Sú
þekking mótaði mjög ákveðnar skoð-
anir hennar um á hvern máta mætti
jafna lífskjör og auka velferð í land-
inu.
Ekki fóru skoðanir okkar alltaf
saman en ekki var hægt annað en að
dást að krafti og eldmóði þessarar
konu sem hafði frá unga aldri unnið
hörðum höndum við að sjá sér og
sínum farborða og lagði nótt við dag
við að bjarga verðmætum við land-
burði af demantssíld þegar vel
veiddist fyrir norðan.
Viðbrugðið var hversu fljót og
vandvirk hún var við síldarsöltun og
gilti þá einu hvort um var að ræða
fyrsta eða þriðja sólarhring við sölt-
unarborðin.
Við upprifjun þessa tíma var gam-
an að vera hlustandi og reyna að
skilja við hvers konar aðbúnað og
kjör fólk bjó á fyrri hluta aldarinnar.
Eftir að Sigurlaug flutti heimili sitt
til Reykjavíkur ásamt manni sínum
Jóni Þorkelssyni síldarmatsmanni
var enn unnið hörðum höndum og nú
við afgreiðslu- og veitingastörf,
lengst af við veitingarekstur Silla &
Valda. Með mikilli eljusemi eignaðist
fjölskyldan íbúð á Miklubraut 80 þar
sem Sigurlaug bjó meðan hún hafði
heilsu til.
Frá 1992 bjó hún á Hrafnistu í
Reykjavík, lengst af í einbýli, en síð-
ustu árin naut hún umönnunar
hjúkrunarfólks Hrafnistu og eru
stjórn og starfsmönnum þessa ágæta
dvalarheimilis færðar þakkir fyrir
umhyggju og umönnun Sigurlaugar
til hinstu stundar.
Sigurlaug Davíðsdóttir var höfð-
ingi heim að sækja og kunni vel að
taka á móti gestum sínum. Hún var
viðræðugóð og skemmtileg. Hún
virti skoðanir annarra þó ekki léti
hún sinn hlut.
Við leiðarlok er henni þökkuð
samfylgdin, traustið og stuðningur-
inn. Það er ómetanlegur lærdómur
að hafa fengið að kynnast lífsreynslu
og viðhorfum þessarar merku konu.
Dætrum hennai' og fjölskyldum
þeirra er vottuð samúð. Blessuð veri
minning Sigurlaugar Davíðsdóttur.
Haukur Hjaltason.
+ Hjartkæri sonur minn, am
ÖRVAR PÁLMI PÁLMASON, fc e
sem lést á heimili sínu, Grenihlið 17, Sauðár- i íjs ff -
króki föstudaginn 15. októbersl., verður jarð-
sunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn A /L
23. október kl. 14.00. f X
Fyrir hönd allra aðstandenda, \\ | p
Svala Jónsdóttir.
ATVINNUAUGLÝSINGAR
Utkeyrsla
Morgunblaðið óskar eftir að ráða
starfsmann í útkeyrslu og dreifingu á
morgnana.
Unnið er frá kl. 6 til 11 þriðjudaga til
laugardaga auk tilfallandi
aukavinnu.
Viðkomandi þarf að vera stundvís,
röskur og þjónustulipur og þarf að
vera á eigin bíl.
| Umsóknum skal skila til afgreiðslu
► Morgunblaðsins, Kringlunni 1, 1. hæð,
á umsóknareyðublöðum sem þar fást,
fyrir 27. október nk.
Nánari upplýsingar um starfið gefur
Elísabet Bjarnadóttir í síma 569 1122.
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru i Kringlunni 1 í Reykjavik þar sem eru yfir
300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Sportvöru- og
reiðhjólaverslun
Afgreidsla. Óskum eftir að ráða duglegan
og hressan starfsmann til afgreiðslu í verslun
okkar. Umsækjandi þarf að hafa áhuga á reið-
hjólum, skíðum og öðrum sportvörum.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf
sem fyrst. Góð laun eru í boði fyrir góða starfs-
menn. Umsóknareyðublöð liggja frammi
í verslun okkar að Armúla 40. .
Iferslunin T
/VMRKK)
Smiðir — verkamenn
Okkur vantar smiði og verkamenn í ýmiss verk-
efni, bæði inni og úti. Vinnustaður er Borga-
og Staðahverfi í Grafarvogi.
Upplýsingar í síma 861 6797 eða 861 3797.
TSH byggingaverktakar.
Tollskýrslugerð
— birgðaumsjón
Starfsmann vantar í innflutningsfyrirtæki í
Reykjavík til að sjá um tollskýrslugerð og um-
sjón birgðakerfis í Navision Financials tölvu-
kerfi. Vinnutími er frá kl. 8:30 til 17:00 mánu-
daga til fimmtudaga, og 8:30 til 14:00 á föstu-
dögum. Um er að ræða framtíðarstarf og við-
komandi þarf að geta byrjað fljótlega.
Áhugasamir sendi upplýsingar til afgreiðslu
Mbl., merktar: „IS — 01", fyrir 28. okt. nk.
Konditor — bakari
Starfsmenn óskast sem fyrst til starfa í bakaríi
Café Konditorí Copenhagen.
★ Bakari.
★ Aðstoðarmaður bakara.
Upplýsingar gefur Þormar í síma 899 7973.
Sölumanneskja
Starfskraft vantar í nýja verslun í Kringlunni.
Um er að ræða hálfsdags- eða heilsdagsstarf.
Helst vön sölumanneskja.
Upplýsingar sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
mánudaginn 25. október merktar: „V — 8858".