Morgunblaðið - 21.10.1999, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
______________________________FRETTIR_____________________________
Sendiráð Norðurlandanna fímm voru vigð við hátíðlega athöfn í Berlín f gær
Þjóðhöfðingjar allra Norðurlandanna voru viðstaddir vigsluna í gær.
Nordfoto
„Norðurlöndin hafa gefíð
Berlín mjög sérstaka gjöf ‘
Jóhannes Rau, forseti Þýskalands, var meðal gesta.
Vígsla sendiráða Norð-
urlandanna og sameig-
inlegrar byggingar
þeirra fór fram í Berlín
í gær og sagði borgar-
stjórinn að Berlínarbú-
um hefði verið færð
mjög sérstök gjöf.
Karl Blöndal fylgdist
með athöfninni.
SENDIRÁÐ Norðurland-
anna í Berlín voru opnuð
með viðhöfn í gær og var í
ávörpum lögð áhersla á að í
samstarfi Norðurlandanna færi
saman eining um leið og fjölbreytni
fengi að blómstra. Sagði Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Islands, í
ávarpi, sem hann flutti við athöfn-
ina, að saman gætu Norðurlöndin
haft mikil áhrif á það hvort Evrópa
myndi „loksins, loksins verða staður
órofins friðar og velsældar, lýðræð-
is og mannréttinda".
Forsetinn sagði að nýju sendi-
ráðsbyggingarnar væru helgaðar
þessum hugsjónum og þessum mál-
stað yrðu allir kraftar okkar helgað-
ir. Ólafur Ragnar rakti í ræðu sinni,
sem hann flutti á þýsku, að saman
lékju Norðurlöndin mikilvægt hlut-
verk í hinni nýju Evrópu.
„Okkar nána samvinna, sem hef-
ur slípast og agast víð áratuga
reynslu, sem og sérstaða hvers ein-
staks lands, skapar flókið mynstur
samveru og möguleika til einhuga
samvinnu,“ sagði hann. „Það er
táknrænt fyrir stöðu Norðurland-
anna að á þessari stundu, þegar við
vígjum sameiginlegan áhrifastað
okkar í höfuðborg Þýskalands, eru
þrjú landanna í forsæti í mikilvæg-
ustu stofnunum álfunnar; í Evrópu-
sambandinu, Evrópuráðinu og
Öryggis- og samvinnustofnun Evr-
ópu.“
Athöfnin fór fram í tjaldi fyrir
framan sendiráðin fimm og sameig-
inlegu bygginguna, sem standa á
áberandi stað í hverfinu Tiergarten,
á sömu slóðum og verið er að vinna
við um 60 sendiráð til viðbótar. Þeg-
ar forseti íslands hafði lokið máli
sínu var dregið frá stórt tjaldi og
blöstu þá við sendiráðin fimm, sem
mynda V líkt og fimm svanir á flugi,
svo vitnað sé í orð forseta, sem
sagði að það væri til marks um ár-
angurinn af samvinnu Norðurland-
anna.
Næstur tók til máls Eberhard Di-
epgen, borgarstjóri Berlínar, og
sagði hann að opnun sendiráðanna
væri stór áfangi á þeirri leið, sem
Berlín hefði lagt í fyrir nokkrum ár-
um frá því að vera klofin borg í
hjarta Evrópu til þess að verða höf-
uðborg sameinaðs Þýskalands:
„Þessi ákvörðun víkkar sjóndeildar-
hringinn og leyfir gömlum sam-
skiptum að blómstra á ný.“
Diepgen benti á framlag Norður-
landa til menningarmála og stjórn-
mála og nefndi þar Olof Palme,
fyrrverandi forsætisráðherra Sví-
þjóðar, „merkið frá Reykjavík",
Helsinki-sáttmálann og friðarsátt-
málann í Mið-Austurlöndum, sem
tengdust afgerandi áhrifum á al-
þjóðastjómmál.
Fimm stoltar byggingar
„Ef litið er á sendiráð sem nafn-
spjöld ríkja sinna hafa Norðurlönd-
in gefið Berlín mjög sérstaka gjöf,“
sagði Diepgen um nýju sendiráðin.
„Aldrei í diplómatasögunni hafa
fimm þjóðir samþykkt að reisa sam-
eiginlega sendiráð á erlendri
grundu. Fimm stoltar sendiráðs-
byggingar og sameiginleg bygging
umluktar koparhring undirstrika
hvemig Norðurlöndin eru tákn fyr-
ir bæði einingu og fjölbreytni." Jo-
hannes Rau, forseti Þýskalands,
sagði í ræðu sinni að hér væri á
ferðinni þýsk-norræn framsýning,
sem yrði sögufræg, en þó væri ekk-
ert þvingað við hana: „Þjóðhöfðingj-
ar Danmerkur, Finnlands, Islands,
Noregs og Sviþjóðar og forseti
Þýskalands hittast til að vera við
opnunarathöfn í Berlín - þetta hlýt-
ur að vera fullkomið dæmi um hin
nánu og opnu samskipti landa okkar
í breyttri Evrópu.“ Hann sagði að í
Berlín kæmu nú saman menningar-
heimar austurs og vesturs og Berlín
gæti nú orðið til vitnis um allt hið
nýja líkt og fyrir einni öld: „Hér
renna saman nýjar hugmyndir og
hægt er að prófa þær. Sendiráð
ykkar sýna þetta með tvennum
hætti: með hinum nútímalega arki-
tektúr og sjálfri hugmyndinni um
sameiginlegar byggingar fyrir
sendiráð fimm sjálfstæðra ríkja,
sem einnig eru í svæðisbundnum
samtökum."
Hann lofaði samskipti Þýska-
lands og Norðurlandanna, sem ekki
kæmi aðeins fram í tvíhliða sam-
skiptum heldur einnig sameiginleg-
um pólitískum viðhorfum í sam-
starfi á alþjóðlegum vettvangi.
Minnti á valdatima
nasista
Margrét Danadrottning talaði
síðust og lagði áherslu á menning-
artengslin milli Norðurlandanna og
Þýskalands, sem færðust nú mjög í
aukana líkt og fyrir einni öld: „Nú
streyma ungir norrænir myndlist-
armenn, kvikmyndagerðarmenn og
rithöfundar aftur til Berlínai' til að
drekka í sig allt sem hér er að ger-
ast. Nýir norrænir höfundar eru
lesnir á ný í Þýskalandi." Líkti hún
innrás norrænna listamanna við
aksturslag finnsku kappaksturs-
hetjunnar Mikas Hakkinens.
„Samskiptin við Þýskaland -
jafnt efnahagsleg sem pólitísk -
hafa alltaf leikið afgerandi hlutverk
fyrir Norðurlönd, til ills og til góðs,“
sagði hún. „Þýskaland hefur alltaf
verið granni, jafnt þegar landið hef-
ur verið vinveitt og fjandsamlegt í
þeirri fjölþættu mynd sem nokkur
hundruð ára sameiginleg saga skil-
ur eftir sig.“
Hún sagði að atburðirnir 1933 til
1945 - valdatími nasista - myndi
alltaf verða hluti þessarar sameigin-
legu sögu: „Þeim tíma gleymum við
ekki og það er ein ástæðan fyrir því
að Norðurlöndin hafa alla tíð síðan
fylgst af athygli og innlifun með
þróuninni í Þýskalandi nútímans."
Josehka Fischer sagði þegar hann
var spurður um ummæli Dana-
drottningar á blaðamannafundi í
gær að þetta ætti ekki aðeins við
um Norðurlöndin, heldur öll grann-
ríki Þýskalands. „Hér í Berlín er
ekki hægt að gleyma þýskri sögu og
þá sérstaklega tólf ára einræðis-
stjóm nasista. Því get ég að þessu
leyti aðeins tekið undir orð hennar.“
I athöfninni lék kammerhljóm-
sveit, skipuð hljóðfæraleikurum í
hljómsveitinni Orkester Norden,
verk eftir Sunleif Rasmussen, Ed-
vard Grieg, Poul Schierbeek og Dag
Wirén undir stjórn Ole-Henriks
Dahls. Þegar athöfninni lauk voru
fánar Norðurlandanna dregnir að
húni. íslenska fánann drógu upp
tveir íslenskir unglingar, sem búa í
Berlín, þau Anna Lilja Edelstein og
Amór Oskarsson. Þjóðhöfðingjamir
nutu síðan leiðsagnar um sendiráð-
in, bæði sameiginlegu bygginguna
og síðan skoðaði hver þjóðhöfðingi
byggingu síns lands.
Sterk tilkynning
frá Norðurlöndum
„Þessi atburður er mjög sterk til-
kynning frá Norðurlöndum, ekki
aðeins til Þýskalands heldur Evr-
ópu allrar um að þau ætli sér sam-
eiginlega að hafa áhrif á mótun
Evrópu á nýrri öld,“ sagði Ólafur
Ragnar er hann hafði skoðað húsið í
gær. „Það var mikið um það rætt
fyrir tíu áram eða svo að Evrópu-
þróunin myndi sundra Norðurlönd-
um, en hér komum við saman til
leiks í Berlín, hinni nýju höfuðborg
Þýskalands, með slíkum glæsibrag
og krafti að það vekur athygli ekki
aðeins hér í Þýskalandi, heldur víð-
ar í Evrópu.“
Forsetinn sagði að það væri í
raun merkilegur atburður í heimin-
um að fimm lönd skyldu sameigin-
lega búa til verkstöð og segja þar
með að sameiginlegir hagsmunir á
nýrri öld væru svo miklir að það
væri talið til hagsbóta að eiga sam-
leið. Þá væri honum ljóst eftir við-
ræður hér í Þýskalandi að Þjóð-
verjum þætti þetta stórviðburður.
Hann sagði að einnig væri
ánægjulegt fyrir íslendinga hvað
vel hefði tekist til og húsið væri
glæsilegt. „Islenska sendiráðið er
jafnframt tilkynning um að íslensk
byggingarlist, íslensk hönnun og ís-
lensk myndlist er í fremstu röð nú-
tímaverka,“ sagði hann. „Hvernig
hér hefur verið sótt líparít til að
klæða húsið, sem ekki hefur verið
gert áður, og síðan gamla báru-
járnsformið fest hér inn í stein er
líka mjög öflug tilkynning um ís-
lenska list í upphafi nýrrar aldar.“
Dagurinn hófst á því að forsetinn
og utanríkisráðherra sátu morgun-
verðarfund þar sem boðið hafði ver-
ið viðskiptavinum íslenskra fyrir-
tækja í, Þýskalandi. Þar flutti
Bjarni Ármannsson, bankastjóri
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins,
tölu um íslensk efnahagsmál og
lagði út af orðum Halldórs Laxness
um að það gæti verið dýrt að vera
íslendingur, en það gæti verið dýr-
keypt að fjárfesta ekki í Islandi.