Morgunblaðið - 21.10.1999, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Foreldrar óánægðir með val
á nýju húsnæði fyrir Tónlistarskólann
Vilja að skólinn
sé áfram á svip-
uðum slóðum
Mosfellsbær
BÆJARYFIRVÖLD í Mos-
fellsbíe hafa undanfama
mánuði stefnt að því að leysa
húsnæðisvanda Tónlistar-
skóla Mosfellsbæjar með því
að flytja starfsemi skólans úr
núverandi húsnæði við Brú-
arland og leigja í staðinn
tvær hæðir við Háholt 14. Jó-
hanna Margrét Thorlacius,
sem á tvo nemendur í skólan-
um, telur að þessi lausn sé af-
ar slæm fyrir foreldra og
nemendur skólans. Hún telur
nauðsynlegt að Tónlistar-
skólinn verði áfram í ná-
grenni við skólana og aðra
starfsemi sem bömin sækja á
daginn. Einnig telur hún að
önnur starfsemi og aðkoma
að Háholti 14 samræmist illa
starfsemi og ímynd tónlistar-
skólans.
Jóhanna telur það afar
brýnt að Tónlistarskólinn sé
staðsettur í dalnum. Hann
eigi að vera nærri skólunum
af þeirri ástæðu að flestir
nemendumir era annað
hvort í grunnskólanum eða
gagnfræðaskólanum, sem
era þarna á sama stað.
„Pað er svo frábært í Mos-
fellsbænum að hafa allt
barnastai'fið nánast á sama
stað í þessum fallega dal.
Þarna er allt sem bömunum
viðkemur; barnaskólinn,
gagnfræðaskólinn, gamla og
nýja íþróttahúsið, þarna er
sundlaugin, skólaselið og fé-
lagsmiðstöðin. Þarna er frá-
bær íþróttavöllur og þarna í
góðu göngufæri er einnig
Tónlistars'kólinn og þangað
er einfaldlega yndislegt að
ganga á fallegum göngustíg,"
segir Jóhanna.
Slæm ímynd
fyrir skólann
Hún leggur á það áherslu
að það skipti gríðarlegu máli
fyrii' foreldra að Tónlistar-
skólinn sé þama á svæðinu.
Tónlistartímar bamanna eru
á misjöfnum tímum dagsins
og ekki alltaf hægt að fara að
óskum nemendanna og for-
eldranna varðandi tímasetn-
ingar. En sökum þess að
Tónlistarskólinn er í dalnum
skapast sá möguleiki að
flétta þessa tíma inn í vinnu-
dag bamanna.
„Það finnst mér alveg rosa-
lega áríðandi. Mörg böm era
í þessum dal átta tíma á dag.
Þau fara með skólabílnum inn
í dalinn og aftur heim. Þau
era aldrei nálægt mikilli um-
ferð og geta gengið í allt á
þessu svæði. Ég hef verið
stolt af því sem Mosfellingur
að bæjaryfirvöld skuli hafa
byggt barnastarfið allt upp á
sama stað. Sérstaklega þar
sem bærinn er í útjaðri höf-
uðborgarsvæðisins, þannig að
margir sem vinna fjarri bæn-
um geta því ekki skotist heim
í hádeginu til að skutla börn-
unum hingað og þangað.“
Þá er Jóhanna ákaflega
ósátt við nýja leiguhúsnæðið
og staðsetningu þess. „Þó svo
að flytja þurfi skólann í eitt-
hvert annað húsnæði, af
hverju í ósköpunum er verið
að velja þetta hús af öllum.
Það er algerlega botninn.
Þetta er dæmigerður sjoppu-
staður. Ég hef ekkert á móti
sjoppunni sem slíkri og fer
Morgunblaðið/Golli
Jóhanna Margrét Thorlacius er óánægð með nýtt framtíðarhúsnæði Tónlistarskólans en
ætlunin er að flytja skólann í Háholt 14. Ætlunin er að skólinn verði á efri hæðum hússins.
oft í hana sjálf, en þetta er
bara sjoppa og einhverra
hluta vegna er hún sam-
komustaður unglinganna í
bænum, sem hanga þama
með þeirri stemmningu sem
því fylgir. Þetta er svo slæm
ímynd fyrir skólann, svo ein-
kennileg blanda. Maður setur
ekki tónlistarskóla á svona
stað,“ segir Jóhanna.
Aðkoman
hættuleg börnum
„Að maður nú tali ekki um
umferðarflækjuna sem þarna
er. Það er svo flókið að kom-
ast þarna yfir. Ég ætlaði
bara ekki að trúa því þegar
þeir tóku gatnakerfið í gegn
að þetta ætti að vera svona,“
segir Jóhanna. Hún segir að
gangbraut liggi yfir götuna,
en það sé ekki hægt að
treysta því að bömin fari
alltaf yfir gangbrautina. Þau
geti jafnvel stmnsað út á
götu, einfaldlega vegna þess
að það er gangbraut.
„Ég er svo gjörsamlega
bit, ég veit ekki nema ég
verði að láta bömin mín
hætta í skólanum. Mér hent-
ar þá betur að hafa þau í tón-
listarskóla í Reykjavík nærri
mínum vinnustað. Ég læt þau
ekki ganga þama yfir. Þeim
hefur hingað til verið harð-
bannað að fara þama yfir og
fara í þessa sjoppu. Þessi
regla hefur alltaf gilt á mínu
heimili og á mörgum heimil-
um. En nú á ég allt í einu að
skikka þau til að fara þama
vísvitandi yfir, kannski sex
sinnum í viku. Þetta er bara
ekki heilbrigð skynsemi,"
segir Jóhanna.
Hún segist vera mjög
ánægð með Tónlistarskólann
og starfið þar og því sé það
gremjulegt ef hugsanlega
eigi að kippa burtu þeim
möguleika að senda börnin í
skólann vegna húsnæðisins.
Þessa dagana er hún að setja
af stað könnun meðal for-
eldra nemenda í skólanum til
að kanna viðhorf þeirra til
þessarar ráðstöfunar.
Íi-
SSlSSl
WmÞ
Wmxzé
byssusmiðju í versluninni. Komdu í NANOQ og fáðu þér rétta útbúnaðinn til að geta
notið þess til fulls að veiða eða stunda aðra útivist í fslenskri náttúru
Vertu til!
SKOTVEIÐI
I veiðideild NANOQ færðu faglega þjónusfu
og mikið úrval af byssum á mjög góðu verðf.
Komdu við og kynntu þér byssusmiðju
NANOQ, úrvalið og verðlð ðður en þú ferð
f veiðina.
NANOQ#
Kringlunni 4-12 ■ www.nanoq.is