Morgunblaðið - 21.10.1999, Page 33
MÖ'RGlWB'L'AÐW7
LÍSTÍR
Bísi & Krimmi
LIST OG
HÖNMJIV
S I Gl! RDUR ÖKN
BKYNJÓLFSSOIV
BÍSI & KRIMMI KOMU ÚT
19.9. 1999
Multiprent. Tallin, Eistlandi. Út-
gefandi höfundur 1999.
TEIKNARANN, myndasöguhöf-
undinn, teiknimyndastjórna-
ndann, gi’afíska hönnuðinn og
myndlistarmanninn Sigurð Örn
Brynjólfsson, eða SÖB, sem hann
hefur valið sér að kennimarki,
þekkja margir hérlendir. Fyrir
marga athafnasemi en þó sér í lagi
myndasögurnar af þeim kumpán-
um Bísa og Krimma og skondnum
uppátækjum þeirra. Hann hefur
haldið níu einkasýningar erlendis
ásamt því að taka þátt í sýningum
í öllum heimsálfunum nema Af-
ríku.
Myndasagan er ung listgrein á
íslandi, einkum sá geiri hennar
sem hefur með ísmeygilega kímni,
fjarstæðukennt skop og mein-
hæðna ádeilu að gera. A því sviði
haslaði SÖB sér snemma völl, var
löngu byrjaður áður en hann lauk
námi við MHI, kennurum sem
samnemendum til óblandinnar
skemmtunar og á stundum einnig
hrellingar. Telst hér frumkvöðull
og stjórnaði fyrstu hérlendu teikn-
ikvikmyndinni, Þrymskviðu, 1980,
er jafnframt frumlegastur og pers-
ónulegastur allra sem hafa fylgt í
kjölfarið. Að loknu námi 1968 var
SÖB grafískur hönnuður á fjórum
auglýsingastofum en vann sjálf-
stætt á árunum 1982-86, eða þar
til hann gerðist kennari og deild-
arstjóri í grafískri hönnun við
MHÍ. Var þar allt fram til þess að
hann fluttist búferlum til Tallin í
Eistlandi 1992, þar sem hann hef-
ur gert garðinn frægan, jafnvel
verið gestakennari við þá virtu
stofnun Listiðnaðarháskólann í
Helsingfors, en þangað er rétt
bæjarleið. Andinn er góður í Tall-
in, þar sem allt er í gerjun og upp-
leið eftir fall Ráðstjórnarríkjanna,
og sú hringiða lífs hugnast eldhug-
anum brosmilda vel.
Undarleg tilviljun gerði það að
verkum að ég rakst einmitt á
manninn á sýningu gamals félaga
okkar og samkennara, Peter
Behrens, í Stöðlakoti, á útgáfudag
bókar um þá félaga Bísa og
Krimma, þann 19.9. 1999.
Listamaðurinn SÖB, hefur gott
auga fyrir hinu fáránlega í um-
hverfínu og fer létt með að skálda
skoplegar hliðar á tilveru þeirra
ímynduðu fanga Bísa og Krimma,
er hér frjór og hugmyndaríkur.
Myndasögurnar renna eins og af
færibandi úr hendi listamannsins
sem alltaf hefur átt létt með að
teikna, kannski of létt er svo er
komið, en þá vilja vinnubrögðin fá
á sig vanasvip, hafa svip af kæk,
því áherslurnar vilja verða þær
sömu frá einni mynd til annarrar.
Persónulega sakna ég stílbragða
SÖB frá námsárunum, er hann
lagði meiri vinnu í hverja mynd
fyrir sig, línan var mýkri og fól í
sér meiri teikningu. Þetta er líkt
og með fréttamyndir blaðaljós-
myndara, þar sem fréttnæmi
myndanna og nýstárleiki vill hafa
meira vægi en sjálf myndatakan.
Sitt sýnist hverjum, en það hefði
ekki skaðað að sirka tíu blaðsíður
hefðu verið nostursamlega unnar
svona fyrir tilbreytinguna, því
þetta er bók en ekki dagblað. En
að sjálfsögðu má hafa stórgaman
af myndunum, jafnvel enn meira
af textunum og það er á sinn hátt
aðalatriðið...
Bragi Asgeirsson
Tríó Hafdísar Kjamma er skipað þeim Hafdísi Bjarnadóttur,
Þórði Högnasyni og Birgi Baldurssyni.
Tríó Hafdísar Kjamma
leikur Djass í Klaustrinu
TRÍÓ Hafdísar Kjamma leikur
djass í anda Miles Davis og
Wayne Shorter í bland við aðra
standarda í kvöld, fimmtudag-
skvöld, kl. 23 í Klaustrinu,
Hverfisgötu.
Tríóið skipa Hafdís Bjarna-
dóttir gítarleikari, Þórður
Högnason kontrabassaleikari og
Birgir Baldursson trommuleik-
ari. Tríó Hafdísar Kjamma er
ungt að árum en Þórður og Birg-
ir hafa leikið víða saman um
langt skeið. Hafdís er ungur gít-
arleikari við nám í tónlistarskóla
FÍH.
Sýningum
lýkur
SÝNINGU Helga Þorgils Friðjóns-
sonar og ljósmyndasýningu Nan
Goldin lýkm- nú á sunnudag.
Sýningin á verkum Helga ÞorgOs
spannar 20 ára feril hans og er liður
í þeirri viðleitni safnsins að sinna
með sérstökum hætti því markverð-
asta sem er að gerast í íslenskri
myndlist í samtímanum. Markmiðið
með þessu úi-vali er að gefa yfirlit
um listferil hans.
„Að taka mynd af einhverjum er
eins og að snerta hann. Það eru gæl-
ur. Myndir mínar eru oft sprottnar
af erótískri löngun." Þannig kemst
Nan Goldin að orði í texta sem birt-
ur er í sýningarskrá, sem Listasafns
Islands hefur gefið út í tilefni af sýn-
ingu á úrvali Ijósmynda hennar frá
síðustu tuttugu árum.
Auk ljósmyndanna er myndban-
dsútgáfa af kvikmyndinni I’ll Be
Your Min’or sýnd daglega í íyrh’-
lestrasal Listasafnsins meðan á sýn-
ingunni stendur. Kvikmyndin, er
samvinnuverkefni Nan Goldin og
breska leikstjórans Edmund Coult-
hards.
Norræna húsið
Sýningunni Öðruvísilandið - graf-
ík við ljóð eftii’ Rolf Jacobsen lýkur
á sunnudag.
FIMMTUÐAGUR 21.1!)KTÓBER'1999 ' 33?
Gognogrunnur Nýsjólendingð
ó tieilbrigðissviði
Dr. Yogesh Anand frá heilbrigðisráðu-
neyti Nýja Sjálands heldur opinn fyrir-
lestur í Odda í kvöld, fimmtudaginn
21. október kl. 20.00, um hvernig
Nýsjálendingar stóðu að því að setja
saman miðlægan gagnagrunn á heil-
brigðissviði. Yogesh er næstráðandi í
upplýsingaþjónustu nýsjálenskra heil-
brigðisyfirvalda, New Zealand Health
Information Service.
Umræður verða að fyrirlestri loknum.
ftí
ÍSLENSK I
I ERFÐACREINING
Nýkomið
mikið úrval
afTencel fatnaði frá
Aria í mörgum litum.
Jakkar, pils, buxur,
vesti, bolir og blússur.
15%
kynningarafsláttur af
fatnaði frá Aria
fimmtudag til
laugardags.
Opið laugardag kl. 10—14.
nrraarion
Reykjavíkurvegi 64,
sími 565 1147.
MrMrw.waki.il
www.ttofnfiikur.il
www.itn.ii/lfh
um framtfðarsýn og
stefnumótun í íslensku
isksld i
i»W4IMuppll|ij.-irit.'LW
VAKI I STOFNFISKUR I LFH
Dagana 29. og 30. október
munu Vaki fiskeldiskerfi, Stofnfiskur og LFH
standa fyrir ráðstefnu um framtíðarsýn og
stefnumótun í íslensku fiskeldi.
Meginmarkmið ráðstefnunnar er að koma af stað umræðum um þá
framtíð sem íslensku fiskeldi er búin og marka þau skref sem þarf að taka
til að tryggja megi greininni vöxt og þroska.
Á ráðstefnunni verða haldin erindi um þau lykilatriði sem mestu skipta og
þeim skipt í eftirfarandi hópa:
1. Staða fiskeldis á íslandi og framtíðarmöguleikar
(fiskeldl á fslandi í alþjóðlegu umhverfi, eldi á laxi, bleikju, lúðu,
sandhverfu, sæeyra, þorski og barra).
2. Samkeppnisstaða íslensks fiskeldis á alþjóðlegum uettvangi
(fiskeldi í Evrópu, iðnvæðing fiskeldis, sölu- og markaðsmál,
fjárfestingar í fiskeldi, gæðamál)
3. Rannsóknir og þróun í íslensku fiskeldi
(rannsóknir og þróunarmal, menntamál, endurnýting vatns,
sjúkdómar og sjúkdómavarnir, kynbætur og líftækni)
Meðal fyrirlesara verla Courtney Hugh framkvæmdastjori Evrópuiamtaka
fiskeldisstöðva og Frode Blakstad frá KPMG Consulting í Noregi.
Fullt ráðstefnugjald er 8.500 kr.
Innifalið í þuí eru ráðstefnugögn, hádegismatur, kaffi og hátíðarkvöldverður.
Ráðstefnan verður haldin í fundarsölunum að
Borgartúni B í Reykjavík .
Þátttaka tilkynnist skriflega á faxnúmer 568 6930 þar sem tram kemur nafn
þátttakanda og fyrirtækis.
Ráðstefnan er öllum opin
Nánari uppiýsingar eru í síma 568 0855 / 552 8400