Morgunblaðið - 21.10.1999, Page 43
[
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 43
UMRÆÐAN
Nýbyggingin að
Austurstræti 8-10
VEGNA umfjöllunar Orra Árna-
sonar um nýbygginguna í Austur-
j stræti 8-10 (birt í Mbl. 19. okt. sl.)
3 er nauðsynlegt að eftirfarandi stað-
reyndir komi fram.
Frumdrög að hönnun þessarar
byggingar gerði ég undimtuð, að
beiðni Armanns Arnar Armanns-
sonar, forstjóra byggingarfélagsins
Armannsfells, í sept. 1997.
Skömmu síðar fórum við Armann
á fund Þorvalds Þorvaldssonar, for-
stöðumanns Borgarskipulags, og
kynntum honum bygginguna og
hugmyndir að baki henni.
A næstu mánuðum snerust hjólin
hratt, tillögur að byggingunni voru
unnar áfram og kynntar ýmsum að-
ilum er að málinu komu, borgar-
stjóra, forsætisráðherra, forseta
Alþingis skrifstofustjóra o.fl. við
ákaflega jákvæðar undirtektir.
I sumarbyrjun 1998 ákveður Ár-
mannsfell endanlega að kaupa lóð-
ina í Austurstræti 8-10. Forsenda
þeirra kaupa er hönnun mín að
byggingunni og síðla sumars er
gerður við mig persónulega bind-
andi hönnunarsamningur um
áframhald verksins allt til lokastiga
byggingarinnar.
Áð hönnun byggingar af slíkri
stærðargráðu, sem hér um ræðir,
koma að sjálfsögðu margir. Gunnar
Bergmann Stefánsson, samstarfs-
maður minn, hafði fram að þessu
unnið með mér í hlutastarfi, en
hafði á þessum tíma ekki tök á að
bæta meiru við sig.
Eg leitaði til góðkunningja minna
á Vinnustofu arkitekta og kynnti
þeim verkið með samstarf í huga
svo og til Helga Hjálmarssonar
arkitekts, Teiknistofunni Óðins-
torgi. Hjá báðum þessum aðilum
fékk ég þá umsögn að verkið væri
mjög metnaðarfullt og lofaði góðu.
Ráðleggingar þeirra voru á einn
veg um að ég skyldi halda verkinu
áfram sjálfstætt, enda komið á
lokastig útlitshönnunarlega séð.
í október 1998 hóf ég samstarf,
sem ég hugði mjög gott til, við Orra
Ámason. Lá þá fyrir að kynna
bygginguna formlega fyrir sldpu-
lagsnefnd Reykjavíkur. Eins og
Orri segir réttilega í fyrmefndri
grein sinni þróuðum við bygging-
una í samráði við nefndina. Sú
vinna fól m.a. í sér aðlögun bygg-
ingarinnar að deiliskipulagi og tii-
! lögum skipulagsnefndar. Gmnn-
; form byggingarinnar hélt sér að
sjálfsögðu allan tímann svo og aðal-
hönnunarþemað, sem ég hafði lagt
upp með í byrjun og hafði víða ver-
ið kynnt eins og hér hefur verið
rakið.
Við Orri unnum saman þar til í
maí sl.
Eftir það var lítið um samstarf
við Orra Amason. Um miðjan júní
hóf ég á ný samstarf með Gunnari
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlédís Sveinsdóttir arkitekt, ásamt Ólafi St. Haukssyni, verkefnis-
stjóra hjá Ármannsfelli, við nýbygginguna séða frá Austurvelli.
Hönnun
Þegar þessu verki
verður lokið, segir
Hlédís Sveinsdóttir,
----------------7-----------
verður Orra Arnasonar
getið á tilheyrandi hátt,
eins og annarra sem að
hönnun hafa komið.
Bergmann Stefánssyni og kemur
hann að þessu verki sem og öðmm.
í allri umfjöllun, sem snýr að
þessu verki sem öðmm gæti ég
þess að koma að nöfnum minna
samstarfsmanna þegar kostur er.
Nægir þar að nefna að skilti sem
sett vom upp við byggingarsvæðið
við Austurstræti/Áusturvöll til-
greina mig og Orra Amason sem
hönnuði verksins.
Sú staðreynd geiir upphlaup
Orra með öllu óskiljanlegt, einkum
í ljósi þess að hann hefur aðeins
BIODROGA
snyrtivörur
*Q-10*
húðkremið
Bankastræti 3, sími 551 3635.
Póstkröfusendum
unnið með mér í um það bil átta
mánuði af rúmlega tveggja ára
hönnunarferli byggingarinnar.
Þegar þessu verki verður lokið
verður Orra Árnasonar getið á til-
heyrandi hátt, eins og annarra, sem
að hönnun hafa komið. Umfjöllun,
sem birtist í fasteignablaði Mbl.
12.10. sl. er fyrst og fremst umfjöll-
un um bygginguna og viðtal við
byggingarstjórann Ólaf Hauksson.
I ljósi þeirrar staðreyndar er grein
Orra tilefnislaus, auk þess að vera
fljótfærnisleg og hvatvís.
Eins og áður segir hefur bygg-
ingin verið formlega kynnt fjöl-
mörgum aðilum í gegnum hönnun-
arferilinn allan og flnnst mér því
áhugavert umhugsunarefni hve
frjálslega Orri Árnason fer með
staðreyndir.
Um aðrar athugasemdir Orra
Amasonar hef ég því ekkert að
segja og kýs að leiða óviðurkvæmi-
legt orðaval hans hjá mér.
Höfundur er arkitekt.
til útlanda
-auðvelt dð mund
SÍMINN
www.simi.is
Konum öllum ó landi hér
bjóðast nú vörur frá s.Oliver
allur aldur getur verslað sér
svo enginn þurfi að ganga ber
iQftt/e/t WOMEN
8.0íil/eft er verslun með vandaðan
kvenfatnað frá Þýskalandi.
Opnunartíml er frá kl. 13 til 18 mánudaga til
föstudaga og frá kl. 10 til 18 á laugardögum.
s.©íii/eft
Lindarseli 13 Seljahverfi Sími 557 3306
J&c°ne
Stlft/Sticfc
sMcone j
sztyft i
0MISSANDIIVETRARAKSTRINUM
ekkert hrím á rúðum
engar frosnar læsingar
engar frosnar hurðir
auðveld gangsetning í kuldanum
rakavörn fyrir rafkerfið
Olíufélagið hf
www.esso.is
BASTA Z&ft&dÍBÚ BASTA BASTA
de-icer Fustí Lmtwt rvH
Looíw»ra»l
<r
SPINNING- 0G ÞREKHJÓL í mörgum gerðum ásamt mesta úrvali
landsins at allskyns þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki.
ÞREKHJÓL 105p
Þrekhjól sem kemur þér í gott form.
Polar-púlsmælir, stöðugt ástig,
kasthjól, fullkominn tölvumælir.
Stgr. 41.798
kr. 43.998
Stærð: L. 115 x br. 61 x h. 110 raðgreiðslur
ÖRNiNNP*
STOFNAÐ1925
- ÞREKTÆKJADEILD -
Skeifan 11, sími 588-9890