Morgunblaðið - 26.10.1999, Side 2

Morgunblaðið - 26.10.1999, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Níu mánaða uppgjör borgarsjóðs Reykjavíkur Skatttekjur 500 millj- ónir umfram áætlun Morgunblaðið/Atli Vigfússon Undarleg hornmynd- un á lambhrúti í NÍU mánaða uppgjöri borgar- sjóðs kemur fram að skatttekjur verða um 500 milljónum meiri og afkoma borgarsjóðs betri en áætl- anir gerðu ráð fyrir. Stofnanir og fyrirtæki borgarinnar standast áætlanir í öllum meginatriðum og stefnt verður að því að greiða skuldir borgarsjóðs niður um 610 milljónir á árinu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segist vera mjög sátt við þessa útkomu og segir mikilvægt að útgjöld borgarinnar virðist ætla að verða innan ramma fjárhagsáætlunar. ENGIN gögn benda til annars en að þeir peningar sem Kommúnista- flokkur Sovétríkjanna sendi öðrum stjórnmálaflokkum hafi skilað sér í sjóði þeirra. Þetta var haft eftir Sven G. Holtsmark fræðimanni við norsku Varnarmálastofnunina í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi en Holtsmark er sá sem fann upplýs- ingar um fjárframlög til Sameining- arflokks alþýðu - Sósíalistaflokks- ins í sovéskum skjalasöfnum og Stöð 2 birti fréttir um fyrir helgi. Holtsmark hefur sent frá sér út- tekt um peningatengsl norska kommúnistaflokksins og þess sov- éska og hefur undir höndum skjöl Hálka veld- ur slysum í Reykjavík SJÖ umferðaróhöpp urðu í morgun- umferðinni í Reykjavík frá því skömmu fyrir klukkan 9 í gærmorg- un til klukkan 11, án þess þó að slys á fólki yrðu umtalsverð. Að sögn lögreglunnar mátti rekja ástæður óhappanna til hálku á göt- um af völdum vatns sem lekið hafði út á götur vegna sprunginna vatns- æða eða vatnsdælingar úr brunni. Til óhappanna sjö töldust tvær bflveltur, þar sem í báðum tilvikum varð að flytja laskað ökutæki á brott með kranabifreið. Var einn maður fluttur á slysa- deild með minniháttar meiðsl eftir veltu á Miklubraut við Skeiðarvogs- brú skömmu fyrir klukkan 9 og um klukkustund síðar varð önnur velta á aðrein frá Miklubraut inn á Reykjanesbraut án þess að meiðsl hlytust af. Borgarstjóri segir skýringuna á auknum skatttekjum vera hin svokölluðu góðærisáhrif, sem nú eru að skila sér inn í borgarsjóð. „Ég hefði þó viljað sjá meiri tekju- aukningu miðað við það sem skilar sér í ríkissjóð. Góðærisáhrifin skila sér miklu meira í ríkissjóð heldur en til sveitarfélaganna. Hins vegar sýnist mér að okkur takist jafnvel betur en ríkinu að halda okkur innan þeirra ramma sem menn settu sér í fjárhagsáætlun,“ segir Ingibjörg Sólrún. Þá segir hún að rekstrarútgjöld séu komin niður í þar sem meðal annars er að finna lista yfir hvaða flokkar fengu fjár- framlög frá honum og hversu mikil. Holtsmark segir sovésku forsætis- nefndina hafa fengið tilkynningu um að peningamir hafi verið af- hentir og finnst honum ólíklegt að þeir sem hafi verið flæktir í málið hafi stungið þeim í eigin vasa. Hon- um finnst því afar litlar líkur á því að peningamir sem komu til Sósíal- istaflokksins á Islandi hafi farið til annaiTa félaga eins og MIR eða Máls og menningar. í frétt Stöðvar 2 kom einnig fram að kvittanir fyrir móttöku peninganna hafi hins vegar ekki fundist. 80% af skatttekjum, sem hafi verið stefnunjið borgarstjórnar lengi. Að sögn borgarstjóra virðist sem allar stofnanir borgarinnar ætli að halda sig innan ramma fjárveitinga. „Sem mér finnst vera mikill árangur og er auðvitað mjög sátt við það. Þessari ramma- fjárhagsáætlun fylgir mikið frjáls- ræði og mér sýnist að menn hafi kunnað vel að fara með þetta aukna frelsi. Þeir eru mjög ábyrg- ir fyrir því sem þeir eru að gera og nýta sínar fjárveitingar betur en áður.“ Samkvæmt uppgjörinu em aukafjárveitingar færri en verið hefur undanfarin ár. Árið 1997 námu aukafjárveitingar 5,70% af skatttekjum og í fyrra vom þær 2,87%. I ár verða þær 1,16% af skatttekjum. Ingibjörg Sólrún segir aukafjárveitingar hljóða upp á 220 milljónir og þar af séu 140 milljónir vegna starfs í skólum og leikskólum. Skattprósenta ekki lækkuð Ingibjörg Sólrún segir auknar skatttekjur létta róðurinn við rekstur borgarinnar, en ekki sé þó ætlunin að lækka skattprósentuna. Hún segir þá staðreynd blasa við að í gangi séu mikil fjárfestinga- verkefni. Þar sé um að ræða ein- setningu gmnnskólanna og bygg- ingu nýrra skóla í nýjum hverfum og segir borgarstjóri að þetta séu verkefni upp á 5 milljarða króna. Þar að auki sé ennþá talsverð upp- bygging eftir í leikskólum og stór verkefni framundan í vegafram- kvæmdum. Laxamýri. Morgunbladið. HORNALAG er með ýmsum hætti á sauðfé, en ekki er vana- legd' að horn vaxi með þeim hætti sem hér sést. Svo virðist sem annað hornið vaxi að hluta til upp úr andliti lambhrútsins og er hornmyndunin alveg fram á nas- ir. Auk þessa standa bæði hornin einkennilega upp í loftið sem ekki telst vanalegt. Á myndinni er Helga Sigríður Kristjánsdótt- ir, bóndi á Einarsstöðum í Reykjahverfi, með þennan ein- kennilega lambhrút. Upplýsingar í nýútkominni bók um njósnir Sovetrikjanna KGB kom hler- unarbúnaði fyr- ir í Reykjavík LEYNIÞJÓNUSTA Sovétríkj- anna samþykkti árið 1970 að koma fyrir hlerunarbúnaði í Reykjavík. Þetta kemur fram í bók Christopher Andrew og Vasfli Mitrokhin um sögu KGB, leyni- þjónustu Sovétríkjanna, en bókin hefur vakið mikla athygli m.a. vegna uppljóstrana um njósnara sem störfuðu á vegum KGB í Bretlandi. í bókinni kemur fram að 15. maí árið 1970 samþykkti Yuri Andropov, þáverandi yfirmaður KGB og síðar leiðtogi Sovétrílg- anna, tillögu um að setja upp hler- unarbúnað í 15 borgum utan Sov- étríkjanna. Þetta voru Wash- ington, New York, Montreal, Mexíkó, Tókýó, Peking, Teheran, Aþena, Róm, París, Bonn, Salz- burg, London, Reykjavík og Belgrad. Fram kemur í bók þeirra Andrews og Mitrokhin að þegar þessi ákvörðun var tekin hafi þá þegar verið búið að koma fyrir hlerunarbúnaði í sumum þessara borga. Ennfremur kemur þar fram að þessi búnaður skilaði þeim árangri að á árinu 1971 höfðu starfsmenn KGB tekið á móti 62 þúsund dulmálsskeytum sem höfðu að geyma diplómatísk- ar eða hemaðarlegar upplýsingar frá 60 löndum, auk um 25 þúsund skeyta með ýmiss konar öðrum skilaboðum. Sovétríkin hafa lengi legið undir grun um að hafa stundað hleranir á íslandi. í september árið 1973 fundu kafarar fjölmörg fjarskipta- tæki á botni Kleifarvatns. Reynt hafði verið að afmá merkingar á tækjunum, en við rannsókn á tækjunum kom í ljós að þau voru flest af rússneskri gerð. Árið 1990 kom út bók um KGB eftir Andrew og Oleg Gordíevsk- íj, fyrrum foringja í sovésku leyniþjónustunni. I viðtali sem Morgunblaðið átti við Gordíevskíj um útkomu bókarinnar segir hann að snemma á áttunda ára- tugnum hafi KGB komið hlerun- arbúnaði fyrir í sovéska sendiráð- inu á Islandi og hleranir hafi ver- ið stundaðar þar í nokkur ár. Gordíevskíj sagði að GRU, leyni- þjónusta hersins, hefði áður verið búin að koma sér upp hlerunarað- stöðu í sendiráðinu og hún hefði leitast við að hlera fjarskipti sem fóru um Island eða snertu Island með einhverjum hætti. Gordíevsk- íj sagði að KGB hefði ekki náð jafngóðum árangri og GRU og þess vegna hefðu forráðamenn KGB ákveðið að draga úr fjár- veitingum til þessarar starfsemi á íslandi. Fræðimaður við norsku Varnarmálastofnunina Féð skilaði sér í sjóði flokkanna öð í dag Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is Á ÞRIÐJUDÖGUM Heimili Uni Arge gerði tveggja ára samning við Skagamenn / B2 »••••••••••••••••••••••••••••••• Kanu gerði þrennu á fimmtán mínútum / B8

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.