Morgunblaðið - 26.10.1999, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ekkert gefíð upp um tilkynningar til þátttöku í útboði á hluta ríkisins í FBA
Breytingar mög'iileg'ar
fram á föstudag
AÐ SÖGN Hreins Loftssonar, for-
manns framkvæmdanefndar um
einkavæðingu, verður fjöldi tilkynn-
inga um þátttöku í útboði á 51% hlut
ríkisins í Fjárfestingarbanka atvinnu-
lífsins ekki gerður opinber fyrr en
næstkomandi fbstudag. Að hans sögn
verða þátttökuhópar endanlegir
næstkomandi föstudag þegar frestur
til lagfæringa á hópum rennur út. Að-
spurður segir hann breytingar eða
lagfæringar á hópum taka mið af at-
hugasemdum eða ábendingum frá
sérstökum trúnaðarmönnum sem far-
ið hafa yfir þátttökutilkynningarnar.
I þeim hópi eru Jón Sveinsson hrl.
og Brypjólfur Sigurðsson prófessor,
ásamt Hreini. Hann getur hvorki
staðfest að þær þátttökutilkynningar
sem borist hafa, uppfylli skilyrðin
sem sett hafa verið fyrir sölunni, né
að aðeins ein tilkynning hafi borist,
eins og heimildir Morgunblaðsins
herma.
Ekki lagt mat á
fjárhagslega stöðu
Alls er krafist rúmra 9.700 millj-
óna króna fyrir hlutabréf ríkisins í
FBA, miðað við lágmarksgengið 2,8.
Hver aðili eða skyldir aðilar innan
þátttökuhóps mega ekki eignast
meira en 6% eða 208 milljónir að
nafnvirði. Miðað við lágmarksgengið
2,8 er söluverð 6% hluta rúmar 582
milljónir ki'óna.
Aðspurður segir Hreinn mögulegt
að þátttökuhópur sé samansettur af
aðilum sem hver um sig hafi ekki
fjárhagslega burði til að reiða fram
sinn hluta þeirrar fjárhæðar sem
krafist er. „Það er ljóst að ekki ér
lagt mat á fjárhagslega stöðu til-
boðsgjafa. Miðað er við að hluta-
bréfin verði staðgreidd 15. nóvem-
ber næstkomandi og það kemur
okkiu- í sjálfu sér ekki við hvernig
viðkomandi gerir það. Ég á ekki von
á að slíkar aðferðir verði notaðar,
það er meira en að segja það í tilviki
sem þessu,“ sagði Hreinn Loftsson í
samtali við Morgunblaðið.
Þátttakendum hefur verið til-
kynnt ef eitthvað vantar upp á að
viðkomandi uppfylli skilyrðin sem
sett voru fyrir sölunni, þ.e. um
eignatengsl og skyldleika. Frestur
er gefinn til næstkomandi föstudags
til að endurskoða samsetningu þátt-
tökuhópa ef einhverju er ábótavant.
Næstkomandi mánudag mun þátt-
takendum gert viðvart um hæfi til
þátttöku og þeim afhent tilboðs-
eyðublöð. Tilboðin verða opnuð
föstudaginn 5. nóvember og þá
verða nöfn tilboðsgjafa og tilboðs-
gengi gert opinbert.
Ekkert upplýst um
þátttöku Orca
Eyjólfur Sveinsson, stjórnarfor-
maður eignarhaldsfélagsins Orca
SA, sagðist í samtali við Morgun-
blaðið hvorki vilja segja af né á um
þátttöku Orca í útboði á hlut ríkisins
í FBA. „Við höfum ákveðið að fylgja
því ferli sem útlistað er í útboðs-
gögnum varðandi FBA og vísum á
Ríkiskaup og einkavæðingarnefnd
hvað upplýsingagjöf varðar," segir
Eyjólfur. Eignarhaldsfélagið Orca á
sem kunnugt er um 28% hlut í FBA
og hefur verið orðað við þátttöku í
útboðinu. Eyjólfur vildi ekki upplýsa
hvort viðræður stæðu yfir við hugs-
anlega samstarfsaðila Örca.
Eyjólfur telur sölu á 51% hlut rík-
isins í FBA mikilvægan áfanga á
þeirri leið að línur skýrist hvað
bankann varðar. „Það er mikilvægt
að FBA geti beitt sér af alefli í þeirri
uppstokkun sem framundan er á
fjármálamarkaðnum. Við væntum
þess að FBA muni ná að gera mikið
úr þeim tækifærum sem framtíðin
ber í skauti sér.“ Þar vísar Eyjólfur
til þess að hlutverkaskipan fjár-
málafyrirtækja muni breytast og
einnig sé líklegt að einhver þeui'a
muni sameinast eða hefja náið sam-
starf.
Aðspurður segir Eyjólfur að fjár-
festing Orca í FBA sé í eðli sínu
langtímafjárfesting og engar við-
ræður um sölu á eignarhlut félags-
ins standi yfir. „Við hyggjumst
vinna með bankanum og teljum
spennandi tækifæri framundan á ís-
lenskum fjármálamarkaði. Kaup-
verð á hlutabréfum okkar yrði að
fela í sér verðlagningu sem myndi
endurspegla þau tækifæri. Þegar
menn leggja út í fjárfestingu með
arðsemissjónarmið í huga, felur það
í sér að menn eru tilbúnir til að selja
ef rétt verð fæst,“ segir Eyjólfur.
Ödýrasta
bensínið
hjá Bens-
ínorkunni
VERÐ á bensínlítra er í dag hið
sarna hjá olíufélögunum þremur
en Ódýrt bensín og Bensínork-
an bjóða lítrann á 4,50 til 4,60
krónum lægra verði en þau, þ.e.
almennt verð. Ódýrastur er
bensính'trinn á stöðvum Bens-
ínorkunnar eða 81,50 kr.
Eftir breytingar á bensín-
gjaldi fyrii’ helgina kostar lítr-
inn af 95 oktana bensíni 86,10
kr. á bensínstöðvum Olís, Olíu-
félagsins og Skeljungs. Lítrinn
af 98 oktana bensíni kostar
90,80 kr. Félögin bjóða ýmis af-
sláttarkjör og tímabundin til-
boð, m.a. fyrir þá sem dæla
sjálfir á bíla sína og getur slíkur
afsláttur verið frá 1,50 og allt
upp í þrjár eða fjórar krónur
lítrinn.
Lægsta bensínverðið í dag er
á stöðvum Bensínorkunnar sem
eru þrjár í Reykjavík og ein á
Akureyri. Þar kostar htrinn af
95 oktana bensíni 81,50 kr. og
lítrinn af 98 oktana bensíni
85,10 kr. Ódýrt bensín býður
lítrann af 95 oktana bensíni á
81,60 en þar er 98 oktana bens-
ín ekki í boði.
Stoðvirki við varnagarð í Neskaupstað
Lægsta tilboðið
um 172 milljðnir
FYRIRTÆKIÐ R. Hannesson hf.
fyrir hönd franska verktakafyrir-
tækisins E.I. Montagne átti
lægsta upplesna tilboðið í upp-
setningu svokallaðs upptakastoð-
virkis eða stoðvirkis í upptökum
snjóflóða sem koma á fyrir í
Drangagili í Neskaupstað í tengsl-
um við snjóflóðavamagarð sem
þar er verið að reisa. Tilboðið
hljóðar upp á tæplega 172 milljón-
ir króna en kostnaðaráætlun Rík-
iskaupa gerir ráð fyrir að verkið
kosti 207 milljónir króna. Stoð-
virki eru byggð fyrir ofan varnar-
garða til að koma í veg fyrir að
snjóflóð fari af stað.
Fjögur tilboð bárust í verkið og
var franska verktakafyrirtækið
CAN s.a. með næstlægsta tilboðið
sem hljóðar upp á rúmar 182 millj-
ónir króna. Sama fyrirtæki lagði
aukinheldur fram þrjú svokölluð
frávikstilboð, sem bjóða upp á
öðruvísi útfærslu á verkinu, og eru
þau á bilinu um 172 milljónir
króna til um 185,5 milljónir króna.
Áætluð verklok 2001
Verktakafyrirtækið ístak hf.
lagði fram tvö tilboð í verkið, sem
voru m.a. ólík að því leyti að stoð-
virkin voru frá mismunandi fram-
leiðendum. Hljóðar annað þeirra
upp á um 340 milljónir króna og
hitt upp á um 316 milljónir króna.
í útboðsgögnum er gert ráð fyr-
ir því að ákveðið verði innan átta
vikna frá því tilboð voru opnuð
hvaða tilboði verði tekið en í út-
boðsgögnum kemur einnig fram
að verklok séu áætluð haustið
2001, þótt búast megi við að fram-
kvæmdum ljúki fyrir þann tíma.
Þjónusta númer eitt!
Nvwcr eJíí ( noívZvM l>(hM>
Til sölu Opel Astra 1600.
Nýskráður 22.07.1997.
Ekinn 52.000 km.
Beinskiptur, 4 dyra.
Ásett verð kr. 1.090.000.
Nánari upplýsingar hjá Bíla-
þingi Heklu í síma 569 5500.
Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-18
laugardagar kl. I2-I6
BÍLAÞING MEKLU
Laugavegi \1A, I05 Reykjavílc sími 569-5500
Morgunblaoið/RAA
Ákveðið hefur verið að Iengja Stórubryggju í Grundarfirði enda þröngt orðið um skip og menn þegar mikið
er um að vera. Hér er verið að landa hörpuskel.
Hafnarbætur fyrirhugaðar í Grundarfírði
Stórabryggj a lengd
um 100 metra
ÁKVEÐIÐ hefur verið að ráðast
í hafnarbætur í Grundarfirði
með því að lengja Stórubryggju.
Með því fæst viðlegupláss sem
nú skortir vegna aukinna um-
svifa í útgerð og fiskvinnslu á
staðnum.
í Grundarfirði er góð höfn frá
náttúrunnar hendi, sú besta á
Snæfellsnesi. Talsvert hefur
verið unnið að hafnarbótum frá
því um 1940. Fyrir hálfum öðr-
um áratug var Norðurgarður
lengdur en hann gengur í dag-
legu tali undir nafninu Stóra-
bryggja. „Það var mikil fram-
kvæmd en gæfuspor fyrir
byggðarlagið því hún var nauð-
synleg forsenda fyrir þeirri
framþróun sem hér hefur orðið
í sjávarútvegi. Nú stöndum við
aftur á tímamótum, aðstaðan
dugar ekki lengur og við þurf-
um að gera nýtt átak í hafnar-
málunum," segir Björg Ágústs-
dóttir, sveitarstjóri í Grundar-
fírði, en hún er jafnframt hafn-
arstjóri. Hún segir að útgerð
hafi aukist svo og landanir að-
komubáta og skipin stækkað.
Því sé orðin þörf fyrir meira
viðlegupláss og segir jafnframt
að forsendur séu fyrir frekari
framþróun í greininni.
Ákveðið hefur verið að lengja
Norðurgarð um 100 metra.
Áætlað er að það kosti 175 millj-
ónir króna og gerir ríkisvaldið
ráð fyrir sínum hluta á hafnaá-
ætlun fyrir næsta og þarnæsta
ár.
Til þess að standa undir hlut
sveitarfélagsins þarf Grundar-
fjarðarhöfn að auka tekjur sín-
ar. Það er ætlunin að gera með
því að markaðsseíja höfnina og,
þá aðstöðu sem boðið er upp á. I
þeim tilgangi tóku Grundar-
fjarðarhöfn og nokkur þjónustu-
fyrirtæki sameiginlega þátt í ís-
lensku sjávarútvegssýningunni í
Kópavogi í haust.
Björg vekur athygli á góðri
þjónustu Grundarfjarðarhafnar
og öflugum fyrirtækjum sem
bjóða fjölbreytta þjónustu.
Nefnir hún fískmarkað, löndun-
arþjónustu, flutningafyrirtæki,
netaverkstæði, olíusölu, raf-
eindavirlqun, vélsmiðju og ann-
an iðnað, auk almennrar versl-
unar og þjónustu og afþreying-
ar.