Morgunblaðið - 26.10.1999, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
Haldið upp á afmæli
SAMTÖKIN Barnaheill fögnuðu 10 ára afmæli sínu á
sunnudaginn og í tilefni dagsins var haldin skemmt-
un fyrir börn og foreldra þeirra í Ráðhúsi Reykjavík-
ur. Böm af íslensku og erlendu bergi brotin stóðu
fyrir fjölbreyttri skemmtidagskrá og var meðal ann-
ars sungið, dansað, leikið á hljóðfæri og lesið upp.
Gjöld sveitarfélaga jukust meira en
tekjurnar milli áranna 1997 og 1998
3,5 milljarða kr.
útgj aldaaukning
vegna fræðslumála
TEKJUR sveitarfélaga jukust um
7,1 milljarð króna milli áranna 1997
og 1998 eða um 10,8% að raungildi
og er helsta ástæða aukinna tekna
rúmlega 5% hagvöxtur á árinu 1998.
Hins vegar hækkuðu gjöld sveitar-
félaga meira en tekjumar eða sem
nemur 8,1 milljarði króna eða 11,6%
að raungildi. Vegur þar þyngst um
3,5 milljarða króna aukning út-
gjalda vegna fræðslumála, sem
jafngildir um 18,3% að raungildi og
kemur hún til viðbótar mikilli út-
gjaldaukningu til fræðslumála milli
áranna 1996 og 1997, en þá nam út-
gjaldaaukningin til fræðslumála
þremur fimmtu af aukningu heild-
arútgjaldanna.
Þetta kemur fram í frétt frá Hag-
stofu íslands um sveitai’sjóðareikn-
inga ársins 1998, en samkvæmt þeim
nam halli sveitarfélaga 4,5 milljörð-
um króna í fyrra sem svarar til 7,1%
af heildartekjum þeirra. Árið 1997
var hallinn einum milljarði króna
minni eða 3,5 milljarðar króna sem
svarar til 6,3% af heildartekjum
þeirra. Fram kemur að niðurstöðu-
tölumar um fjármál sveitarfélaga
sýni bæði aulrinn tekjuhalla og láns-
fjárþörf samanborið við árið á undan.
A höfuðborgarsvæðinu var hall-
inn á hvem íbúa 11 þúsund krónur
og hafði lækkað um 24% að raun-
gildi frá árinu áður. í Reykjavík var
hallinn um átta þúsund kr. á hvern
íbúa og hafði lækkað enn meir eða
um rúm 36% að raungildi frá árinu
1997. Hins vegar var hallinn meiri í
kaupstöðum með yfir 3.000 íbúa eða
tæpar 30 þúsund krónur á hvern
íbúa og hafði vaxið að raungildi um
tæp 88% milli ára. Sem fyrr var
hallinn minnstur á sveitarfélögum
með undir 400 íbúum eða rétt rúm-
ar 6 þúsund krónur sem er 80%
raunaukning frá árinu 1997.
Olafur Jdhann Olafsson ráðinn yfírmaður hjá TimeWarner Digital Media
Er ætlað að móta
stefnu í margmiðlun
Olafur Jóhann Olafsson, rithöfundur og
forstjóri Advanta fjármálafyrirtækisins í
Bandaríkjunum, hefur verið ráðinn vara-
stjórnarformaður Time Warner Digital
Media en það er nýtt margmiðlunarfyrir-
tæki í eigu bandaríska fjölmiðlunar-
fyrirtækisins TimeWarner.
VERKEFNI Ólafs Jóhanns Ólafsson-
ar hjá Time Wamer Digital Media
verður að móta stefnu fyrirtækja
samsteypunnar í margmiðlun en þar
er átt við netþjónustu, kapalkerfi,
breiðband og útgáfú efnis á mynd-
böndum og geisladiskum svo nokkuð
sé nefnt. Olafur á einnig að leiða fyrir-
tækið í miðlun efnis með nýrri tækni.
„Þetta kom nú til þannig að nú
þegar ég er búinn að koma í verk
miklu af því sem ég ætlaði mér hjá
Advanta, að móta framtíðarstefnu og
koma því á betri braut eru þar ákveð-
in kaflaskipti," sagði Ólafur Jóhann
Ólafsson í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Þar er nú bjart framundan í
rekstrinum og minni umbyltingar
fyrirsjáanlegar. Menn frá Time
Warner, þar sem ég þekki marga,
hafa verið í sambandi við mig að und-
anförnu og verið að ámálga það við
mig að koma til þeirra og vera með í
yfirstjórn þessa nýja fyrirtækis því
þar er mikið í húfí fyrir TimeWarner.
Ef maður hefur áhuga á þessum vettr
vangi þá er að ég held varla til
skemmtilegra fyrirtæki að starfa við
og þess vegna sló ég nú til.“
Ólafur verður annar yfirmanna
fyrirtækisins, vara-
stjórnarformaður, en
Richard Bressler, sem
var fjármálastjóri Time-
Warner, er stjómarfor-
maður og sinnir einkum
fjármálastjóm. Bressler
sagði þegar ráðning
Ólafs var kynnt, er
hlutabréfamarkaðir
vora opnaðir vestan
hafs í gærmorgun, að
hann yrði góð viðbót við
yfirstjórn TimeWarner
Digital Media þar sem
sæti fólk með fjölþætta
reynslu. „Ólafur hefur
sýnt hæfíleika á því
sviði að rýna í framtíð-
ina og sjá fyrir ákveðna þróun,“ sagði
Bressler og sagði feril Ólafs, meðal
annars hjá Sony, hafa sýnt það.
Starfsmenn TimeWarner
77 þúsund talsins
Ólafur Jóhann sagði ákvarðanir
sem þessa erfíða en viðskilnaðurinn
við Advanta væri góður, hann sæti
þar áfram í stjórn og kvaðst hann
hafa eytt morgninum í gær í að ræða
við hluthafa og fjármálaráðgjafa til
að sýna þeim fram á að allt væri í lagi
hjá Advanta, hann væri í raun ekki
að yfírgefa íjrirtækið og því ættu
hlutabréf fyrirtækisins ekki að líða
fyrir slík mannaskipti. „Menn vilja fá
staðfest að allt sé í lagi, við búnir að
ná ákveðnum markmiðum í fyrirtæk-
inu og að ég sé ekki að hlaupa frá því
vegna þess að eitthvað sé að.“
TimeWarner samsteypan er fjöl-
miðlarisi, stærsta fjölmiðlunarfyrir-
tæki heims, með um 77 þúsund
starfsmenn og var veltan á síðasta
ári sem svarar tvö þúsund milljörð-
um íslenskra króna. Fyrirtækið
sinnir útgáfu bóka, tímarita og tón-
listar, sjónvarpsrekstri, rekstri kap-
al- og breiðbandskerfa og kvik-
myndagerð. Yfirstjórn TimeWarner
ætlar nýja fyrirtækinu, sem stofnað
var á síðasta sumri, að einbeita sér
að stjórnun á allri miðlun efnis á raf-
rænu formi og alla nýja miðlun Ti-
meWarner og dótturfyrirtækja. Sem
dæmi um umfang má nefna að fyrir-
tækið hefur yfír að ráða dreifingar-
rétti á 5.700 kvikmyndum, 32 þúsund
sjónvarspmyndum og þáttum, og
einni milljón laga, um einn milljarð-
ur manna í um 212
löndum hefur daglegan
aðgang að sjónvarps-
efni frá CNN, um 120
milljónir manna lesá
Time og önnur tímarit
fyrirtækisins, í fyrra
vom 23 hljómdiskar frá
fyrirtækinu meðal 100
mest seldu diskanna og
yfír 20 milljón heimila
hafa aðgang að kapal-
kerfi
Time-Warner.
Hlutverk Ólafs verður
sem fyrr segir í megin-
dráttum að móta stefnu
þess í margmiðlun. „Ti-
me-Warner á stærstu
kvikmynda- og tónlistarfyrirtækin og
dreifíng á því efni mun breytast mjög
mikið með tilkomu breiðbandsins. Þá
þarf að gæta að allri útfærslu þess. í
annan stað er mikil bylting að gerast
á sviði miðlunar á Netinu og á ég þar
bæði við frétta- og fræðsluefni en
ekki síður skemmtiefni og það er mik-
ið í húfí fyrir þetta stærsta fjölmiðl-
unarfyrirtæki heims að efninu sé
komið rétt til skila, fyi-irtækið verðui-
að vera þar í fremstu röð. Þá er
TimeWarner með stærsta kapalfyrir-
tæki í Bandaríkjunum og dreifíng
mun í auknum mæli fara inn í hús um
kapalkerfi sem em afkastameiri en
símalínur. Þetta spannar því nánast
allt margmiðlunarsviðið,“ segir Ólaf-
ur.
Sinnir áfram ritstörfum
Aðsetur Ólafs verður í Rockefeller
Center á Manhattan í New York þar
sem aðalstöðvar TimeWarner era til
húsa en Ólafur hefur ásamt fjöl-
skyldu sinni búið í New York og því
varið talsverðum tíma í ferðir til
vinnustaðar síns hjá Advanta. En
hvernig fer með rithöfundinn?
„Það verður áfram tími fyrir rit-
störf. Eg hef alltaf komið því þannig
fyrir að svo geti verið og það verður
áfram, það er alveg skilningur milli
mín og TimeWarner fyrir því að svo
verði áfram,“ segir Ólafur og leggur
áherslu á að hann ætli ekki að hætta
að skrifa. „Það mun allt annað þurfa
að víkja áður en það gerist,“ segir
hann en í næsta mánuði er væntan-
leg hér ný bók hans sem Vaka-
Helgafell gefur út.
Ólafur Jóhann
Ólafsson.
Lánsfjárþörfin jókst
Hallareksturinn gerði það að
verkum að lánsfjárþörf sveitarfé-
laga jókst og nam hún 9,7 milljörð-
um króna í fyrra samanborið við 7
milljarða árið 1997 og 5 milljarða
króna 1996. Heildarskuldir sveitar-
sjóða námu 47,6 milljörðum króna
um síðastliðinn áramót, sem jafn-
gildir 82% af heildártekjum ársins.
Til samanburðar námu skuldir sveit-
arsjóða 55% af heildartekjum árið
1991. Skuldir sjálfstæðra fyrirtækja
í eigu sveitai-félaganna era ekki
taldar með í þessum tölum en þær
námu alls 34 milljörðum króna. Þar
af námu skuldir vegna félagslegra
íbúða 13 milljörðum króna, hita-
veitna um 8 milljörðum króna og
hafnasjóða um 4 milljörðum króna.
Skuldir sveitarsjóða jukust um 12%
milli áranna 1997 og 1998, en skuldir
sjálfstæðra fyrirtaskja um 29%.
----------------
Flugæfíng’ kom
fram á jarð-
skjálftamælum
NOKKUÐ var um að fólk á höfuð-
borgarsvæðinu teldi sig finna jarð-
skjálfta í gærmorgun milli klukkan
tíu og ellefu.
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofu Islands stafaði óróleikinn þó
ekki af jarðhræringum heldur af
flugæfingu vamarliðsins yfír
Reykjanesi. Við ákveðin veðurskil-
yrði, til dæmis þegar kyrrt er í lofti
eins og var í gær, getur fundist
nokkur titringur á jörðu niðri þegar
herþotur fai’a í gegnum hljóðmúrinn.
Titringur kom fram á mælum á
höfuðborgarsvæðinu og víða á Suð-
urlandi. Fólk þaðan hringdi mikið á
Veðurstofuna í gær og sagðist hafa
fundið skjálfta og sumir sögðu muni
jafnvel hafa hreyfst í hillum á heim-
ilum sínum.
----------------
Djúpvegur
Myllan efh. með
lægsta tilboð
FYRIRTÆKIÐ Myllan ehf. á
Egilsstöðum átti lægsta tilboð í
Djúpveg á Vestfjörðum, en tilboð í
uppbyggingu vegar milli Laufskála-
gils og Eyrarhlíðar voru nýlega
opnuð hjá Vegagerðinni.
Atta fyrirtæki buðu í verkið, en
tilboð Myllunnar ehf. nam tæplega
138 milljónum króna. Kostnaðará-
ætlun Vegagerðarinnar hljóðaði
upp á tæplega 166 milljónfr króna.
Helmingur tilboðanna var undir
kostnaðaráætlun.