Morgunblaðið - 26.10.1999, Side 8

Morgunblaðið - 26.10.1999, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR íslensk gjöf mun skipa heiðurssess í skrifstofu Bandaríkjaforseta Hlakkar til að lesa óðinni og sagði að hann *T~ 1 • • • zg&r'- Islendmgasogurnar BILL Clinton Bandaríkjaforseti tðk í liðinni viku á móti íslend- ingasögunum á ensku frá ís- ^ lensku þjóðinni og sagði að hann hlakkaði arar dásamlegu gjafar. TH£ WHiTU H0U5E- •jSÍGMOfOD 2» Þarna geturðu lesið allt um það hvers konar svaka gæjar við íslendingar erum. Níu frétta- menn ráðnir til RÚV Landssíminn ákveður að setja harðkornadekk undir bfla sína Gatnamálastjóri fagn- ar ákvörðun Símans ÚTVARPSSTJÓRI hefur nýlega ráðið níu fréttamenn til starfa hjá Ríkisútvarpinu. Koma þeir í stað annarra sem horfið hafa til nýrra starfa eða eru í leyfí frá störfum. Anna Kristín Jónsdóttir og Kristján Kristjánsson voru fastráð- in. Þau starfa á fréttastofu Sjón- varpsins. Lausráðin til afleysinga þar voni ráðin Valgerður Jóhanns- dóttir og Sigmar Guðmundsson. Óiafur Teitur Guðnason og Pálmi Jónasson voru fastráðnir og starfa á fréttastofu Útvarpsins. Lausráðin til afleysinga þar voru ráðin Jóhann Hlíðar Harðarson, Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Útvarpsráð fjallaði um umsókn- irnar og mælti með þessum um- sækjendum. Alls voru umsækjend- ur um fréttamannastörfin 51 tals- ins. SIGURÐUR Skarphéðinsson, gatnamálastjóri í Reykjavík, fagn- ar því að forráðamenn Landssím- ans hafi ákveðið að setja harð- kornadekk undir bílaflota íýrir- tækisins til þess að draga úr meng- un. Forráðamenn fyrirtækisins hafa tekið þá ákvörðun að setja harð- kornadekk í stað nagladekkja und- ir þær bifreiðar, sem eru í notkun á höfuðborgarsvæðinu. Sigurður segist ekki vita til þess að fleiri stórfyrirtæki sem ráða yfir umtals- verðum bflafiota ætli að feta í fót- spor Landssímans en telur það vera æskilega þróun. „Það er ljóst að harðkornadekkin hafa marga kosti fram yfir þau negldu. Þau slíta malbikinu minna og valda því minni mengun og hávaða. Þau valda heldur ekki eins mikilli ryk- mengun og nagladekkin. En þetta eru þættir sem menn eru farnir að líta til i auknum mæli.“ Hvetur til notkunar harðkornadekkja Sigurður segir að það hafi komið til tals að borgaryfirvöld standi fyrir áróðri um notkun harðkorna- dekkja yfir veturinn. „Þó að harð- kornadekkin hafi þann galla að þau séu sóluð henta þau í flestum tilvik- um vel í innanbæjarakstur þó að yfír háveturinn geti komið upp að- stæður þar sem negldu dekkin duga betur. Þess vegna er mjög líklegt að borgaryfirvöld verði með kynningu á kostum harðkorna- dekkja á næstunni og hvetji borg- arbúa til þess að nota þau.“ Tré- rimlagluggaj 25mm og 50mm meö og án boröa Margir litir Frábært verð Ráðstefna Barnaheilla um stöðu barna Skyldur okkar við öll börn Kristín Jónasdóttir MORGUN verður haldin á Grand Hóteli við Sigtún ráðstefna á vegum Barnaheilla í tilefni af tíu ára afmæli samtakanna. Yfirskrift ráðstefnunar er: Börn af erlendum uppruna hér á landi - staða þeirra - skyldur okkar. Kristín Jónasdótt- ir er framkvæmdastjóri Barnaheilla. Af hverju skyldi þetta efni hafa ver- ið valið? „I umræðum um hvaða efni skyldi valið var rætt um að bamasáttmáli Sa- meinuðu þjóðanna er líka tíu ára og þess vegna þótti eðlilegt að fjalla um efni sem tengist grund- vallarsjónarmiði sáttmál- ans; Engu barni má sýna mismunun og það sem er barninu fyrir bestu skal ávallt hafa for- gang. Við vitum að fleiri og fleh'i böm fæðast hér sem ekki eru af íslensku bergi brotin eða hafa fæðst erlendis og flutt hingað til lands af ýmsum ástæðum. Það var okkar mat að við vissum alltof lítið um stöðu þessara bama. Því fannst okkur við hæfi núna, á tíu ára afmæli okkar og sáttmálans, að draga fram í kast- ljósið kjör allra bama á Islandi - líka þeirra sem áður vora nefnd. Þess má geta að við eram að end- urútgefa barnasáttmála Samein- uðu þjóðanna í litlum bæklingi og verður honum dreift sem víðast eftir afmælið." - Hvað á að fara fram á ráð- stefnunni? „Hún er í raun tvískipt. Snemma um morguninn munum við fai’a stuttlega yfir sögu sam- takanna á þessum tímamótum. Erindi Arthurs Morthens for- stöðumanns sem hann kallar Bamsskór Barnaheflla er af þeim toga. Þá mun Einar Gylfi Jóns- son, formaður Bamaheilla, kynna nýtt merki samtakanna en Bamaheill eru hluti af alþjóða- samtökum sem heita International Save the Children Alliance. Af því tilefni kemur framkvæmdastjóri alþjóðasam- takanna Burkhard Gnarig og flytur erindi um alþjóðastarfið. Síðan hefst hin eiginlega dag- skrá. Þar munum við reyna að draga fram stöðu þessara bama út frá ýmsum sjónarhomum, svo sem séð frá heilsugæslunni og fé- lagsþjónustunni. Við fjöllum um kjör barna sem eru ættleidd er- lendis frá eða koma hingað sem flóttafólk. Einnig mun á ráðstefn- unni Grazyna María Gunnarsson hjúkrunarfræðingur ræða um reynslu for- eldris bams af erlend- um uppruna. Ekki má þá gleyma skólamál- unum og hinni póli- tísku sýn stjómmálamannanna á skyldur samfélagsins við öil börn. Ráðstefnan er öllum opin en fólk þarf að skrá sig til þátttöku hjá Bamaheillum og er ráðstefnu- gjald 3.500 krónur." - Eru margir fyrirlesarar? „Já, þeir eru ellefu eftir hinn sögulega aðdraganda um morg- uninn. I raun hefðum við getað haft þetta tveggja daga ráð- stefnu en umfangið hefði hvort eð er orðið of mikið ef málin hefðu verið skoðuð frá öllum sjónarhornum. Inngangserindi flytur dr. Rannveig Traustadótt- ir félagsfræðingur og talar hún um menningarlegan margbreyti- leika á íslandi. Hún fékk nýlega styrk frá Rannsóknarsjóði ►Kristín Jónasdóttir fæddist 7. febrúar 1958. Hún lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1978 og mastersprófi í félagsfræði og kvennafræðum frá háskólanum í Minnesota 1988. Hún hefur lengst af starf- að hjá Barnaheillum cn auk þess sinnt ýmsum öðrum verk- efnum. Kristín á tvær dætur. Barnaheilla til þess að kanna stöðu asískra bama á Islandi. Kristín Njálsdóttir félagsráðgjafi ræðir um upplýsinga- og menn- ingarmiðstöð nýbúa. Einnig má sem dæmi geta um erindi Rutar Magnúsdóttur kennara um ný- búafræðslu og Valgerður Bald- ursdóttir geðlæknir ræðir um sérstöðu ættleiddra bama af er- lendum uppruna." -Er auðvelt að kanna stöðu þessara barna hér? „I þessum málaflokki, eins og sumum öðrum sem varða börn, gætir þess að upplýsingar eru brotakenndar. Hægt er að fá sumar upplýsingar á Hagstof- unni, aðrar hjá skólunum m.a. um gengi bamanna þar, en reynst getur erfitt að fá heil- stæða mynd af stöðu þeirra því skráning um það efni fer ekki fram á kerfisbundinn máta. Þetta á raunar við um öll íslensk börn. Þetta torveldar alla upp- lýsingaöflun og rannsóknir á þessu sviði, sem öðrum er varða böm, þarf að stórefla." - Gera ráðstefnur af þessu tagi mikið gagn? „Já, eins og ég kom inn á í upp- hafi er það hlutverk Barnaheilla að vekja athygli á högum barna og ráðstefnur em eitt af tækjun- um til þess. Þegar við voram að byrja vorum við með tvö til þrjú málþing á ári sem ætlað var að mæta þeim vanda sem m.a. upplýsinga- öflunin er, það er að leiða þá saman sem búa yfir þess- um upplýsingum í kerfinu og síð- an gefum við þessi erindi út í rit- röð Barnaheilla og í raun má líta svo á að þetta hafi að nokkra leyti bætt úr skorti á rannsókn- um á Islandi á stöðu barna. Við héldum t.d. málþing um innflytj- endabörn 1992 og reyndum þá að draga athygli að högum þeirra og skyldum okkar við þau. Þetta ætlum við að gera aftur nú á þessari ráðstefnu sem leiðir von- andi til aukinna umræðna, við- horfs- og stefnubreytinga og nýrrar lagasetningar þar sem þess er þörf.“ í lok ráðstefnunnar verður móttaka í boði félagsmálaráðu- neytisins. Skortir rann- sóknir á stöðu barna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.