Morgunblaðið - 26.10.1999, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 13
FRÉTTIR
UiillgÞíia Ikilgi
San*S
HáJegisverður
~~~* lýkur um kl
Upp komst um fjársvik
með greiðslukortum
PAR á þrítugsaldri hefur viður-
kennt hjá lögreglu að hafa svikið út
vörur hjá fyrirtækjum á höfuðborg-
arsvæðinu fyrir á aðra milljón
króna. Á laugardag náðist að end-
urheimta vörur s.s. hljómflutnings-
tæki, skrautmuni og húsgögn, að
andvirði um 1,3 milljónir króna.
Að sögn Ómars Smára Armanns-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns
verður reynt að koma mununum til
skila í þessari viku.
Vörurnar voru sviknar út úr fyr-
irtækjunum með þeim hætti, að
maður hringdi í fyrirtækin og lagði
inn pöntun á tiltekna vöru. Gefið
var upp greiðslukortanúmer og til-
tekinn staður, sem senda átti vör-
una á. Þar var hún móttekin án
þess að móttakandinn gerði grein
fyrir sér.
Að sögn Ómars Smára þarf lög-
reglan að fást við mörg áþekk tilvik
og hvetur lögreglan því verslunar-
fólk til aðgæslu í þeim tilvikum
þegai’ verslað er símleiðis, vaming-
ur pantaður og greitt er fyrir með
greiðslukortum. Auðvelt sé fyrir
hvern sem er að gefa upp greiðslu-
kortanúmer annarra og með því að
taka á móti pöntunum í gegnum
síma án tryggingar fyrir því að um
sé að ræða eiganda kortsins, sem
gefið er upp er ekki öruggt að fram
fari heiðarleg viðskipti. Þyrfti
a.m.k. að fá símanúmer greiðand-
ans, kanna hvort það standist og
hringja síðan í hann til að fá stað-
festingu viðskiptanna. Komi upp
vafi eða upplýsingai' stemmi ekki á
a.m.k. að gera þá kröfu að greið-
andinn sæki vöruna sjálfur í versl-
unina og framvísi nauðsynlegum
gögnum.
I því tilviki sem kom upp um
helgina hafði maðurinn aðgang að
greiðslukortakvittunum fólks, sem
áður hafði keypt vaming í tiltekinni
verslun í borginni og notaði númer
þeirra síðan í sínum viðskiptum.
Sagði Ómar Smári að þegar vör-
urnar hafi verið afhentar úti í bæ
hafi maðurinn, eða einhver annar,
kvittað fyrir móttökunni með nafni
þess kortaeiganda, sem notað hafði
verið. Hann eða aðrir hafi aldrei
sjálfir verið spurðir um skilríki eða
staðfestingu þess að þeir væru sá,
sem pantað hafði vöruna.
Aðgæsla starfsfólks
kom upp um svik
Ómar Smári sagði mikilvægt
fyrir verslunarfólk að vera á varð-
bergi til að draga úr möguleika
sem þessum, en það hafi einmitt
verið fyrir aðgæslu starfsfólks
eins fyrirtækisins sem um ræddi,
að upp komst um manninn. Hafði
starfsfólkið samband við lögregl-
una þegar það varð efins um karl-
kaupanda, sem hringdi og gaf upp
tiltekið nafn og kortanúmer er
reyndist tilheyra kvenmanni.
Ómar Smári sagði lögregluna
nýlega hafa upplýst annað
fjársvikamál þar sem vörur voru
teknar út á kortanúmer fýrirtækja
með sömu aðferð. Um var að ræða
umtalsverð verðmæti, verkfæri,
byggingavörur og heimilistæki,
sem tekist hafði að svíkja út.
„Það er spurning hvort ekki
þyrfti að skerpa reglur sem gilda
eiga um þessi viðskipti," sagði
Ómar Smári. „Annar möguleiki er
sá að notuð verði einhvers konar
pin-númer samhliða símaviðskipt-
um með greiðslukort eða á annan
hátt reynt að gera ráðstafanir til
að minnka möguleika á svikum
sem þessum.“
Ómar Smári sagði þó ljóst, að
þrátt fyrir að starfsfólk hefði uppi
eðlilegar varúðarráðstafanir og
færi í einu og öllu eftir reglum,
reyndu óprúttnir aðilar eftir sem
áður að svíkja út vörur, en
ástæðulaust væri að auðvelda
þeim það.
Skoðanakönnun
Gallups
Samfylking
og Fram-
sókn með
svipað fylgi
FRAMSÓKNARFLOKKUR og
Samíylking mældust með nánast
sama fylgi eða rúmlega 17% í nýrri
skoðanakönnun Gallups. Fylgi
Framsóknarflokksins eykst frá
könnun í síðasta mánuði, en fylgi
Samfýlkingarinnar minnkar lítil-
lega.
Breytingar á fylgi annarra
flokka eru óverulegar frá síðustu
könnun. Sjálfstæðisflokkurinn er
með 48,7%, Vinstri hreyfíngin -
grænt framboð er með 13,3% og
Frjálslyndir með 2,3%.
Þá minnkar stuðningur við ríkis-
stjómina samkvæmt könnuninni
annan mánuðinn í röð og hefur nú
minnkað um 10 prósentustig frá
því í júlí og er rúm 64%. Stuðning-
ur við stjórnina er mun meiri á
meðal þeirra sem hafa hærri laun.
Þannig styðja rúmlega 42% þeirra
sem eru með tekjur undir 100 þús-
und krónum stjórnina en tæplega
76% þeirra sem hafa meira en 300
þúsund krónur í heimilistekjur á
mánuði.
Könnunin var framkvæmd dag-
ana 28. september til 10. október í
gegnum síma. Urtakið var 1.125
manns af landinu öílu á aldrinum
18 til 75 ára. Næstum 26% voru óá-
kveðin eða neituðu að svara og
rösklega 6% sögðust ekki myndu
kjósa eða skila auðu. Svarhlutfall
var rúm 72% og eru vikmörk 2-4%.
, Morgunblaðið/Ásdís
Erla Hulda Halldórsdóttir (t.h.), forstöðumaður Kvennasögusafns Islands, tekur við fundagerðarbókum
Kvenréttindafélags íslands úr höndum formanns félagsins, Áslaugar Dóru Eyjólfsdóttur.
Kvennasögusafni íslands afhent gögn á kvennafrídeginum
Merkilegar heimildir um
kvennabaráttu á öldinni
11 mál til
kæru-
nefndar
jafnréttis-
mála
Á ÁRINU 1998 bárust kæru-
nefnd jafnréttismála 11 kæru-
mál. Fram kemur í árskýrslu
frá skrifstofu jafnréttismála
að nefndin hafi lokið efnislegri
afgreiðslu sjö þeirra mála sem
kom á borð hennar. Málin eru
lík þeim sem hafa verið að
koma til kasta kærunefndar-
innar undanfarin ár. Sjö mál
vörðuðu stöðuveitingar, tvö
vörðuðu launamisrétti, eitt
kynferðislegri áreitni og ann-
að mismunun. I öllum tilvikum
nema einu voru kærendur
konur.
Kærunefnd lýkur málum
með álitsgerð og komist
nefndin að þeirri niðurstöðu
að brotið hafi verið á kæranda
beinir hún tilmælum til hins
brotlega um viðunandi lausn á
málinu. Fram kemur í skýrsl-
unni að nokkuð hafi borið á
því að ekki sé farið eftir þess-
um tilmælum og mál því farið
fyrir dómstóla. I skýrslunni er
sú spurning reifuð hvort ekki
sé orðið tímabært að breyta
lögum þannig að þeir sem ger-
ast brotlegir verði skyldugir
að fara eftir tillögum nefndar-
innar. Af þeim þremur málum
sem nefndin kom að og fóru
fyrir dómstóla kváðu þeir
tvisvar upp dóm sem var í
samræmi við niðurstöður
kærunefndar.
Þing VMSÍ
hefst í dag
20. ÞING Verkamannasam-
bands íslands hefst í Reykja-
vík í dag með setningarræðu
Björns Grétars Sveinssonar,
formanns sambandsins.
Kjaramál verða helstu mál
þingsins, en samningar VMSÍ-
félaga renna út í vetur. Á
þinginu verða kynntar niður-
stöður könnunar sem VMSÍ
hefur látið gera á kjörum fé-
lagsmanna og viðhorfum
þeirra til þjónustu og starf-
semi stéttarfélaga og samtaka
þeirra.
Rétt til setu á þinginu eiga
179 fulltrúar frá 46 aðildarfé-
lögum VMSÍ um allt land.
Þinginu lýkur á fimmtudag
með kjöri stjórnar. Næstkom-
andi föstudag verða haldnir
aðalfundir deilda VMSÍ.
KVENNASOGUSAFNI Islands
voru afhent gögn Kvenréttindafé-
lags fslands og Menningar- og
minningarsjóðs kvenna á sunnu-
daginn var. KI afhenti fundar-
gerðarbækur frá 1907 til 1987 og
ýmis önnur gögn sem snerta
kvennabaráttu á íslandi á þessari
Framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs
Sex sóttu um starfíð
EMBÆTTI framkvæmdastjóra
Rannsóknarráðs íslands var auglýst
laust til umsóknar hinn 15. septem-
ber sl. Sex einstaklingar sóttu um
starfið.
Umsækjendur eru: Eyjólfur Pétur
Hafstein forstöðumaður, Guðrún
Pétursdóttir forstöðumaður, Her-
mundur Sigmundsson, fræðimaður
við rannsóknir í Oxford, Loftur Alt-
ice Þorsteinsson framkvæmdastjóri,
Vilhjálmur Lúðvíksson fram-
kvæmdastjóri og Þórður Jónsson
vísindamaðm-.
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra hefur vikið sæti við meðferð
og töku ákvörðunar um veitingu
embættis framkvæmdastjóra Rann-
sóknarráðs íslands sökum skyld-
leika við einn umsækjanda á grund-
velli 2. tölul. 1. mgr. 3. gr. stjórn-
sýslulaga nr. 37/1993. Geir H.
Haarde fjármálaráðherra hefur ver-
ið settur til að fara með framan-
greint stjórnsýslumál og taka
ákvörðun í því. Stjórn Rannsóknar-
ráðs íslands hefur fengið umsókn-
irnar til umsagnar.
öld. Menningar- og minningar-
sjóður afhenti m.a. fundargerðar-
bækur, mcrkjasölubækur og
styrkjabók sem nær aftur til 1946
þegar fyrst var úthlutað úr sjóðn-
um.
Aðspurð sagði Erla Hulda Hall-
dórsdóttir, forstöðumaður
Kvennasögusafnsins, afar mikil-
vægd; fyrir safnið að fá inn öll
gögn sem varða sögu kvenna.
„Gögn Kvennréttindafélagsins og
Menningar- og minningarsjóðs
eru sérlega mikilvæg þar sem þau
snerta sögu kvennabaráttunnar á
tuttugustu öld.“
Kvennréttindafélagið, sem
stofnað var árið 1907, áður en
konur fengu kosningarétt og kjör-
gengi til alþingis og sveitar-
sljórna og áður en þær fengu full-
an rétt til menntunar og embætta,
barðist fyrir lögfestingu þessara
réttinda og að þau næðu fram að
ganga, að sögn Erlu. „Þessi gögn
eiga eftir nýtast fræðimönnum og
öðrum nijög vel því þau eru afar
merkileg og góð heimild um sögu
kvennabaráttunnar.“
FerSaskrifstofa
stúdenta
naar:
og lau. 30. okt.
kl. 12.00,'sýningin hefst kl. 12.20 og
í. 12.50. Mlðaverð með mat 1.450 kr.
Leikarl: Stefán Karl Stefánsson
Lelketjórn: Magnús Geir hórðarson
Miðasölusími 5 30 30 30