Morgunblaðið - 26.10.1999, Síða 14

Morgunblaðið - 26.10.1999, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Morgunblaðið/Kristinn Ólafur Erlingsson, verkfræðingur hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, kynnir kjörtillögur samvinnunefndar um svæðisskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið. Tvær tillögur að svæðisskipulagi fyrir höfuðborgarsvæðið Tekist á um byggð til norðurs eða suðurs Reykjavík SAMVINNUNEFND um svæðisskipulag fyrir höfuð- borgarsvæðið hefur kynnt tvær kjörtillögur að skipulagi fyrir svæðið og gerir önnur þeirra ráð fyrir að byggðin þróist um 70% til norðurs og um 30% til suðurs en hin til- lagan gerir ráð fyrir að um 70% byggðar verði til suðurs og um 30% til norðurs. Þá eru ennfremur til skoðunai’ tvær tillögur að þéttingu byggðar. Að sögn Sigurðar Einars- sonar, formanns samvinnu- nefndar, er gert ráð fyrir að á næstu mánuðum muni nást samstaða um eina heildartil- lögu fyrir allt svæðið. „Þetta er stórt og umsvifamikið verk- efni og margar skoðanir eru á lofti,“ sagði hann. „Meðal ann- ars þarf að meta kosti um- ferðamannvirkja og annan kostnað en sex vinnuhópar eru starfandi um mismunandi efni er varða skipulagið og verður niðurstaða hópanna kynnt á opinni ráðstefnu í byrjun nóv- ember.“ Umferð eykst um 40-50% á 20 árum Báðar kjörtillögurnar gera ráð fyrir miðborg Reykjavíkur sem meginkjarna og að í Mos- fellsbæ, Smáranum og í Hafn- arfirði verði stuðningskjarnar. Hvað atvinnutækifæri varðar er gert ráð fyrir þróaðri störf- um í miðborginni og að lág- marksfjöldi nýrra starfa verði á Seltjarnarnesi. Að sögn Ólafs Erlingssonar, verkfræð- ings hjá Verkfræðistofu Sig- urðar Thoroddsen, en hann er einn af ráðgjöfum nefndarinn- ar, er gert ráð fyrir að íbúum fjölgi á höfuðborgarsvæðinu um 56 þús. eða um 70%-75% fram til ársins 2030 og að með aukinni bifreiðaeign muni um- ferð aukast um 40%-50% á næstu 20 árum. Flugvallarsvæðið skoðað „Við munum aðeins taka á flugvallarsvæðinu en það svæði er bundið fram til ársins 2016 samkvæmt skipulagi og verður skoðað hvaða áhrif byggð, hvort sem um íbúða- byggð eða atvinnusvæði verð- ur að ræða muni hafa,“ sagði hann. „En byggð á þessu svæði mun hafa mikil áhrif bæði á umferð og fram- kvæmdaröð á svæðinu og hvert við stefnum fram að þeim tíma.“ I drögunum er ákvörðun um Geldinganes sett til hliðar en þar er gert ráð fyrir hafnarað- stöðu samkvæmt Aðalskipu- lagi Reykjavíkur. Bent er á að í sérstakri skýrslu um hafnar- mál á svæðinu er dregin í efa þörfin fyrir svo mikið land- svæði fyrir nýja höfn en yfir- völd hafnarmála í Reykjavík draga niðurstöður skýrslunn- ar í efa. Stærri vega- framkvæmdir í tillögunni að norðlægri þróun byggða er gert ráð fyrir byggð meðfram Vesturlands- vegi að Mosfellsbæ og með Sundabraut yfir í Geldinganes og í Alfsnesi. Verði þessi leið valin er talið nauðsynlegt að ráðast í stærri vegafram- kvæmdir eins og lagningu Sundabrautar, breikkun Vest- urlandsvegar, Sæbrautar og Reykjanesbrautar auk þess sem kanna þurfi hvort nauð- synlegt verður að koma á nýrri vegtengingu milli Hafn- arfjarðarvegar og Reykjanes- brautar (Fossvogsbraut), of- anbyggðavegi og tengingu um Hlíðarfót. I tillögu að suðlægri þróun byggða er gert ráð fýrir byggð á Alftanesi og með Reykjanes- braut í átt að Straumsvík. Verði sú leið valin er talið nauðsynlegt að leggja 1. hluta Sundabrautar, ofanbyggða- veg, breikka Vesturlandsveg og Reykjanesbraut auk þess að kanna hvort þörf er á nýrri vegtengingu milli Hafnar- fjarðar og Reykjanesbrautar (Fossvogsbraut) og um Hlíð- arfót. Kársnesveita tekin formlega í notkun Merkur áfangi 1 fráveitumálum Kópavogur KÁRSNESVEITA, sameig- inleg fráveitudælustöð Kópavogs, Garðabæjar og Reykjavíkur, var formlega tekin í notkun á föstudag. Megninu af því skolpi, sem nú rennur í vogana inn af Skerjafirði, verður þar með dælt yfir í sameiginlegt frá- veitukerfí við Ánanaust og dælt þaðan út í Faxaflóa. Þórarinn Hjaltason, bæj- arverkfræð- ingur Kópa- vogsbæjar, segir að Kópa- vogur eigi lang stærsta hlutann í Kárs- nesveitu. Garðabær komi þar á eftir en Reykja- vík eigi minnsta hlutann. Hann segir að mest öllu, ef ekki öllu skolpi sé dælt frá Garðabæ yfir í Kársnesveit- una í gegnum þrýstilögn yf- ir Kópavoginn. Það er ástæðan fyrir stórum hluta Garðbæinga í Kársnesveit- unni. Frá Reykjavík kemur smávegis skolp frá Suður- Mjódd undir Reykjanes- brautina yfir í aðalholræsi Kópavogs. Að sögn Þórarins sam- anstendur kerfið af tveimur dælustöðvum. Ein stöðin er við Sunnubraut og hefur það hlutverk að lyfta skolp- inu til að það nái sjálf- rennsli. Þaðan fer skolpið út fyrir nesið í stóru hol- ræsi við hafnarsvæðið og endar í stórri dælustöð við Hafnarbraut, sem er helsta mannvirkið í þessu sam- bandi. Þaðan er skolpinu dælt í gegnum þrýstilögn yfir Fossvoginn og inn í Skerjaijarðarveituna, en hún er sameiginlegt frá- veitukerfi Reykjavíkur, Kópavogs, Garðabæjar og Seltjarnarness. Skolpinu dælt út í Faxaflóa Með þessu verður mest öllu skolpi sem nú rennur í vogana inn af Skerjafirði dælt út á Faxaflóa í gegn- um dælustöðina við Ána- naust. Það sem eftir stend- ur eru ræsi sem eru á norð- anverðu Kársnesinu, en þau liggja þar beint í sjó í dag. Þórarinn segir að þar eigi eftir að koma með svo- kallað sniðræsi, sem felst í því að leggja meginhoiræsi norðanvert á nesinu, sem fer í gegnum allar útrásirn- ar og safnar saman skolp- inu og fer með það inn í dælustöðina við Hafnar- braut. Hann segir að menn reikni með að framkvæma þetta á næsta og þarnæsta ári. „En þetta er mikill minnihluti af skolpinu. Það er svo mikið sem kemur, ekki bara af sunnanverðu Kársnesinu, heldur úr suð- urhlíðunum, Kópavogsdaln- um og nýju hverfunum. I dag fer þetta einfaldlega út í Kópavoginn, en með til- komu Kársnesveitunnar hættir skolpið að mestu að fara í Kópavoginn." Morgunblaðið/Þorkell Kársnesveita, ný fráveitudælustöð, hefur formlega verið tekin í notkun. Vínveit- ingaleyfí í Reykjavík orðin 169 Reykjavík í REYKJAVÍK eru 169 veit- ingastaðir með vínveitinga- leyfi. Þar af hafa 17 nýir staðir fengið leyfi á síðustu sjö mánuðum og auk þess liggja fyrir umsóknir frá tveimur til viðbótar. Þegar ný lög um vínveit- ingastaði tóku gildi í júlí á síðasta ári leið nokkur tími án þess að ný vínveitingaleyfi væru veitt. Áð sögn Gunnars Þorlákssonar'hjá Reykjavík- urborg var dregið að afgreiða vínveitingaleyfi á þessum tíma á meðan beðið var eftir reglugerð. Reglugerðin kom svo í mars á þessu ári og frá þeim tíma hafa 17 ný leyfi verið veitt. Þegar vínveit- ingaleyfi er veitt er leitað umsagnar lögreglu, bygging- arfulltrúa, heilbrigðiseftirlits og eldvarnareftirlits, en einnig þarf að hafa gilt veit- ingaleyfi frá lögreglunni. Einnig er beðið um sakavott- orð og upplýsingar um búfor- ræði umsækjanda. Auk þess þarf að leggja fram trygg- ingu fyrir rekstrarstöðvun og fer upphæð hennar eftir fjölda leyfilegra gesta, en hún er að lágmarki 500.000 krónur og bætast við 250.000 krónur fyrir hverja hundrað gesti sem leyfi er fyrir. Um- sóknir eru svo lagðar fyrir borgarráð sem samþykkir eða hafnar þeim. Frjáls afgreiðslutími hafður til reynslu í níu mánuði í viðbót Reglur um frjálsan af- greiðslutíma vínveitingahúsa hafa verið í gildi síðan í ágúst. 27 staðir með slíkt leyfi og Vínveitingaleyfi í Reykjavík r (m.v. 21. október 1999) Staðir sem hafa fengið leyfi frá því I mars 1999 j- Staðir með framlengdan opnunartíma 1 Aöalstræti 10 Fóqetinn 44 Hafnarstræti 1-3 Café Victor X X 87 Lauqavequr11 Tres Locos X 130 Síðumúli35 Kaffi Baunin X 2 Aðalstræti 4 b Club Clinton 45 Hafnarstræti 15 Homið 88 Lauqavegur 116 Keisarinn 131 Skipholt 50c Pítan 3 Aöalstræti 9 Inqólfsbrunnur 46 Hafnarstræti 17 Kaffi Thomsen X X 89 Lauqavegur126 Kínamúrinn 132 Skipholt 70 Amerískur Stíll 4 Amtmannsstíqur 1 Humarhúsið 47 Hafnarstræti 4 Kaffi Borq-Dubliner X 90 Lauqavequr130 BanThai 133 Skólavörðust. 45 Hótel Leifur Eiríksson 5 Arngrimsqata3 Landsbókasafn 48 Hafnarstræti 5 Café Amsterdam X 91 Lauqavequr16 Hótel Skjaldbreið 134 Smiðjustíqur 6 Grand Rokk 6 Austurstræti 12a “5ðai X 49 Hafnarstræti 7 Næturklúbburinn X 92 Lauqavegur 178 Creole og Mex 135 Sóltún 3 Akogessalurinn 7 Austurstræti 14 Kaffi París 50 Hafnarstræti 9 Maxims X 93 Lauqavequr18 Súfistinn 136 Suðurlandsbr. 2 Esja veitinqahús 8 Austurstræti 22 Astró X 51 Haqatorg Hótel Saqa 94 Lauqavequr19 Indokína 137 Suðurlandsbr. 2 Hótel Esja 9 Austurstræti 4 Kabarett 52 Hallveiqarstígur 1 Versalir 95 Laugavequr2 Kofi Tómasar frænda X 138 Suðurlandsbr. 2 Pizza Hut 10 Austurstræti 6 Blái enqillinn X 53 Hlíöarfótur G oq G veitinqar 96 Lauqavequr 20b Á næstu qrösum 139 Suðurlandsbr. 4a Askur 11 Austurstræti 6 Kaffi Austurstræti X 54 Hlíöarfótur Hótel Loftleióir 97 Lauqavegur22 Veitinqahúsiö 22 X 140 Suðurlandsbr. 6 Sælkerabúðin 12 Austurstræti 9 La Primavera 55 Hlíðarfótur Kaffi Nauthóll X 98 Lauqavequr 28b Sjanghæ 141 Sundaqarðar2 Sundanesti 13 Austurstræti 9 Rex X X 56 Hlíðarfótur Keiluhöllin 99 Laugavegur34a Ulle put 142 Sæmundargata Norræna húsið 14 Álfheimar74 Veislueidhúsið 57 Hraunberq4 Nikkabar 100 Lauqavequr45 L.A. Kaffi 143 Templarasund 3 Við Tiömina 15 Álfheimar74 ölver 58 Hraunbær102 Blásteinn 101 Laugavegur45 Vegas 144 TjarnarqataH Ráðhúskaffi 16 Ármúli21 Café Dima 59 Hringbraut Stúdentakjallarinn 102 Lauqavequr54 Svarta kaffið 145 Tryqqvaqata 18 Skipperinn 17 Ármúli 7 Kaffi Jensen X 60 Hrinqbraut 119 Hrói Höttur 103 Lauqavegur59 Lóuhreiður X 146 Tryqqvaqata 20 Glaumbar X 18 Ármúli9 Brodway X 61 Hverafold 5 Gullöldin 104 Lauqavequr72 Veitinqahúsið 147 Tryqqvaqata 22 Gaukur á Stönq X 19 Ármúli9 Hótel ísland 62 Hverfisgata 16a Grái kötturinn 105 Lauqavequr73 Kaffi Vin 148 Tryqqvaqata 26 Pizza 67 20 Baldursqata14 Þrir frakkar hjá Úifari 63 Hverfisqata 19 Leikhúskjallarinn X 106 Lauqavequr73 Punkturinn 149 Tryqqvaqata 4-6 Jónatan Uvinqston M 21 Bankastræti2 Lækjarbrekka 64 Hverfisgata 56 Austur Indíafélagið 107 Laugavequr78 Mónakó 150 Tryqqvaqata8 Amiqos 22 Bankstræti 7a Sólon Islandus X 65 Hverfisgata8-10 Club Seven 108 Laugavequr91 Kaffi 17 151 Vallarqrund 1-3 Staupasteinn 23 Barónsstíqur 11a Arqentína 66 Hveríisqata8-10 Inqólfskaffi 109 Láqmúli 5 Billiardstofan X 152 Vallá Kjalarnesi Enqlar oq Fólk X 24 Bergstaðastræti 1 Kaffibarinn X 67 Hverfisqata 8-10 Spotliqht Club X 110 Ustabraut3 Leikfélag Reykjavíkur 153 Vatnsmýrarv. 10 Fljótt og Gott 25 Berqstaðastr. 37 Hótel Holt 68 Höföabakki 1 Péturs - pub 111 Lóuhólar 2-6 Veisluhúsið X 154 Veqamótastíqur 4 Veqamót 26 Berqþóruqata 21 Vitabar 69 Inqólfsstræti 1a Næsti Bar 112 Lækjargata2 Café Ópera-Rómans X 155 Veltusund 1 Einar Ben 27 Borqartún32 Lykilhótel Cabin 70 Inqólfsstræti 3 Arilöqri 113 Lækjargata4 Jómfrúin 156 Vesturgata 6-8 Naustið 28 Borgartún 6 Borgartún 6 ehf 71 Inqólfsstræti 6 Islenska Óperan 114 Lækjargata 6a Café Ozio 157 Vesturgata2 Kaffi Reykjavík X 29 Bragaqata38a Eldsmiöjan 72 Jafnaselö Jói Risi X 115 Lækjargata6b Andarunqinn 158 Vesturgata3 Hlaðvarpinn 30 Brautarholt 20 Þórshöll 73 Klapparstigur 26 Klaustriö X 116 Lækjarqata8 Kína Húsið 159 Vesturlv.Korpúlfsst Golfklúbbur Rv. 31 Brautarholt 20 Þórskaffi X 74 Klapparstígur 35a Hótel Frón 117 Nethylur 2 Pizza67 160 Viöey Viðeyjarstofa 32 Brautarholt 22 Potturinn oq Pannan 75 Klapparstigur 38 Pasta Húsið 118 Pósthússtræti 11 Hótel Borg X 161 VitastíqurlOa Kaffi Puccini 33 Bústaðavequr 153 Pizza Hut 76 Krinqlan 4-12 Café Bleu X 119 Pósthússtræti 17 Skólabrú 162 Víðivellir Félaqsh. Fáks X 34 Duqguvoqur12 Dúndur-einkasalur 77 Krinqlan 4-12 Eldhúsið X 120 Pósthússtræti 9 Kaffibrennslan X 163 Vonarstræti3 Iðnó 35 EngjateigurH Kiwanis-einkasalur 78 Kringlan4-6 Krinqlukráin 121 Rauðarárstíqur 18 Fosshótel Und 164 Þinqholtsstr. 1 Carúsó 36 Enqjateiqur 17-19 Usta Café 79 Krinqlan 8-12 Hard Rokk Café 122 Rauðarárst. 25-27 Madonna 165 Þinqholtsstr. 2-4 Nellýs Café X 37 Engjavegur Laugardalshöll 80 Krinqlan8-12 Nýja Kökuhúsiö 123 Rauðarárstíqur 33 Kaffi Stíqur 166 Þinqholtsstr. 5 Isafold Sportkaffi X 38 Faxafen 11 Kaffi Mílanó 81 Lanqholtsv.109 Félaqsh.Fóstbræðra F 1 1 £ Hótel Reykjavík 167 Þórsqata 1 Þórsveitinqar 39 Frikirkjuvegur 7 Ustasafn Islands 82 Lauqarásvequr 1 Lauqa-ás 125 Rauðarárstígur 39 Rauöará Steikhús 168 Þönqlabakki 4 Genqhis Khan X 40 Grafarholt Golfskálinn 83 Lauqardalur Kaffi Flóra 126 Reykjavíkurflugv. Flugterían 169 öskiuhlið Perlan 41 Grensásvegur 10 Pizzahúsið 84 LauqavequrlO Asía 127 Seljavegur2 Leikh. Flugfél Lofts 42 Grensásvegur 7 Bohem 85 Lauqavequr103 Eantasía 128 Siqtún 38 Grand Hótel Reykjav. 43 Grensásvegur 7 Genghis Khan 86 LaugavegurH Italía 129 Síðumúli 19 Hótel Vík mega þeir hafa opið eins lengi og þeir vilja aðfaranætur laugardaga, sunnudaga og helgidaga. Þessi leyfisveiting er bundin við staði í miðbæn- um sem eru á svæðinu frá Klapparstíg að Aðalstræti og einnig tiltekin athafnasvæði en þó er skilyrði að vegalengd í næsta íbúðarhús sé ekki minni en hundrað metrar. Akveðið var að þessi frjálsi afgreiðslutími yrði hafður til reynslu í þrjá mánuði til að byrja með en nýlega var sam- þykkt að reynslutímabilið yrði lengt um níu mánuði og yrði því eitt ár. Þetta var gert í samráði við ýmsa hags- munaaðila, meðal annars samtök leigubílstjóra og íbúa- samtök. Gunnar segir að reynslan hafi verið sú að þar sem ónæðis gæti standi það lengur fram á morgun, en á móti komi að minni fjöldi safnist saman í miðbænum. Einnig bendi fulltrúar áfengis og vimuvarna á að þetta komi líklega til að auka neyslu. Þó var talin ástæða til að fram- lengja tilraunatímabilið og segir hann verið sé að búa til ákveðna mælikvarða sem til- raunin verði svo metinn með að ári.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.