Morgunblaðið - 26.10.1999, Síða 16

Morgunblaðið - 26.10.1999, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Islandsklukka Kristins E. Hrafnssonar valin í samkeppni um útilistaverk Stflhreint og fallegt verk Morgunblaðið/Kristján Kristinn E. Hrafnsson og Borghildur Óskarsdóttir skoða líkan af Islandsklukku Kristins, sem dómnefnd valdi til frekari útfærslu. DÓMNEFND á vegum Akureyrar- bæjar í samkeppni um útilistaverk í bænum í tilefni aldamóta mælir með því að verk eftir Kristin E. Hrafnsson verði tekið til frekari út- færslu og framkvæmda. Verkið ber nafnið Islandsklukkan - sögulegt minnismerki á Akureyri og er eitt af fimm verkum sem barst í lokaðri samkeppni. Staðsetning verksins, í tillögu höfundar, er í námunda við Háskólann á Akureyri og tengist göngustígum og útivistarsvæði við Glerá. Akureyrarbær ákvað fyrr á þessu ári að efna tO samkeppni um úti- listaverk, í tilefni af því að þúsund ár eru liðin frá því að kristni var lögtekin á Islandi og landafundum í Norður-Ameríku. Samkeppnin var öllum opin og bárust 62 tillögur. I kjölfarið voru fimm tillögur valdar inn í lokaða samkeppni. Sýning á til- lögunum fímm var opnuð í Deigl- unni sl. laugardag, þar sem niður- staða dómnefndar var jafnframt kynnt af formanni hennar, Sigurði J. Sigurðssyni forseta bæjarstjóm- ar. Ánægjuleg vika Það er skammt stórra högga á milli hjá Kristni E. Hrafnssyni en sl. föstudag vígði borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, vatnspóst sem Kristinn hannaði. Vatnspósturinn er sá fyrsti af mörgum sem Vatnsveita Reykja- víkur mun setja upp víðs vegar í borginni á næstu árum en verkið er byggt á upprúllaðri garðslöngu steyptri í brons. Kristinn sagði í samtali við Morg- unblaðið á Akureyri á laugardag, að þessi vika hefði verið mjög ánægju- leg fyrir sig og reyndar hafi allt árið verið óvenjulegt að mörgu leyti. Hann hefur í samstarfi við Stúdíó Granda verið að skipuleggja úti- svæðið við nýju Kringluna í Reykja- vík, sem afhjúpað verður formlega um miðjan næsta mánuð. „En þetta er mín vinna og það fylgir því mikil ábyrgð að takast á við svona stór verkefni." Kristinn eignaðist dóttur fyrir fáum vikum og hann sagði allt þetta smámál í þeim samanburði. „Að eignast barn er stóri atburðurinn í lífinu, hitt er bara vinna.“ Hugmyndin einföld og skýr í umsögn dómnefndar um Is- landsklukku Kristins segir að hug- myndin að baki verkinu sé einföld og skýr. „Stór klukka er látin tákna söguna með margvíslegum skírskotunum. Grunnform verks- ins, efni og stærðarhlutföll, eru fengin úr Hóladómkirkju og trjá- tegundin hlynur frá N-Ameríku. Is- landsklukkan er verk mjög í sam- ræmi við tilefni samkeppninnar. Söguleg ártöl á klukkunni og hug- myndin að slá inn tímann á tylli- dögum gefur því sögulegt og skemmtilegt yfirbragð. Hugmynd að staðsetningu fellur vel að um- hverfinu. Verkið er stílhreint og fallegt," segir ennfremur í umsögn dómnefndar. I greinargerð Kristins kemur fram að hlynurinn er afar mikilvæg- ur hluti verksins og því verði stað- setning/gróðursetning hans að vera í áberandi samhengi við staðinn sem klukkunni er valinn. Því er það að milli verksins og hlynsins er lagður stígur með handriði sem liggur eins að honum en ekki í aðrar áttir út frá trénu. Auk Sigurðar J. voru í dómnefnd- inni þau Sigfríður Þorsteinsdóttir, Þröstur Asmundsson, Ingileif Thor- lacius og Alda Sigurðardóttir. Aðrir sem áttu tillögur í samkeppninni voru Borghildur Óskarsdóttir, Helgi Þorgils Friðjónsson, Vignir Jóhannsson og Finna Birna Steins- son. Bangsadag- ur á bóka- safninu ALÞJÓÐLEGUR bangsadag- ur verður haldinn á Amtsbóka- safninu á Akureyri á morgun, miðvikudaginn 27. október og er safnið eitt 357 safna á Norð- urlöndum sem heldur upp á þennan dag sem er afmælis- dagur Teddy Roosevelts Bandaríkjaforseta sem m.a. er þekktur fyrir að þyrma lífi bjarnarhúns eitt sinn þegar hann var að veiðum. Meðal þess sem á dagskrá verður er að Guðbjörg Ringsteð sýnir bangsa úr safni sínu, þar á meðal bangsa Krist- jáns Þórs Júlíussonar bæjar- stjóra. Bragi förubangsi sem ferðast hefur á milli íslenskra bókasafna frá síðasta bangsa- degi kemur í heimsókn á sögu- stund. Þá munu safngestir sýna bangsa sína og bókasafns- bangsinn Matheus verður til sölu. Þeir gestir sem koma í heimsókn á Amtsbókasafnið fá viðurkenningarskjal um að þeir séu bangsa- og bókavinir. Gestum verður boðið upp á hlaupbangsa og eins geta þeir tekið þátt í happdrætti. Loks má geta þess að allir þeir sem heita eitthvað í lík- ingu við bjöm, t.d. Björn, Birna, Guðbjörn, Bjarnfríður, fá felldar niður sektir ef ein- hverjar eru sem og ókeypis lán þennan dag. Listamaður fær starfslaun Aðalheiður Ey- steinsdóttir valin Morgunblaðið/Kristján Aðallieiður Eysteinsdóttir situr með Brák dóttur sína í vinnustofunni i Gilinu. Á slysadeild með höfuðhögg FARÞEGI í bifreið var fluttur á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri eftir að tveir fólksbílar skullu harkalega saman á mótum Austurbrúar og Drottningarbraut- ar laust fyrir kl. 2 aðfaranótt síð- asta sunnudags. Öðrum bílnum var ekið norður Drottningarbraut en hinum að Austurbrú þegar óhappið varð. Farþegi í annarri bifreiðinni hlaut höfuðhögg við áreksturinn og var fluttur á slysadeild. Báðir bflarnir eru mikið skemmdir og voru dregnir brott af slysstað. Síðar sömu nótt, eða rétt eftir kl. 4, var ekið á nautgripi á Ólafs- fjarðarvegi, norðan við bæinn Hvamm. Tvær kvígur drápust við áreksturinn, bifreið varð óökufær eftir hann en engin slys urðu á mönnum sem í henni voru. MENNIN GARMÁL ANEFND Akureyrar samþykkti á fundi sínum nýlega að veita Aðalheiði Eysteinsdóttur myndlistar- manni starfslaun Akureyrar- bæjar til sex mánaða. Starfs- laun til listamanna eru nú veitt tvisvar ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag. Aðalheiður gat ekki verið við- stödd athöfnina á laugardag þar sem hún er stödd í Hollandi og er að selja upp sína fyrstu einka- sýningu utan landsteinanna. „Það er flestra manna mál sem til þekkja að listakonan sé uin þessar mundir í mikilli sókn enda hefur hún ákveðið að helga sig list sinni eingöngu. Ég er sannfærður um að ódrepandi dugnaður hennar, útsjónarsemi og einlæg ástríða til listrænnar sköpunar verður henni dijúgt veganesti í erfíðu og áhættu- sömu starfi listamannsins," sagði Þröstur Ásmundsson, for- maður menningarmálanefndar. Aðalheiður er Siglfirðingur að ætt og uppruna en hefur bú- ið á Akureyri til Ijökla ára. Hún stundaði nám í Myndlistarskól- anum á Akureyri frá 1989-1993. Undanfarin ár lief- ur hún haft vinnustofu í Gilinu og samhliða rekið Ljósmynda- kompuna og gengist þar fyrir margvíslegum sýningum. Aðal- heiður hefur tekið þátt í mörg- um samsýningum og haldið sjö einkasýningar. Blaðbera vantar [ eftirtalin hverfi á Akureyri, norðurhluta á Eyrinni, Giljahverfi, Borgarsíðu/Móasíðu. Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. I Morgunblaðið, lí> Kaupvangsstræti 1, Akureyri, 1 sími 461 1600 Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsing- ar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. Nýr formaður Samfylkingar á Norðurlandi eystra Framsókn tapar á gælum sínum við Vinstrigræna ÖRLYGUR Hnefill Jónsson, héraðs- dómslögmaður á Húsavík og vara- þingmaður, var kjörinn formaður Samfylkingarfélagsins á Norður- landi eystra á stofnfundi á Akureyi'i sl. laugardag. Samfylkingarfélagið á Norðurlandi eystra er sjötta félagið sem stofnað er á landsbyggðinni og er nú aðeins eftir að stofna slík félög í stærstu kjördæmunum tveimur, Reykjavík og Reykjanesi. Örlygur Hnefill sagði í samtali við Morgunblaðið að Samfylkingin hefði átt mjög undir högg að sækja og þá ekki síst í hans kjördæmi en að stað- an færi mjög batnandi. „Það kemur ýmislegt til, það urðu vandræði í kringum uppstillingar- og prófkjörs- mál hér í kjördæminu og fór ekki framhjá neinum. Þá erum við í sama kjördæmi og ágætur félagi okkar Steingn'mur J. Sigl'ússon, sem ekki var sammála því að fara þá leið sem við fórum. Einnig stóðu á okkur spjót annarra flokka, Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokkur litu á okkur sem ákveðna ógnun við flokkakerfið. En eins og ég hef bent á var frekar verið að hampa Vinstri- grænum og ég geng svo langt að segja að Framsókn hafi í gælum sín- um við þá hér í kjördæminu í síðustu kosningum fórnað einum þing- manni.“ Örlygur Hnefill sagði Framsókn- arflokkinn aldrei hafa tekið neitt á Vinstrigrænum, heldur hamast á Samfylkingunni. Vinstrihreyfingin hafi því komið sterk út úr síðustu kosningum og að kosningabaráttan hafi verið henni auðveld. „Þessh' hlutir eiga eftir að breytast og ég hef trú á því að Framsóknarflokkurinn muni skoða sína stöðu í litrófinu, nú þegar skoðanakönnun mælir Vinstri- hreyfinguna - grænt framboð jafn- vel stærri en Framsóknarflokkinn. Eg á því ekki von á að að Framsókn klappi þeim mikið lengur og fari nu að veita þeim einhverja viöspyrnu." Sem fyrr segir er eftir að stofna Samfylkingarfélög á Reykjanesi og í Reykjavík en Örlygur sagði að þegar því væri lokið kæmi að því að stofna flokk Samfylkingarinnar á landsvísu. Aðspurður um foringjaefni sagði Ör- lygur Hnefill að Samfylkingin hefði innan sinna raða margt hæft og gott fólk, sem mundi koma upp í þeirri umræðu, „án þess að ég vilji nefna einhver nöfn á þessu stigi málsins". Fimm þingmenn Samfylkingarinn- ar fluttu ávörp á stofnfundinum á Akureyri, Svanfríður Jónasdóttir, Margi'ét Frímannsdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Þórunn Sveinbjarn- ardóttir og Einar Már Sigurðsson. Þá reifaði Aðalsteinn Baldursson, for- maður Verkalýðsfélags Húsavíkm' og formaður Alþýðusambands Norður- lands, stöðuna í kjaramálunum framundan og svaraði fyrirspurnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.