Morgunblaðið - 26.10.1999, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Sektargreiðsla
fyrir áfengissmygl
TVEIR menn, rúmlega fertugir,
hafa í Héraðsdómi Norðurlands
eystra verið dæmdir til greiðslu
sektar fyrir áfengis- og tollalaga-
brot. Var öðrum þeirra gert að
greiða 100 þúsund krónur í sekt
en hinum 400 þúsund krónur auk
þess sem nokkurt magn áfengis
og vindlinga sem hann hafði í
fórum sínum var gert upptækt.
Málsatvik eru þau að annar
mannanna, sem var skipverji á
Stuðlafossi smyglaði nokkru
magni áfengis, vindlingum og
skinku þegar skipið kom frá
Lipaya í Rússlandi í febrúar á
síðasta ári. Hluti vamingsins
fannst við húsleit hjá hinum
manninum, en varninginn af-
henti skipverjinn hinum í því
skyni að hann kæmi honum í
verð. Sá sem ætlaði að selja
varninginn var m.a. ákærður fyr-
ir að hafa selt og afhent hluta áf-
engisins til ungmenna undir 20
ára aldri.
NOtUð
kælitæki
Notaðar
vörur á góðu
verði til sölu í
Kringlunni frá
13-18 í dag og
næstu daga.
Vinsamlegast
hafið samband
við verslunar-
stjóra.
innrettingar!
Nýkaup
Þar semferskleikinn býr
Kringlunni • www.nykaup.is
Námskeið um börn með slaka hljdðskynjun
Hægt að greina börn í
áhættuhópi í leikskóla
HÆGT er að greina þau börn sem
eru í áhættuhópi vegna lestrarörð-
ugleika strax í leikskóla. Þær
Dagný Annasdóttir, sérkennslu- og
talmeinafræðingur, og Sigurlína
Jónsdóttir, fagráðgjafi í tónmennt
og forskólakennslu á Akureyri,
hafa í sameiningu þróað námskeið
ætlað leikskólakennurum og kenn-
urum, sérkennurum og foreldrafé-
lögum í fyrstu bekkjum grunnskóla
um þetta efni. Þær hafa haldið
námskeiðið víða um land við góðar
undirtektir og einnig héldu þær er-
indi á Haustþingi Bandalags kenn-
ara á Norðurlandi eystra íyrir
nokkru.
Dagný og Sigurlína kenndu sam-
an í Barnaskóla Akureyrar fyrir
um fimm árum, Dagný var í sér-
kennslu og Sigurlína vann að til-
raunaverkefni sem snerist um að
færa tónlistarkennslu út í grunn-
skólana. A þeim tíma voru í skólan-
um nokkrir drengir sem bjuggu við
slakan málþroska og hljóðgrein-
ingu, en í kjölfar þess að þær
reyndu að rétta þeirra hlut fóru
þær að vinna saman og þróuðu að-
ferð sem gerir bömum sem eiga við
lestrarerfiðleika að stríða auðveld-
arafyrir.
„Öll börn hafa jákvæðar vænt-
ingar til lestrarkennslu, en því mið-
ur eiga sum þeirra erfiðara með að
ná tökum á lestrinum en önnur. Við
höfum verið að kynna leið sem
gagnast leikskóla- og grunnskóla-
kennurum til að undirbúa þessi
börn og gera þeim kleift að læra að
lesa með góðu móti og koma þannig
í veg fyrir að fyrsta reynslan af
lestrarkennslunni verði neikvæð,"
sagði Dagný.
Þær sögðu að oft færi dýrmætur
tími á fyrstu grunnskólaárum barn-
anna til spillis, mál þeirra sem
verða undir á þessu sviði velktust
oft of lengi í kerfinu, öllum til ama.
Meiri líkur á að misþroska
börn eigi í erfíðleikum
Á námskeiðinu benda þær á þau
einkenni sem leikskóla- og grunn-
skólakennarar ættu að vera vak-
andi fyrir hjá börnunum, en þau
eru málþroski, fín- og grófhreyfing-
Fyrir bíiskurmn
Fytir fcvot
Skolvaskar
intra skolvaskarnir eru framleiddir
á vegg eða innfelldir (borð.
Stærðir:
48x38xl9cm
54x45x23cm
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 564 1088 - Fax: 564 1089
fýéWi
Morgunblaðið/Kristj án
Sigurlína Jónsdóttir, fagráðgjafi í tónmennt og forskólakennslu á
Akureyri, og Dagný Annasdóttir, sérkennslu- og talmeinafræð-
ingur, hafa þróað námskeið sem fjallar um börn með slaka hljóð-
skynjun.
ar, sjónskynjun, heyrnræn skynjun
og áttun. Það sem einkennir þau
börn sem eru í áhættuhópnum
vegna hugsanlegra lestrarörðug-
leika er ýmislegt þótt Dagný segi
að ekkert sé algilt í þessum efnum.
Þannig eru meiri líkur á að mis-
þroska börn muni eiga í erfiðleik-
um, sem tengist beint framburði og
málþroska, með að læra að lesa og
svonefnd eyrnabólgubörn eru einn-
ig í áhættuhópnum. Málþroski
þeirra er stundum minni en þeirra
sem ekki hafa átt við eyrnabólgu að
stríða. Þá nefna þær þau börn sem
standa illa félagslega, fá litla at-
hygli heima fyrir og eru verr undir
lestrarnám búin. Þá eru einnig í
þessum hópi böm sem eiga við má-
lörðugleika að etja og hljóðörðug-
leika. Þessi börn eru með eðlilega
greind en af einhverjum ástæðum
eiga þau erfitt með mál eða að að-
greina hljóð.
Megininntak námskeiðsins fjall-
ar um börn með slaka hljóðskynj-
un-hljóðgreiningu. Aðferð þeirra
Dagnýjar og Sigurlínu er sú að
þjálfa upp hljóðskynjunarþáttinn
með aðstoð tónlistar og örva mál-
þroska barnanna. Sigurlína hefur
útbúið gott námsefni fyrir leik-
skólakennara sem þjálfar upp
heyrnræna, sjónræna, hreyfi- og
áttunarþáttinn, sem allir eru for-
sendur fyrir árangursríku lestrar-
og skriftamámi.
Hefja þarf umræður
Þær segja nauðsynlegt að opna
umræður um þessi mál meira. Með
því að vinna markvissar á leikskól-
anum yrði hægt að vinna mikilvægt
fyrirbyggjandi starf. Aldrei sé
hægt að koma alveg í veg fyrir
lestrarörðugleika barna, en með
því að grípa fyrr inn í verði þeir
vægari og ekki eins langvarandi.
Vænni dilkar í ný-
liðinni sláturtíð
FALLÞUNGI dilka sem slátrað
var hjá sláturhúsi Kaupfélags
Eyfirðinga í nýliðinni sláturtíð
var heldur meiri en í fyrra eða
15,8 kíló á móti tæplega 15,5 ár-
ið á undan.
Óli Valdimarsson sláturhús-
stjóri sagði að dilkarnir nú
hefðu verið nokkru vænni en
vant er en þó ekki feitari.
Stærsti dilkurinn kom frá Hóli
við Dalvík og vó 32,4 kíló. Slát-
urtíðinni lauk nú í lok vikunnar.
Samtals var slátrað 23.270
fjár, þar af voru dilkar 20.930
og fullorðið fé var 2.340. Þetta
fé lagði sig á 349 tonn. Að sögn
Óla tóku bændur með sér heim
samtals 37,5 tonn sem er nokk-
uð mikið miðað við meðalár
Ekki hafa verið teknar saman
tölur um slátursölu en Óli sagði
það sína tilfinningu að hún væri
heldur minni en síðustu ár.
Hann sagði að sláturtíðin hefði
verið heldur lengri nú en í fyrra
eða fimm dögum þannig að sal-
an dreifðist yfir lengri tíma.
Þá hefði ekki verið opin slát-
ursala á Dalvík svo sem verið
hefur undanfarin ár og það gæti
haft eitthvað að segja. Loks
nefndi hann að veðrið hefði ver-
ið einstaklega gott alla slátur-
tíðina og þegar svo væri vildi
fólk oft draga það að taka slátur
og vaknaði svo upp við það að
sláturtíðin væri búin þegar loks
ætti að hefjast handa við slátur-
gerð.