Morgunblaðið - 26.10.1999, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBBR 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Ný verðbólguspá Seðlabankans og spá um framvindu verðlags á næsta ári
Seðlabankinn spáir
4,6% verðbólgu
á árinu
Morgunblaðið/Kristinn
SEÐLABANKI íslands spáir 3,3%
verðbólgu milli ársmeðaltala 1998
og 1999 og 4,6% hækkun frá upp-
hafí til loka árs 1999. í júlí síðast-
liðnum spáði bankinn að samsvar-
andi hækkanir yrðu 3% og 4%. Þá
spáir bankinn 4,1% verðbólgu milli
áranna 1999 og 2000 en 3,7% verð-
bólgu frá upphafi til loka næsta árs
miðað við óbreytt gengi frá því sem
það er í dag. Þetta kemur fram í
nýrri verðbólguspá sem Seðlabank-
inn birti í gær.
Már Guðmundsson aðalhagfræð-
ingur Seðlabankans segir að verð-
bólguspáin fyrir næsta ár byggist
m.a. á óbreyttu gengi, að launa-
hækkanir verði 6,5% milli ára og
raunverð húsnæðis á höfuðborgar-
svæðinu hækki í byrjun næsta árs.
Már sagði að verðbólguspáin
byggðist því ekki á sérstakri bjart-
sýni en ef gengið styrktist og
launahækkanir á næsta ári yrðu
eitthvað lægri gæti verðbólgan orð-
ið minni.
I tilkynningu Seðlabankans segir
að spáin geri ráð fyrir meiri verð-
bólgu en hægt sé að una við. Þegar
Már var spurður hvort Seðlabank-
inn myndi grípa til aðgerða, svo
sem vaxtahækkana, í ljósi þessa,
sagði hann að vaxtamálin væru í
stöðugri skoðun og þessi verð-
bólguspá kæmi inn í það mat auk
annarra þátta svo sem gengisþró-
unar.
„Við vitum ekki hvernig gengið
þróast áfram miðað við núverandi
vaxtastig. Það hefur verið að
Svíar kaupa
þýzkan
bankarisa
Stokkhdlmi. Reuters.
SÆNSKI bankinn SEB hefur
tilkynnt að hann ætli að kaupa
fimmta stærsta viðskiptabanka
Þýzkalands, BfG. Samningur-
inn er 1,7 milljarða dollara
virði.
Samningurinn er liður í
þeirri stefnu SEB að víkka út
starfsemi bankans á Netinu.
Stjómendur SEDB vilja fjölga
320.000 núverandi viðskipta-
vinum á Netinu í fimm milljón-
ir. Þeir vilja einnig auka umsvif
sín í bankastarfsemi á Norður-
löndum.
BfG var stofnað 1958 og hef-
ur um eina milljón viðskipta-
vina, 5.300 starfsmenn og 177
útibú víðs vegar í Þýzkalandi.
Yfirtakan þarfnast skoðunar
yfirvalda, en búizt er við að
sameiningunni ljúki um ára-
mót.
Sparnaður
ráðgerður
Með kaupunum reynir nor-
rænn banki í fyrsta sinn að
færa út kvíamar á meginlandi
Evrópu og neð þeim hefur ver-
ið bundinn endi á margra mán-
aða vangaveltur.
BfG hefur verið til sölu síðan
1998, þegar framkvæmda-
stjóm Evrópusambandsins
skipaði Credit Lyonnais að
selja 50% hlut sinn til að fá
ESB til að samþykkja ríkisað-
stoð við C. Lyonnais.
Credit Lyonnaise keypti
eignarhluta tveggja hluhafa
BfG, eignarhaldsfélags þýzkra
verkalýðsfélaga, BGAG, og
tryggingafélagsins Aaehener &
Munchener Beteiligungs AP,
áður en bankinn var seldur.
hækka og haldi sú þróun áfram
með varanlegum hætti leiðir það til
lægri verðbólgu,“ sagði Már Guð-
mundsson.
Búist við litlum verðhækkunum
það sem eftir er ársins
Vísitala neysluverðs hækkaði um
1,7% á milli annars og þriðja árs-
fjórðungs 1999 sem samsvarar 6,8%
verðbólgu á heilu ári. Spá Seðla-
bankans frá því í júlí síðastliðnum
gerði ráð fyrir 1,3% hækkun sem
samsvarar 5,3% verðbólgu á heilu
ári. Frávikið er innan tölfræðilegra
skekkjumarka, og í verðbólguspá
Seðlabankans kemur fram að það
stafaði af því að olíu- og bensínverð
annars vegar og húsnæðisverð á
höfuðborgarsvæðinu hins vegar
hækkaði mun meira en gert var ráð
fyrir í júlí.
„Meginástæða þess að nú er spáð
meiri verðbólgu en í júlí er meiri
hækkun verðlags á þriðja ársfjórð-
ungi en búist var við. Hins vegar er
gert ráð fyrir litlum sem engum
verðhækkunum það sem eftir er
ársins. Það byggir á venjubundinni
árstíðasveiflu verðlags, lækkun
bensíngjalds sem þegar er orðin og
hækkun á gengi íslensku krónunnar
að undanfömu. Þá er ekki reiknað
með umtalsverðri hækkun á raun-
verði húsnæðis það sem eftir lifir
ársins né að bensínverð erlendis
gefi tilefni til hækkunar á innlend-
um markaði. Bregðist þessar for-
sendur verður verðbólga meiri en
hér er spáð,“ segir í spá Seðlabank-
ans.
Reiknað með minnkandi
launaskriði
Seðlabankinn hefur einnig metið
verðlagshorfur næsta árs og spáir
4,1% verðbólgu á milli ársmeðaltala
1999 og 2000 en 3,7% verðbólgu frá
upphafi til loka árs 2000. Þessi spá
byggir á því að gengi krónunnar
haldist óbreytt frá því sem nú er og
að meðalhækkun launa á almennum
vinnumarkaði að meðtöldu launa-
skriði og þegar umsömdum hækk-
unum verði um 6'/2% á milli áranna
1999 og 2000.
Reiknað er með að launaskrið
minnki úr 2% í ár í l‘/2% á næsta ári,
m.a. vegna þess að vísbendingar eru
um að afkoma útflutnings- og sam-
keppnisgreina hafi versnað. Reiknað
er með 2% framleiðniaukningu á
næsta ári. Forsendur um hækkun
innflutningsverðs á þessu ári hafa
verið hækkaðar frá því í júlí úr 2Í4%
í 3/2% og hefur það áhrif á spána
fyrir næsta ár. A næsta ári er reikn-
að með U/2% hækkun innflutnings-
verðs, m.a. á þeirri forsendu að verð
olíu og bensíns á alþjóðlegum mörk-
uðum hækki ekki að ráði frá því sem
þegar er orðið. Að lokum er gert ráð
fyrir að raunverð húsnæðis á höfuð-
borgarsvæðinu hækki nokkuð á
fyrstu mánuðum næsta árs. Almenn
meginforsenda þessarar spár er
hins vegar sú að nokkuð hægi á hag-
vexti og að mikil ofþensla eftir-
spumar að undanfömu hjaðni þegar
líður á næsta ár,“ segir í spá Seðla-
bankans.
Mun meiri verðbólga en
í helstu viðskiptalöndum
Fram kemur að verðbólgan sem
bankinn spáir nú sé mun meiri en í
helstu viðskiptalöndum Islendinga
og meiri en hægt sé að una. Verði
launahækkanir meiri en hér er gert
ráð fyrir eða takist illa til í hagstjóm
næsta árs gæti verðbólga orðið enn
meiri. Skili aðhald í peningamálum
sér í hærra gengi og/eða verði launa-
hækkanir minni en gert er ráð fyrir í
forsendum spárinnar verði verð-
bólga minni en hér er spáð. Til dæm-
is myndi 1 !/>% hækkun gengis krón-
unnar á næstu mánuðum, ásamt því
að laun hækkuðu 1% minna á næsta
ári en gert er ráð fyrir í spánni, leiða
til þess að verðbólga yrði rúmlega
21/2% frá upphafi til loka næsta árs í
stað rúmlega 3*/2%. Aukning kaup-
máttar launa yrði hins vegar nánast
hin sama í báðum tilfellum.
Seðlabankinn hefur einnig lagt
mat á þróun raungengis krónunnar
miðað við þá verðbólguspá sem nú
hefur verið birt. Raungengi á mæli-
kvarða launa stendur nánast í stað á
þessu áii frá því í fyrra en hækkar
um nær 2% á mælikvarða verðlags.
Á næsta ári hækkar það um rúmlega
4% á báða kvarðana.
Mánaðarskýrsla Kaupþings hf. um þróun og horfur á mörkuðum
Aukið innstreymi gjald-
eyris styrkir krónuna
KAUPÞING hf. gerir ráð fyrir
frekari styrkingu krónunnar þrátt
fyrir að sögulega hafi krónan heldur
veikst á síðustu mánuðum ársins
vegna aukins innflutnings. Telur
Kaupþing að aukið innstreymi
gjaldeyris vegna mikils vaxtamunar
ætti að stuðla að styrkingu krón-
unnar, auk þess sem ekki sé hægt
að útiloka frekari vaxtahækkanir af
hálfu Seðlabankans til skemmri
tíma litið. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu greiningardeildar Kaup-
þings um þróun og horfur, sem
framvegis verður gefin út mánaðar-
lega, en hingað til hefur Kaupþing
gefið út ársfjórðungslegt yfirlit um
stöðu og horfur á mörkuðum hér-
lendis og erlendis.
Spá Kaupþings um verðbólgu frá
upphafi til loka árs er 5,5%, og eru
forsendur spárinnar að verðlag
hækki að meðaltali um 0,3% á milli
mánaða það sem eftir lifir árs. Tólf
mánaða verðbólga mælist nú 5,3%
og þriggja mánaða verðbólga
mælist 8,3% á ársgrundvelli. I
skýrslu Kaupþings kemur fram að
nokkur óvissa sé fyrirsjáanleg á
næstu vikum á vaxtamarkaði og í
Ijósi síðustu verðbólgutalna sé ekki
hægt að útiloka frekari hækkanir á
stýrivöxtum Seðlabankans.
Skilyrði fyrir lækkandi
markaðsvöxtum
Bent er á að þrátt fyrir að dregið
hafi úr skuldum ríkisins megi gera
ráð fyrir að áfram verði töluverð út-
gáfa á hús- og húsnæðisbréfum.
Auk þess hafi sveitarfélögin tekið á
sig aukin verkefni frá ríkinu á und-
anfömum árum, og þessi verkefni
hafi leitt til aukinna fjárfestinga og
útgjalda. Áætlað er að hrein láns-
fjárþörf ríkissjóðs, húsnæðiskerfis-
ins og annarra opinberra aðila verði
um 9,1 milljarður, sem er 3,8 millj-
arða króna aukning frá fyrra ári, og
í skýrslu Kaupþings segir að laus-
leg spá fyrir árið 2000 geri ráð fyrir
að hrein lánsfjárþörf opinberra að-
ila verði 3,4 milljarðar, en sveitarfé-
lögin séu að auka skuldir á meðan
ríkið hafi möguleika á að greiða
þær upp.
„Innlendir endurkaupendur, sér í
lagi lífeyrissjóðir, virðast ekki nýta
tækifærið til að koma inn á markað-
inn og tryggja sér skuldabréf með
tiltölulega háum vöxtum. Er líklegt
að þeir vilji nýta heimildir sínar til
fjárfestinga erlendis og bíða með
fjárfestingar innanlands á meðan.
Þrátt fyrir allnokkra óvissu til
skemmri tíma má gera ráð fyrir að
þegar til lengri tíma er litið séu
skilyrði fyrir lækkandi markaðs-
vöxtum,“ segir í skýrslunni.
Deutsche
Telekom sækir
fram i Austur-
Evrópu
Frankfurt. Reuters.
DEUTSCHE Telekom Qarskipta-
risinn í Þýzkalandi hyggst kaupa
hlut í mörgurn farsímafélögum í
Austur-Evrópu með 2 milljarða
dollara fjárfestingu, sem vonað
er að muni treysta fótfestu fyrir-
tækisins á ört vaxandi markaði
Austur-Evrópu.
Telekom ætlar að kaupa 49%
hlut bandariska fyrirtækisins
MediaOne í ungversku félögun-
um Westei 450 og Westel 900,
sam ráða til samans yfir 59%
markaðar Unverjalands.
Þýzki risinn mun einnig kaupa
22,5% hlut í Polska Telefonia
Cyfrowa (PTC), einu helzta far-
símafélagi Póllands, og þar með
eykst hlutur D. Telekom í PTC í
45%.
Færist á nýtt stig
Sókn Deutsche Telekom í
Austur-Evrópu og kaup keppi-
nautarins Mannesmann AG á
brezka farsímafélaginu Orange
21. október að keppnin um mark-
aðshlutdeild í Evrópu hefur
færzt á nýtt stig að sögn sérfræð-
inga.
„Austur-Evrópa er vanþróuð á
fjarskiptasviðinu og Dwutsche
Telekom á því auðvelt með að
sækja inn á þennan markað,"
sagði sérfræðingur SB Securities
í London,
I ágúst keypti Telekom brezka
farsímafélagið One20ne fyrir 8,4
rnilljarða punda, en félaginu hef-
ur ekki tekizt að komast yfir
stórt alþjóðlegt fyrirtæki, sem
myndi færa það í röð örfárra fé-
laga er munu ráða Iögum og lof-
um á alþjóðlegum Ijarskipta-
markaði eftir tvö eða þrjú ár.
Telekom beið lægri hlut fyrir
Oliveitti í tilboðsstríði um Tel-
ecom Italia fyrr á þesu ári og gat
ekki boðið betur en MCI
WorldCom í bandaríska langlínu-
fyrirtækið Sprint Corp.
Með Austur-Evrópusamningn-
um eignast Telekom ráðandi hlut
í rússneska fjarskiptafyrirtækinu
RTDC (Russian Telecom
Development Corp, sem hefur
íjárfest í níu svæðisbundnum
fjarskiptafyrirtækjum í Rúss-
landi.
------------------
BMW fær
10% hlut í
Rolls-Royce
London. Reuters.
ÞÝZKI bflaframleiðandinn BMW
AG mun auka hlut sinn í Rolls-
Royce Plc í um 10% og það er liður í
samningi, sem veitir hinum brezka
framleiðanda flugvélahreyfla full
umráð yfir sameignarfélagi fyrir-
tækjanna um smíði flugvélahreyfla.
i @texti: BMW hefur átt 2% hlut í
Rolls-Royce síðan 1990, þegar fyrir-
tækin komu á fót sameignarfyrir-
tækinu BMW Rolls-Royce GmbH
til að þróa röð BR700 flugvéla-
hreyfla í fyrirtælqaflugvélar og
svæðisbundin flugfélög. Nú mun
BMW auka hlut sinn í rúm 10%.
Bjóða ekki í Rolls
Forstjóri Rolls-Royce, John
Rose, sagði að BMW hygðist ekki
auka hlut sinn um meira en 10% og
BMW kvaðst ekki ætla að bjóða í
Rolls-Royce. Enginn einn erlendur
hluthafi má eiga meira en 15% í fyr-
irtækinu og sameiginleg hlutafjár-
eign útlendinga má ekki fara yfir
49,5%.
„Þeir hafa sagt skýrt og skorinort
að þeir sjái enga ástæðu til að auka
hlut sinn,“ sagði Rose fréttamönn-
um.
„Þeir vflja einbeita sér að bfla-
framleiðslu og telja þetta skynsam-
lega fjárfestingu í ört vaxandi og
skyldu fyrirtæki," sagði hann.