Morgunblaðið - 26.10.1999, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Forseti Kma í opinberri heimsókn í Frakklandi
Ziang Zemin, forseti Kína, sagði lýði-æði vera afstætt hugtak á blaðamannafundi með Jacques Chirac,
Frakklandsforseta, í París í gær.
Hafnar gagnrýni á
mannréttindabrotin
París, Peking. Reuters, AP.
JIANG Zemin, forseti Kína, sem er
í opinberri heimsókn í Frakklandi,
hafnaði í gær gagnrýni á mannrétt-
indabrot kínversku kommúnista-
stjórnarinnar og kvaðst ekki vita
hvað vaki fyrir þeim sem hafa efnt
til mótmæla í tilefni af ferð hans til
Bretlands og Frakklands. Hann
kvaðst m.a. hafa heyrt þá kröfu að
Tíbet fengi sjálfstæði en sagðist
sannfærður um að Jacques Chii-ac
Frakklandsforseti styddi hana
ekki.
Chirac kaus að svara ekki um-
mælum Jiangs og virtist vera í
varnarstöðu eftir að hafa sætt
gagnrýni fyrir að bjóða kínverska
forsetanum að gista á sveitasetri
sínu í Correze í miðhluta Frakk-
lands um helgina áður en opinbera
heimsóknin hófst. Franskir emb-
ættismenn sögðu þó að Chirac hefði
rætt Tíbetmálið ítarlega við Jiang
og innt hann eftir því hvort kín-
verska stjórnin vildi ræða við Dalai
Lama, trúarlegan leiðtoga Tíbeta.
Ekki var greint frá svari kínverska
forsetans.
„Evrópusambandið gagnrýndi
okkur nýlega í ársskýrslu um
mannréttindamál. I okkar huga er
sú gagnrýni tilefnislaus. Hún er
íhlutun í innanríkismál Kína,“ sagði
Jiang á blaðamannafundi með
Chirac í París og bætti við að lýð-
ræði væri afstætt hugtak sem
þyrfti að laga að hverju ríki. „Ég
sagði Chirac að lönd okkar væru
ólík landfræðilega og hvað þróunar-
stig varðar, þannig að það væri öld-
ungis eðlilegt að þau hefðu ólík við-
horf til mannréttindamála.“
Chirac og Jiang ræddu mann-
réttindamál í þrjár klukkustundir á
sveitasetri franska forsetans á
laugardag. Kínverski forsetinn
sagði síðar að það hefði verið yfir-
gripsmesta samtal um þetta mál-
efni sem hann hefði átt við erlendan
þjóðarleiðtoga. „Hann lét í ljósi
vilja til að koma á umbótum á þessu
sviði jafnt og þétt, án þess að stofna
félagslega stöðugleikanum í
hættu,“ sagði Chirac.
Nokkrir félagar í Amnesty
International og hreyfingunni
Fréttamenn án landamæra (RsF),
sem berst fyrir frelsi fjölmiðla,
hengdu upp veggspjöld á framhlið
skrifstofu kínverska ríkisflugfé-
lagsins í París til að mótmæla
mannréttindabrotum og skertu
frelsi fjölmiðla í Kína. Robert Men-
ard, formaður RsF, var fluttur á
lögreglustöð.
Um 500 manns mótmæltu einnig
komu kínverska forsetans í París á
sunnudag, héldu á fána Tíbets og
lýstu Jiang sem einræðisherra.
Marc Blondel, formaður frönsku
verkalýðssamtakanna FO, gagn-
rýndi stjórnina í Kína fyrir að virða
réttindi verkamanna og kvenna að
vettugi og heimila barnaþrælkun.
Jiang lýsti því yfir að Kínverjar
myndu staðfesta samninginn um
allsherjarbann við kjarnorku-
sprengingum í tilraunaskyni þótt
öldungadeild Bandaríkjaþings hefði
hafnað honum. Hann tilkynnti enn-
fremur um helgina að Kínverjar
hygðust kaupa 28 flugvélar af Air-
bus Industries fyrir andvirði 175
milljarða króna.
Tugir félaga í Falun Gong
handteknir
Kínverska lögreglan hélt í gær
áfram að þjarma að andlegu hreyf-
ingunni Falun Gong og handtók
nokkra tugi liðsmanna hennar sem
komu saman á Torgi hins himneska
friðar í Peking til að mótmæla nýju
frumvarpi sem kveður á um hert
eftirlit með „villutrúarsöfnuðum".
Kínversk lögregluyfirvöld birtu
einnig skýrslu þar sem félagar í
Falun Gong eru sakaðir um að hafa
stolið og dreift 59 opinbenim leynd-
arskjölum með það að markmiði að
hvetja til uppreisnar gegn komm-
únistaflokknum og stjórninni í Pek-
ing. Talið er að skýrslan sé liður í
undirbúningi réttarhalda yfir for-
ystumönnum Falun Gong.
Pat Buchanan segir sig úr Repúblikanaflokknum
og gengur í Umbótaflokkinn
Sækist eftir
útnefningu sem
forseta-
frambjóðandi
Falls Church, Washington. AP, Reuters.
BANDARÍSKI stjórnmálamaður-
inn Pat Buchanan sagði sig í gær úr
Repúblikanaflokknum og gekk til
liðs við Umbótaflokkinn. Lýsti hann
því jafnframt yfir að hann hygðist
sækjast eftir útnefningu sem fram-
bjóðandí ílokksins í forsetakosning-
unum á næsta ári.
Buchanan, sem er sextugur og
starfaði í Hvíta húsinu í valdatíð
Richards Nixons og Ronalds Reag-
ans, hafði fyrir löngu gefið í skyn að
svona kynni að fara og kom yfirlýs-
ing hans því ekki
á óvart. Fullyrti
Buchanan á
fréttamannafundi
í gær að
Repúblikana-
flokkurinn hefði
yfirgefið hann
með því að snúa
baki við þeim
íhaldssömu gild-
um sem hann
hefði staðið fyrir
í áratugi. „Okkar
rómaða tveggja
flokka kerfi er
orðið að snöru og
blekkingum, svik-
um við þjóðina,"
sagði hann.
Buchanan, sem hefur nokkram
sinnum gefið kost á sér til útnefn-
ingar sem forsetaframbjóðandi
repúblikana, var fagnað af um 300
stuðningsmönnum sínum á fundin-
um. Gagnrýndi hann hlutverk fjár-
málamanna og ítök flokksforyst-
unnar í bandarískum stjórnmálum
og hvatti landsmenn til að koma
saman undii- merkjum „nýrrar föð-
urlandshyggju". Hét hann því að
næði hann kjöri myndi hann ekki
senda bandarískt herlið til að taka
þátt í átökum á erlendri grandu,
nema hagsmunum og öryggi banda-
rísku þjóðarinnar væri ógnað. „Við
munum kalla hermenn okkar heim,
þar sem þeir eiga að vera, og
byggja heraflann og baráttuandann
upp að nýju,“ sagði Buchanan.
Yfirvofandi barátta við
Donald Ti-ump
Frammámenn innan Repúblik-
anaflokksins óttast að verði af fram-
boði Buchanans, muni hann draga
tU sín atkvæði fólks, sem ella hefði
kosið frambjóðanda repúblikana.
Ekki er þó víst að Buchanan hljóti
útnefningu Umbótaflokksins, enda
hafa aðrir lýst yfir áhuga á að
hreppa hnossið. Þeirra áhrifamest-
ur er fasteignajöfurinn Donald
Trump, sem þarf varla að hafa
áhyggjur af fjármögnun kosninga-
baráttunnar.
Trump lýsti því yfir á sunnudag
að hann myndi segja sig úr
Repúblikanaflokknum, sem hann
teldi vera kominn of langt tU hægri.
Kvaðst hann vona að Umbótaflokk-
urinn gæti vaxið og dafnað á miðju
bandarískra stjórnmála og sagði
miklar líkur á því að hann sæktist
eftir útnefningu sem forsetafram-
bjóðandi flokksins. Trump fór
ófögi'um orðum um væntanlegan
keppinaut sinn, en hann kallaði
Buchanan „Hitlersvin" og sakaði
hann um kynþáttafordóma og gyð-
ingahatur.
Stjómmálaskýrendur telja að
keppni Tramps og Buchanans um
útnefningu geti snúist upp í valda-
baráttu á milli Ross Perots, stofn-
anda flokksins, og Jesse Ventura,
fjölbragðaglímukappans sem varð
nýjasta stjarna flokksins er hann
náði kjöri sem ríkisstjóri í
Minnesota á síðasta ári. Flokks-
menn sem halda tryggð við Perot
styðja Buchanan, en fylgismenn
Venturas hallast frekar að Ti-ump.
Pat Buchanan á fréttamannafundi í Falls Church í
gær, þar sem hann tilkynnti um flokkaskiptin.
SÉRVERSLUN MEÐ HLJÓMTÆKI • SKIPHOLTI 25 • 105 REYKJAVIK • SÍMI 51 I 6333 • INFO@ROGB.IS
þig alltaf langað
til að heyra hvað hann er að segja
Við biðjumst velvirðingar á því að
flest hljómtæki okkar hljóma svo
skýrt að þú heyrir gjarnan eitthvað
sem þú áttir ekki von á.
Conrad-Johnson CAV50 lampamagnari
WWW.ROGB.IS
REYNISSON
& BLÖNDAL