Morgunblaðið - 26.10.1999, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 26.10.1999, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 29 Skógar og vötn Finnlands TÖIVLIST G e i s I a p I ö t ii r SIBELIUS Jean Sibelius: Sinfónía nr. 1 í e- moll, op. 39. Sinfónía nr. 3 í C-dúr, op. 52. IBjómsveit: Sinfóníuhljóm- sveit Islands. Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari. Utgáfa: Naxos 8.554102. Lengd: 67’35. Verð: kr. 690 (Japis). ÞEIR sem að jafnaði kaupa sér geisladiska þekkja ábyggilega þá til- finningu vonbrigða þegar nýi diskur- inn sem var að bætast í safnið skilur lítið annað eftir en tómleikatilfinn- ingu. Tónlistin hefur engin áhrif á mann - hvorki góð né vond - bara engin! Platan fer upp í hillu og á það- an oft ekld afturkvæmt. Samt heyrir það til undantekninga að spilamennskan á geislaplötum þeim sem komast á markaðinn sé illa und- irbúin og þar af leiðandi léleg eða að upptakan sé tæknilega slæm. En tónlist er bara allt annað en kerfi af nótum eins og sumir virðast halda. Það eru ill-útskýranlegir hlutir eins og næmi, tilfinningar, skilningur og innsæi sem gerir tónlist að því sem hún er. Og ekki má gleyma spilagleð- inni sem ætíð verður að vera fyrir hendi. Ég hef áður í þessum dálkum lýst ánægju minni með nýútkomnar geislaplötur Sinfóníuhljómsveitar ís- lands. Og það er sérstaklega gleðilegt að geta haldið áfram að gleðjast yfir árangri okkar kai'la og kvenna, „strákanna okkar“, á þessu sviði, því þessi diskur með Fyrstu og Þriðju sinfóníu Sibeliusar vekur tilfinningai’ í bijósti manns. Maður gerir sér grein íyrii- því hve feikilega íín þessi tónlist hins finnska tónjöfurs er. Hún „svínvirkar" undir stjóm Sakaris og hljómsveitin svai-ar einstaklega vel hljómsveitarstjóra sínum, sem greinilega hefur unnið heimavinnuna af kostgæfni. I hinni hárómantísku Fyrstu sin- fóniu (1898) leyfir Sakari sér talsvert frelsi í mótun hendinga og er ekkert feiminn við að mála andstæður í hraða og styrk sterkum litum. Hann nýtur þess greinilega að gefa drama- tíkinni lausan tauminn í þriðja kaflan- um og lokakaflinn er eldglóandi og spennuþrunginn frá upphafi til enda. Undir lok kaflans ber rómantíkin hljómsveitarstjórann gersamlega of- urliði og hann leyfir sér og hljóm- sveitinni bókstaflega að smjatta á breiðri og viðkvæmnislegri laglínunni (nr. 4,8’45 -10’47). Þetta er skemmti- legt og ber vott um mikinn kjark á tímum þar sem tilfinningasemi er næstum skammaryrði. Hin undurfallega Þriðja sinfóma (1905) fær hér óvenju „létta“ með- ferð. Fyrsti kaflinn er spilaður hrað- ar en gengur og gerist og lögð áhersla á bjart yfirbragð hans. Strengjasveitin fer hér á kostum og er sérstaklega velhljómandi og ná- kvæm. Annar kaflinn, sem er reynd- ar eitt fallegasta hljómsveitarstykki Sibeliusai-, er friðsæll og hæfilega þunglyndislegui- í túlkun Sakaris. Engin viðkvæmni hér! Sama má segja um sérkennilegan lokakaflann, sem hefst á stuttu leifturhröðu sker- sói og lýkur á tignarlegu stefi sem ef til vill má helst líkja við sálmastef. Nálgun Sakaris við þriðju sinfóníuna er allt að því andrómantísk og því er túlkunin talsvert frábi’ugðin þeirri fyrstu enda verkin mjög ólík - samin hvort á sinni öldinni. Þótt árin sem skilja þau að séu ekki ýkja mörg eru áratugir á milli þeirra í anda. Þetta skilur Sakari að sjálfsögðu og beitir því allt annaiTÍ túlkun við seinna verkið. Sinfóníuhljómsveit Islands er hóp- ur úrvalshljóðfæraleikara sem ætlar sér að ná árangri í eitilharðri sam- keppni á alþjóðlegum markaði. Hljómsveitin spilar því eins og hún eigi lífið að leysa. Leikur hennar er innblásinn og ákafur og hvað eftir annað fær maður á tilfinninguna að maður sé staddur á tónleikum. Ekki vegna þess að menn geri hér einstaka (og eðlileg) mistök í hita leiksins líkt og á tónleikum heldur vegna þess hve eðlilegur hljóðfæi-aslátturinn er - á útlensku heitir þetta víst „spontan". Upptaka þeirra Bjarna Rúnars Bjamasonar og Þóris Steingrímsson- ar er í hæsta gæðaflokki og tekst þeim að vanda að gera Háskólabíó að miklu betíi tónleikasal en hann er í raun og vem. Því eru 690 krónur íyr- ir miða á tónleika á Islandi sannköll- uð kjarakaup! Enn og aftur: Til hamingju Sinfón- íuhljómsveit Islands! Valdemar Pálsson Silki í Galleríi Nema hvað VERSLUNIN Vefurinn stendur fyrir sýningu á silkiefnum frá Chase Erwin í Galleríi Nema hvað, Skóla- vörðustíg 22c, dagana 25.-30. októ- ber. Chase Erwin er einn af helstu alþjóðlegu framleiðendum sem sér- hæfa sig í silki. Nýja línan inniheldur glitrandi Organza-silki með speglum handsaumuðum í silkið. Hönnuður og eigandi Chase Erwin, er Ragna Erwin. Silkefnin era nýkomin frá sýningu Decorx í London og Index í Dubai. Galleríið er opið frá kl. 10-18. BASTA' f SAsta J£c°ne W/stick sMcone i 0MISSANDIIVETRARAKSTRINUM BASTA BASTA basta de-icer íut&rW mrgr*- ekkert hrím á rúöum engar frosnar læsingar engar frosnar hurðir auðveld gangsetning i kuldanum rakavörn fyrir rafkerfið Olíufélagið hf www.esso.is íþróttir á Netinu v'i> mbl.is ALLTAf= e/TTH\SA£> NÝTl Viðeigum afmæ i í tilefni af 50 ára afmæli okkar bjóðum við glæsilegar vörur á frábæru afmælistilboði út þessa viku. Auk þess kynnum við fjölmargar spennandi nýjungar í rafmagnsrúmbotnum, heilsulatexdýnum o.fl. Verið velkomin í verslun okkar að Skútuvogi 11 og kynnið ykkur eitt fjölbreyttasta úrval dýna og rúmbotna á landinu. AFNIÆLISTILBOÐ 15-30% AFSLATTUR AFMÆLISTILBOÐ Rafmagnsrúmbotnar 15% afsláttur VERSLUfJlN IfSTADÚN SNÆLAND Skútuvogí 11 • Sími 568 5588 SÉRVINNSLA : Svefnsófar og svampvörur eftir máli
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.