Morgunblaðið - 26.10.1999, Page 31

Morgunblaðið - 26.10.1999, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 31 LISTIR Tímarit • HA USTHEFTI Skímis er komið út, 173. árg. í heftinu eru m.a. grein- ar um íslenskar bókmenntir að fomu og nýju, náttúru og þjóðemi, blótsiði fommanna og verald- arvefinn. I greininni Islenska akade- mían: Kotungur í andófi, ræðir Viðar Hreinsson um jarðbundin og al- þýðleg sjónarhom í verkum Steph- ans G. Stephanssonar, Halldórs Kilj- ans Laxness og Bills Holms. Kristín Unnsteinsdóttir skoðar ævintýrið um Kisu kóngsdóttur. I greininni Mannblót í Semnónalundi og á Þórsnesþingi ber Jón Hnefill Aðal- steinsson saman lýsingar á blótsið- um í verkum Tacitusar og í íslensku fomritum. Þá skrifar Guðmundur Hálfdanarson grein um íslenska náttúra. Róbert H. Haraldsson birt- ir í heftinu grein um dauða guðs. Sveinbjöm Rafnsson skrifar um samhengi Marlínusspár og Völuspár og Lóa Aldísardóttir um verald- arvefinn í samskiptum manna. Tvö Skírnismál era í heftinu: Landið, þjóðin, tungan _ og fræðin, eftir Kiistján Amason og Agúst Þ. Amason fjallar um stjómarskrár- festu. Tvær greinar um bækur era einnig í heftinu: Jón Karl Helgason ber saman nýlegar borgarsögur skáldanna RÖgnu Sigurðardóttur, Sjóns, Jóhamars og Jóns Gnarrs og Hermann Pálsson fjallar um bók Helga Guðmundssonar, Um haf inn- an. Skáld Skírnis að þessu sinni er Óskar Ami Óskarsson og era birt eftir hann fjögur framsamin ljóð. Myndlistarmaður Skímis er Ragn- hildur Stefánsdóttir og skiifar Gunnar J. Amason um sneiðmyndir herrnar. Útgefandi er Hið íslenska bók- menntafélíig. Ritstjórar eru Sveinn Yngvi Egilsson og Svavar Hrafn Svavarsson. Hausthefti SMrnis er 280 bls. Bowfínger gerir bíómynd KVIKMYJVDIR Háskólabíó BOWFINGER ★★1/z Leikstjóri: Frank Oz. Handrit: Steve Martin. Aðalhlutverk: Steve Martin, Eddie Murphy, Heather Graham, Terence Stamp, Robert Downey jr. Universal 1999. BANDARÍSKA gamanmyndin Bowfinger segir frá gersamlega lánlausum kvikmyndaframleiðanda í Hollywood, sem aldrei hefur getað gert neitt af viti. Kannski velur hann ekki réttu handritin, sem flest virðast heita eitthvað eins og Hold- ugt regn. Kannski velur hann ekki rétta samstarfsfólkið; tökuliðið er flóttamenn á mexíkósku landamær- unum. Þegar hann ákveður að nota stærstu hasarmyndastjörnu draumaverksmiðjunnar í nýjustu fimmauramyndina sína veit stjarn- anekkiafþví. Gamanleikarinn Steve Martin fer með annað aðalhlutverkið og gerir handrit þessarar geðþekku gamanmyndar um spaugilegar hliðar þess að gera kvikmyndir í Hollywood án þess að eiga krónu. Martin hefur áður farið með hlut- verk hins viðkunnanlega utan- garðsmanns og gerir það vel. Eddie Murphy fer með tvö hlutverk og gerir þeim báðum fín skil. Hann er annarsvegar stórstjarnan, sem haldin er óstjórnlegri ofsóknar- kennd, og hins vegar bjánalegur bróðir hennar, sem stígur ekki í vit- ið. Með þeim er m.a. Heather Gi'a- ham, sem notar líkama sinn ákaf- lega frjálslega til þess að komast áfram í kvikmyndaheiminum, og Terence Stamp en hann leikur dul- arfullan stjórnanda trúarsöfnuðar. Bowfinger er sárasaklaust grín gert íyrir stundargamanið eitt. Leikstjórinn Frank Oz heldur utan um söguna án mikilla tilþrifa og handrit Martins fer stundum langt yfir strikið en það er viðkunnanleg- m- blær yfir myndinni sem tengist lýsingunni á samstöðu undirmáls- fólksins og viðleitni þess til þess að koma sér áfram. Sumir eru í þessu af skefjalausri alvöru og í því ljósi virkar myndin best. Arnaldur Indriðason London frá kr. Helgarferö frá kr. 24.990 Heimsferðir kynna nú einstök tilboð til heimsborgarinnnar London í nóvember og nú seljum við sfðustu sætin í vetur á hreint ótrúlegu verði flugsæti frá aðeins 13.890 krónum. Hvergi í Evrópu er jafnmikið um að vera í listum og menningarlífi og hjá Heims- ferðum getur þú valið um gott úrval hótela, frá 2 - 4 stjörnu og að sjálfsögðu nýt- ur þú góðrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Verð kr. 13*890 Flugsæti með flugvallarsköttum, 8.nóv., 15.nóv. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Verð kr. 24.990 Flug og gisting á Bayswater INn hótel- inu í London með morgunmat. Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600 ♦ www.heimsferdir.is ^ogva/larskattar innifaldir. G,Jdlr 11- nóvember. HEIMSFERÐIR Meginstraumar og undirstraumar Dagný Páll S. Krisljánsdóttir Árdal MEÐAL útgáfubóka Há- skólaútgáfunnar eru Heim- spekisaga eftir Gunnar Skir- bekk og Nils Gilje. Stefán Hjörleifsson þýddi. Saga and Philosophy and Other Essays er eftir Pál Skúlason. Inngangur er eftir Paul Ricoeur. Flestar grein- arnar eru samdar með flutn- ing og birtingu á erlendum vettvangi í huga og fæstar þeirra hafa birst á íslensku. Æska og sagá. Söguvitund íslenskra unglinga í evrópsk- um samanburði eftir Braga Guðmundsþon og Gunnar Karlsson. I bókinni er greint frá því hvernig Islendingar koma út í nýlegri evrópskri könnun á söguvitund og skoðunum ungl- inga. Kristnitakan á íslandi/ Under the Cloak er eftir Jón Hnefil Aðal- steinsson. Þó að svo virðist sem heimildir um kristnitökuna liggi ljósar fyrir er enn margt á huldu um það með hvaða hætti sú saga raunverulega gerðist. Undirstraumar eftir Dagnýju Kristjánsdóttur. í þessari bók er fjallað um bókmenntatexta margra og ólíkra höfunda og rætt um bók- menntasögu á líðandi stund. Fyrirheitna landið. Sögur Bib: líunnar. Jón Þórisson ritstýrði. í því úrvali sem hér er birt hefur ver- ið lögð áhersla á að velja þekkta kafla úr Biblíunni. Tungumál veraldar eftir Baldur Ragnarsson er bók sem tilgreinir þau tungumál veraldar sem þekkt eru. Elskulega móðir mín, systir, bróðir, faðir og sonur. Fjölskyldu- bréf frá 19. öld. Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar. Sigrún Sigurð- ardóttir tók saman. Ritstjórar Sig- urður Gylfi Magnússon og Kári Bjamason. Bók þessi fjallar um bréfaskipti reykvískrar alþýðufjöl- skyldu á síðari hluta 19. aldar. Island á nýrri öld. Gunnar G. Schram ritstýrir. Tuttugu þjóð- kunnir íslendingar skyggnast inn í framtíðina við aldarhvörf og lýsa þeirri framtíð sem þeir sjá að bíði Islands. Svona er ísland í dag eftir Marg- aret Kentta og Gabriele Stautner. Safn greina um íslenskt þjóðlíf, ríkulega myndskreytt. Það er yfir oss vakað. Prédikanir séra Haralds Níelssonar. Safn predikana eftir einn mesta áhrifa- mann í kristnisögu íslands og trúarlífi þjóðarinnar. Hönnun eftir Thomas Hauffe. Magnús Baldursson þýddi. Sögu- legt ágrip hönnunar frá 19. öld og fram á okkar daga. Hávamál í Ijósi íslenskrar menn- ingar eftir Hermann Pálsson. Ein- hver helsti tilgangur Hávamála er að fræða námsfúst fólk um listina að lifa og kenna því að meta vináttu, visku, gestrisni, orðstír, kurteisi, ástir, hófsemi, sælu og örlög. Hafið eftir Unnstein Stefánsson. Skýrir þekkingu okkar á eðli og eig- inleikum hafsins. Maður og menning er eftir Har- ald Olafsson. Fjallað um skilning og skýringar á eðli manns og menn- ingar frá sjónarhorni mannfræð- innar. Söngur steindepilsins. Hólmfríð- ur Gunnarsdóttir ritstjóri. í bókinni er fjallað um reynslu fólks af því að fá krabbamein eða að vera aðstandandi krabbameins- sjúklings: Borg og náttúra er eftir Trausta Valsson. Reykjavík mótaðist, líkt og íslensk menning og búseta, í nánu samspili við höfuðskepnurn- ar jörð, vatn, loft og eld. Maður undir himni. Ung fræði 3., höfundur Andri Snær Magnason. Ritröðinni Ung fræði er ætlað að koma á framfæri framúrskarandi BA-ritgerðum nemenda í ís- lensku og almennri bók- menntafræði við Háskóla Is- lands. Höfundurinn fjallar um trú í ljóðum Isaks Harð- arsonar. Trú í sögum. Studia Islandica 56. Halla Kjartansdóttir fjallar um trúarátök í sögulegum skáldsögum Gunnars Gunnarssonar frá fjórða áratugnum. Umbrot. Bókmenntir og nútími eftir Ástráð Eysteinsson. I umbrot- um era 27 greinar um nútímabók- menntir, íslenskar og erlendar. Passions, Promises and Punish- ment eftir Pál S. Árdal. Þetta er safn greina um heimspeki eftir einn kunnasta heimspeking Islendinga. Heilagra meyja sögur. íslensk rit 13. Kirsten Wolf annaðist útgáfuna. Islenskar þýðingar frá 13. og 14. öld á latneskum sögum um kvendýrl- inga, alls rúmlega 20 talsins. Ræður Hjálmars á Bjargi. Framheimildir í sagnfræði 1 eftir Magnús Stephensen. Örn Hrafn- kelsson sá um útgáfuna. Bók Magn- úsar Stephensens, sem var fyrst gefrn út árið 1820, er byggð á sam- ræðum á milli bóndans Hjálmars á Bjargi og barna hans og er lýsing á þeirri samfélagsgerð sem hann taldi til fyrirmyndar. Vitjun sína vakta^ ber. Safn greina eftir Jón Ólafsson úr Grannavík. Guðrún Ingólfsdóttir og Svavar Sigmundsson ritstýrðu. Ritið veitir sýn á helstu hugðar- og viðfangsefni Grunnavíkur-Jóns. SIEMENS Haust-Búhnykkur! M.. Siemens uppþvottavél . SE 34200 Ný þvottavél fra Siemens WM 54060 Sannkölluð hjálparhella í eldhúsinu. Einstaklega hljóðlát og sparneytin. Fjögur þvottakerfi, tvö hitastig (nauðsynlegt fyrir viðkvæmt leirtau), fjórföld flæðivörn með Aqua-Stop. Þetta er uppþvottavél eins og þú vilthafahana. ^ Á þessu fína verði núna: ^ 49.900 kr. stgr. Berðu saman verð, gæði og þjónustu! Umboösmenn um land allt! Þvottavél eins og allir vilja eignast! • Algjör rtýjung: Sérstakt krumpuvarnarkerfi • Tekur 6 kg • Óvenjustór lúga • 15 þvotta- og sérkerfi • 35 mínútna hraðkerfi • 1000sn./mín. • Allar innstillingar mjög auðveldar • Glæsileg hönnun • Vélin er algjörlega rafeindastýrð • Þvottavirkniflokkur A • Orkuflokkur A • Mjög þýðgeng og hljóðlát þvottavél Á frábæru kynningarverði: ,900 fcr. stgr. á 0SMITH& Y NORLAND Nóatúni 4 • 105 Reykjavík Sími 520 3000 • www.sminor.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.