Morgunblaðið - 26.10.1999, Side 32

Morgunblaðið - 26.10.1999, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LlSTgH TÓNLIST t ----------------------------- “ Langholtskirkja ^ EINSÖNGSTÓNLEIKAR Lög og útsetningar eftir Þorkel ! Sigurbjörnsson, Jón Þórarinsson, i Atla Heimi Sveinsson, Jón Leifs, | Jón Nordal, Ragnar Björnsson, i Hjálmar H. Ragnarsson og Jónas | Tómasson. Margrét Bóasdóttir sópran; Björn Steinar Sólbergsson, orgel. Sunnudaginn 24. október kl. 20:30. r ___________ ' f EFNT var til svokallaðra út- i, gáfutónleika í Langholtskirkju sl. ^ sunnudagskvöld; augsýnilega í til- , efni af nýútkomnum hljómdiski sem i var til sölu í anddyri kirkjunnar. | Tónleikamir voru stuttir, eða ekki : nema um hálfa klukkustund. A móti kom, að lögin á efnisskránni mörg hver voru gulls ígildi, svo litlar ger- semar mannsandans Drottni til dýrðar og sálunni til upplyftingar séu metnar á máli sem nútíminn •f skilur. Jafnvel heiðingjar og efnis- hyggjumenn geta sem kunnugt er haft ánægju af góðri kirkjutónlist, og hér var valið verk í nánast hverju Til dýrðar o g upplyftingar rúmi, ýmist frumsamið eða þjóðlag í vandaðri útsetningu. Margrét Bóasdóttir og Bjöm Steinar Sólbergsson fluttu fyrst þrjú íslenzk þjóðlög, Lilja, Einn Guð í hæðinni og Bænin má aldrei bresta þig, í fallegri orgelumgjörð Þorkels Sigurbjörnssonar. Radd- skipan nýja Langholtskirkjuorgels- ins var notuð á afar smekklegan hátt, jafnt hér sem síðar. Fyrst með dúnmjúkum tréflautupípum, en í sálmforleik Jóns Þórarinssonar næst á eftir við þjóðlagið Jesú, mín morgunstjarna var stefgrunnurinn (cantus firmus) hæfilega undirstrik- aður með kliðmjúku krúmmhomi. Eftir hið snotra lag Askels Jónsson- ar Maríuvers kom spekingslega du- lúðug útlegging Atla Heimis Sveinssonar á ljóði Helga Hálfdan- arsonar, Lærdómstími ævin er; sérkennileg blanda af „lærðum“ barokkstíl og nútímaumhverfi sem ósjálfrátt vekur eftirtekt. Svo var óneitanlega einnig farið um krass- andi litríka orgelmeðferð Jóns Leifs á Faðirvorinu, þar sem sópraninn þurfti að glíma við háa legu, en tókst engu að síður vel upp. Bjöm Steinar fór á kostum í glæsilegri Toccötu Jóns Nordal íyr- ir orgel, sem sviptist á mOli kraum- andi eldgosalýsinga, öi’vadrífu tóna- runa og englakórskenndra líðandi hljóma og tæpti jafnvel á tilhlaupi að fúgubyrjun. Engu síður má segja að Noack-barokkhljóðfærið hafi brillerað í skemmtilegum radda- skiptingum organistans, og má vænta að „Gamli Nói“ verði brátt eftirlæti fimustu orgelleikara, enda hljómfagurt, skýrt með afbrigðum og sem sniðið fyrir hljómburð kirkjunnar. Jón Leifs kom aftur við sögu með þremur sálmalögum. Hið snilldar- lega Vertu Guð faðir, faðir minn hverfur aftur til róta kirkjusöngs með gyðinglegum melismum í söng- línu, sem Margrét fór mjög fallega með. Næstu lög Jóns tvö voru minna unnin í orgeli en þó áhrifa- mikil, sérstaklega Allt eins og blómstrið eina. Fremur hefðbund- inn en vel saminn sálmforleikur Ragnars Bjömssonar við þjóðlagið Himna rós, leið og ljós var afar fal- lega raddvalinn og sunginn, og Guð sem skapar líf og ljós eftir Hjálmar H. Ragnarsson minnti í nærri dans- andi hægri 6/4 pastorale hrynjandi sinni við nútímalegt en kliðmjúkt hljómaval á jólanótt í Betlehem á of- anverðri 20. öld. Joseph Ognibene slóst í hópinn með hornblæstri í síðasta atriði, Magnificat Jónasar Tómassonar, sem sungið var á íslenzku í streym- andi kirkjutónháttaleitri útfærslu og endaði með einsöng sópransins án undirleiks. Allt í forláta góðri og látlausri túlkun þeirra þremenn- inga, sem segja má að hafi einkennt þessa heillandi tónandakt þegar frá upphafi. Ríkarður Ö. Pálsson Ljóð og djass í Kaffíleik- húsinu LJÓÐA- og djassveisla verð- ur í Kaffileikhúsinu í kvöld kl. 21. Lesið verður úr Ijóða- bókum sem út hafa komið hjá Máli og menningu og Forlaginu í ár. Þeir höfundar sem fram koma eru: Arthúr Björgvin Bollason, Gyrðir Elíasson, Jónas Þorbjarnar- son, Sigurbjörg Þrastardótt- ir, Sindri Freysson og Elías Mar. Sigurður Flosason saxó- fónleikari leikur djass, en Sigurður er að senda frá sér djassplötu sem nefnist Himnastiginn. Með Sigurði leika Eyþór Gunnarsson á píanó og Gunnar Hrafnsson á bassa. Morgunblaðið/JEG Sýningargestir þakka Páli Stefánssyni fyrir að lokinni sýningu hans í Winnipeg. Við hlið Páls er Svav- ar Gestsson aðalræðismaður Islands í Kanada. Winnipeg. Morgunblaðid. HÚSFYLLIR var á ljósmynda- sýningu sem Páll Stefánsson hélt í Winnipeg fyrir skömmu. Sýn- ingin var haldin á vegum Þjóð- ræknifélags Islendinga og Nátt- úruskoðunarfélags Manitoba og létu sýningargestir vel af mynd- um Páls. Sýningin var hluti af ellefu sýningum Páls víðs vegar um Kanada, allt frá Vancouver til Halifax. Að sögn Páls hefur ver- ið góð aðsókn á allar sýningarn- ar og bæta varð við aukasýningu í Toronto. „Eg fékk boðið fyrir ári og þó svo ég hafi í raun ekki haft tíma til að fara í þessa ferð þá fannst mér við skulda Vestur-íslending- um að sýna þeim íslenskt lands- Iag áður en þeir gleyma landinu alveg,“ sagði Páll. Sýningargestir létu vel af Páll Stefánsson sýnir myndir í Winnipeg myndum Páls. „Ég hef dáðst að myndum hans í Iceland Review í nokkur ár svo það var skemmti- legt að heyra hann segja frá þeim,“ sagði Geir Olson, Vestur- Islendingur á fertugsaldri. Svavar Gestsson, aðal- ræðismaður íslands í Kanada, ávarpaði gesti að lokinni sýn- ingu og sagði myndir Páls von- andi eiga eftir aðhvefja marga til að heimsækja Island. Milli sýninganna hefur Páli gefist tími til að skoða sig um í Kanada og taka myndir af kanadískri nátt- úru. „Munurinn á Islandi og Kan- ada er sá að heima þarf maður að aka í einn til tvo tíma til þess að finna öðruvísi landslag. Hér þarf maður að aka í fjóra daga áður en landslagið breytist.“ Páll sagðist mjög ánægður með ferðina það sem af er en frá Winnipeg hélt hann til Toronto og þaðan liggur leið hans til Hal- ifax þar sem síðasta sýningin fer fram. „Reyndar var ég sektaður fyr- ir að fara of nálægt skógarbirni með unga. Ég reyndi að útskýra fyrir lögreglunni að það væru engir skógarbirnir á íslandi og ég hefði haldið að þetta væri hundur. Hann sektaði mig samt. Sektarmiðinn verður ágætis minjagripur," sagði Páll. Djasstríó á fyrstu háskólatónleikum Á FYRSTU háskólatónleikum vetrarins í Norræna húsinu á morgun, miðvikudag, kl. 12.30, leika Hilmar Jensson á rafgítar, Jóel Pálsson á kontrabassaklari- nett og Matthías M.D. Hemstock á slagverk. Þeir félagar hafa um árabil leik- ið saman, en aldrei áður sem tríó. Þeir námu allir við Berklee tónlist- arháskólann í Boston og kenna við Tónlistarskóla FÍH. Verkið sem þeir leika á tónleikunum er frum- samið og byggist jafnt á spuna sem skrifuðum fyrirmælum. Verk- ið nefnist Verkur og er í þremur hlutum. Jóel gerði nýverið samning við útgfufyrirtæki Naxos og á næstu mánuðum kemur út hjá þeim geislaplatan Prím en sú plata kom út á Islandi á síðasta ári. Á plöt- unni leika Hilmar og Matthías auk annarra íslenskra djassleikara. Hilmar hefur leikið víða um heim og sent frá sér nokkrar geislaplötur, nú nýlega kom út platan hans Kerfill. Matthías er slagverksleikari og hefur leikið með mörgum hljóm- sveitum, m.a. Sinfóníuhljómsveit Islands og rokksveitinni Unun og á fjölda geislaplatna. Omblíður leikur TOJVLIST L i s t a s a f n í s I a n d s KAMMERTÓNLEIKAR Upphaf tónlistarhátíðar í Musica Antiqua Quatuor Mosaíques flutti verk eftir J.S. Bach, Schumann og Beethoven. Sunnudagurinn 24. október 1999. ÞAÐ má segja að hið mikilfeng- lega verk List fúgunnar, eftir J.S. Bach, hafi hann hugsað sem eins konar uppgjör við samtíð sína. Hann vissi sem var að þær vinnu- aðferðir sem hann hafði lagt metn- að sinn í að kunna sem best, voru ekki lengur taldar áhugaverðar og ný tónhugsun var að verða til og því hætta á að margslungnar kontrapunktískar vinnuaðferðir gætu gleymst. Mosaik-kvartett- inn, sem í efnisskrá er ekki kynnt- ur, nema hvað hljóðfæraleikararn- ir heita, hóf tónleikana á fyrstu fúgunni (Contrapunctus I) í List fúgunnar og að slepptum öllum rómantískum hugleiðingum, er þetta einföld fúga án sérstakts mótstefs eða umsnúnings á stefinu og kemur stefið sjö sinnum fyrir, að lokinni, hefðbundinn framsögu stefsins. Á eftir þessari fallegu fúgu kom sú fimmta (Contra- punctus V) og þar er stefið breytt og ýmist leikið í spegilmynd eða í réttri skipan og auk þess skarað innbyrðis og því er þessi fúga nefnd strettó-fúga. Sjötta fúgan (Contrapunctus VI) er í frönskum stíl og einnig skilgreind sem strettó-fúga en þar er stefgerðin úr þeirri fimmtu notuð en á móti spegilmynd í styttri nótnagildum, sem undir lokin eru sköruð með ýmsum hætti. Síðasta fúgan sem Mosaik-kvartettin flutti var nr. 9, sem er tvöföld fúga, með nýju stefi á móti lengdri gerð aðalstefsins. Flutningur Mosaik-kvartettsins var mjög vel mótaður og mátti vel heyra stefgerðirnar, án þess að of- gert væri í styrk. Þá var flutning- urinn ekki síðri í kvartett op. 41/1 eftir Schumann, sem hann samdi eftir að hafa verið einn og langt niðri og reynt að „drekkja sorgum sínum með bjór og kampavíni", á meðan Clara var á tónleikaferða- lagi um mánaðartíma. Það glaðn- aði yfir tónskáldinu er konan kom heim og um sumarið hóf hann að semja þrjá strengjakvartetta. Það var sá fyrsti, af þessum þremur, sem Mosaik-kvartettinn flutti. Þetta er elskuleg melodísk tónlist, með töluverðum tilþrifum t.d. í Skersó-kaflanum og síðasta kafl- anum, Presto. Þarna gat að heyra fallegt samspil og var t.d. hægi þátturinn mjög fallega fluttur, með syngjandi ljúfum tónblæ. Aðalverk kvöldsins var kvartett op. 135, síðasti kvartettinn eftir Beethoven, magnað verk, sem samtímamenn meistarans kunnu ekki að meta og er sjálfsagt ennþá ekki allra. I fyrsta kaflanum er Beethoven á góðri leið með leysa stefin upp í stutt stefbrot, sem er eins konar forspá um punktastíl- inn hjá Webern. Skersó-formið, sem Beethoven hefur brotið upp, er einnig stuttstefja leikur. í mið- hluta þessa kafla gerir meistarinn nokkuð sem fór í taugarnar á hlustendum, hann endurtekur sama stefbrotið í 50 takta og er það leikið á aðra fiðlu, lágfiðlu og selló en fyrsta fiðla ein tiplar yfir í áttunda- og þaðan af lengri stökk- um. Sérkennileikin heldur áfram í hæga þættinum og í lokaþættinum spyi- Beethoven „Muss es sein“, sem hann hrynklæðir í upphafs- stefinu í hinum hæga inngangi kaflans og leikið er af lágfiðlu og selló. Beethoven þráspyr en í upp- hafi hraða kaflans kemur svarið „Es muss sein“. Þessi kafli er átök meistarns við þá erfiðu gátu, „hvort eitthvað sé, sem verði að vera til“ en verkið í heild er til- raun til að svara spurningunni um hina erfiðu ráðgátu allífsins og telja margir, að hér nái meistarinn að yfirstíga orðlegt merkingar- leysi tónlistarinnar og standi á ög- urbrún þess, að tónlistin skiljist sem orð. Leikur Mosaik-kvartetts- ins var mjög áhrifamikill, túlkunin sterk en aldrei um of. Áhrifamest- ur var leikurinn í „skersóinu" en ákaflega glæsilega mótaður í loka- kaflanum, sem var litaður sterkum andstæðum í styrk og hrynsterku tóntaki, er einnig gat verið óvenju fagur og þýður í hljóman, svo sem heyra mátti sérstaklega í kvartett Schumanns. Þrátt fyrir fallegan leik í Schumann, voru það fúgurn- ar eftir J.S. Bach, sem slógu stóra tóninn og voru óvenju vel leiknar, sérstaklega sú níunda, tvöfalda fúgan, sem er einkar lifandi tónlist j og naut sín sérstaklega í þýðri hljóman Mosaik-kvartettsins. Jón Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.