Morgunblaðið - 26.10.1999, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 26.10.1999, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 35 LISTIR Fjósakona á faraldsfæti BÆKUR F r æ ð i r i t FJÓSAKONA FÓR ÚT í HEIM Sjálfsmynd, skáldskapur og raun- veruleiki í ferðasögum Onnu frá Moldnúpi, eftir Sigþrúði Gunnar- sdóttur. Bókmenntafræðistofnun Háskóla Islands, 1998.126 bls. Prentumsjón: OSS prentþjónusta. ANNA frá Moldnúpi sendi frá sér sjö bækur á árunum 1950-1972, flestar þeirra ferðasögur. Bækur hennar, sem allar voru gefnar út af henni sjálfri, hafa notið vinsælda og eru enn lesnar en um þær hefur hins vegar lítið sem ekkert verið fjallað á bókmenntalegum vett- vangi og höfundurinn ekki ratað í bókmenntasögurit. Nú hefur Sig- þrúður Gunnarsdóttir bókmenntaf- ræðingur gert þar bragarbót á og kom rannsókn hennar á ferðasög- um Önnu út í ritröðinni Ungum fræðum hjá Bþkmenntafræðistofn- un Háskóla íslands fyrir síðustu jól. Ferðasögur hafa löngum verið vinsælt lestrarefni og hefur áhugi fræðimanna á þessu bókmennta- formi farið vaxandi á síðari árum. Þann vöxt má meðal annars rekja til uppgangs svokallaðra eftirlendufræða (post-colonial stu- dies) þar sem samskipti „herra- þjóðar" og nýlendu (eða fyrrum nýlendu) eru í brennidepli en ferðasögur eru einmitt kjörinn vettvangur fyrir rannsóknir á menningarárekstrum og -tilfærsl- um af ýmsum toga. Sem bókmenn- taform ber ferðasagan einnig í sér margbreytilega möguleika til sjálf- stjáningar þess sem skrifar og er þessi þáttur hennar í aðalhlutverki í rannsókn Sigþrúðar. Hún skoðar sögur Önnu fyrst og fremst sem sjálfsævisögulega texta og setur þær í samhengi við slíka texta eftir aðrar konur og kenningar um þá auk þess sem þær eru bornar sam- an bæði við ferðasagna- og ævis- agnahefð. Fræðimenn sem rannsaka sjálfs- ævisöguleg skrif kvenna hafa bent á að dagbækur, bréf og önnur óhefðbundnari form hafi oftar en ekki verið sú leið sem konur velji sér til sjálfstjáningar fremur en hin hefðbundna ævisaga. Þeir telja að krafan um afmarkað og óskipt sjálf í miðju frásagnarinnar sem smám saman leiði í ljós samfellda og heila ævi (sem sé þó aðeins blekking) gangi þvert á sjálfsskilning kvenna og leiðir Sigþrúður rök að því að í ferðasagnaskrifum sínum hafi Anna fundið leið til að skrifa sjálf- sævisögulega án þess að skrifa eig- inlega sjálfsævisögu og má því kannski segja að þarna séu á ferð- inni nokkurs konar dulbúnar sjálf- sævisögur. Niðurstaða Sigþrúðar er sú að sögur Önnu sverji „sig ekki í ferðasagnahefðina nema að efninu til“ því frásagnaraðferð þeirra minni „sterklega á sjálfsæv- isögur annarra kvenna, einkum þeirra sem staðsettar eru neðar- lega í mannfélagsstiganum sam- kvæmt ríkjandi gildismati" (118). Fróðlegur kafli um greinaskrif Önnu og ritdeilur í dagblöðum kynnir hana til sögunnar og verður þar strax ljóst hve rækilega hún skilgreinir sig út frá stétt sinni og kynferði sem al- þýðukonu utan af landi sem eigi ekki upp á pallborðið hjá þeim sem stýri menningar- og þjóð- félagsumræðu dags- ins. Þessi kafli og kaflinn um viðtökur verka Önnu varpa Ijósi á og styðja meginumræðu bók- arinnar um þá mótsagnakenndu sjálfsmynd sem lesa má úr ferða- sögunum. Þar beitir höfundur á sannfærandi hátt kenningum sem meðal annars eru byggðar á skoð- un á sjálfsævisögum bandarískra blökkukvenna þar sem mikils mis- ræmis gætir á milli þeirrar myndar sem textanum er ætlað að draga upp af viðfangi sínu og þess raun- veruleika sem persónan býr við. Myndinni er líkt við styttu sem konan smíðar af sjálfri sér og segir Sigþrúður styttu Önnu frá Mold- núpi vera ferðalanginn, konúna sem „flakkar um heiminn, frjáls og engum háð. Hún er menntuð, menningarlega sinnuð, talar tungu- mál og er rithöfundur. Hún ratar í ævintýri og lendir í erfiðleikum en bjargar sér alltaf sjálf út úr þeim aftur. Raunveruleiki Önnu er hins vegar Island þar sem hún er langt í frá að vera sveipuð nokkrum ævin- týraljóma. Hún er fátæk og ómenn- tuð alþýðukona sem slysast til að gefa út þokkalegar bækur, ef marka má orð þeirra sem rit- dæmdu bækur hennar" (67). Bók Sigþrúðar er skemmtileg aflestrar og röksemdafærslan sannfærandi og skýr en þó má setja spumingar- merki við einstaka full- yrðingar, til dæmis þá að sjálfsævisögur karla fjalli ætíð um opinbert líf eða sögulega atburði (bls. 46). Hér er verið að vitna til tiltekinna kenn- inga um ævisögur karla og kvenna en draga má í efa að ævisögur karla falli allar svo fullkom- lega að hefðinni. Sig- þrúður segir einnig að sjálfið í texta Önnu „sé greinilega sjálf konu, sem kemur sér á fram- færi á sama hátt og aðr- ar konur í öðmm text- um“ en þó bendir hún víða á að það sé ekki aðeins kyn- ferði heldur einnig aðrir þættir eins og litarháttur og þjóðfélags- staða sem móti tjáninguna hverju sinni. Hér er það þó síður en svo ætlunin að andmæla rannsóknum sem sýnt hafa fram á mikinn mun á sjálfsævisögulegum skrifum karla og kvenna heldur einungis að ár- étta þann mismun og fjölbreyti- leika innan hvors hóps sem Sig- þrúður gerir vissulega einnig að umræðuefni í umfjöllun sinni. Það er ánægjuefni að fá vandaða umfjöllun um verk Önnu frá Mold- núpi og óskandi að hér verði ekki látið staðar numið. Að mínu mati væri einnig fróðlegt að skoða nánar ferðasagnaþátt bókanna og þann menningarlega farangur sem föm- konan tekur með sér að heiman og mælir síðan það sem fyrir augu ber við, en sú umræða er tekin upp í kaflanum „Fjósakonan og föður- landið". Fjósakona fór út í heim sýnir glögglega fram á að það ber að skoða bækur Önnu sem sjálf- sævisögulega texta - en um leið eru þær ferðasögur því ferðasagan og sjálfsævisagan þurfa nefnilega alls ekki að útiloka hvor aðra. Kristín Viðarsdóttir Nýjar bækur • SÖGUR af Snæfellsnesi -Páls- ætt undan Jökli-1 Ævir og al- darfar. II Niðjatal Páls Kristjánssonar af Snæfellsnesi er í samantekt Óskars Guðmundssonar. I fréttatilkynn- ingu segir: „Um er að ræða sagnfræði- legt ættfræðirit sem skiptist aðallega í tvo þætti; Ævir og aldafar undir Jökli og niðjatal Páls Kristjánsson- ar. I fyrri hluta bókarinnar er sagt frá ævikjörum og tilurð Pálsættar sem hefur að viðmiði Pál Kristjáns- son bamakarl og kennara (1856- 1921). Sögð er saga hans og móður hans, Guðrúnar Jónasdóttur (Sam- sonarsonar) á síðustu öld. Reynt er að varpa ljósi á ævikjör fólksins og aldafar undir Jökli á þessum tíma. Itarlegur kafli er um forfeður og mæður Páls. Miðlað er af ýmsum þjóðlegum fróðleik af Snæfellsnesi. Einn þáttur bókarinnar fjallar um ættingja sem fóra til Ameríku og annar um konur Páls, þær Kristínu Hannesdóttur og Vilborgu Gísla- dóttur. í niðjatalinu era böm Páls talin upp og niðjar þeirra og tengdafólk. Höfundur hefur unnið að verkinu í mörg ár og víða leitað fanga. Margvíslegar heimildir varpa ljósi á lífsbaráttu fólksins íyrir og eftir síðustu aldamót.“ Utgefandi er Pjóðsaga. Höfund- ur ritar formála og heimildarlýs- ingu í lok bókar. Bókin er 256 bls. Ritnefnd bókarinnar skipa, auk höfundar, Kristján Valdimarsson ogPáll Bragi Kristjónssson. Hafliði Benediktsson sá um umbrotið en Steindórsprent-Gutenberg prent- aði. Bókband: Félagsbókbandið Bókfell hf. Verð 4.900 krónur. Sigþrúður Gunnarsdóttir Páll Kristjánsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.