Morgunblaðið - 26.10.1999, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 26.10.1999, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN Kjarvalsstaðir Innan fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur hefur verið unnið að því að bæta tengsl safnsins við __ . ■ 7 “ grunnskóla á Reykjavíkursvæðinu. Sveinn Guðjónsson ræddi við Olöfu K. Sigurðardóttur um starfsemina og kynnti sér nýsköpunarverkefnið Safnið og samfélagið, sem unnið var af Helenu Guttormsdóttur. Hvað læra skólanemendur á söfnum? • Frumkvæði safnsins getur virkað sem hvati á nemendur til að fræðast • Söfn eru fyrir alla en ekki aðeins einhverja fáa útvalda FRÆÐSLUDEILD Lista- safns Reykjavíkur _ á Kjarvalsstöðum og í Ás- mundarsafni hefur það hlutverk að skipuleggja fræðslust- arf sem ætlað er að auka gildi sýn- inga safnsins. Starfsemin miðar að því að auðga samband sýningar- gesta og þeirra listaverka sem til sýnis eru hverju sinni og mildð lagt upp úr að miðla þekkingu á verkum í eigu safnsins með áherslu á Kjar- val, Ásmund Sveinsson og Eitó þegar fram líða stundir og verk hans komin upp í væntanlegum höf- uðstöðvum safnsins í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Einnig eru unnin fræðsluverkefni í tengslum við aðr- ar sýningar á söfnunum. Innan fræðsludeildarinnar hefur nú um nokkurt skeið verið unnið að því að bæta tengsl safnsins við grunnskóla á Reykjavíkursvæðinu og að sögn Ólafar K. Sigurðardótt- ur, deildarstjóra, er helsta mark- miðið að tryggja að allir nemendur grunnskóla Reykjavíkur fái tæki- færi til að kynnast þeim hluta ís- lensks menningararfs sem varð- veittur er á safninu. „Fyrsta skrefið er að stuðla að því að allir nemendur í 6. bekk grunnskólanna skoði verk Kjarvals, en verk hans eru alltaf uppi að minnsta kosti hluta úr skólaárinu, og nú þegar hefur verið lagður grunnur að því að það gangi eftir, en það var gert mögulegt með sér- stakri fjárveitingu borgarráðs til að treysta samstarf skóla og menning- arstofnana borgarinnar,“ sagði Ólöf aðspurð starfsemi fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur í þessum efnum. Fræðsluhlutverk safna „Þegar rætt er um safnfræðslu er eðlilegt að menn velti þeirri spumingu fyrir sér hvað vaki fyrir söfnunum? Hvers vegna söfnin leggi áherslu á að taka á móti nem- endum og verji tO þess bæði tíma og peningum,“ sagði Ólöf ennfremur. „Eins hlýtur sú spurning að vakna hvort nemendur í grunnskólum eigi eitthvert erindi á söfn? Fræðslu- hlutverk safna er ekki hægt að skýra án þess líta á skilgreiningu orðsins safn. Samkvæmt skilgrein- ingu Alþjóðaráðs safna, (ICOM), er safn varanleg stofnun opin almenn- ingi, sem ekki er rekin í hagnaðar- skyni heldur í þágu þjóðfélagsins og framþróunar og hefur það hlutverk að safna efnislegum heimildum sem snerta manninn og umhverfi hans, standa vörð um þær, rannsaka þær, miðla upplýsingum um þær og hafa þær til sýnis, svo að þær megi nýt- ast til rannsókna, fræðslu og skemmtunar. Samkvæmt þessu er eitt af hlut- verkum safna að miðla upplýsing- um og þekkingu áfram til almenn- ings og markmiðið með safnafræðslu er að lækka þröskuld- inn á milli safna og almennings og hluti af þeirri viðleitni er að bjóða fólki, strax á grunnskólaaldri að njóta þess sem söfn hafa að geyma.“ Með tilvísun út fyrir safnið Ólöf sagði að framsetning fræðsl- unnar væri með ýmsu móti. „Það fer eftir aldri nemenda og eðli sýn- inganna. Við höfum haft að leiðar- ljósi í fræðslustarfinu að framsetn- ing þess hafi tilvísun út fyrir safnið. Vera ekki að velta okkur of mikið upp úr hefðbundinni nálgun mynd- listarinnar, til dæmis hvemig lýs- ingin er í málverkinu og þess hátt- ar, heldur frekar að velta upp þeirri spumingu hvaða gildi verk hafa fyr- ir þann tíma sem þau em gerð í og reyna að tengja þau við það samfé- lag sem þau era sprottin úr. Við varðveitum þann hluta menningararfsins sem er Kjarval og teljum því skyldu okkar að opna leið fyrir grannskólanema að hans verkum og reyna að skýra út hvaða Morgunblaðið/Sverrir Ólöf K. Sigurðardóttir deildarstjóri og Helena Guttormsdóttir sem vann nýsköpunarverkefnið „Safnið og samfélagið". Ungt skólafólk í bakgrunni á sýningunni Borgarhluti verður til. máli Kjarval skiptir fyrir okkar menningarsögu. Ef við tökum dæmigerða heimsókn nemenda úr sjötta bekk granskóla þá hefst hún á því að safnaleiðbeinandi tekur á móti þeim og kynnir þeim safnið, en margir nemendur era kannski að koma inn á safn í fyrsta skipti á æv- inni. Við reynum að benda þeim á að söfn séu fyrir alla, ekki bara ein- hverja fáa útvalda. Því næst er farið á Kjarvalssýninguna og við veljum úr einstök verk til að skoða sérstak- lega, þar sem dregin eru fram helstu myndefni Kjarvals þannig að þau fái innsýn í hans myndheim. Síðan vinna nemendur verkefni þar sem þau era látin taka afstöðu sem listneytendur. Þegar krakkamir hafa unnið þetta verkefni fara þau aftur í gegnum sýninguna með safnaleiðbeinandanum og þá era þeirra viðhorf orðin hluti af leið- sögninni. Að fá nemendur sjálfa til að tjá sig um verkin er afar mikil- vægt að okkar mati.“ Viðbót við skólakennslu Ólöf sagði að hafa bæri í huga að safnafræðsla væri ekki eiginleg kennsla. Hún væri hugsuð sem við- bót við skólakennslu og með henni gæfist kennuram tækifæri til að gefa kennslunni aukna vídd og veita nemendum viðbótarsýn á hinar ýmsu námsgreinar. I aðalnámsskrá grannskóla væra háleit markmið varðandi menningu og þjóðfélag og í nýrri aðalnámsskrá væri aukið vægi fræðilega þáttarins, það er skoðunar, greiningar og mats, í myndmenntakennslu. Einnig kem- ur fram aukin krafa um að nemend- ur sæki söfn og sýningar og að þeir nýti söfnin til upplýsingaöflunar á breiðara sviði en hingað til hefur verið gert. „í námsskránni era skýr fyrir- mæli um að safnaheimsóknir skuli fléttast inn í námið,“ sagði Ólöf enn- fremur. „Söfnin gegna því þýðing- armiklu hlutverki gagnvart skóla- kerfinu og mikilvægt að samfella skapist í samskiptum skóla og safna. Virkari miðlun menningar og lista til nemenda gerir auknar kröf- ur til listasafna um meiri fjölbreytni í framsetningu efnis og í þessu sam- bandi er verið að vinna verkefni á vegum fræðsludeildar Kjarvalsst- aða með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna. Fræðsludeildir safna era í örri þróun og fylgja þar þeim breyting- um sem era að verða á sviði upp- lýsingamiðlunar og tölvutækni. Þó að þessi þróun eigi vafalaust eftir að hafa mikil áhrif mun hún aldrei koma í staðinn fyrir heimsókn í safn. Okkar hlutverk er að uppfylla þá þörf sem hveijum og einum er eðlileg til að njóta menningar og lista og liður í því er að þroska með grannsólkanemendum betri með- vitund um listir og jafnframt hvetja þá til að vera opna og reiðubúna til að horfa á lífið frá mörgum sjónar- hornum," sagði Ólöf K. Sigurðar- dóttir deildarstjóri fræðsludeildar. Safnið og samfélagið Við fræðsludeild Kjarvalsstaða hefur í sumar verið unnið að nýs- köpunarverkefni sem ber heitið „Safnið og samfélagið". Starfsmað- ur við verkefnið er Helena Gut- tormsdóttir myndlistarmaður og kennari, en verkefnið er unnið fyrir styrk úr nýsköpunarsjóði náms- manna. Að sögn Helenu fólst verk- efnið fyrst og fremst í að skoða og komast að niðurstöðu um nokkra aðskilda þætti sem tengjast innra starfi fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur, breytingum á náms- skrá og nýjum tæknimöguleikum. „Upplýsingarnar og niður- stöðurnar, sem verkefnið skilar, ættu að skýra og skerpa sýn fræðsludeildar á þá vinnu sem unn- in hefur verið og í hvaða átt vænlegt er að beina áherslum innan deildar- innar. Þannig hef ég unnið við að gera fræðilega og hagnýta úttekt á sviðum innan fræðsludeildar safns- ins, greint væntingar til safna í nýrri aðalnámsskrá grannskóla, reynt að skilgreina hlutverk safna, eins og Listasafns Reykjavíkur, fyrir íslenska grannskólakerfið og komið með hugmynd að skilvirkari miðlun á þeim upplýsingum sem safnið geymir, með stefnu mennta- málaráðuneytisins varðandi upplýs- ingatækni í huga,“ sagði Helena að- spurð um umfang verkefnisins. Helena sagði að eitt af því sem fræðsludeildin hefði gert til að skoða þjónustu sína væri að leggja viðhorfskönnun fyrir þá kennara sem komu með nemendur í safnið á ákveðnu tímabili síðastliðinn vetur. „Við úrvinnslu úr könnuninni kom meðal annars í Ijós greinileg fylgni milli þess hvemig safnið kynnir sýningar inn í skólana og þess hverjir koma. Til dæmis kynnti fræðsludeild Kjarvalsstaða sér- stakt verkefni fyrir sjötta bekk í tengslum við Kjarvalssýningu í safninu. Af þeim kennuram sem svöraðu könnuninni vora 43% að koma með sjötta bekk. Þetta sýnir augljóslega hvemig framkvæði safnsins getur virkað sem hvati inn í skólana og haft úrslitaáhrif á það hverju nemendur kynnast á safn- inu. Þá er það umhugsunarvert að 44% nemendahópanna voru í sinni fyrstu vettvangsferð á listasafn," sagði Helena Guttormsdóttir. Alþjóðasamtök kvenna í fræðslustörfum Evrópuþing í Hollandi FYRSTA Evrópuþing Delta Kappa Gamma, sem eru al- þjóðasamtök kvenna í fræðslu- störfum, var haldið í ágúst síðast- liðnum í Breukelen í Hollandi. Sjö íslenskar konur sóttu þingið og voru þijár þeirra með fræðsluer- indi. Guðný Helgadóttir, deildar- stjóri í menntamálaráðuneytinu, fjallaði um súnenntun, dr. Sigrún Klara Hannesdóttir, yfirmaður NORDINFO í Finnlandi, sagði frá rannsókn á lestrarvenjum og netnotkun íslenskra bama og Sigrún Jóhannesdóttir ráðgjafi fjallaði um samskiptamöguleika í rafrænu formi auk þess sem hún sagði frá tveimur tölvuverkefnum í skólum. Þau eru verkefni Her- dísar Egilsdóttur um kennsluað- ferðina „Nýtt land - ný þjóð“ sem miðast við yngri böm og verkefni Hörpu Hreinsdóttur um víkinga- túnann fyrir framhaldsskólanem- endur. Vöktu erindin mikla at- hygli. Evrópuþing Delta Kappa Gamma verður haldið á fslandi árið 2003. Delta Kappa Gamma-samtökin vom stofnuð af konum í Banda- ríkjunum árið 1929 og em því 70 ára á þessu ári. í samtökunum sem starfa í 14 Iöndum em nú rúmlega 150 þús. konur. Fyrsta deildin á Islandi, Alfa- deild, var stofnuð í Reykjavík árið 1975. Á íslandi em nú starfandi 8 deildir víðsvegar um landið með um 190 félagskonur. Nýjasta deildin, Þeta-deild, var stofnuð siðastliðið haust á Suðumesjum þar sem landsþing var haldið í maí sl. Nýkjörinn forseti lands- sambandsins er Sigríður Jóns- dóttir. Meginstefna Delta Kappa Gamma er að stuðla að auknum fræðilegum og persónulegum þroska kvenna í fræðslustörfum og gæðum í menntun og upp- eldisstörfúm, að því er fram kem- ur í fréttatilkynningu frá samtök- unum. Meðal sjö helstu markmiða samtakanna er „að efla tengsl kvenna sem vinna að fræðslu- störfum víðs vegar í heiminum" og „að stuðla að æskilegri laga- setningu og styðja framgang hvers konar viðleitni til hagsbóta fyrir menntamál almennt og fyrir konur í fræðslustörfúm“. Styrkur samtakanna er að í hverri deild eru konur með fjöl- breytta menntun og starfssvið, kennarar, prófessorar og sljóm- endur í íjölmörgum skóla- og menntastofnunum landsins. Hver deild býr því yfir víðtækri þekk- ingu og reynslu á sviði mennta- og menningarmála. Sigrún Jóhannesdóttir, fyrrverandi forseti landssambandsins, Sigríður Jónsdóttir, núverandi forseti, og Christina Lindqvist frá Svíþjóð, forseti Evrópudeildar DKG. ..........'Tí'
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.