Morgunblaðið - 26.10.1999, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 26.10.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 39 smanna í skýrslunni er bent á að vinna verði áfram að útfærslu á núverandi launa- kerfi, en eitt af markmiðum þess sé að taka í auknum mæli tillit til aðstæðna í hvená stofnun fyrir sig og vinnufram- lags og færni starfsmanna. Einnig sé nauðsynlegt að skoða hvort það fyrir- komulag sem nú tíðkast við ákvörðun launa forstöðumanna samræmist nógu vel þeirri þróun sem átt hefur sér stað í launamálum hins opinbera. Nálægð við yfirmann skiptir miklu Könnunin leiðir í ljós að starfsmenn fámennari stofnana eru almennt ánægðari með stjórnun stofnunarinnar sem þeir starfa hjá en starfsmenn stærri stofnana. Jákvæð afstaða til stjórnunar virðist þannig fylgja ná- lægð við æðsta yfirmann. Niðurstöð- urnar gefa til kynna að starfsmenn telji nálægð stjórnenda við starfsfólk stuðla að betri upplýsingamiðlun til starfsmanna og meira samráði við þá um ákvörðunartöku. Að mati starfsmanna höfðu for- stöðumenn góða faglega þekkingu, báru hag stofnunarinnar fyrir brjósti, treystu starfsfólki og veittu því umbun í samræmi við það. Aberandi var að starfmenn töldu umbun ekki í samræmi við árangur sinn í starfi og er það óháð stærð og tegund stofnun- ar. Eitt úrlausnarefni sem bent er á í skýrslunni varðar áhrif starfsmanna á stjórnun stofnana. Þar segir að vinna þurfi að bættri upplýsingamiðl- un innan stærri stofnana og auknum áhrifum starfsmanna á ákvarðana- töku. Ómar bendir jafnframt á að skapa þurfi farveg sem tryggir að starfsmenn fái að tjá sig og einna helst þurfi að styrkja starfsmanna- stjórnun hjá stórum stofnunum. Það er í takt við það sem er að gerast er- lendis, þar sé verið að finna nýjar leiðir til að stjórna stofnunum og regluveldi sem byggjast á boðvaldi séu að verða úrelt. Nú sé almennt lit- ið svo á að yfirmenn þurfi að vera leiðtogar sem líta á starfmannahóp- inn sem liðsheild og starfar saman að settu markmiði. Annar hver ríkisstarfsmaður sæk- ir endurmenntunarnámskeið I könnuninni kemur fram að nokkuð virðist skorta að vandað sé til ráðninga hjá sumum stofnunum. Umtalsverður hluti ríkisstarfsmanna sem þátt tóku í könnuninni þekkti dæmi um að ráðið hefði verið í starf hjá stofnuninni á öðrum forsendum en hæfni umsækj- enda. í skýrslunni er lagt til að skoðað verði hvort ástæða sé til þess að setja nánari reglur um það hvernig staðið skuli að ráðningum og skipun ríkis- starfsmanna. Ómar bendir á að hér sé um að ræða upplifun starfsmanna en staðfestir jafnframt að fáar reglur séu til um hvernig eigi að standa að ráðn- ingum. Ríkisstarfsmenn eru fremur vel menntaður hópur. Hlutfall háskóla- menntaðra er töluvert hærra meðal þeirra en á vinnumarkaðinum í heild, eða 43%. 45% hefur framhaldsskóla- eða starfsmenntun og 12% grunn- menntun eingöngu. Ríkisstarfsmenn eru jafnframt duglegir að sækja sér endurmenntun og gefa niðurstöður könnunarinnar til kynna að annar hver ríkisstarfsmaður sæki endurmenntun- arnámskeið árlega. Er það heldur hærra hlutfall en þekkist á almennum vinnumarkaði. Háskólamenntaðir ríkisstarfsmenn sóttu slík námskeið í meira mæli en aðrir og þátttaka virðist aukast með lengri starfsaldri. Þá töldu þrír af hverjum fjórum sem sóttu slík nám- skeið að hæfni þein’a í starfi hefði auk- ist í kjölfarið og kom sú afstaða sterkast fram meðal háskólamennt- aðra starfsmanna. Þó virðist sjaldgæft að endurmenntun leiði til breytinga á starfssviði eða til stöðu- eða launa- hækkunar nema samið hafi verið um slíkt fyrirfram. í skýrslunni er bent á að bæta þurfi fræðslu- og enduimenntunarmál stjórnenda ríkisstofnana þannig að þeir séu betur færir um að takast á við aukna ábyrgð og flóknara starfsum- hverfi. Einnig að taka þurfi meira mið af starfsmarkmiðum stofnana við skipulagningu á símenntun ríkisstarfs- manna og styðjast þurfi við nýjar að- ferðir í starfsþróunarmálum. Tækifærið sem Banda- ríkjamenn glötuðu Hvelfingin mikla í London, sem helguð verður menntun á nýju árþúsundi. Höfundur eftirfarandi greinar, sem birtist í The Washington Post sl. sunnudag, er James Reston yngri, höfundur bókarinnar „Síðasti heimsendir: Evrópa um árið 1000“. Hér talar hann til landa sinna, Bandaríkjamanna, sem hann sakar um andlegan doða varðandi væntanleg árþúsundamót, og setur fram nokkrar hugmyndir um það, sem gera ætti. Vill hann m.a., að þeim Leifi Eiríkssyni og Guðríði Þorbjarnardóttur verði gert jafn hátt undir höfði og Kólumbusi. EKKI er lengur neinum blöðum um það að fletta, að þessi þjóð er búin að missa af því tækifæri, sem er ár- þúsundamótin. Það vantar ekki blaðr- ið um tölvuvandann, um hégóma eins og hvort árþúsundið byrji árið 2000 eða 2001, um áhyggjur af kampavíns- bii-gðum eða tilstandinu á Times- torgi og á Mall en víst er, að Banda- ríkjamenn eiga ekki eftir að upplifa neitt eftii-minnilegt þegar þar að kemur. Hugmyndaleysið er algjört hvert sem litið er, hjá stjórnmála- mönnum og fræðimönnum, pi’estum og fjölmiðlum. Við verðum að horfa til annarra þjóða ef við viijum finna eitthvað, sem glatt getur hug og hjarta. Til Englands, Italíu, Israels, jafnvel bara til Kanada. Arþúsundamót eiga að vera tími íhugunar og endurskoðunar. Tákn- rænir tíma kalla á táknrænar athafnir og tímamót af þessu tagi geta öðlast merkingu ef þau verða tilefni til nýrrar og frumlegrar hugsunai’. Það er ekki hægt að hugsa sér betra tækifæri en árþúsundamót til að láta sig dreyma um framtíðina og gera upp við fortíð- ina. Það skiptir máli fyrir framtíðina að sættast við fortíðina, það leysii’ úr læðingi ímyndunaraflið og draumana. Bandarískir listamenn og hugsuðir, þeii’, sem byggja upp, og skyggnast fram á vegginn ættu að vera í sviðs- ljósinu en það hefur ekkert verið gert til að virkja þá. Afleiðingin er sú, að auðugasta og voldugasta þjóðin á jarðríki mun leggja lítið sem ekkert af mörkum. Bandarískir stjórnmála- menn tala um árþúsundamótin eins og koffínlaust tvö hundruð ára afmæli og láta sér nægja að uppnefna yfir- standandi framkvæmdii’ og kalla þær „árþúsunda-11 þetta eða hitt. Stjórn- völd fá enn eitt tækifærið til að tala um „forna frægð“ og „sjálfstæðisyfir- lýsinguna" enda lætur það vel í eyrum og meiðir engan en hefur bara ekkert að gera með tímamótin framundan. Hvar eru fræðimennirnir? Árþúsundamótin ættu að vera okk- ur tilefni til nýrrar uppfræðingar en hvai’ eru lærimeistararnir? Hvar eru sagnfræðingarnir og heimspeking- arnir, skáldin og prestarnir, sem geta vísað okkur fram á veginn? Við ei’um með forseta, sem hefur orðið sér til skammar og er því ófær um að lyfta anda heilar þjóðar á þessari sögulegu stund. Hér er enginn menningari’áð- herra eða annar fullti’úi lista og mennta, sem komið getur í stað Clint- ons. Hillai’y, sem átti að sjá um þessi mál og hleypti af stokkunum Árþús- undaráði Hvíta hússins til að „hvetja til margvíslegi'a framkvæmda og at- hafna í anda okkar sögulega og menningai’lega ai’fs“, er nú á kafi í holræsamálunum í Schenectady, New York. Árþúsundamótin ættu að vera okk- ur tilefni til að hoi’fa um öxl gagnrýn- um augum. Sjáum hvað sú „guðlega“ stofnun kaþólska kirkjan er að gera. Hún ætlar að minnast þeirra með því að ganga í gegnum sögulegan hreins- unareld. Til að öðlast sáluhjálp og til að búa sig betur undii’ þriðja árþús- undið ætlar hún að horfast í augu við skugga fortíðarinnar: Við Galileo, Jan Húss, Jóhönnu af Örk og við dapui’- lega þögnina um gyðingaofsóknirnar á dögum síðari heimsstyrjaldar. Horfst í augu við fortíðina Skyldi þessi þjóð þui’fa á slíkum hreinsunareldi að halda? Yrði það svo erfitt fyrir okkur að gera upp við for- tíðina, við þi’ælahaldið og þjóðarmorð- ið á indíánum og finna einhvei’ja að- ferð til að færa þessa drauga inn í þjóðarvitundina? „Japanskar afsakan- ir“ enx ekki okkar háttur en með góð- um vilja og dálítilli útsjónarsemi ætt- um við að geta fundið viðunandi lausn. Fyrir nokkrum vikum fengum við ágætt dæmi um viðurkenningu af þessu tagi, er tekinn var grunnur að safni á Mall, sem helgað verður am- erískum indíánum. Kannski verður það okkai’ merkOegasta framlag til ái-þúsundamótanna enda tOheyi’ðu 600 ár af síðustu 1.000 árunum fi’um- byggjum landsins, indíánum. Engum datt jxó í hug að tengja safnið væntan- legum tímamótum og Clinton-stjórn- in hafði ekki fyrir því að hafa þá með í í’áðum um hátíðahöldin. Ef við bregðum 1.000-ára kíkinum á sögu okkar og mannkynssöguna, hlýtur það að hvetja okkur til að leita nýrra leiða. Bandai’ískir fi’æðimenn hafa þó sái’alítið um þetta fjallað. Bækurnar, sem gefnar hafa verið út um ái’þúsundaskiptin, ei-u fáar og lít- ilvægar. Eina undantekningin er um- fjöllun U.S. News um áx’ið 1000 en önnur tímarit og fjórai’ helstu sjón- varpsstöðvarnar hafa einblínt á þessa öld en ekki árþúsundið enda er það myndin, sem er upphaf og endir alls hjá þeim. Kii'kjan og Opinberunarbókin Jafnvel hin kristna kirkja virðist undarlega treg til að flagga sínum eigin texta enda eru áhyggjur manna af yfirvofandi ragnarökum samofnar Nýja testamentinu. Innan kirkjunnar er vissulega rætt og í’itað um burðartíma Krists og í sambandi við það hvenær öldinni ljúki en það er ekki rætt um það, sem ætti kannski að ræða. Það er eins og kirkjan fyi’irverði sig fyrir Opinber- unarbókina og telji hana jafnvel hættulega. I Rétttrúnaðarkirkjunni er aldrei lesið úr henni fyi’ir altari vegna þess hve auðvelt er að túlka hana með ólíkum hætti. I kaþólsku kii’kjunni er hún hluti af tíðagerðinni á þriggja ára fresti og hana ber ekki upp á næsta ári. Bandarískir prestar þora ekki að glíma við táknmál Opin- berunarbókai’innar af ótta við að ýta undir nýjan David Koi’esh eða aðra slíka söfnuði. Þessar hrífandi dæmisögur skulu bara áfram vera uppspretta, sem skáldsagnahöfund- ar geta ausið af. Bi’etar í fai’arbroddi Hér er sem sagt enga leiðsögn að hafa og því verðum við að beina sjón- unum eitthvað annað. Bretar ei’u augljóslega í fararbroddi. 1992 skip- uðu þeir nefnd, sem fékk það verk- efni að skilgi’eina hvað árþúsunda- mótin væru; hvernig skyldi halda upp á þau og hvernig skyldi greiða fyrir það. Bresk stjónvöld ætla að nota tækifærið til að hreyfa við allri þjóðinni. Fyrir hagnaðinn af rík- islottóinu verður hverjum bæ og hvei’ju þorpi boðið að hressa upp á leikhúsið, bæjargarðinn eða söguleg minnismerki og gera það að sínu framlagi á þessum tímamótum. Tony Blair forsætisráðherra hefur flutt fyrirlestur um árþúsundamótin við Oxford-háskóla og ái’þúsundahvelf- ingin, sem er stæi’ri en Georgíuhvelf- ingin í Atlanta og eingöngu helguð menntun, er næstum fullbúin í Greenwich. Settur hefur vei’ið upp fræbanki og í hann verður safnað fræjum alls staðar að úr heimi til að sýna margbreytileika lífsins á þess- um tíma. Póstþjónustan breska ætlar að gefa út fi’ímerki til að minnast uppfinningamanna, könnuða, skemmtikrafta, verkmanna og vís- indamanna í breskri sögu. Bi’etar ei'u ekkei’t feimnir við að halda því fi-am, að almenningur eigi heimtingu á „ár- þúsundaupplifun". Hvað er að gerast í Bandai’íkjunum? Ekkert. Þótt seint sé má kannski vax-pa fram nokkrum hugmyndum. Bandan'kin eru eina vestræna rík- ið, sem hefur engan menningai’ráð- herra eða einhvern, sem fer með mál- efni þjóðararfsins. Ef við viljum verða fulltrúar einhvers annars en auðs og valda, jú og lýðræðislegra hugsjóna, á nýrri öld, þá verðum við að hætta að ókyrrast í hvert sinn sem „menninguna" ber á góma. Við eigum að líta á árþúsundamótin sem ferm- ingu, sem manndómsvígslu og nú fá- um við gott tækifæri til að huga betur að upphafinu. Leifur og Guðríður Bandai’íkjaþing samþykkti 1892 að gera 12. október að Degi Kólumbus- ar, sem hefði „fundið" Amei'íku, en hann fann ekki Ameríku. Hann fann nokkrai’ eyjar í Karíbahafi og hófst síðan handa við að hneppa hina inn- fæddu í þrældóm. Það er því engin furða þótt margir skammist sín fyrii’ þennan dag, sem litið er á sem dúsu upp í Bandaríkjamenn af ítölskum ættum og er almennt minna virtur en nokkur annai’ hátíðisdagur. Sýnt hefur verið fram á með rann- sóknum, m.a. kolefnisrannsóknum, að það voru aðrir Evrópumenn, sem fundu Ameríku miklu fyrr, norræni landkönnuðurinn Leifur Eiríksson árið 1000. I Kanada hefur verið komið upp þjóðgarði í L’Anse aux Meadows til minningar um fyrstu byggð víkinga þar. Það er líka al- mennt viðurkennt, að þriðja Vín- landsferðin var að undirlagi Guðríð- ar Þorbjarnai’dóttur, eiginkonu bróður Leifs, en hún bjó um tíma á Manhattan-eyju og átti þar fyi-sta evrópsk-amei’íska barnið, sem vitað er um. <* Þingið hefur samþykkt Vínlands- fund Leifs og ætti því að bi-eyta fyrrnefndum degi í Dag landkönnuð- anna. Leifi Ein'kssyni og öði’um þeim, sem könnuðu Ameríku, á að gei’a jafn hátt undir höfði og Kól- umbusi og jafnvel Guðríði Þorbjarn- ardóttur líka. Á þessum degi ætti líka að minnast könnuða okkar tíma, geimfaranna. NASA, bandai’íska geimferðastofnunin, ætti að nefna næstu geimferjuferð eftir Leifi Ei- ríkssyni til að vekja athygli á þessu nýmæli. Hættum öllu fánýtu hjali og efnum til almennilegrar umræðu um þá merkingu, sem árþúsundamótin geta haft fyrir okkur Bandaríkjamenn. Á þessari ögurstund fléttast fortíð og framtíð saman á mikilfenglegan og dulai’fullan hátt. Látum þetta tæki- færi ekki úr gi-eipum okkar ganga í kampavínsþoku og glampanum frá ■ • mislyndum tölvuskjá.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.